Morgunblaðið - 13.01.2002, Síða 49
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 49
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Heimisdóttir 465 1117
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
EINU sinni var indversk-ur fursti. Hann átti tvosyni. Dag einn ákvaðhann að sá vitrariþeirra myndi erfa ríkið
eftir sinn dag. Hann lét þá báða
hafa ákveðna fjárupphæð og
sagði þeim að kaupa eitthvað,
sem fyllt gæti stærsta hallarsal-
inn.
Sá eldri fór strax að leita.
Hann vantaði eitthvað sem var
ódýrt og fyrirferðarmikið. Og á
torginu sá hann mann, sem var
að selja hálm. Hann keypti allt
sem fáanlegt var, en þegar í höll-
ina kom varð ljóst, að mikið vant-
aði upp á að salurinn fylltist.
Þegar sá yngri hafði tekið við
peningunum, gekk hann afsíðis
og settist niður og tók að velta
fyrir sér hvað best væri að gera.
Eftir nokkra umhugsun fann
hann lausnina. Hann keypti stór-
an lampa og bar hann logandi inn
í miðjan salinn, eftir að dimmt
var orðið. Myrkrið vék, því ljósið
fyllti nú hvern afkima.
Yngri sonurinn hafði reynst
vitrari og eignaðist því ríkið eftir
dag föður síns.
Mér datt þessi saga í hug, þeg-
ar ég var að pæla í hvað ég ætti
að skrifa um í dag, í miðjum jan-
úar, þessum að mörgum finnst
snautlega mánuði, þegar dimman
og fábreytnin er svo mikil, að
varla er hægt að segja að nokk-
urn tíma birti af degi, og einu
blómin sem vaxa frá náttúrunnar
hendi eru frostrósir.
Það veldur engum ótta samt
því aftur hækkar sólin gang
og lífsins gleði gefst á ný
við grænnar jarðar opið fang.
Og kátur fugl úr fjarska heim
á forna slóð mun leita senn,
en fólkið varpa vetrarham
og verða eins og nýir menn.
Þetta segir Eysteinn G. Gísla-
son, bóndi í Skáleyjum á Breiða-
firði, í einu af fjórum erindum
ljóðsins Skammdegi, í bókinni Ís-
lensk alþýðuskáld, sem út kom
árið 1990. Og þetta er sannarlega
rétt. Því skemmsti dagur ársins
er þegar liðinn hjá samkvæmt
almanakinu, og dimman tekin að
víkja – enn fengin vissa fyrir því,
að myrkrið verði ekki ljósinu yf-
irsterkara, heldur muni nóttlaus
vorheiðríkjan koma á ný innan
skamms, í öllu sínu veldi. Og það
er ekki svo langt í þann tíma.
Hrafninn fer bráðum að safna í
laup og verpa, og farfuglar að tín-
ast að landinu. Og e.t.v. er sá
fyrsti nú þegar kominn, sílamáf-
urinn. Yfirleitt hafa menn þó
vænst komu hans í febrúar/mars.
Þetta orð, skammdegi, er í
raun og veru, samkvæmt Orða-
bók menningarsjóðs, einkum haft
um tímann frá síðari hluta nóv-
embermánaðar fram yfir miðjan
janúar, en einhvern veginn er
þessi fyrsti mánuður ársins
þyngri mannfólkinu í skauti en
hinir. Þótt allir búi mánuðirnir
yfir ákveðnum sjarma, er erfitt
fyrir hina ellefu að keppa við
þann tólfta, með birtu hans og
gleði. Meira að segja páskarnir
ná ekki að toppa það; lítið barn í
jötu á sterkari ítök í hjörtunum
en saga um tóma gröf.
Og janúar geldur þessa meir
en aðrir; í nóvember er tilhlökk-
unin í aðventu og jól t.d. svo mikil
að hún ein nær að feykja myrkr-
inu burt, en í byrjun nýs árs er
spennunni lokið. Þetta er dálítið
ósanngjarnt. Þó er hinum fyrsta
mánuði ekki alls varnað; á þess-
um árstíma hafa mörg andans
stórmenni fæðst, Albert
Schweitzer 14. janúar 1875,
Benjamin Franklin 17. janúar
1706 og Wolfgang Amadeus Moz-
art 27. janúar 1756, að fáeinir ein-
staklingar séu nefndir. Og ekki
má gleyma, að þetta er jólamán-
uður grísk-kaþólsku kirkjunnar.
Víst er það, að allt sem á jörðu
vex og dafnar, gerir það í krafti
sólarljóssins. Og það er gott að
vera spakur að viti, eins og yngri
sonur indverska furstans, og átta
sig á því, hvers ljósið er megnugt
andspænis skuggum þessa lífs.
