Morgunblaðið - 25.01.2002, Blaðsíða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 19
Blómin
í bænum
sími 462 2900 °
í göngugötunni
Bóndadagurinn er í dag
Á ekki bóndinn skilið
að fá falleg og
góð blóm?
KARLAKÓR Keflavíkur heldur
tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju í
kvöld klukkan 20.30. Á efnisskrá
tónleikanna eru Vínarlög, óperu-
tónlist og einsöngslög og er slegið á
létta strengi.
Einsöngvarar með kórnum eru
þau Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran
og Steinn Erlingsson baríton. Ingi-
björg hefur haldið fjölda einsöngs-
tónleika og sungið með sinfóníu-
hljómsveitum á Íslandi, í Svíþjóð,
Danmörku og Wales. Steinn hefur
verið einn af máttarstólpum kórs-
ins og sungið lengi sem einsöngvari
með honum. Stjórnandi Karlakórs
Keflavíkur er Smári Ólason og und-
irleikari á píanó er Ester Ólafs-
dóttir. Tónleikar kórsins verða
endurteknir í Hásölum, safnaðar-
heimili Hafnarfjarðarkirkju, næst-
komandi sunnudag kl. 16.30.
Slegið á létta strengi
Njarðvík
VERKALÝÐSFÉLÖG á Suður-
nesjum hafa sent sveitarstjórn-
um á svæðinu bréf með áskorun
um að afturkalla nú þegar allar
hækkanir og leggja þannig sitt
af mörkum til að verja stöð-
ugleikann í landinu. Er þetta
liður í verðaðhaldi verkalýðs-
félaganna í landinu.
Í bréfi Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og ná-
grennis til bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar og hrepps-
nefnda Gerðahrepps og Vatns-
leysustrandarhrepps, en það er
efnislega samhljóða bréfum sem
Verslunarmannafélag Suður-
nesja og Iðnsveinafélag Suður-
nesja hafa sent þessum og öðr-
um sveitarstjórnum á þeirra
starfssvæði, er vakin athygli á
mikilvægi þess að það takist að
verja markmið samkomulags að-
ila vinnumarkaðarins um frest-
un á endurskoðun launaliðar
kjarasamninga. „Hér með er
skorað á Reykjanesbæ, eins og
önnur sveitarfélög, að afturkalla
nú þegar allar hækkanir og
leggja þannig sitt af mörkum til
að verja stöðugleikann og lífs-
kjörin í landinu. Ábyrgð þeirra
sem ekki verða við þessari
áskorun og halda hækkunum
sínum til streitu er mikil, nái
forsendur samkomulags aðila
vinnumarkaðarins ekki fram að
ganga,“ segir í bréfi félaganna
til Reykjanesbæjar.
Von á heim-
sókn frá ASÍ
Bréf VSFK og Verslunar-
mannafélagsins voru lögð fram í
bæjarráði Reykjanesbæjar í
gær. Bæjarráðsmenn tóku fram
af þessu tilefni að þeir væntu
heimsóknar fulltrúa ASÍ.
Reykjanesbær hækkar gjald-
skrár sínar einu sinni á ári, um
áramót. Að þessu sinni voru all-
ar gjaldskrár, meðal annars
leikskólagjöld, hækkaðar um
5%.
Allar hækkanir
verði afturkallaðar
Suðurnes
HLUTHAFAR í Hitaveitu Suður-
nesja samþykktu í gær með yfirgnæf-
andi meirihluta sameiningu við Bæj-
arveitur Vestmannaeyja. Fulltrúar
Sandgerðisbæjar og Vatnsleysu-
strandarhrepps sátu hjá. Ekki náðist
samstaða um að fækka stjórnar-
mönnum, í tengslum við samruna fyr-
irtækjanna.
Til þess að samningar um samein-
ingu Bæjarveitna Vestmannaeyja við
Hitaveituna næðu fram að ganga
þurftu hluthafar með tvo þriðju hluta
atkvæða á bak við sig að samþykkja
breytingar á samþykktum félagsins.
Tillaga um að auka hlutafé félagsins
um 511 milljónir, úr 6.800 milljónum í
7.311 milljónir, til að afhenda Vest-
mannaeyjabæ sem greiðslu fyrir
eignir og rekstur Bæjarveitnanna var
samþykkt með 91,2% atkvæða. Hlut-
hafar með 8,8% atkvæða á bak við sig
sátu hjá. Það eru fulltrúar Vatns-
leysustrandarhrepps og Sandgerðis-
bæjar en þeir höfðu lýst yfir andstöðu
við sameiningu á þessum forsendum í
stjórn fyrirtækisins.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, varafor-
seti bæjarstjórnar Sandgerðis, og
Þóra Bragadóttir, oddviti Vatnsleysu-
strandarhrepps, skýrðu á fundinum
hjásetu sína. Sigurbjörg sagði frá
bókun sem meirihluti bæjarstjórnar
Sandgerðis hafði samþykkt. Þar er
það dregið í efa að markmið um að
efla Hitaveitu Suðurnesja náist fram
með þessum kaupum, miðað við for-
sendur sem lagðar hafa verið til
grundvallar. Bæjarstjórnin geti ekki
verið fullviss um réttmæti kaupanna,
án traustari og/eða frekari rökstuðn-
ings. Fulltrúar minnihluta Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks sátu
hjá við þessa afgreiðslu í bæjarstjórn
Sandgerðis.
Tólf manna stjórn
Hluthafafundur Hitaveitunnar
samþykkti fleiri breytingar á sam-
þykktum, meðal annars vegna sam-
runans. Þannig var það sett í lög fé-
lagsins að það hefði útibú í
Vestmannaeyjum og að fjölgað verði í
stjórn þannig að Vestmannaeyjabær
fái tólfta stjórnarmanninn. Ekki náð-
ist samstaða um þá tillögu stjórnar að
fækka stjórnarmönnum úr ellefu í sjö
og að hluthafar gætu nýtt sér að fullu
atkvæðisrétt sinn við stjórnarkjör. Í
gildi er hluthafasamkomulag sem
gerir ráð fyrir að þessi breyting verði
á aðalfundi 2003 en þangað til ættu
allir hluthafar, ellefu talsins, fulltrúa í
stjórn. Til þess að breytingin næði
fram að ganga þurftu allir að vera
sammála en fram kom að fulltrúar
Sandgerðis, Vatnsleysustrandar-
hrepps og ef til vill fleiri vildu halda í
núverandi fyrirkomulag og var því
ákveðið að fjölga um einn mann í
stjórninni. Verða því tólf stjórnar-
menn fram að aðalfundi 2003.
Eins og fram hefur komið eignast
Vestmannaeyjabær 7% í Hitaveitu
Suðurnesja, þegar kaupin verða af-
staðin. Að sögn Júlíusar Jónssonar,
forstjóra Hitaveitunnar, felur sam-
þykkt hlutafafundarins í sér heimild
fyrir stjórn félagsins að ganga frá
málinu og reiknar hann með stjórn-
arfundi eftir helgi. Einhvern tíma taki
síðan að ganga frá formatriðum. Sam-
einingin gildir þó frá nýliðnum ára-
mótum.
Hitaveitan verður með hluta af
skrifstofuhaldi sínu í Vestmannaeyj-
um. Þá er gert ráð fyrir að almennir
raforkutaxtar í Vestmannaeyjum
lækki um 15%, eigi síðar en 1. mars
næstkomandi.
Samruni samþykktur
með 91,2% atkvæða
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Vogamenn og Sandgerðingar stinga saman nefjum. Jóhanna Reynis-
dóttir, Jón Norðfjörð, Jón Gunnarsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Reykjanes