Morgunblaðið - 25.01.2002, Síða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 37
áhætturekstur með
fjármuni bæjarbúa.
Lögum samkvæmt
á að fara fram um-
fjöllun um skipulags-
mál og önnur mál
bæjarfélagsins í
nefndum og viðeig-
andi stofnunum þess
og kynna þau fyrir
bæjarbúum á eðlileg-
an hátt þannig að
þeir geti brugðist við
eins og hverjum hent-
ar. Þetta er lögvarið
ferli. Þetta ferli
hundsar meirihluti
bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar. Allar yfirlýsingar bæjar-
stjóra héðan í frá um að í deili-
skipulagi verði tekið tillit til
athugasemda o.s.frv. munu verða
ótrúverðugar, þetta er allt saman
ákveðið og ekki meira um það að
segja.
Áskrift að útsvari
Hafnfirðinga!
Sömu vinnubrögð og gilda um
skipulagsmál í Hafnarfirði eru við-
höfð í skólamálum bæjarins. Meiri-
hluti bæjarstjórnar telur meira um
vert að einkavæða skólahúsnæði
bæjarins og kennslu en að hugsa
um hag bæjarbúa. Hvert skólahús-
næðið af öðru er nú byggt af einka-
aðilum, sem er í sjálfu sér hið rétta,
en það sem ekki er rétt; verður
áfram í eigu einkaaðila eftir að
bærinn hefur borgað milljarða í
leigukostnað án nokkurrar eignar-
myndunar. Að leigutíma loknum
þarf að byrja að borga leigu aftur
af sama húsnæði.
Það er eðlilegt að bæjarfélag
leigi húsnæði til margra nota. En
þó ekki skólahúsnæði þar sem það
er sérhannað til að þjóna ákveðnum
tilgangi og í hverju skólahverfi er
aðeins einn skóli og því ekki um
neina samkeppni eða val að ræða á
þeim leigumarkaði. Þess vegna er
algjör firra að fjármagna uppbygg-
ingu skólahúsnæðis á umræddan
hátt auk þess sem það er dýrara.
Hvers vegna skyldu nágrannasveit-
arfélögin ekki hafa kosið þessa
leið? Það er verið að fresta vanda-
málum dagsins í dag til komandi
HROKI og ólýðræð-
isleg vinnubrögð nú-
verandi meirihluta
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í
bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar urðu öllum ljós
við yfirlýsingu bæjar-
stjóra um að reisa ætti
1.800 manna byggð á
norðurbakka Hafnar-
fjarðarhafnar af hluta-
félaginu Norðurbakka
ehf. Þetta var sam-
þykkt á aukafundi bæj-
arstjórnar 18. desem-
ber sl. eftir mála-
myndanefndarstörf. Að
hlutafélaginu standa lóðarhafar,
þ.e. Hafnarfjarðarbær, J & K og
Þyrping hf. Enginn veit neitt um
þessa nýju byggð eða væntanlegar
fjárhagsskuldbindingar bæjar-
félagsins. Engin umræða hefur far-
ið fram í skipulagsnefnd um
bryggjuhverfið og engin samræm-
ing er við aðra fyrirhugaða upp-
byggingu í Hafnarfirði s.s. á Völl-
um (sunnan Ásvalla) eða við
fyrirhugaða byggingu nokkurra
fimm hæða blokka við Lækjargötu
gegnt Tjarnarbraut á RAFHA-lóð-
inni. Eru það Þyrping hf., J&K og
Magnús sem fara með skipulags-
mál í Hafnarfirði?
Svo virðist vera, sbr. grein Sig-
urður P. Sigmundssonar í Mbl. 4.
janúar sl., að Framsóknarflokkur-
inn eða sumir forystumenn innan
hans hafi ekkert vitað um þennan
gjörning. Að mér læðist sá grunur
að helstu embættismenn bæjarins
hafi ekki heldur verið hafðir með í
ráðum. Í greininni kemur líka fram
að bærinn ber allan kostnað af
aukaframkvæmdum við hugsanlegt
bryggjuhverfi svo sem við landfyll-
ingar sem skoða verður sérstaklega
m.t.t. til umhverfisáhrifa ásamt
breytingu á höfninni.