En muna skyldum við jafnframt
og ávallt, að allt ljós, bæði það
sem kemur frá sólu, og annað,
sem við tendrum, hvort sem er á
kerti eða lampa, er samt hverfult,
eins og raunar öll hin sýnilega
veröld; bara dauft endurskin hins
eilífa. Eða eins og eitt skálda
landsins hefur ort:
Án kærleiks sólin sjálf er köld,
og sérhver blómgrund föl,
og himinn líkt og líkhústjöld,
og lífið eintóm kvöl.
En ljósið sem við heyrðum um
og fögnuðum og lutum á nýaf-
stöðnum jólum, er öðruvísi; það
er annars heims frá öndverðu, of-
ið úr guðlegri elsku. Þess vegna
skiptir ytra rökkur hins nýbyrj-
aða árs litlu máli, ef grannt er
skoðað, og janúar mætti því alveg
taka gleði sína, enda ekkert á
hann að klaga, þegar upp er stað-
ið. Það er nefnilega birtan hið
innra sem gildir. Ef hjarta þitt er
upplýst af þeirri orkulind, sem á
rætur í hásæti almættisins, ef
andleg næring þín er komin um
þá taug, ef sálin er björt og hlý,
þá ertu í góðum málum. Því lífið,
sem Jesús gefur mönnunum hlut-
deild í, er ekki undirorpið neinni
hnignun; það er ævarandi. Ljós
hans mun aldrei þrjóta, aldrei
deyja, aldrei bregðast.
Aldrei.
Morgunblaðið/Ómar
Skammdegi
Allur boðskapur kristinnar trúar gengur út á
eitt og hið sama, að ljósið og ylurinn hafi sigr-
að myrkrið og kuldann. Á það vill Sigurður
Ægisson benda, nú á miðjum vetri, í fábreyti-
leika og gráma skammdegisins.
saeson@islandia.is
Góð byrjun hjá Jónasi og Sveini
í nýárstvímenningi BA
Nýtt starfsár Bridsfélags Akur-
eyrar hófst á svokölluðum nýárství-
menningi sl. þriðjudagskvöld.
Sveinn Pálsson og Jónas Róbertsson
tóku nýja árið með
trompi og höfðu mikla yfirburði.
Lokastaða efstu para:
Sveinn – Jónas 64,3%
Örlygur Örlygsson – Reynir Helgason 57,8%
Hans Viggó – Sveinbjörn Sigurðsson 56%
Pétur Guðjóns. – Stefán Ragnars. 55,8%
Þá fór Íslandsbankamótið fram
milli jóla og nýárs og þar voru Stefán
Stefánsson og Skúli Skúlason í
mesta stuðinu. Lokastaðan:
Stefán – Skúli 60,5%
Haukur Harðarson – Haukur Jónsson 57,0%
Sveinn Pálsson – Jónas Róbertsson 56,8%
Eyþór Gunnarss. – Þorst. Friðrikss. 56,3%
Páll Þórsson – Sigurbjörn Haralds. 56,2%
Næsta mót Bridsfélags Akureyrar
er aðalsveitakeppni félagsins. Spil-
aðir verða 16-spila leikir, allir við
alla. Einnig er spilað á sunnudags-
kvöldum og eru allir velkomnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
26 pör í Gullsmára
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á 13 borðum að Gullsmára 13
fimmtudaginn 10. janúar. Meðalskor
264. Efst vóru:
NS
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj. 324
Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónasson 319
Helga Ámundad. – Hermann Finnbogas. 296
AV
Stefán Ólafss. – Sigurjón H. Sigurjónss. 331
Sigurður Björnss. – Auðunn Bergsv. 299
Karl Gunnarss. – Kristinn Guðmundss. 294
Eldri borgarar spila brids að Gull-
smára 13 alla mánudaga og fimmtu-
daga. Skráning kl. 12.45 á hádegi.
Svæðismót Norðurlands
vestra í sveitakeppni
Svæðismót Norðurlands vestra í
sveitakeppni í brids fer fram á Sauð-
árkróki helgina 19. og 20. janúar nk.
Fyrirhugað er að mótið hefjist kl. 10
stundvíslega laugardaginn 19. jan-
úar. Keppnisfyrirkomulag helgast af
þátttöku. Keppnisgjald er 10.000 kr.
á sveit.
Mótshaldari er Bridsfélag Sauðár-
króks og spilastaður er Fjölbrauta-
skólinn við Sæmundarhlíð.
Spilað er um þátttökurétt í undan-
úrslitum Íslandsmótsins. Þátttaka
tilkynnist eigi síðar en miðvikudags-
kvöld 16. janúar nk.
Þátttaka tilkynnist Ásgrími Sigur-
björnssyni, sími 453 5030, eða Jóni
Erni Berndsen, sími 453 5319, net-
fang joel@simnet.is.
T-sett
aðeins 650 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
Veggklukka
aðeins 2.000 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
ATVINNA mbl.is