Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 14
LANDIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ný þjónustumiðstöð
Til sölu á góðum stað nýleg þjónustumiðstöð með skyndibitastað,
íssölu, sælgætissölu og stóra myndbandaleigu. Öll tæki og innrétt-
ingar af dýrustu og bestu gerð. Endurskoðaður ársreikningur frá
því 2001 liggur fyrir og sýnir góðan hagnað. Frábær staðsetning,
tvær bílalúgur, upphitað plan og bestu tæki sem fáanleg eru á
markaðnum. Stöðugt vaxandi velta.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
DRANGSNESINGAR fóru ekki var-
hluta af veðrinu sem gekk yfir land-
ið um helgina. Mikið óveður gekk yf-
ir frá föstudagskvöldi og fram eftir
laugardegi að fór að draga úr veðr-
inu. Samfara miklum veðurham var
loftþrýstingur lágur og sjávarhæð
því mjög mikil. Bar brimið töluvert
af grjóti upp á veginn í gegnum
þorpið en hann liggur með sjónum.
Ekki urðu þó teljandi skemmdir á
veginum en ryðja þurfti burt grjóti
og sjávarkrapa svo fært yrði bílum.
Í fjörunni við veginn gegnum
Drangsnes voru heitir pottar sem
mikið voru sóttir af heimafólki og
gestum. Um hádegisbil á laugardag
urðu menn varir við að brimið var
að taka heitu pottana og annar var
farinn. Tókst að bjarga öðrum og
meðan menn voru að ná honum upp
kom stærðar fylla og tók með sér
trépall og grindverk sem þarna var
og bar á haf út.
Pottinn hefur sennilega rekið yfir
fjörð en af öðru sést einungis brak í
fjörunni og eins nokkrar spýtur á
veginum sem brimið hefur skolað á
land.
Brimið tók
heitu pottana
Drangsnes
FRYSTITOGARINN Málmey SK-1
fékk á sig straumhnút á föstudags-
kvöld og slösuðust tveir skipverja
þegar þeir köstuðust 7–8 metra utan
í vegg þar sem þeir unnu að frágangi
í svonefndu frystihúsi í skipinu.
Skipið var statt um 60 sjómílur
vestur af Bjargtöngum þegar hnút-
urinn reið yfir.
Guðmundur Kjalar Jónsson, skip-
stjóri segir straumhnútinn hafa
skollið á skipinu á „margra tuga kíló-
metra hraða.“ Hnúturinn kom bak-
borðsmegin og varð af mikill hvellur,
líkastur sprengingu. Telur Guð-
mundur að skipið hafi hallast 60–70°
á stjórnborða en það rétti sig strax
aftur við. Þrír gluggar opnuðust þeg-
ar festingar gáfu sig og flæddi sjór
inn á íbúðargang. Þá hreif sjórinn
með sér tvo gúmmíbjörgunarbáta og
toghlera sem hafði verið vandlega
festur niður með keðjum. Einhverjir
skipverja köstuðust úr kojum og út í
vegg. Einum varð sérstaklega
brugðið þegar sjórinn small á andliti
hans og taldi hann sig ekki eiga von á
góðu.
Annar skipverjanna sem slasaðist
hlaut sár á fæti en hinn meiddist
nokkuð á baki og öxl auk þess sem
skurður opnaðist á framhandlegg.
Saumaði stýrimaðurinn 12 spor í
handlegg hans og þótti ekki mikið
enda eru slíkar aðgerðir býsna al-
gengar um borð í úthafsveiðiskipum
að sögn Guðmundar.
Hann segir skipið aldrei hafa verið
í hættu en að sjálfsögðu getur slíkur
hnútur reynst skipverjum skeinu-
hættur.
Málmey lagðist að bryggju í Hafn-
arfirði á laugardagskvöld en ætlunin
hafði verið að koma þangað í gær.
Straumhnútur skall á Málmey og tveir skipverjar slösuðust
Hallaði 60–70 gráður
en rétti sig fljótt af
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
FÁRVIÐRI geisaði á sunnanverðu
Snæfellssnesi frá síðari hluta föstu-
dags og fram á aðfaranótt sunnudags.