Lögvarinn
réttur brotinn
Norðurbakkinn þykir álitlegur
sem framhald af miðbænum með
blandaða byggð og nálægðina við
sjóinn og höfnina sem aðdráttarafl.
Undirritaður er hlynntur uppbygg-
ingu á svæðinu en telur að útfæra
þurfi hana nánar með tilliti til
fjölda íbúa, skóla, samgangna, út-
lits, atvinnustarfsemi og annarrar
uppbyggingar í Hafnarfirði. Jafn-
vel má halda samkeppni um nýt-
ingu svæðisins þegar ákveðnar
skipulagslegar forsendur liggja
fyrir sem það gerir ekki nú. En
bæjarstjóri Hafnarfjarðar ákvað
forsendurnar fyrir hlutafélagið
Norðurbakka fyrst, án tillits til
þarfa Hafnarfjarðarbæjar, og virð-
ist bærinn þar með kominn í
kynslóða til að svala pólitískum
metnaði einstaklinga.
Skuldir bæjarsjóðs Hafnarfjarð-
ar hafa farið úr 4,8 milljörðum 1998
í tæpa 9 milljarða 2001. Aðeins um
einn fjórði þeirrar aukningar er
vegna skólanna. Leigan er ekki
skuldfærð en hana þarf samt að
borga að fullu, án eignamyndunar,
og fyrirtæki úti í bæ eru komin í
áskrift að útsvari Hafnfirðinga um
ókomin ár!
Einkavæðingu skólahúsnæðis og
kennslu hefur verið komið á þrátt
fyrir andstöðu mikils hluta bæjar-
búa. Hér er um eitt stærsta hags-
munamál bæjarins að ræða og því
með öllu ólíðandi að meirihlutinn
skuli ekki reyna að ná einhverri
lendingu sem allir geta sætt sig við.
Nei góðir Hafnfirðingar, þetta eru
einræðisleg og skaðleg vinnubrögð
í anda þeirra lærimeistara sem var
lýst betur en nokkru sinni í nýliðnu
áramótaskaupi.
Kjósum annan farveg
Framangreind vinnubrögð eru
ekki uppbyggileg fyrir Hafnar-
fjörð. Við verðum að tryggja lýð-
ræðislega þátttöku í stjórnun bæj-
arins, jafnt þátttöku almennings
sem fyrirtækja og félagasamtaka.
Núverandi meirihluta sjálfstæðis-
manna og framsóknarmanna í
Hafnarfirði virðist því miður skorta
allan samfélagslegan þroska.
Að lokum vil ég vitna í orð Sig-
urðar Skúlasonar í Sögu Hafnar-
fjarðar frá 1933: „Inni í bænum
hefir hraunið að mestu verið brotið
niður og jafnað í sambandi við
gatnagerð og húsbyggingar, enda
er illmögulegt að nytfæra sér bygg-
ingarlóðir þar, nema þetta sé gert.
Hins vegar skerðir þetta jarðrask
fegurð og sérkennileik bæjarstæð-
isins.“ Höfum það hugfast að það
eru oftast fleiri en ein hlið á hverju
máli.
Trausti Baldursson
Höfundur situr í skipulags- og
umferðarnefnd Hafnarfjarðar.
Sveitarstjórnarmál
Vinnubrögð í skipulags-
og skólamálum í Hafn-
arfirði, segir Trausti
Baldursson, eru ólýð-
ræðisleg og skaðleg.
