Morgunblaðið - 13.01.2002, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG RAK augun í bréf um daginn, frá
Zíon, vinum Ísraels. Það sem greip
mig var einmitt þetta orð: vinir. Það
er félag skoðanabræðra Ísraels-
stjórnar á Íslandi sem titla sig vini
Ísraelsmanna. Ég er sjálfur næstum
því algjörlega á öndverðum meiði við
skoðanir þess fólks, það er að segja
þeirra er fylgja zíonisma, en tel mig
þó vin Ísraelsmanna. Þá spyrja
margir hvernig er hægt að vera vin-
ur þeirra sem margir líkja við
skrímsli. En þá spyr ég á móti: Eru
Ísraelsmenn ekki hluti af mannkyn-
inu? Og ber okkur sem teljum okkur
vita betur í þessari hatrrömmu deilu
Palestínumanna og Ísraelsmanna
ekki að vilja öllum vel, eða er það
ekki markmið okkar sem mannúðar-
sinna?
Ástæða deilunnar, og það hljóta
allir að sjá, jafnvel formaður Zíon, og
veggurinn í vegi lausnar er hefnd á
báða bóga. Ísraelsmenn segjast ekki
hætta fyrr enn Palestínumenn hætti.
Hver sem er getur séð að svona leys-
ist deilan auðvitað ekki. Báðir aðilar
fremja morð og skiptir engu hvort
þar eru börn í veginum eða fullorðn-
ir og báðir aðilar neita að sjá hlið
hins. Formanninum láðist að geta
þeirra skipta þegar Ísraelsmenn
urðu uppvísir að barnamorðum enda
getur sjálfsafneitun verið sterkur
kraftur myrku hliðar manneskjunn-
ar. Ekki skal heldur það gleymt að
allir hafa einhvern tímann verið lítil
börn og er engin afsökun að bíða þar
til börnin verða fullorðin og drepa
þau síðan; öll morð eru morð. Ariel
Sharon forseti Ísraels getur heldur
ekki verið hamingjusamur. Þú kaup-
ir ekki hamingju með því að útrýma
þjóðum eins og hver heilbrigður
maður sér. Það er líka skammarlegt
að gera þetta í nafni guðs og almætt-
isins. Ef ég viðurkenndi Ladda sem
guð og gerði síðan eitthvað slíkt í
nafni hans held ég að eitthvað yrði
sagt, þá sérstaklega Laddi sjálfur.
Guð Ísraelsmanna er þó vinsælli en
Laddi og því er þetta athæfi leyft;
eins konar vinsældakeppni guða.
Ísraelsmenn hafa líka stóra, þykka
bók til að skýla sér bak við ef einhver
hreyfir andmælum.
Vinir vilja vinum sínum vel, eins
sjálfsagt og það er. Sem vinur Ariels
Sharon vil ég veita honum hamingju
sem og öðrum vinum mínum. Ég get
gert það með því að leiðbeina hon-
um. Hann er afvegaleiddur, þrjóskur
maður sem neitar að snúa til baka.
Ég reyni þó að gera það sem ég get
til að vísa honum og fylgismönnum
leiðina til sannleikans og hamingj-
unnar. Það gerir mig að góðum vini.
Ég vil nota það sem ég hef lært af
Dalai Lama og segja þessi orð: Sek-
úndubrotið þegar þú tapar samúð
þinni gagnvart þeim sem gerir þér
illt, þá verður þú sannarlega óvinur
óvinar þíns.
FINNUR GUÐMUNDSSON,
nemi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð,
Skeiðarvogi 135, Reykjavík.
Vinir
Frá Finni Guðmundssyni:
RAFSTÖÐVARVEGUR, 110
Reykjavík, er svo í borg settur að
einboðið er fyrir fólkið að sækja nán-
ast alla þjónustu í Árbæjarhverfið.
Þetta kostar akstur – þúsundir km
á ári, í biðröðum við mörg umferð-
arljós í hverri ferð. Áður var akst-
urinn helmingi styttri og á fáfarinni
leið. Nú munu tvö ár síðan nokkrir
þar tilkvaddir íbúar við Rafstöðvar-
veg ræddu við gatnamálastjóra og
óskuðu þess að fallið yrði frá lokun á
leiðinni frá Rafstöð upp í Árbæjar-
hverfi. Þessu var illa tekið og skýr-
ingar ekki skiljanlegar fyrir ófag-
lærða.
Einn ganginn svaraði borgarverk-
fræðingur f.h. borgarstjórans, en
það reyndist aðeins vinsamlegt „af-
þvíbara“ svar: Hverfin tvö ekki
skipulögð sem heild – því skal ekki
tengja! Verið nú ánægð í forréttinda-
hverfinu ykkar!
Síðan hefur, en án árangurs, verið
leitað skriflega til borgarstjórans
vegna þessa herfilega máls.
Þetta opna bréf, sem hér birtist,
er ákall til borgarstjórans um að
hlutast til um lausn á mikilvægu
hagsmunamáli fólksins í Rafstöðvar-
hverfi (ásamt þvi að draga úr um-
ferðaröngþveiti bæði á Bíldshöfða og
á Höfðabakkabrú) Minnt er og á
mikið óhagræði í rekstri Rafstöðvar
og Garðyrkjustöðvar vegna um-
ræddrar lokunar.
Fólkið telur málið auðleyst og
raunar á marga vegu.
Beðið er um málefnalegt svar.
BJARNI KRISTJÁNSSON,
Rafstöðvarvegi 27, Reykjavík.
Opið bréf til borgar-
stjórans í Reykjavík
Frá Bjarna Kristjánssyni:
Taska
aðeins 750 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
Veggklukka
aðeins 2.000 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is