Morgunblaðið - 25.01.2002, Síða 38

Morgunblaðið - 25.01.2002, Síða 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurborg Jóns-dóttir fæddist í Keflavík 7. desember 1948. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 16. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar eru Jón B. Hannesson, f. í Kefla- vík 3.4. 1920, og Fanney Hjartardótt- ir, f. á Vaðli á Barða- strönd 18.2. 1919. Systkini hennar eru Bjarnfríður Jóna Jónsdóttir, f. 7. des- ember 1948, Karl Taylor, f. 29.12. 1943, og Eðvarð T. Jónsson, f. 29.12. 1943. Sigurborg giftist 26. desember 1967 Ægi Sigurði Guðlaugssyni lögreglumanni, f. 7.12. 1948. Þau slitu samvistir. Foreldrar hans eru Sigríður Þorbjörnsdóttir, f. 12.9. 1914, og Guðlaugur Sigurðs- son, f. 4.3. 1917, d. 25.7. 1988. Börn Sigurborgar og Ægis eru: 1) Stef- án Hannes Ægisson, f. 18.7. 1967. Hann er búsettur í Svíþjóð. 2) Jón Ægisson, f. 4.9. 1969. Sambýlis- kona hans er Sús- anna Valsdóttir, f. 4.11. 1973. Börn þeirra eru Ástþór Ingi, f. 28.12. 1991, og Berglind, f. 7.4. 1998. Sigurborg ólst upp í Keflavík og lauk þar gagnfræða- prófi 1965. Hún dvaldi í Danmörku um skeið en fluttist síðan heim aftur og starf- aði sem húsmóðir í mörg ár. Und- anfarin 18 ár starfaði hún sem skrifstofumaður hjá Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja Útför Sigurborgar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14.. Nú þegar Bogga systir er horfin á brott til þess bjarta og merkilega heims sem henni var gefið færi á að sjá um það leyti sem hún veiktist fyrir rúmlega hálfu ári lifir í hugum okkar sem þekktum hana minning um óvenjulega hlýju og manngæsku, ein- stakt falsleysi og einlægni. Minnis- stæðar eru þær mörgu stundir sem við sátum saman yfir kaffibolla í stof- unni hennar í Keflavík og ræddum málefni þessa heims og annars. Hún undraðist fegurð og margbreytileik heimsins, ótrúlegar andstæður hans, heimana sem við skynjum en sjáum ekki og tilgang skaparans með öllu þessu. Hún hafði mikinn áhuga á and- legum málefnum án þess þó að viðra skoðanir sínar á þeim og bar jafnan við þekkingarskorti á þeim málum sem margir telja sér lítt viðkomandi. Með heilbrigðri skynsemi og einlægni sinni tókst henni yfirleitt að skilja hismið frá kjarnanum. Viðhorf henn- ar einkenndust af virðingu fyrir lífinu, samúð með þeim sem þjást, trausti á forsjón Guðs og óbeit á yfirdreps- skap. Afstaða hennar til trúmála var einföld: sé maður þyrstur á hann að leggja frá sér bækur sem útskýra þorsta, fara að lindinni og fá sér að drekka. Menn orna sér við eldinn, lít- inn yl er að finna í fræðum um eðli hans. Raunverulegt öryggi felst í því að hlusta á rödd samviskunnar og treysta henni. Spurningarnar sem fyrst og fremst skiptu hana máli voru þessar: Hvers vegna ekki að heiðra for- eldra sína? elska börnin sín? hjálpa meðbræðrum og systrum án þess að hugsa um tíma og fyrir- höfn? annast maka sinn af hollustu? vera trúr og sannur vinum sínum? ljúka hverju verki af samviskusemi og skyldurækni? iðka þessar manndygðir án þess að velta þeim mikið fyrir sér eða krefj- ast þeirra af öðrum? Þessi viðhorf gáfu Boggu þrek til að takast á við erfiðan sjúkdóm án þess að kvarta eða mæla æðruorð og gefa sér jafnvel tíma til að liðsinna öðrum sem áttu í erfiðleikum og fundu svölun í sjaldgæfum sálarstyrk hennar. Allt þetta ber hún ef að líkum lætur með sér inn í „merkilega land- ið“ sem hana dreymdi svo oft eftir að hún veiktist. Guð blessi minningu þína, systir kær. Eðvarð. Systir mín, Sigurborg Jónsdóttir, er látin, langt um aldur fram. Eftir hetjulega baráttu við veikindi sín beið hún lægri hlut og kvaddi okkur og þennan veraldlega heim að kvöldi 16. janúar sl. Hún var tekin frá okkur í blóma lífs síns, það er sárt til þess að vita að hún fái ekki að taka þátt í lífi barna sinna og barnabarna, sem henni þótti svo undur vænt um. Hlátur hennar er þagnaður og samtöl okkar um lífið og tilgang þess verða ekki fleiri. Bogga var góð kona og ákveðin, hún kom fram við aðra eins og hún vildi láta koma fram við sig. Þegar ég hugsa til baka sé ég að hún gerði sér grein fyrir því að hún myndi tapa þessari baráttu, þó hún segði einatt og stöðugt: „Þetta hlýtur að rjátlast af mér.