Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 05.02.2002, Qupperneq 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 37 Krinlunni 8-12, sími 562 6811 Skóhöllin, Bæjarhrauni 16, Hf., sími 555 4420. SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR Enn meiri verðlækkun! 30-70% afsláttur Allir kuldaskór með 50% afslætti Dömu-, herra- og barnaskór Í Morgunblaðinu 29. janúar sl. skrifar Krist- ján Ragnarsson, for- maður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), grein sem hann nefnir: „Skilningsskortur leið- arahöfundar.“ Það er ekkert óeðlilegt við það að leiðarahöfundur stærsta blaðs landsins og aðrir séu hissa á um- snúningi LÍÚ varðandi kvótaframsal. Þeir sem hafa fylgst með mál- flutningi LÍÚ vita ofur vel að formaður þeirra samtaka hefur ávallt sagt að forsendan fyrir fiskveiðikerf- inu og svokallaðri hagræðingu sé frjálst framsal veiðiheimilda. Í grein Kristjáns kemur fram að ég hafi tjáð mig um að ég hafi hent í sjóinn stórum hluta þess afla sem á bát minn hefur aflast undanfarin ár. Málfrelsi er enn utan kvóta þó að sumir séu sviftir veiðileyfi fyrir að nota þau mannréttindi. Það sem Kristján gleymdi Mér þykir það mjög miður að for- maður LÍÚ skuli ekki hafa sett eft- irfarandi í grein sína fyrst hann á annað borð virðist hafa svo mikinn áhuga á því sem ég sem formaður Landssambands útgerða kvótalítilla skipa (LÚKS), og sem einstaklingur, bæði geri og segi. Hann virðist bresta minni um að sumarið 2000 tjáði ég mig opinber- lega um reynslu mína af brottkasti, bæði á eigin skipi og á tveimur togurum í eigu félagsmanna LÍÚ. For- manninum er að sjálf- sögðu velkomið að koma heim til mín og fá uppgefið hvaða skip er um að ræða. Eftir það ætti hann að taka lepp- ina frá báðum augum sínum og taka til við að lemja einhverja aðra en kvótalitla með staur- fætinum. Ég greindi frá veið- um annars togarans í Smugunni og brottkasti á Íslandsmiðum áður en haldið var í Smuguna með þorsk inn- anborðs veiddan á Íslandsmiðum sem síðan var skráður sem smugu- fiskur. Einnig frá veiðum og brott- kasti á úthafskarfa. „Sýktum“ karfa var hent í stórum stíl í stað þess að koma með hann að landi og selja á markaði eða í bræðslu. Á hinum togaranum var eingöngu veitt á heimamiðum. Þar um borð voru einn til tveir menn við færiband að tína úr fisk sem ekki hentaði í vinnslu í landi. Um borð í öðru skip- inu voru, og eru enn, lensidælur með hnífum til að dæla sjó af millidekki. Hnífarnir eru samt ekki til þess ætl- aðir að skera sjóinn. Þeir eru til að tæta niður fisk og dælan sprautar síðan hakksúpunni fyrir borð. For- stjórar útgerða þessara tveggja skipa voru (og eru) í stjórn Hafrann- sóknarstofnunar og í stjórn LÍÚ. Báðir vissu þeir af þessari umgengni. Annar hreinlega bað um mikla flokk- un á saltfiskafurðum skipsins. Þetta var mín fyrsta og hingað til versta reynsla af geggjuðu brottkasti á bol- fiski. Engar geymslur voru fyrir ís- fisk og lest skipsins notuð fyrir salt- fisk. Fleiri tonnum af fiski var hent á sólarhring. Í ljósi þess sem ég veit og hef sjálf- ur tekið þátt í á togurum er það veru- lega þreytandi að liggja undir hræsnisbullinu í grátklökkum for- manni LÍÚ. Fullyrðingar um að brottkast sé eingöngu stundað á kvótalitlum eða kvótalausum skipum getur eingöngu komið í fullri alvöru frá manni sem aldrei hefur stigið fæti á fiskiskip og byggir alla sína þekk- ingu á veiðum á frásögnum annarra landkrabba sem eru bræður hans í hinni blindu trú