Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 21
K
O
R
T
E
R
SAMKOMULAG hefur náðst á milli
stjórnar Omega Farma og stjórnar
Delta um sameiningu félaganna.
Samkomulagið er með ítarlegum fyr-
irvörum m.a. um niðurstöðu áreiðan-
leikakönnunar, en stefnt er að und-
irritun endanlegs kaupsamnings um
miðjan mars næstkomandi.
Róbert Wessman, forstjóri Delta,
og Friðrik Steinn Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Omega Farma,
segja að markmiðið með sameining-
unni sé að stuðla að auknum vexti í
þróun og sölu á samheitalyfjum en
ekki að fækka starfsfólki. Með sam-
einingu félaganna náist einkum
þrennt fram. Í fyrsta lagi nýtist fjár-
festingar félaganna betur og þannig
aukist framlegð. Í annan stað geti
sameinað fyrirtæki komið fleiri lyfj-
um á markað en ella. Í þriðja lagi geti
sameinað fyrirtæki byggt upp enn
öflugra sölunet erlendis en félögin
tvö í samkeppni geta gert.
Þeir segja að tækifærin í þróun,
sölu og framleiðslu á samheitalyfjum
séu mikil. Ferlið sé að verða flóknara
en áður. Stærri fyrirtæki eigi auð-
veldara með að takast á við flóknara
ferli, sem þá bjóði upp á tækifæri
fyrir þá sem kunni að takast á við
þær reglur sem fara þurfi eftir. Þá sé
það tvímælalaust þjóðhagslega hag-
kvæmt að tvö fyrirtæki á íslenskum
lyfjamarkaði sameinist í að leita út-
rásar í útflutningi.
Gert er ráð fyrir að eigendur
Omega Farma fái 26% hlut í Delta
sem greiðslu.
Omega Farma verður rekið sem
dótturfélag Delta. Friðrik S. Krist-
jánsson, núverandi framkvæmda-
stjóri Omega Farma, mun veita fyr-
irtækinu áfram forstöðu ásamt því að
taka við stöðu faglegs framkvæmda-
stjóra í hinu sameinaða félagi og eiga
sæti í framkvæmdastjórn. Róbert
Wessman, forstjóri Delta, verður
forstjóri hins sameinaða félags.
Vöxtur ræðst af fjölda lyfja
Um hálfur mánuður er síðan farið
var að ræða um sameiningu Delta og
Omega Farma að þessu sinni. Ró-
bert segir að hugmyndin um samein-
ingu félaganna sé þó töluvert eldri og
sé orðin nokkura ára gömul. Ástæð-
an fyrir því að samningaviðræður
hafi ekki tekið lengri tíma að þessu
sinni en raun beri vitni séu fyrri við-
ræður félaganna. Þannig hafi tölu-
verðum tíma til að mynda verið varið
af hálfu beggja félaganna í þessi mál
fyrir um einu ári.
Friðrik segir að lengi hafi legið
fyrir að mikil hagræðing væri af því
að sameina félögin. Spurningin hafi
einungis verið um hvaða leið yrði far-
in að því marki. Hann segir að stefnt
hafi verið að því að Omega Farma
færi á markað á þessu ári og að það
ferli hafi verið í undirbúningi. Með
því að sameinast Delta hafi skapast
leið til að koma hlutabréfum í Omega
Farma á markað fyrir hluthafa fé-
lagsins.
Róbert segir að vöxtur félagsins
ráðist af því hvað það kemur mörg-
um lyfjum á markað. Velta Delta hafi
tífaldast á þremur árum fyrir sam-
einingu og vöxturinn hafi verið á
grundvelli tiltölulega fárra lyfja.
Þróunarstarf fyrirtækisins hafi verið
að eflast að undanförnu með þróun-
arverksmiðju í Borgartúni í Reykja-
vík og með þróunarfyrirtæki á
Möltu. Nú komi Omega Farma inn
með þau þróunarverkefni sem fyr-
irtækið hefur unnið að.
Þeir Róbert og Friðrik segja að
mikil áhersla verði lögð á að starfs-
fólk beggja fyrirtækjanna njóti sín
og nái vel saman. Þá verði áhersla
lögð á að allir starfsmenn haldi vinnu
sinni hjá hinu sameinaða fyrirtæki,
enda megi gera ráð fyrir áframhald-
andi framtíðarvexti. Ef einhver störf
losni verði fundin önnur störf fyrir
viðkomandi innan samsteypunnar.
Þeir segja að sameiningin hafi verið
kynnt fyrir starfsfólki beggja fyrir-
tækjanna og að henni hafi verið mjög
vel tekið.
Væntingar um 1,7 milljarða
í hagnað 2002
Fjöldi starfsmanna Delta hefur
aukist úr um 100 í árslok 1998 í um
500 nú. Svo bætast við um 50 starfs-
menn Omega Farma. Róbert segist
sjá fram á áframhaldandi vöxt í
framtíðinni vegna allra þeirra nýju
lyfja sem áætlað sé að hefja sölu og
framleiðslu á á ári hverju.
Velta Delta á árinu 1998 var um
780 milljónir króna en áætlanir
gerðu ráð fyrir að veltan á þessu ári
yrði um 7,8 milljarðar. Velta Omega
Farma á árinu 1998 var tæpar 300
milljónir og gerðu áætlanir ráð fyrir
að á þessu ári yrði veltan um 3 millj-
aðar.