Skipulagsmál
Hafnarfjarðar
NÝNEMAR í læknisfræði við Há-
skóla Íslands hafa undanfarin ár
þreytt samkeppnispróf (numerus
clausus) í lok haustmisseris. Prófað
hefur verið úr þeim
námskeiðum sem
kennd hafa verið á
haustmisseri, þ.e.a.s.
eðlisfræði, efnafræði,
sálarfræði og inngangi
að líffæra- og lífeðlis-
fræði. Ákveðin ein-
kunnaviðmið hafa ekki
ráðið því hverjir fá
tækifæri til að halda
áfram námi á vormiss-
eri þar sem fjöldatak-
markanir í læknadeild
miðast við tiltekinn
fjölda þeirra sem best-
um árangri ná hverju
sinni í samkeppnispróf-
unum. Á vormisseri nú
fengu 42 nemendur að halda áfram,
þar af einn vegna villu í fyrirgjöf
sem í ljós kom við prófasýningu.
Ófullnægjandi
undirbúningur
Hingað til hafa nemendur þegar á
fyrsta ári framhaldsskóla getað tek-
ið mið af þeim náms- og prófkröfum
sem gerðar eru í læknadeild þar sem
upplýsingar hafa legið fyrir. Um-
ræða um breytingar á núverandi
fyrirkomulagi hefur hins vegar átt
sér stað í mörg ár vegna vaxandi
óánægju með samkeppnisprófin.
Þannig hefur læknadeild haft ráð-
rúm til þess að undirbúa breytingu í
tæka tíð, svo að breytingin kæmi
ekki nemendum í opna skjöldu.
Með reglum háskólans frá nóvem-
ber sl. er athyglisvert að sjá hvernig
læknadeild hyggst standa að breyt-
ingunum. Í stað þess að leggja fyrir
samkeppnispróf úr námsefni sem
hingað til hefur verið talið æskilegt
fyrir áframhaldandi læknanám verð-
ur inntökuprófið byggt á ósamstæðu
safni byrjunaráfanga af öllum bók-
námsbrautum framhaldsskólanna
þrátt fyrir að enginn nemandi á
landinu hafi þá samsetningu náms
að baki. Auk þess verður „almenn
þekking“ nemenda prófuð. Gildir sá
hluti prófsins 30% af heild. „Almenn
þekking“ í skilningi reglnanna er:
„þekking á málefnum líðandi stund-
ar, s.s. á sviði mannlegra þátta, sögu
og menningar hvers konar, fé-
lagsfræði og heilbrigðisumræðu“. Í
þessu sambandi má benda á að
greindarpróf eru t.d. próf á sviði
mannlegra þátta, en ekki verður
ráðið af reglunum hvort ætlunin er
að leggja fyrir greindarpróf. Ráð-
gert er að hafa inntökuprófin í júní
2002.
Vandséð er hvernig Háskóli Ís-
lands ætlar á örfáum mánuðum að
uppfylla grundvallarskilyrði um
prófagerð, þ.e. um áreiðanleika og
réttmæti prófa. Áreiðanleika er unnt
að prófa strax, en til þess að tryggja
réttmæti inntökuprófanna þarf að
forprófa þau. Án forprófunar er ekki
vitað um forspárgildi prófanna og
því ekki unnt að segja að þau séu
réttmæt.
Það er útilokað að það náist að
uppfylla skilyrði um réttmæti próf-
anna ef inntökuprófin verða lögð
fyrir í vor. Það liggur einfaldlega
ekkert fyrir um fylgni eða samband
milli frammistöðu nemenda í inn-
tökuprófunum annars vegar við
frammistöðu nemenda í læknisfræði
hins vegar enda tekur nokkur ár að
þróa slík próf. Gildir það bæði um
þann hluta prófsins sem byggist á
námsefni framhalds-
skólanna og þann hluta
sem prófa á „almenna
þekkingu“. Þar þarf
ekki síður að forprófa
hverja einustu spurn-
ingu.
Brotinn réttur
á nemendum?