“ Hún bjó okkur undir það að hún myndi fljótlega kveðja og ræddi um dauðann af hreinskilni. Hún sagð- ist ekki vera hrædd við að deyja, það væri frekar svolítið spennandi að sjá hvað væri hinum megin, því hún var viss um að það væri líf eftir þetta líf. Við sem eftir lifum erum þakklát fyrir þann tíma sem okkur var gefinn með henni, þakklát fyrir að hafa fengið að ganga við hlið hennar þann ævitíma sem henni var skammtaður. Blessuð sé minning systur minnar. Karl Taylor. Bogga frænka hefur nú kvatt okk- ar heim. Við vonum að henni líði betur þar sem hún er núna, laus við veik- indin og sársaukann. Ég finn hve sárt ég sakna, hve sorgin hjartað sker. Af sætum svefni að vakna, en sjá þig ekki hér; því svipur þinn á sveimi í svefni birtist mér. Í drauma dularheimi ég dvaldi í nótt hjá þér. (Káinn.) Það tekur svolítinn tíma að venjast því að Bogga sé farin. Að átta sig á því að hún á ekki eftir að koma til ömmu og afa þegar við erum þar í heimsókn, líkt og hún var vön að gera. Þetta kemur allt með tímanum. Við viljum kveðja Boggu frænku með þessu broti úr ljóði eftir Jónas Hallgrímsson: Vertu nú sæl! Þótt sjónum mínum falin sértu, ég alla daga minnist þín; Vertu nú sæl! Því dagur fyllir dalinn, dunandi fossinn kallar þig til sín; hann breiðir fram af bergi hvítan skrúða, bústaður þinn er svölum drifinn úða. Vertu nú sæl Bogga, við sjáumst aftur seinna. Kveðja. Hulda og Eygló. Það var snemma sl. vor að Bogga, eins og hún var ávallt kölluð, kom til mín og sagði að hún yrði að fara í að- gerð á sjúkrahúsi í Reykjavík sem tæki stuttan tíma. Samkvæmt upp- lýsingum læknis yrði hún á sjúkra- húsi í tvo daga og síðan heima í nokkra daga og kæmi síðan til vinnu eftir um eina viku. Hún kvaddi okkur bjartsýn og sagðist hlakka til að koma til baka og vera þá laus við þau óþægindi, sem hún hafði haft um tíma. En reyndin varð önnur. Við aðgerðina kom í ljós illkynjað æxli sem ekki reyndist unnt að fjar- lægja. Hún kom samt ótrúlega hress til baka og tók þessum tíðindum með miklu jafnaðargeði eins og henni var líkt. En því miður hélt meinsemdin áfram að vaxa og smám saman dró úr mótstöðukrafti hennar og andaðist hún 16. janúar sl. Á meðan heilsan leyfði kom hún í heimsókn til okkar á skrifstofuna og einstaka sinnum stoppaði hún um stund og tók í verk, sem hún sá að var óunnið. Í sumar fór hún í heimsókn til son- ar síns, sem búsettur er í Svíþjóð, en sú heimsókn hafði verið ákveðin með löngum fyrirvara. Með henni í för var sonarsonur hennar og naut hún ferð- arinnar vel þótt af henni væri farið að draga. Bogga hafði unnið á skrifstofu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í um 18 ár og var því flestum hlutum kunnug. Hún var trú í sínu starfi, samviskusöm og einstaklega þægileg í allri umgengni. Það er mikil eftirsjá að henni, ekki síst í kaffitímanum. Það var oftar en ekki að hún tók í spil og spurði spurninga eða upplýsti okkur um ýmsa orðna og óorðna hluti. Þá átti hún einnig til að ráða í drauma. Þetta og hið létta skap hennar gat breytt drungalegum morgni í bjartan dag. Bogga annaðist almenn skrifstofu- og afgeiðslustörf ásamt því að annast ræstingu skrifstofunnar og vann hvort tveggja með miklum sóma. Bogga gerði sér fulla grein fyrir að hverju stefndi og hafði undirbúið sig vel auk þess að taka ákvarðanir um hvernig hún vildi að að kveðju sinni yrði staðið. Ég vil fyrir hönd allra starfsmanna HSS þakka henni samfylgdina og góð