Morgunblaðið - 13.01.2002, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2002 61
Sýnd kl. 1.50 og 3.50.
Mán. 3.50. Ísl. tal. Vit 320
Sýnd kl. 12.
2 fyrir 1
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 12, 3 og 6. Ísl. tal. Mán 3 og 6. Vit 325
Sýnd kl. 12 og 10 E. tal. Mán 10. Vit 307
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
Vit 319
Frumsýning
Rafmögnuð
spennumynd
þar sem allt
er lagt undir
Sýnd kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.15. B. i. 16. Vit 329
Mánudagur kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Enskt tal. Vit 321
Mánudagur 6 og 8.
Sýnd kl. 10.15.
B. i. 16. Vit 324
Kvikmyndir.com
DV
1/2
Kvikmyndir.is
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
1/2
Kvikmyndir.is
Tvöfaldur Óskarsverð-
launahafi í magnaðri
mynd sem þú verður að
sjá og munt tala um.
„Leikararnir standa sig einstaklega vel, ekki aðeins
stórleikararnir Spacey og hinn óviðjafnanlegi Bridges,
heldur er valið af slíkri kostgæfni í hvert og einasta
aukahlutverk, að minnir á Gaushreiðrið.“
SV MBL
Frumsýning
Rafmögnuð
spennumynd
þar sem allt
er lagt undir
Sýnd kl. 3.30, 5.50, 8 og 10.15. B. i. 16. Vit 329
Mánudagur kl. 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20. Vit 327
Mánudagur kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 4 og 6.Mán kl. 6.
1/2
Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 10. B. i. 14
Hverfisgötu 551 9000
Stórverslun á netinu www.skifan.is
SV Mbl
MOULIN
ROUGE!
Hausverkur
Sýnd kl. 8 og 10.30.Sýnd kl. 4, 6 og 8. Mán kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
„Sterk, áhugaverð
og tímabær“ SJ
Yndisleg rómantísk gamanmynd í anda Sleepless in
Seattle. John Cusack (Americas Sweetheart´s) og Kate
Beckinsale (Pearl Harbor) hafa aldrei verið betri.
Örlög með kímnigáfu...
Getur einu sinni á ævinni gerst tvisvar?
l ...
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Mánudagur 6, 8 og 10.
Drepfyndin mynd um
vináttu, stinningarvandamál
og aðrar bráðskemmtilegar
uppákomur! Framlag Svía til
Óskarsverðlauna.
Frumsýning
sprenghlægileg því hann er við það
að skella uppúr, að virðist bara við til-
hugsunina.
„Ætti ég?“ spyr Astin og hefur
greinilega ekkert á móti því.
„Hún er þannig að mjög fljótlega
eftir að ég tökur hófust þá fékk ég
persónulega sendingu frá aðstoðar-
forstjóra Gillette í Ástralíu þar sem
hann óskaði mér til hamingju með
hlutverkið og með fylgdi nýjasta
gerðin af rakvél frá þessum risa í
skeggskurðarbransanum. Þar sem
ég stóð fyrir framan baðspegilinn að
raka mig með nýju rakvélinni fór ég
að velta fyrir mér hversu frábært það
yrði að leika í rakvélaauglýsingu. Tók
ég mig því til þá um daginn á töku-
staðnum og bjó til eitt stykki slíka
auglýsingu þar sem ég horfði íbygg-
inn í myndavélina, nýrakaður og
flottur og sagði: „Hæ, ég heiti Sean
Astin. Ólíkt leikurum þá vex Hobbit-
um ekki grön. Þegar ég leik Hobbita
og þarf ætíð að vera með nýrakaðan
og rassmjúkan vangann þá vel ég að-
eins það besta – Gillette.““ Hobbit-
arnir skella allir uppúr af fullkominni
einlægni jafnvel þótt blaðamaður sé
þess fullviss að þeir hafi heyrt Astin
segja þessa sögu oftar en einu sinni.
Hvað var erfiðast við það að taka
þátt í gerð myndarinnar?
