Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu Toyota Landcruiser
VX 100, nýskráður 22.01.2001,
ekinn 15,000, bensín, sjálfskipt-
ur, leðurinnrétting, tölvustýrð
fjöðrun. Ásett verð 5.990.000.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi.
Opnunartímar: Mánud. - föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
SAMSTARFSYFIRLÝSING og
málefnasamningur flokkanna þriggja
sem standa að Reykjavíkurlistanum
var samþykktur formlega á fundum
sem haldnir voru á vettvangi flokk-
anna sl. laugardag. Jafnframt var
ákveðin tilhögun við val frambjóð-
enda á fundi Samfylkingarfélaganna í
Reykjavík annars vegar og á fundi
sameiginlegs kjördæmisþings fram-
sóknarmanna í báðum Reykjavíkur-
kjördæmunum hins vegar.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
frestaði ákvörðun um hvernig staðið
verður að uppröðun á framboðslista
til framhaldsaðalfundar sem verður
væntanlega haldinn síðar í þessari
viku. ,,Það var kominn einhver hand-
boltafiðringur í fólk,“ sagði Sigríður
Stefánsdóttir, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs í
Reykjavík, um ástæður þess að
ákvörðun um þetta var frestað.
Samfylkingin ákvað að velja þrjá
efstu menn Samfylkingarinnar á
Reykjavíkurlistann með bindandi
prófkjöri stuðningsmanna, það er í 3.,
4. og 9. sæti framboðslistans, sem
koma í hlut Samfylkingarinnar. Kjör-
fundur hefst miðvikudaginn 13. febr-
úar kl. 16 og lýkur honum 17. febrúar
kl. 17. Kosið verður alla virka daga frá
kl. 16–19 en frá 10–17 laugardag og
sunnudag. Prófkjörið er opið félögum
allra Samfylkingarfélaganna í
Reykjavík og þeim stuðningsmönn-
um Reykjavíkurlistans sem lýsa yfir
stuðningi við Samfylkinguna. Fram-
boðsfrestur rennur út laugardaginn
9. febrúar kl. 17.
Ekki hafa enn komið fram formleg
framboð en gengið er út frá að borg-
arfulltrúarnir Steinunn V. Óskars-
dóttir, Helgi Hjörvar og Hrannar B.
Arnarsson muni öll gefa kost á sér,
skv. heimildum blaðsins. Þá mun
Stefán J. Stefánsson, formaður kjör-
dæmafélags Samfylkingarinnar í
Reykjavík, íhuga framboð.
Framsóknarmenn með bindandi
könnun um fjögur efstu sætin
Samþykkt var á fundi framsóknar-
manna á laugardaginn að ganga til
samstarfs við flokkana sem sameinast
um Reykjavíkurlistann og jafnframt
hefur verið ákveðið að viðhafa skoð-
anakönnun meðal aðalmanna í kjör-
dæmissamböndunum sem verður
bindandi fyrir fjögur efstu sætin.
Þetta val mun fara fram 23. febr. nk.
en frestur til að tilkynna þátttöku
rennur út 14. febrúar, skv. upplýsing-
um sem fengust á skrifstofu Fram-
sóknarflokksins í gær.
Á fundinum á laugardag tilkynnti
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
og oddviti Framsóknarflokksins í
borgarstjórn, að hún gæfi ekki kost á
sér í komandi kosningum. Á fundin-
um lýstu Alfreð Þorsteinsson borg-
arfulltrúi og varaborgarfulltrúarnir
Óskar Bergsson og Guðrún Jónsdótt-
ir því yfir að þau myndu taka þátt í
skoðanakönnuninni.
Samkomulagið miðast við að
R-listinn verði í meirihluta
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu er í samstarfsyfirlýs-
ingunni gengið frá skiptingu 15 efstu
sæta á milli flokkanna og skiptingu
embætta. Í samstarfsyfirlýsingu
flokkanna segir að formennska í
borgarstjórnarflokki listans muni
skiptast milli flokkanna þriggja þann-
ig að Samfylkingin tilnefni formann
fyrsta og fjórða ár kjörtímabilsins,
Framsóknarflokkurinn annað árið og
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
það þriðja. Flokkarnir þrír munu
hver eiga sinn fulltrúa í borgarráði.
