Morgunblaðið - 13.01.2002, Qupperneq 46
FRÉTTIR
46 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Grensásvegur 22 - Til leigu
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
sími
533 4200
FRÁBÆR
STAÐSETNING
Vandað verslunar-, skrif-
stofu- og lagerhúsnæði alls
446 fm til leigu. Húsið
stendur á mjög áberandi
stað við fjölfarna umferðar-
götu. Góð aðkoma og bíla-
stæði. Húsnæðið skiptist
þannig: Verslunarhúsnæði
á 1. hæð, 122 fm, skrifstofur á 2-og 3 hæð, 244 fm. Lagerhús-
næði á jarðhæð, ca 80 fm. Allar nánari upplýsingar hjá Ársölum.
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
OPIN HÚS
HÖRPUGATA 12 – LITLA SKERJAFIRÐI
Falleg og mikið endurn. 3ja herb.
íbúð á efri hæð í tvíbýli með sérinn-
gangi. 2 rúmgóð svefnherb. Stór og
rúmgóð stofa. Hús hefur mikið ver-
ið endurnýjað á undaförnum árum
t.d. þak, rafmagn, pípulagnir og fl.
Fallegt útsýni. Toppeign á frábær-
um stað. Áhv. 3,8 millj. húsbr. Verð
10,9 millj.
Sigríður Lára sýnir eignina frá kl. 14–17 í dag, sunnudag.
RÓSARIMI – GRAFARVOGI – LAUS STRAX
Falleg 89 fm 3ja herb. íbúð á efri
hæð í Permaformhúsi. Sérinngang-
ur. Tvö rúmgóð herb. Stór og björt
stofa. Risloft yfir íbúðinni. Góðar
innr. Stór lóð. Upphitaðar gang-
stéttar. Stutt í alla þjónustu. Íbúðin
getur losnað strax. Áhv. 4,5 millj.
Húsbréf 5% vextir. Verð 10,7 millj.
Baldvin sýnir eignina frá kl. 14-17 í dag, sunnudag.
SKAFTAHLÍÐ 42
Hörkugóð 130 fm sérhæð á besta
stað í Hlíðunum. Tvær stórar og
bjartar stofur með útgang út á suð-
ursvalir. Hjónaherbergi með miklum
skápum. Tvö rúmgóð barnaher-
bergi. Hol er mjög rúmgott með
skápum og góðri vinnuaðstöðu.
Baðherbergi er ný standsett með
baðkari og innréttingu. Eldhús er
mjög rúmgott með eikarinnréttingu og stórum borðkrók. Áhv. 6,2 millj. Í
Byggsj. og húsbr. Verð 17,1 millj.
Kári og Rannveig taka á móti ykkur í dag frá kl. 13.00-16.00.
Staðarhvammur
19, Hafnarfirði
Í einkasölu glæsilegt rað-
hús í Hvömmunum. Húsið
er alls 254 fm með inn-
byggðum bílskúr. Vandað-
ar innréttingar og gólfefni.
Fallegt hús að utan.
Steinunn tekur
vel á móti gestum.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18
OPIÐ HÚS Í DAG
Vandað einstaklega vel skipulagt
einbýlishús á 2. hæðum m. ca 37
fm innbyggðum bílskúr. Góðar
innréttingar. Fallegur garður m.
stórri timburverönd. Heitur pottur,
4 rúmgóð svefnherb. og 3 góðar
stofur. Parket. Áhv. hagst. lán.
8,7 m. V. 22,8 m.
Þórey og Steinar taka á móti áhugasömum í
dag sunnudag frá kl. 14-17. 7576
www.valholl.is -
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vorum að fá í einkasölu ca 160 fm
einbýli á ca 2000 fm lóð á fráb.
stað. Húsið er að miklu leiti end-
urnýjað að utan sem innan með
timburverönd og heitum potti.
Glæsil. eldhús og baðherb. Opið
hús verður í dag frá kl. 13-16.
Guðbjörg (s. 699-8408) tekur á
móti þér og þínum. 7512
Funafold 3 - einbýli
Vatnsendablettur 70 A (grænt hús) -
glæsilegt einbýli
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
HEIMATÚN - ÁLFTANES
Vorum að fá þetta einstaklega fal-
lega bjálkahús á þessum fallega og
friðsæla stað. Húsið sem er á
þremur hæðum er alls um 153 fm.
og er fallega innréttað. Góður
möguleiki er á að hafa séríbúð á
neðstu hæðinni. Fallegt útsýni til
sjávar og sveita. Húsið stendur á
rúmgóðri hornlóð sem jafnframt er eignalóð. 39 myndir á
www.borgir.is. V. 17,9 m. 4672
HULDUBORGIR
Mjög falleg og rúmgóð 4ra her-
bergja íbúð á efstu hæð í Huldu-
borgum í Grafarvogi. Íbúðin er
með sérinngangi 4ra herbergja
106,2 fm auk þess góður inn-
byggður bílskúr. Mjög fallega inn-
réttuð íbúð með uppteknum loft-
um, rúmgóð stofa og gott útsýni. Hús og umhverfi allt full frág.
Allar upplýsingar á Borgum fasteignasölu í síma 588 2030
LEIKLESTUR verður í Listaklúbbi
Þjóðleikhússins annað kvöld, mánu-
dagskvöld, kl. 20.30 og þá kemur í
fyrsta skipti fyrir almennings sjónir
svo vitað sé leikrit eftir eitt þekktasta
skáld okkar Íslendinga, Steingrím
Thorsteinsson. Leikritið nefnist Eld-
húsdagurinn eða Ekki er allt sem
sýnist.