„Vinnuálagið var gríðarlega mik-
ið,“ segir hinn 25 ára Monaghan með
vönduðum enskum hreim og furðu al-
varlegur miðað við það sem á undan
hafði gengið. „Í þá 16 mánuði sem
tökur stóðu yfir unnum við 6 daga
vikunnar frá því eldsnemma á
morgnana, langt fram á kvöld. Það
var því orðið allstrembið að greina á
milli einkalífsins og vinnunnar og
maður var eiginlega á endanum orð-
inn að Hobbita allan sólarhringinn.
Ég veit ekki hvort við hefðum ráðið
við þetta álag ef andinn á tökustað
hefði ekki verið svona góður og vin-
skapurinn sem myndaðist okkar á
milli svo sterkur.“
„Þreytan og heimþráin hvarf al-
gjörlega þegar maður leiddi hugann
að því hversu ómetanlegt það væri að
taka þátt í svo tilkomumiklu verk-
efni,“ bætir hinn 33 ára gamli Boyd
inn í með sterkum skoskum hreim.
Báðir voru þeir Monaghan og
Boyd nær algjörlega óþekktir leikar-
ar þegar þeir fengu hlutverk sín og
höfðu einungis leikið lítið hlutverk í
óþekktum breskum myndum og sjón-
varpsþáttum.
„Ég hef alltaf átt mjög erfitt með
að sitja kyrr,“ segir Astin og virðist
sannarlega hafa rétt fyrir sér því
hann hefur verið eins og fló á skinni
síðan viðtalið hófst. „Ég er fullur af
orku og ég átti mjög bágt með mig
með öll þessi aukakíló utan á mér. Í
ofanálag fór hræðilega langur tími í
að hlaða utan á mig gervi, eyrum,
hári og tám. Ég drap tímann á meðan
á því stóð með því að lesa 30–40 end-
urminningar og bækur um sögu kvik-
myndanna. Þetta reyndi mjög á þol-
inmæðina. Á meðan sat Sir Ian
McKellen við hliðina á mér sallaró-
legur, þolinmæðin uppmáluð – sann-
ur fagmaður.“
Alltaf í gríninu
Hvernig varð ykkur um þegar þið
fenguð þessi risahlutverk, Dominic
og Billy?
„Í fyrstu var þetta eins og að fá
hvert annað hlutverk,“ svarar Mon-
aghan fyrst, að venju yfirvegaðri og
alvörugefnari en hinir. „Málið er að
ég kveikti hreinlega ekki strax á því
hversu stórt þetta dæmi væri, hverjir
meðleikararnir myndu vera. Þegar
það gerðist féllust mér náttúrlega
hendur.“
Boyd segist hinsvegar hafa brugð-
ist við af heldur meiri tilfinninga-
þunga. „Mér var sagt í gegnum síma
að hlutverk Pípins væri mitt og það
leið yfir mig!“ segir hann alvörugef-
inn. „Sem var alveg ferlegt því ég var
að keyra. Ég lenti á spítala. Það var
frábært.“ Alltaf í gríninu þessir Skot-
ar og hópurinn skellti uppúr.
„Nei, í alvöru talað þá var þetta
frábært og ég felldi tár.“
Höfðuð þið lesið Hringadróttins-
sögu áður en þið fenguð hlutverkin?
„Satt að segja þá kláraði ég ekki að
lesa hana fyrr en ég hafði fengið hlut-
verkið. Ég hafði gert heiðarlega til-
raun til að lesa hana fyrir nokkru.
Tók hana með mér í sumarfrí en
missti hana í sundlaugina á fyrsta
degi,“ segir brandarakarlinn Boyd og
kemur hópnum enn og aftur til að
skella rækilega uppúr.