Nemendur eiga ský-
lausan rétt á því að fá
vitneskju um svo af-
drifaríkar breytingar
sem inntökuprófin hafa
í för með sér með tals-
verðum fyrirvara, svo
að þeir geti tekið mið af
þeim snemma á náms-
ferli sínum. Aðeins eru fimm mán-
uðir þar til prófin verða lögð fyrir og
enn er margt á huldu. Þetta er ekki
boðlegt. Í læknadeild Háskóla Ís-
lands hefur mikilvægi vísindalegra
vinnubragða og faglegrar nálgunar
verið brýnt fyrir læknanemum.
Vinnubrögð læknadeildar vegna inn-
tökuprófanna eru ekki trúverðug.
Nemendum sem þreyttu samkeppn-
isprófin í síðasta skipti nú í desem-
ber var mikill óleikur gerður allt
haustmisserið með óljósum og óná-
kvæmum upplýsingum um fyrirhug-
aðar breytingar. Þeim er gert að
þreyta inntökupróf í byrjendaáföng-
um framhaldsskóla eins og öðrum þó
að þeir eigi eins misseris nám að
baki í læknadeild. Margir þeirra
náðu yfir 80% árangri í samkeppn-
isprófunum en komust ekki áfram
vegna fjöldatakmarkana. Með því að
velja nemendur inn einhliða með
prófum sem byggjast á byrjenda-
áföngum og almennri þekkingu hlýt-
ur læknadeild að ætla sér að breyta
samsetningu læknanámsins. Ekki
liggur fyrir hvernig. Það er því
mörgum spurningum ósvarað.
Fyrirhugaðar breytingar á inn-
tökuprófum í læknisfræði byggjast
hvorki á faglegum forsendum né
fenginni reynslu. Af þeirri ástæðu
mun læknadeild ekki gefa nýnemum
kost á sjúkraprófi haustið 2002.
Jafnræði stúdenta er með því að
engu haft. Háskólayfirvöld þurfa að
endurskoða þá ákvörðun að hafa
inntökuprófin í vor án fullnægjandi
undirbúnings. Ein leið væri að þróa
inntökupróf samhliða samkeppnis-
prófum. Á örfáum árum fengist þá
mat á forspárgildi inntökuprófa með
því að reikna tengsl á milli frammi-
stöðu í þeim og frammistöðu í
læknanámi. Nemendur og þjóðin öll
á rétt á því að Háskóli Íslands sýni
nemendum sínum sjálfsagða virð-
ingu með faglegum vinnubrögðum
og veiti þeim nauðsynlegar upplýs-
ingar vegna afdrifaríkra ákvarðana
varðandi námsval þeirra.
Um inntökupróf
í læknadeild
Háskóla Íslands
Sigurður Árnason
Próf
Vinnubrögð lækna-
deildar vegna inntöku-
prófanna eru, að mati
Sigurðar Árnasonar,
ekki trúverðug.
Höfundur er nemi í læknisfræði
á haustmisseri 2001.
• Nýskr. 08/99
• Ekinn 9.600 km
• Sjálfskiptur, spólvörn
• 4 líknarbelgir, útvarp/CD
• Aksturstölva
• Rafdr. rúður/speglar/sæti
• Hraðastillir með
hraðatakmarkara
• Leðurklæðning
• Sóllúga
• 16” álfelgur
• Sumar-, vetrardekk o.fl.
Ræsir hf., Skúlagötu 59, s. 540 5400 - Opið laugardaga 12-16 www.raesir.is
Einstakt tækifæri!
Til sýnis og sölu Mercedes-Benz CLK230
Kompressor Elegance
KUNERT
WELLNESS
Sokkabuxur
Hnésokkar
Ökklasokkar
iðunn
tískuverslun
2. hæð, Kringlunni, sími: 588 1680
v/ Nesveg, Seltjarnarnesi, sími: 561 1680