Samanlögð velta félaganna fyrir
árið 2001 er áætluð um 6,5 milljarðar
króna og hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöld (EBITDA framlegð)
um 1,8 milljarðar. Áætlanir hins
sameinaða félags fyrir árið 2002 gera
ráð fyrir um 10,5 milljörðum króna í
veltu og rúmlega þriggja milljarða
EBITDA framlegð. Hagnaður eftir
skatta fyrir árið 2002 er áætlaður um
1,7 milljarðar króna. Gert er ráð fyr-
ir að yfir 90% tekna samstæðunnar
komi erlendis frá.
Liður í uppbyggingu
alþjóðlegs félags
Róbert segir að félagið muni
styrkja stöðu sína enn frekar í þróun
og sölu á samheitalyfjum innanlands
og erlendis. Eftir sameininguna sé
stefnt að því að ljúka við þróun á 10-
12 nýjum samheitalyfjum á ári í
framtíðinni. Gert sé ráð fyrir að
Delta muni markaðssetja erlendis
um 23 ný samheitalyf fram að árs-
lokum 2005 eftir sameiningu.
Þeir Róbert og Friðrik segja að
sameining félaganna sé liður í upp-
byggingu Delta sem alþjóðlegs fé-
lags og öflugs þekkingarfyrirtækis.
Bæði fyrirtækin búi yfir mikilli þekk-
ingu og reynslu í þróun á samheita-
lyfjum og hafi yfir að ráða mjög hæfu
starfsfólki. Eftir sameiningu sé
Delta komið í hóp öflugustu félaga á
Verðbréfaþingi Íslands.
Hið sameinaða félag Delta og
Omega Farma mun bera nafnið
Delta hf. Helstu eigendur hins sam-
einaða félags Delta hf. verða Omega
Farma með 26%, Brúskur með rúm
16%, bankar og hlutafjársjóðir með
um 15%, starfsmenn Delta um 10%
og aðrir um 32%.
Helstu eigendur Omega Farma
eru Birkir Árnason, stjórnarmaður,
Friðrik Steinn Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri, Jón Á. Ágústsson,
stjórnarmaður, Jón Halldórsson,
hæstaréttarlögmaður, og Stanley
Pálsson, stjórnarformaður.
Félagið var stofnað árið 1990 og
hefur markaðssett ný samheitalyf á
Íslandi.
Búnaðarbanki Íslands veitir ráð-
gjöf við sameininguna og hefur um-
sjón með fjármögnun. Ekki er gert
ráð fyrir útgáfu nýs hlutafjár í Delta
vegna kaupanna.
Delta kaupir eigin hlutabréf
Greint var frá því í flöggun frá
Delta á Verðbréfaþingi Íslands í gær
að félagið hefði þann dag keypt eigin
hlutabréf að nafnverði 43.511.307
krónur af Búnaðarbanka Íslands,
framvirkt, á genginu 50. Kaupverðið
var því tæpir 2,2 milljarðar króna.
Eignarhlutur Delta í félaginu eftir
kaupin er 55.511.796 krónur að nafn-
verði, eða 25,45%. Í flöggun frá Bún-
aðarbankanum kom fram að eignar-
hlutur bankans eftir söluna sé
17.293.593 krónur að nafnverði, eða
7,93%.
Gengi Delta hf. á Verðbréfaþingi
Íslands hækkaði í gær um 19,9% og
var lokagengið 58,50. Heildarvið-
skiptin námu tæpum 2,6 milljörðum
króna í 72 viðskiptum.
Gengi Delta hækkar um 19,9% eftir tilkynningu um sameiningu við Omega Farma
Morgunblaðið/Þorkell
Friðrik Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Omega Farma ehf., og
Róbert Wessman, forstjóri Delta hf.
Áætluð árs-
velta rúmir 10
milljarðar
VERÐ hlutabréfa í Arcadia hækkaði aftur í gær en
bréfin lækkuðu á föstudag í kjölfar frétta af slitum á
yfirtökuviðræðum félagsins við Baug. Hækkunin í
gær nam 6,22% og var lokagengi 273 pens en þetta
er nokkur hækkun umfram lækkunina á föstudag.
Breskir verðbréfamiðlarar mæla flestir enn með
því að hluthafar í Arcadia haldi hlutum sínum í fé-
laginu, a.m.k. þar til ljóst verður hvað gerist á
næstu vikum. Baugur hefur lýst því yfir að fjár-
mögnun yfirtöku á Arcadia muni ljúka á næstunni
og þannig gefið í skyn að enn standi til að bjóða í fé-
lagið. Enn má sjá af breskum fjölmiðlum efasemdir
um að fjármögnunin takist enda hafi Baugur farið
fram á frestun hvað eftir annað.
The Observer sagði Stuart Rose hafa gert rétt í
að segja Baugsmönnum að hypja sig með sitt van-
hugsaða og illa unna hugsanlega tilboð. Blaðið
bendir hins vegar á að Baugur eigi þarna enn
fimmtungshlut og muni sá hlutur óhjákvæmilega
varpa skugga á félagið, gera það veikara fyrir og
þrýsta niður hlutabréfaverðinu.
Í Lex-dálki Financial Times um helgina er tekið
undir þetta sjónarmið. Þar segir að vandamálið sé
að Baugur eigi áfram 20% hlut og ætli að halda hon-
um. Þar til örlög þess eignarhlutar verði ráðin geti
óvissan þar um hamlað því að verð á Arcadia nái
jafnvægi.
Verð bréfa í Arcadia hækkar á ný