Borgarstjóri verður formaður borg-
arráðs og varaformennska mun
skiptast milli flokkanna þriggja þann-
ig að Framsóknarflokkurinn mun
eiga varaformann fyrsta árið, VG
annað og fjórða árið og Samfylkingin
það þriðja.
Þá skipa flokkarnir tvo menn hver í
kosningastjórn sem skal í samvinnu
og samráði við borgarstjóra vinna að
og taka ákvörðun um hvað eina sem
lýtur að kosningabaráttunni. Hefur
hún sér til ráðgjafar kosningaráð,
skipað 12 efstu mönnum listans.
Samfylking með prófkjör og Framsókn skoðanakönnun
VG frestaði ákvörðun
um framboðstilhögun
Málefnaáherslur/40
RÚMLEGA þrítug hollensk kona var
í gær dæmd í tveggja mánaða óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir að smygla
tæplega 30 g af kókaíni inn í landið.
Fíkniefnið hafði hún falið innvortis.
Hjördís Hákonardóttir, héraðs-
dómari hjá Héraðsdómi Reykjavíkur,
tók sérstakt tillit til bágra aðstæðna
konunnar í hennar heimalandi og það
sem vitað er um fortíð hennar þegar
hún ákvað refsingu.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
stöðvaði konuna síðdegis á sunnudag
og vart leið sólarhringur þar til dóm-
ur féll. Egill Stephenssen, saksóknari
lögreglustjórans í Reykjavík, segir að
lögregla reyni eftir mætti að hraða
málsmeðferð. Sérstaklega eigi það við
þegar útlendingar eigi í hlut enda hafi
fæstir í önnur hús að venda en fang-
elsi. Áfrýji konan ekki dómnum mun
hún þegar hefja afplánun. Lögregla
telur víst að konan hafi verið svokall-
að burðardýr fíkniefna.
Handtekin
og dæmd á
sólarhring
MAÐURINN sem lést í umferðar-
slysinu á Gemlufallsheiði á föstudag
hét Sófus Oddur Guðmundsson.
Sófus Oddur var 44 ára gamall,
fæddur hinn 10. september 1957, til
heimilis á Hlíðargötu 40, Þingeyri.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
þrjú börn á aldrinum 6–19 ára.
Skv. upplýsingum frá lögreglunni
á Ísafirði bendir allt til þess að snörp
vindhviða hafi feykt lítilli sendibif-
reið, sem Sófus ók, út af veginum úr
Önundarfirði og upp á Gemlufalls-
heiði. Hafnaði bílinn nokkra tugi
metra frá, fyrir neðan veginn. Talið
er að Sófus hafi látist samstundis.
Lést í um-
ferðarslysi
UNG kona mjaðmagrindarbrotnaði
í hörðum árekstri tveggja bifreiða á
gatnamótum Miklubrautar og Háa-
leitisbrautar rétt fyrir klukkan 13 í
gær. Hin slasaða mun hafa kastast
að hálfu leyti út um hliðarrúðu bif-
reiðar sem hún var farþegi í.
Að lokinni rannsókn á slysadeild
var hún lögð inn á spítala og er líðan
hennar góð að sögn læknis á slysa-
deild. Ökumenn bifreiðanna tveggja
slösuðust lítilsháttar en verulegar
skemmdir urðu á ökutækjunum og
voru þær fluttar á brott burt með
kranabifreið.