Mestur var veðurhamurinn í vestan-
verðri Staðarsveit þar sem vind-
hraðamælir á Garðaholtinu fór í 63
metra á sekúndu áður en hann fauk
hreinlega í burtu. Mikill veðurhamur
var einnig í Breiðuvík þar sem klæðn-
ing flettist á fjórum stöðum af veg-
inum. Klæðningin flettist bæði af frá
norðri til suðurs og suðri til norðurs,
þótt vindur væri norðanstæður. Mikl-
ar skemmdir urðu á vegstikum og á
kafla í Breiðuvík tókust 18 þeirra á
loft og hurfu út í vindinn. Björn Jóns-
son, rekstrarstjóri Vegagerðinnar í
Ólafsvík, telur að skipta þurfi um veg-
stikur á löngum kafla en þær eru
bæði vind- og grjótbarðar.
Bílar sem fóru þarna um lentu líka í
sviptivindum en vindstrengirnir sem
komu niður fjallshlíðarnar virtust
fara yfir veginn, venda alveg og svipt-
ast til baka.
Fólk veðurteppt og
þorrablóti frestað
Til stóð að halda þorrablót á Lýsu-
hóli á laugardeginum og var unnið að
undirbúningi þess í félagsheimilinu á
föstudeginum. Margir urðu þar veð-
urtepptir, sem var kannski eins gott
því aðfaranótt laugardags brotnuðu
rúður í gangi Lýsuhólsskóla sem er
sambyggður félagsheimilinu. Tókst
innlyksa fólkinu að bjarga verðmæt-
um eins og píanói, tölvubúnaði og
bókasafnsbókum undan snjó sem
fyllti strax ganginn. Einnig tókst því
að negla fyrir brotnar rúður og verja
aðrar með dýnum svo síður væri
hætta á að þær brotnuðu undan
stórum grjóthnullungum sem vindur-
inn þeytti léttilega um.
Í skutbíl sem stóð norðan við skól-
ann brotnaði afturrúða. Í veðurhamn-
um var ekki viðlit að færa hann í skjól
og fylltist hann af snjó. Veggplötur
fuku af öllum vesturgafli skólans svo
og girðing sem var umhverfis sund-
laugina. Sagðist Guðmundur Sigur-
monsson skólastjóri ekki muna eftir
öðrum eins veðurham í þau 30 ár sem
hann væri búinn að vera skólastjóri
Lýsuhólsskóla.
Öll áform um þorrablót fuku út í
veður og vind og var því frestað um
tvær vikur vegna veðurs.
Rafmagns- og símaleysi
Allt rafmagn fór af svæðinu milli
klukkan tvö og þrjú aðfaranótt laug-
ardags. Bæir í austanverðri Staðar-
sveit fengu aftur rafmagn fyrri hluta
laugardags, en almennt komst raf-
magn ekki á fyrr en milli klukkan þrjú
og fjögur á laugardeginum. Þrír bæir
sem tengdir eru gamalli loftlínu fengu
hins vegar ekki rafmagn fyrr en á
sunnudagsmorgni því viðgerðarmenn
urðu frá að hverfa í veðurofsanum.
Í rafmagnsleysinu fór allt síma-
samband af Lýsuhólsskóla en þar er
símstöð sem ekki virkar í rafmagns-
leysi. Jafnframt urðu GSM-símar
óvirkir því ekki koma varasendar inn
á endurvarpsstöðvum þeirra fari raf-
magnið. Höfðu menn á orði að það
væri slæmt því margir nota einmitt
GSM-síma sem nokkurs konar neyð-
arsíma.
Víða tjón í veðurofsanum
Klæðning flettist víða af veginum í
Staðarsveit og á mörgum bæjum varð
eitthvert tjón. Auk þeirra skemmda
sem urðu á Lýsuhólsskóla. Um 30
hross sluppu ómeidd þegar hesthús
við bæinn Lýsuhól stórskemmdist á
laugardagsmorgun. Að sögn Agnars
Gestssonar, bónda á Lýsuhóli gerði
mikinn hvell upp úr miðnætti og stór-
skemmdist þá annar gafl hússins.