„Pabbi hefur lengi verið einlægur
aðdáandi bókanna og les þær hvenær
sem honum gefst tími til,“ segir
Monaghan. „Hann var alltaf að segja
mér að ég yrði að lesa þær og það
endaði með því að hann hálfpartinn
rak mig til þess. Því byrjaði ég á því
með hangandi haus en varð mjög
fljótlega heltekinn og var því orðinn
dyggur unnandi þegar ég fékk hlut-
verkið og ég veit að ég á eftir að verða
eins og pabbi, lesa þær hvenær sem
ég kemst í það, það sem eftir er ævi
minnar.“
„Ég hafði aldrei heyrt minnst á
Hringadróttinssögu þegar umboðs-
maðurinn minn sagði mér að sækja
um hlutverk Sáms,“ segir Astin. „Því
las ég handritið á undan og sökkti
mér einvörðungu ofan í þátt Sáms í
sögunni. Svo las ég bækurnar upp til
agna á tökustaðnum og féll gjörsam-
lega fyrir þeim.“
„Ég hafði lesið Hobbitann sem
barn og átti Hringadróttinssögu allt-
af upp í hillu,“ segir Wood. „Hins-
vegar dreif ég mig aldrei í að lesa
hana og skammast mín fyrir það nú.
En auðvitað las ég hana eftir að ég
fékk hlutverk Fróða.“
„Ég er þannig að það virðist ekkert
sitja eftir í hausnum á mér sem ég
les,“ segir Astin af einlægri hrein-
skilni. „Elijah er á hinn bóginn algjör
páfagaukur og það virðist allt límast
við heilann sem hann les. Því reiddi
ég mig mjög á vitneskju hans og er
honum þakklátur fyrir.“
„Þakka þér kæri félagi,“ svarar
Wood hólinu auðmjúkur.
Kostir Hobbitanna
Hvað lærðuð þið af reynsluboltum
á borð við Sir Ian Mckellen, Sir Ian
Holm og Christopher Lee?
„Það er ekki annað hægt en að líta
upp til þessara manna og dást að
vinnubrögðum þeirra,“ segir Wood.
„Það sem sló mig mest er hversu
jarðbundnir þeir eru, hversu auðvelt
þeir áttu með að umgangast okkur
sem jafningja og vini fremur en ein-
hverja reynslulitla pjakka.“
Monaghan segir McKellen hafa
sagt við sig að þegar hann líti um öxl
sé honum langdýrmætastur sá vin-
skapur sem myndast jafnan á töku-
stað, að hafa kynnst öllu þessu ólíka
og hæfileikaríka fólki. „Eins og hann
sagði mér réttilega þá erum við öll
leikarar að leika í sömu myndinni.
Þetta er gott að hafa hugfast.“
En lærðuð þið eitthvað af Hobbit-
unum?
„Svo sannarlega.“ Monaghan er
fyrstu til að svara. „Hobbitar búa yfir
einlægu sakleysi. Þeir eru unnendur
allra hollra nautna eins og matar,
skemmtunar og félagsskapar. Kunna
að njóta lífsins. Okkur svipaði til
þeirra þegar við byrjuðum á mynd-
inni en núna erum alveg eins og þeir,“
segir hann og brosir í kampinn.
Það er klárt mál að hér eftir verði
þið álitnir Hobbitar af fólki, sérstak-
lega börnum?
„Ef svo er þá er það sannur heiður
fyrir okkur og vonandi getum við
staðið undir þeirri ábyrgð sem því
fylgir,“ segir Astin hrærður.
„Ég sé það núna þegar þú segir
það,“ bætir Wood við, „hér eftir eig-
um við alltaf eftir að vera álitnir
Hobbitar. Svalt maður!“
Ljósmynd/Halldór Kolbeins
Þegar Hobbitarnir í föruneytinu hittust í Cannes höfðu þeir ekki sést í nokkurn tíma, eða síðan tökum lauk.
skarpi@mbl.is
’ Hæ, ég heiti Sean Astin. Ólíkt
leikurum vex
Hobbitum ekki
grön. Þegar ég leik
Hobbita og þarf ætíð
að vera með nýrak-
aðan og rassmjúkan
vangann vel ég
aðeins það besta –
Gillette. ‘