Slasaðist
í hörðum
árekstri
VEITINGAHÚSIÐ Ítalía við
Laugaveg 11 stórskemmdist í eldi í
fyrrinótt, en engan sakaði í eldsvoð-
anum. Tveir menn voru hins vegar
handteknir fyrir að trufla störf lög-
reglu og slökkviliðs og íhugar lög-
reglan að taka hart á slíkum afskipt-
um í ljósi ítrekaðra tilvika af því tagi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
sendi slökkvibifreiðir frá öllum
slökkvistöðvum klukkan 1:23 og fóru
alls um 30 slökkviliðsmenn í útkallið.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang
var mikill eldur í veitingahúsinu og
voru tveir reykkafarar sendir inn í
húsið. Í ljós kom að eldur var einkum
í kringum pitsuofn. Tókst slökkviliði
að ná tökum á eldinum klukkan 1:55,
eða um 20 mínútum eftir útkall, og
hindra að eldurinn breiddist út um
húsið, sem er þriggja hæða. Fólk er
skráð með búsetu í húsinu, en fljót-
lega var gengið úr skugga um að eng-
inn væri innandyra. Að loknum
slökkvistörfum var höfð vakt við hús-
ið til klukkan 6 í gærmorgun. Miklar
skemmdir urðu af eldi, reyk og sóti í
veitingasal hússins og í eldhúsinu.
Síðustu starfsmenn munu hafa yf-
irgefið veitingastaðinn um miðnætti,
eða hálfri annarri klukkustund áður
en tilkynnt var um eldinn. Að sögn
stöðvarstjóra slökkvistöðvarinnar í
Skógarhlíð, Gunnars Jónssonar, sem
stjórnaði aðgerðum á vettvangi, hafði
eldur greinilega kraumað góða stund
áður en slökkviliðið kom á staðinn.
Hlýddu ekki fyrir-
mælum lögreglu
Laugaveginum var lokað á meðan
unnið var að slökkvistarfi en grípa
þurfti til frekari aðgerða til að
tryggja vettvanginn fyrir gangandi
vegfarendum, sem sumir hverjir
trufluðu slökkvistörf.
Tveir menn voru handteknir fyrir
slagsmál á vettvangi og hlýddu ekki
tilmælum lögreglu um að hætta.
Voru þeir því færðir á lögreglustöð
en leyft að fara skömmu síðar. Geir
Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, segir að þetta tilvik hafi
ekki verið eins alvarlegt og þegar
fjórir voru handteknir fyrir að trufla
slökkvistarf á Laugavegi 15 20. jan-
úar sl. Hann segir það þó gilda jafnt
um slökkvilið og lögreglu, þegar
sinna þurfi útköllum í miðbænum í
mannmergð, að vinnufriði sé iðulega
spillt vegna afskipta fólks. Nú um
helgina hafi t.d. litlu mátt muna að
tveir menn slösuðu lögreglumenn við
skyldustörf er þeir voru að handtaka
menn vegna slagsmála fyrir utan
veitingastað í miðbænum.
„Við erum orðnir ansi þreyttir á
þessu og fólk má búast við fjársekt-
um fyrir að trufla lögreglu eða
sjúkralið við skyldustörf. Það verður
tekið fast á þessu og við ætlum ekki
að líða þetta lengur,“ sagði Geir Jón
við Morgunblaðið.
Trufluðu slökkviliðsmenn við slökkvistörf á Ítalíu
Miklar skemmdir
urðu í sal og eldhúsi
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan leiðir á brott mann sem fór ekki að fyrirmælum hennar við veitingastaðinn Ítalíu.
HARALDUR Örn Ólafsson fjall-
göngumaður komst á tind Aconcag-
ua, hæsta fjalls S-Ameríku, á laug-
ardagskvöld og hefur nú klifið sex
af sjö tindum í sjötindaleiðangr-
inum. Haraldur lagði af stað úr búð-
um sem kallast „Hreiður kondórs-
ins“ í 5.400 metra um fimmleytið á
laugardagsmorgun að staðartíma
og komst á tindinn um kvöldið.
„Veður var gott framan af degi
og útsýni hreint út sagt stórkost-
legt, en nú þegar ég stend á tind-
inum umlykur þoka fjallið,“ sagði
Haraldur Örn við bakvarðasveit
sína á laugardagskvöld.
Aconcagua er sjötta fjallið sem
Haraldur klífur í sjötindaleiðangri
sínum og á hann sjöunda og jafn-
framt erfiðasta fjallið eftir, Everest.
Haraldur mun koma tl Íslands til að
undirbúa Everest-leiðangurinn og
stefnir á að komast á fjallið í maí.
Ljósmynd/Ólafur Örn Haraldsson
Komst á tind
Aconcagua