Tókst að negla fyrir en um morgun-
inn gerði enn harðari hviðu og tók þá
af stóran hluta af þakinu.
Á veðurathugunarstöðinni á Blá-
feldi fauk hurð af vélargeymslu og ¼
hluti af fjárhúsþaki sviptist burtu með
sperrum og langböndum. Girðing við
húsið brotnaði og flestir gluggar í
húsinu eru marðir eða með smágöt
eftir grjóthríð sem buldi á þeim og
eitthvað af rúðum brotnaði í útihús-
um. Í Hlíðarholti eyðilögðust gömul
fjárhús og hlaða en þar tók því sem
næst allt þakið af. Í Böðvarsholti eins
og víða annars staðar flettist utan af
heyrúllum, en þær fuku einnig í veð-
urhamnum og lentu sumar í skurðum.
Á Hraunsmúla fuku fimm þakplöt-
ur af refahúsi, hlaðinn veggur úr
hraungrjóti tættist í sundur og öll hlið
fuku út í buskann í því ofsaveðri sem
þar geisaði.
Morgunblaðið/RAX
Hrossin 30 sem voru inni í hesthúsinu á Lýsuhóli sluppu öll ómeidd þegar húsið stórskemmdist á laugardags-
morgun. Guðmundur Kristjánsson sést hér standa á því sem eftir er af þakinu. Í baksýn er Lýsuhyrna.
Fárviðri og talsvert
eignatjón á Snæfellsnesi
Hellnar
RAFMAGN fór af nær allri
Strandasýslu í norðanroki og
snjókomu sem gekk yfir aðfara-
nótt laugardags. Var rafmagns-
og hitalaust rúmlega einn og
hálfan sólarhring á nokkrum
stöðum svo sem í Bitrufirði,
Kollafirði og víðar.
Starfsmenn Orkubús Vest-
fjarða á Hólmavík stóðu í
ströngu alla helgina við að lag-
færa bilanir og hreinsa ísingu
og sjávarseltu af spennivirkj-
um.
Í Árneshreppi var ekki kom-
ið á rafmagn nema hluta
byggðar seint á sunnudags-
kvöld.
Á Hólmavík var rafmagns-
laust öðru hverju á laugardag-
inn en þó var þorrablóti ekki
frestað þar þrátt fyrir að mat-
urinn kæmi í seinna lagi og
hljómsveitin sem spila átti
kæmist ekki frá Ísafirði en
hæfileikaríkir heimamenn
spiluðu þess í stað fyrir dansi.
Skv. upplýsingum frá
Orkubúi Vestfjarða var búist
við því að rafmagn kæmist á
bæina Munaðarnes og Kross-
nes í gærkvöldi og á farsíma-
stöð norður af Felli í gærkvöldi.
Það þykir ekki tíðindum sæta
að vegurinn milli Drangnsness
og Bjarnarfjarðar lokist á vetr-
um vegna snjóa en hins vegar
ber þannig við eftir þetta norð-
austan skot sem gekk yfir síð-
ustu daga að jú vegurinn lok-
aðist, ekki vegna snjóa heldur
húshluta sem fokið höfðu á
hann.
Gamall fjárhúsbraggi á eyði-
býlinu Framnesi í Bjarnarfirði
hafði tekist á loft, að öllum lík-
indum í heilu lagi, í óveðrinu og
splundrast yfir veginum. Brak
úr bragganum er beggja vegna
vegarins og eins á honum svo
hann varð ófær. Íbúðarhúsið
virðist hafa sloppið við
skemmdir þegar bragginn fauk.
Þrátt fyrir þetta áhlaup sem
gerði um helgina er sáralítill
snjór á vegi milli Drangsness
og Bjarnarfjarðar og hefur svo
verið í allan vetur.
Raf-
magns-
leysi og
kuldi
Strandir