kynni í gegnum tíðina um leið og við vottum sonum hennar og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Sigurborgar Jónsdóttur. Jóhann Einvarðsson. Bogga okkar er farin. Það er erfitt að skilja þegar svona góð og traust kona er tekin frá okkur í blóma lífsins. Ég kynntist Boggu fyrir þrjátíu ár- um. Það tókst strax traust og góð vin- átta með okkur. Hún var mikil bar- áttukona og sagði oft: Ef við fylgjumst ekki vel með og berjumst fyrir rétti okkar þá er vaðið yfir okk- ur. Hún var víðlesin og ljóðelsk og gat sett saman vísu þegar hún var þannig stemmd. Mikið var ég henni þakklát þegar hún kom með mér í heimsókn til ömmu minnar sem var orðin há- öldruð. Þá var spáð í bolla og reynt að skyggnast inn í framtíðina. Það var henni mikið hugðarefni. Hún var mik- ið fyrir fjölskyldu sína, fylgdist vel með sínum strákum og barnabörnum, þótti verst að fá ekki að sjá barna- börnin vaxa úr grasi. En hún gat líka séð björtu hliðarnar, hvað hún var lánsöm með drengina sína, hvað þeim hefur farnast vel og eru duglegir að bjarga sér. Ætíð var hún létt í lund og aldrei sá ég hana í fýlu, en hún hafði skoðanir á hlutunum og gat aldrei sætt sig við að einhver væri að setja sig á háan hest án þess að hafa efni á því. Boggu þótti gaman að sitja við tölv- una og senda bréf, jafnt á íslensku sem ensku, til vina sinna. Henni þótti leitt að geta ekki farið til Ameríku til að heimsækja vinkonu sína með syst- ur sinni vegna veikinda. Við hjónin vottum fjölskyldu Boggu innilegustu samúð og geymum minningarnar í hjarta okkar. Jóna Hróbjartsdóttir. Hetjan okkar hún Bogga kvaddi þennan heim að kvöldi 16. jan s.l., þá búin að berjast við veikindi sín frá maímánuði af miklum dugnaði. Er hún hóf störf á skrifstofu Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja fyrir 18 árum stóð hún á tímamótum í lífi sínu, var að búa sér nýtt og fallegt heimili á Hólabraut 13 ásamt sonum sínum Stefáni og Jóni. Umhyggja hennar fyrir velferð þeirra var mikil. Á litlum vinnustað eins og okkar er mikið mál að starfsandinn sé góður, þar lagði Bogga sitt fram með léttu skapi og góðum húmor. Hún var mikil spákona. Margir kaffitímar fóru í að leggja spilin. Hvort sem það var af góðu innsæi í einkalíf okkar eða fram- tíðarsýn hennar þá var hún ansi oft sannspá. Draumar voru líka hennar sér- grein. Ef þeir voru lagðir fyrir hana fékk viðkomandi ekki svar fyrr en bú- ið var að leita úrlausnar í miklum fræðiritum. „Skáldið á skrifstofunni“ var oft sagt er vantaði tækifærisvísu, jafnvel heila revíu, fyrir árshátíð. Það var ekki mikið mál fyrir Boggu að af- greiða þannig smámál, en hlédræg var hún um þennan hæfileika sinn og bað um að ekki væri um þetta rætt. Áhugamál hennar voru mörg. Hún las mikið og gaman var að hlusta á hana lýsa góðum bókum er hún var að lesa, frásagnargáfan var sérstök, hún fór vel með íslenska tungu, lét ekki frá sér skrifað orð nema vera viss um að rétt væri farið með það. Bogga naut sín vel í hlutverki ömmunnar. Það fór ekki fram hjá okkur ef Ástþór og Berglind voru væntanleg í heimsókn til hennar, slík var tilhlökkun hennar. Í veikindum Boggu kom best fram hvað vinamörg hún var. Það eru margir sem munu sakna hennar. Undirrituð mun sakna allra símtala okkar undanfarna mánuði, það var aðdáunarvert hvað hún gat verið gef- andi þrátt fyrir sín miklu veikindi. Ég sendi ættingjum hennar inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minningin um Sigur- borgu Jónsdóttur. Stella Olsen. SIGURBORG JÓNSDÓTTIR Hinsta vegferðin er farin. Vegurinn að baki í mistri tímans. Ása bróðurdóttir mín kvaddi þennan heim hinn fjórða janúar. Hennar er sárt saknað. Í mínum aug- um var hún ekki bara frænka heldur einnig vinkona um langan aldur. Hún fæddist þegar ég var átta ára og vita- skuld voru það mikil tíðindi en það var löngu seinna sem ég lærði að meta hlýju hennar og glaðlyndi, óbilandi baráttuþrekið og staðfestuna í heimi sem henni var stundum mótdrægur. Á erfiðum stundum sem þessum eru minningarnar helsta huggunin. Í þeim er hinn mannlegi fjársjóður fólginn. Það var alltaf mikill sam- gangur milli okkar alveg frá fyrstu ÁSA G. STEFÁNSDÓTTIR ✝ Ása Gíslína Stef-ánsdóttir fæddist í Reykjavík 17. jan- úar 1937. Hún lést í Reykjavík 4. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Árbæjarkirkju 14. janúar. dögum hennar en á full- orðinsárunum þegar við nálguðumst í þroska myndaðist með okkur sterk vinátta. Þær voru ófáar stundirnar sem við áttum saman, Jón B. Guðmundsson, seinni maður hennar, Ása, við hjónin og börnin. Það var m.a. fyrir þeirra til- stilli sem við fluttum á sínum tíma til Flateyrar þótt dvölin þar yrði skammvinn. Við reist- um sumarbústaði hlið við hlið og ótal ferðir fórum við sam- an, sumar ógleymanlegar. Á meðan börnin voru ung var það algengt að við eyddum saman aðfangadags- kvöldum og áramótum. Oft var glatt á hjalla því að fáum var það jafnvel gef- ið og Ásu að smita með hlátri og kát- ínu. Það var eins og fylgdi henni ein- hver birta. Lífið er þó ekki alltaf dans á rósum og stundum átti Ása erfiðar stundir. Ung missti hún barn sem hún átti með Walter, fyrri manni sínum, og hygg ég að sá missir hafi alla tíð sett mark sitt á hana. En Ása átti einnig þann styrk að snúa mótlæti í sigur. Það var gleðistund þegar við Ása héldum saman yngstu börnum okkar, Dísu og Halla, undir skírn. En fljót- lega kom í ljós að Halli, sonur Ásu og Jóns, átti við mikla fötlun að stríða. Þá hófst löng og hörð baráttusaga fyrir réttindum hans og vellíðan. Hún lagði á sig ómælda vinnu við æfingar hans, gekk manna á milli og jafnvel fyrir ráðherra til að fá úrræði fyrir hann og aðra félaga hans með svipaða fötlun og í raun mótaðist líf hennar mjög af þeirri baráttu. Í henni hafði hún stuðning manns síns á meðan hann lifði og tveggja yndislegra dætra, þeirra Guðrúnar og Guðlaug- ar. Ef til vill var það þó mesta sorgin í lífi hennar þegar hún missti heittelsk- aðan eiginmann sinn fyrir nokkrum árum. Jón hafði starfað m.a. við end- urskoðun og verslunarrekstur og hún við hlið hans. Við fráfall hans tók hún við rekstrinum þar til hún seldi versl- unina. Við hjónin og fjölskyldan öll send- um samúðarkveðjur til Halla, Guð- rúnar og Guðlaugar og fjölskyldna þeirra á þessari sorgarstundu. Við vitum að sorg þeirra er djúp. Ef eitt- hvað getur sefað slíka sorg er það birta minninganna sem við varðveit- um alla tíð. Anna L. Stefánsdóttir. Elsku Helga mín. Núna ert þú horfin á vit æðri máttar södd líf- daga. Ég kynntist þér fyrir ca 30 árum þegar Dóra vinkona mín giftist einka- syni þínum, Kalla. Ég var oft í boðum með þér hjá þeim í Réttabakkanum við fermingar, stúdentsútskriftir o.s.frv. Mér er minnisstætt hve stolt þú varst af þeim þremur prinsessum. Stundum var mér boðið í sunnudags- HELGA ROCKSÉN ✝ Helga JónsdóttirRocksén fæddist 25. febrúar 1910 í Reykjavík. Hún lést á öldrunardeild Land- spítalans við Hring- braut fimmtudaginn 3. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Langholts- kirkju 14. janúar. mat með þér, síðast sl. haust. Þú varst engin venjuleg kona, þú varst falleg kona. Þú varst mjög málhress svo að manni leiddist aldrei í návist þinni. Þú hefur alltaf tekið mér opnum örmum og aldrei sagt annað en hlý orð í minn garð, fyrir það þakka ég. Það er mikill sjónar- sviptir að ykkur, alda- mótakynslóðinni. Ég á bara pabba minn eftir sem ég er mjög þakklát fyrir. Ég hef þá trú að þú sért komin í faðm Gunn- ars þíns og að ykkur líði vel saman. Ég votta Kalla, Dóru og dætrum sam- úð mína um leið og ég bið Guð og englana að varðveita þig og þína. Þín Elín Stefánsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.