Morgunblaðið - 25.01.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 525 3000 • www.husa.is
4.495kr.
Bita- og borasett 112 stk
Verð áður 6.337 kr.
Verkfæra
dagar
Verðlaun FÍT
Byggja undir
faglegan metnað
FÉLAG íslenskrateiknara veitir við-urkenningar í hin-
um ýmsu flokkum greinar-
innar, annað árið í röð, í
Listasafni Ásmundar
Sveinssonar í dag. Félagið
er nú orðið 49 ára gamalt,
og á sér því alllanga sögu.
Formaður FÍT er Ástþór
Jóhannsson og svaraði
hann nokkrum spurning-
um Morgunblaðsins í vik-
unni.
Segðu okkur fyrst eitt-
hvað frá FÍT...
„Félagið er stofnað 23.
nóvember 1953 á vinnu-
stofu Halldórs Pétursson-
ar, en þar voru ásamt hon-
um samankomnir Ásgeir
Júlíusson, Atli Már Árna-
son, Jörundur Pálsson og
Stefán Jónsson. Auk þeirra teljast
til stofnfélaga Tryggvi Magnús-
son og Ágústa Pétursdóttir Snæ-
land. Fljótlega bættust í hópinn
Hörður Ágústsson, Eiríkur Smith
og fleiri. Félaginu var ætlað að
gæta hagsmuna teiknara og bæta
kjör þeirra. Styrkja og efla at-
vinnugreinina, leiðbeina um fag-
leg efni, lögfræðileg álitamál og
auka menntun teiknara. Eins og
íslenskt þjóðfélag hefur breyst á
undanförnum fimm áratugum þá
hefur félagið tekið margvíslegum
áherslubreytingum, þótt hjartað í
því slái enn til sömu meginmark-
miða.
FÍT er félag sem reynir að
byggja undir faglegan metnað og
símenntun, með samskiptum fé-
lagsmanna og fyrirlesurum, inn-
lendum og erlendum. Fréttabréf
kemur út tvisvar á ári og kynning-
arkvöld, 2–3 á vetri, eru haldin
þar sem margvísleg fagleg mál-
efni eru tekin fyrir. FÍT er ekki
stéttarfélag. Það er fyrst og
fremst fagfélag, ætlað að halda á
lofti faglegum metnaði fé-
lagsmanna og hvetja þá til um-
ræða og samskipta á faglegum
grunni. En einnig er því ætlað að
kynna starf þeirra út á við í við-
skiptalífinu og meðal almennings.
Þá kemur félagið að skipulagn-
ingu merkjasamkeppna sem fé-
lagsmenn taka þátt í, auk árlegrar
viðurkenningarhátíðar, svo nokk-
uð sé nefnt. Í FÍT eru skráðir yfir
200 félagar sem hafa menntað sig
sérstaklega í greininni eða starfað
við hana til lengri tíma. Félagar í
FÍT starfa að hönnun fyrir öll
form miðlunar, gamallar og nýrr-
ar, þar sem leturlegrar og mynd-
rænnar skipulagningar er krafist.
Þeir starfa að myndskreytingum,
kvikmyndagerð, hönnun vef-
svæða, í útgáfufyrirtækjum,
prentsmiðjum og fjölmiðlum eða
eru sjálfstæðir grafískir hönnuðir
sem starfa í tengslum við marg-
vísleg fyrirtæki sem nýta sér
þjónustu þeirra þótt starfsvett-
vangur þeirra flestra sé inni á
auglýsingastofunum. FÍT er í NT,
samtökum norrænna
teiknara, aðili að
Ikograda, alþjóðasam-
tökum grafískra hönn-
uða, og félagi í Form
Ísland og Myndstefi.
Verðlaun FÍT skarast ekki við
Ímark-verðlaunin eða hvað?
„Nei, það var einmitt hluti af
hugmyndinni að þessu fyrirkomu-
lagi að þau gerðu það ekki. Ímark-
hátíðin er mjög góð, en hún fjallar
um aðra þætti greinarinnar að
stærstum hluta, sem er gott.
Lögð er áhersla á að skarast
ekki á við Ímark-hátíðina og eru
flokkarnir sem dæmt er um hér
fæstir þeir sömu og þar. Hjá
Ímark er höfuðáhersla á auglýs-
ingar í mismunandi fjölmiðlum.
Hér er það grafísk hönnun sem
áherslan er á, en ekki auglýsing-
ar. Þótt stór hluti félaga í FÍT
vinni við auglýsingahönnun og
hugmyndir, þá skilar stór hluti
vinnu þeirra sér í öðru formi. Það
er hönnunin sem ekki tengist aug-
lýsingum með beinum hætti eða í
gegn um hefðbundna fjölmiðla.
Margt af þessu efni er hugsanlega
unnið í takmörkuðu upplagi eða
dreift með þeim hætti að aðrir
grafískir hönnuðir hafa ekki alltaf
tækifæri á að fylgjast með öllu
sem gert er. Þess vegna er það
kærkomið tækifæri fyrir fagið að
geta dregið saman það besta sem
fram kemur á hverju ári á einn
stað.“
Hver er yfirlýstur tilgangur
keppninnar?