Það er leikhópurinn Bandamenn
sem stendur að flutningnum en hóp-
inn skipa Borgar Garðarsson, Felix
Bergsson, Jakob Þór Einarsson, Stef-
án Sturla Sigurjónsson og Þórunn
Magnea Magnúsdóttir og Guðni
Franzson, en leikstjóri er Sveinn Ein-
arsson og flytur hann jafnframt inn-
gang.
Merk viðbót í
bókmenntasöguna
Steingrímur Thorsteinsson var eitt
ástsælasta og afkastamesta skáld
okkar Íslendinga á ofanverðri 19. öld,
vinur séra Matthíasar, Sigurðar mál-
ara og annarra menningarmanna
þess tíma og hafa varðveist merkileg
bréfasöfn af skrifum milli þeirra.
Hann var amtmannssonur frá Stapa á
Snæfellsnesi, var við nám og störf í
Kaupmannahöfn í nærfellt tuttugu ár
eftir stúdentspróf, en kom síðan heim
og gerðist kennari í fornmálunum við
Latínuskólann í Reykjavík og lauk
ferli sínum sem rektor skólans. Auk
ljóðagerðarinnar fékkst Steingrímur
mikið við þýðingar bæði á ljóðum og
eins á nokkrum öðrum þekktustu
verkum heimsbókmenntanna, Þús-
und og einni nótt, Lé konungi eftir
Shakespeare og Sakuntala eftir Kali-
dasa. Skáldbróðir hans, Hannes Pét-
ursson, hefur ritað ævisögu skáldsins.
„Eldhúsdagurinn er klassísk kóm-
edía, glettilega vel skrifuð, þar sem
Steingrímur tekur upp þráðinn frá
Sigurði Péturssyni, fyrsta íslenska
leikritahöfundinum. Hann deilir á Ís-
lendinga sem göptu yfir öllu dönsku,
og er ekki erfitt að finna svipuð fyr-
irbæri í nútímanum, þar sem menn
halda að kalla allt upp á ensku sé upp-
hafning fyrir okkur. Einmitt á sama
tíma og aðrar þjóðir eru að gera sér
grein fyrir hversu mikil auðlegð er
fólgin í menningarlegri fjölbreytni.
Það er heilmikill broddur í þessu leik-
riti, þó það sé fyrst og fremst ætlað til
skemmtunar,“ sagði Sveinn Einars-
son leikstjóri.
Að sögn Sveins er leikritið trúlega
samið á fyrstu árum Steingríms í
Kaupmannahöfn, milli 1850 – 1860, og
Landsbókasafnið keypti handritið ár-
ið 1914 úr dánarbúi Steingríms.
„Engar heimildir eru til um flutning á
því og fáir hafa vitað af tilurð þess svo
þetta verður líklega frumflutningur á
mánudagskvöldið. Þetta leikrit er
bókmenntasögulega stórmerkilegt
vegna þess að þar er lýst bæjarsam-
félagi á Íslandi en þau fáu leikrit sem
til eru frá seinni hluta 19. aldar lýsa
bændasamfélagi þess tíma. Þarna er
lýst heimili íslensks faktors og per-
sónur verksins eru Íslendingar og
Danir. Mér þykir ljóst að Steingrímur
hefði orðið mjög hlutgengt leikskáld
ef hann hefði skrifað meira. Hann
kunni að byggja upp og vinna úr efni-
viðnum. Steingrímur samdi eitt annað
leikrit á skólaárum sínum. Það er rev-
íukennt gamanleikrit sem heitir Uni-
formsmissirinn. Trúlega var það flutt
í Lærða skólanum þó ekki hafi ég
fundið heimildir sem geta þess sér-
staklega.“
Leiklesturinn á mánudagskvöldið
er að sögn Sveins sviðsettur að því
marki að flutningurinn er eins lifandi
og aðstæður leyfa. „Við tökum okkur
ekki mjög hátíðlega og viljum
skemmta áhorfendum eftir föngum.“
Leikflokkurinn Bandamenn í Listaklúbbnum
Frumflytja leikrit eftir
Steingrím Thorsteinsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikflokkurinn Bandamenn leikles 150 ára gamalt leikrit Steingríms
Thorsteinssonar í Listaklúbbnum á mánudagskvöld.
♦ ♦ ♦
REYKJAVÍKURAKADEMÍAN
efnir til annarrar rannsóknastefnu
sinnar 18. janúar kl. 15–18, í húsnæði
Akademíunnar á Hringbraut 121 (4.
hæð) í Reykjavík.
Fjallað verður um framlagðar til-
lögur um endurskipulagningu á
rannsóknamálum hér á landi. Erindi
flytja Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, Steinunn Kristjánsdóttir,
formaður stjórnar ReykjavíkurAka-
demíunnar, og Vilhjálmur Lúðvíks-
son, framkvæmdastjóri Rannsókna-
ráðs Íslands. Þátttakendur í pall-
borði sem og aðrir ráðstefnugestir
munu taka þátt í umræðunni.
Rannsóknastefnunni er ætlað að
vera umræðuvettvangur um rann-
sóknir á Íslandi, aðstæður fræði-
manna til rannsókna og forsendur
fyrir virku fræðasamfélagi.
Rannsóknastefnan er öllum opin
og aðgangur ókeypis, segir í frétta-
tilkynningu.
Menntamála-
ráðherra á
rannsókna-
stefnu