„Megintilgangurinn er að sýna
FÍT-félögum og öðrum sem
áhuga hafa á grafískri hönnun það
sem merkilegast þykir vera að
gerast í faginu okkar hér á ný-
liðnu ári, en einnig vekja athygli á
fólkinu sem starfar að gerð inn-
sendra verka, hönnuðum og verk-
um þeirra, sem þykja skara fram
úr. Til hönnunarverðlauna FÍT
eru send inn hugverk metnaðar-
fullra einstaklinga sem leggja
hart að sér við að búa margs kon-
ar hugmyndir, skilaboð og efni í
skiljanlegt og áhuga-
vert form fyrir aðra í
samfélaginu að njóta.“
Hvaða gildi hefur
hún fyrir fagið?
„Vonandi gerir hún
það gagnrýnna, vandaðra og
framsæknara, með því að vekja
athygli á því sem félagarnir telja
best vera gert hverju sinni. Verð-
laun og viðurkenningar á sam-
bærilegum hátíðum ráðast af inn-
sendingum og dómum. Það er
mjög mikilvægt til þess að slíkar
hátíðir heppnist vel, að úrval inn-
sendinga í öllum flokkum sé mik-
ið. Þá næst heildarmynd af því
sem er áhugaverðast og sýn á
hvað er að gerast nýtt í faginu á
hverjum tíma.“
Ástþór Jóhannsson
Ástþór Jóhannsson er fæddur
1955 í Reykjavík, en er uppalinn
í Vestmannaeyjum. Útskrifaðist
úr Myndlista- og handíðaskóla
Íslands í grafískri hönnun.
Stjórnaði hönnun, hugmynda-
vinnslu og áætlanagerð í mark-
aðssetningu viðskiptavina Aug-
lýsingastofunnar Góðs
fólks-McCann-Erickson frá árinu
1985 og síðar sem eigandi frá
1991 fram í byrjun síðastliðins
árs. Hann starfar nú að ráðgjöf í
grafískri hönnun og ímyndar-
mótun og er einn stofnenda 1001
ehf. sem rekur Plus.is. Eiginkona
Ástþórs er Katrín Ævarsdóttir
klæðskeri og eru dætur þeirra
Sara og Svanhildur Anja.
…sem skilar
sér í öðru
formi
Þeir segjast verða að fá að sjá það aftur og stúdera það betur ef stjórinn
ætlast til að þeir skaffi efnið í það næsta.
„MÉR líður orðið nokkuð vel, en vil
vera fullkomlega hraustur áður en
ég legg af stað að nýju á tindinn,“
sagði Haraldur Örn Ólafsson sjö-
tindafari í samtali við Morgunblaðið
í gær, þar sem hann er á hóteli í
Mendoza. Er hann að jafna sig á
lungnakvefi sem hann fékk nýlega
ofarlega í hlíðum Aconcagua, hæsta
tinds S-Ameríku (6.960 m). Hann var
kominn í 5.900 metra hæð og tilbú-
inn í lokaáfangann en óveður haml-
aði uppgöngu og ofan í kaupið veikt-
ist hann og varð að fá sýklalyf.
„Ég vonast til að komast af stað á
sunnudag eða mánudag og ef allt
gengur vel, ætti að vera unnt að
komast á tindinn á viku,“ sagði Har-
aldur, sem þó vill fara varlega í að
spá fram í tímann.
Fjallinu var lokað vegna óveðurs
og fannfergis um það leyti sem Har-
aldur yfirgaf fjallið og hefur fjall-
göngumönnum gengið brösuglega á
fjallinu að undanförnu. Borið hefur
á óhöppum, slysum og jafnvel dauðs-
föllum, sem einkum má rekja til
reynsluleysis sumra fjallgöngu-
manna. Þeim hættir til að vanmeta
fjallið, sem þó er ekki talið tækni-
lega erfitt, en á móti kemur að
margir fara flatt á því að hækka sig
of ört og fá fjallaveiki.
Ný atlaga að
Aconcagua í
undirbúningi
JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra og Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra undirrit-
uðu í gær samkomulag um þjónustu
við íbúa sem um árabil hafa verið vist-
aðir á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi í Kópavogi. Tuttugu íbúar sem
búa í fjórum sambýlum í fjölbýlishúsi
við Kópavogsbraut, sem tilheyrir
Landspítala – háskólasjúkrahúsi,
njóta nú þjónustu fyrir fatlaða á veg-
um félagsmálaráðuneytis í stað heil-
brigðisráðuneytis. Eigi síðar en 1. maí
2003 munu allir íbúarnir í fjölbýlis-
húsinu hafa eignast nýtt heimili á höf-
uðborgarsvæðinu.
Samráð verður haft við íbúana og
aðstandendur þeirra um flutninginn
og leitast verður við að hann valdi
sem minnstri röskun á daglegu lífi
þeirra.
Þetta er meginatriði samkomulags-
ins sem ráðherrarnir undirrituðu í
gær. Svæðisskrifstofa um málefni
fatlaðra á Reykjanesi mun fyrst um
sinn annast þjónustu við íbúana. Sam-
býlin verða rekin í samræmi við lög
nr. 59/1992 um málefni fatlaðra.
Starfsmönnum sambýlanna í fjöl-
býlishúsinu var öllum boðið starf hjá
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á
Reykjanesi. Áunnin réttindi starfs-
manna haldast við tilfærslu milli
vinnuveitenda við gerð nýrra ráðn-
ingarsamninga.
Félagsmálaráðuneytið hefur frá
árinu 1995 tekið við þjónustu 40 fyrr-
um vistmanna á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í Kópavogi.
Samningur um þjónustu
við fatlaða á sambýlum