á dýrð kvótakerfis- ins. Þessir menn kjósa að líta fram hjá því að í frægri brottkastskönnun Gallup kemur mjög skýrt fram að á frystitogurum er hent fiski í stórum stíl án þess að þeir séu kvótalitlir eða kvótalausir. Þetta geta allir kynnt sér sem kunna að lesa. Margur heldur mig sig Formaðurinn kemur líka inn á kjarasamninga. Að kvótalitlar út- gerðir brjóti á sjómönnum eftir að kaupverð aflamarks hefur verið dregið frá. Kvótalaus skip eru nefni- lega að leigja til sín en ekki að kaupa. Þau eru í flestum tilfellum gerð út af nýliðum í stétt útgerðarmanna. Þeir borga í dag 156 krónur í auðlinda- gjald fyrir hvert kíló þorsks sem þeir draga úr sjó. Þetta gjald heitir því fína nafni kvótaleiga. Og hverjir skyldu nú hrifsa til sín þetta gjald, Kristján Ragnarsson? Í okkar félagsskap eru skipverjar hvorki látnir borga olíu á skipin né fæði. Þeir fá sína sanngjörnu hluti af fiskafla. Auk þess er hrognum skipt til manna. Þar eru 50% skipti og oft jafnvel 100%. Lifrina fær áhöfnin í sinn hlut 100%. Þar sem kúttmagar og slóg er hirt eru 100% skipti. Því var slegið hér upp í fjölmiðlum á dög- unum að frystitogarar Samherja komi nú með hausa í land. Þetta er ekkert til að hrópa húrra fyrir í ljósi þess að það hafa bátarnir alla tíð gert. Einnig koma þeir með hryggi, lifur, hrogn og jafnvel annan innmat. Verksmiðjuskipin, sem kenna sig við frystingu og formaður LÍÚ hefur makalaust dálæti á, eru einfaldlega mörg ár á eftir tímanum á þessu sviði. Nei, formanni LÍÚ og hans nýju vinum væri hollast að líta í eigin barm og taka til í eigin ranni (svo notuð séu hans orð). Þeir ættu að ein- beita sér að brýnni málum en að ráð- ast á nýliða í útgerð á Íslandi. Heið- arlega sjómenn sem reyna eftir bestu getu að sjá sér og sínum far- borða í dýrasta og óréttlátasta fisk- veiðistjórnunarkerfi í heimi. Brestur Kristján minni eða brestur hann í grát? Sigurður Grétar Marinósson Kvótatillögur Málfrelsi er enn utan kvóta, segir Sigurður Grétar Marinósson, þó að sumir séu sviptir veiðileyfi fyrir að nota þau mannréttindi. Höfundur er formaður Lands- sambands kvótalítilla skipa. aður Svía. Tengslin eru þó mik- ilvæg á öðrum sviðum. Hér má nefna í fjármálageiranum, á há- tækni og hugbúnaðarsviði og á mennta- og heilbrigðissviði, svo ekki sé talað um handboltann. Ís- lendingar hafa á síðustu árum fjár- fest í sænskum fyrirtækjum bæði í framleiðslu og innan fjármálageir- ans. Hins vegar er lítið um fjár- festingar sænskra fyrirtækja á Ís- landi. Þegar við Íslendingar tölum um alþjóðavæðingu er það ekki aðeins útrás, þar sem við fjárfestum í er- lendum fyrirtækjum, heldur verð- ur þessi þróun að vera gagnkvæm og að erlend fyrirtæki sjái sér hag í að fjárfesta í íslensku atvinnulífi að sama skapi. Til þess þurfa að- stæður okkar að vera samkeppn- isfærar við önnur lönd. Stórt skref hefur verið stigið í skattamálum til að gera þetta að veruleika. Betur verður þó að hlúa að alþjóðavæddu menntunarkerfi hér, því með er- lendum fyrirtækjum kemur erlent fólk, oft til tímabundinnar dvalar. Þetta fólk vill geta flutt sig á milli atvinnusvæða án þess að menntun barna þeirra fari úr skorðum. Þeir Íslendingar sem búið hafa í út- löndum geta dæmt um þetta. Öll þau verslunarráð sem hér starfa styðja þessa þróun á frekari sam- skiptum manna bæði í viðskiptum og á menningarsviði. Sænsk-ís- lenska verslunarráðið heldur fund um horfur í flugmálum hinn 13. febrúar nk. þar sem sagt verður frá samstarfi flugfélaga í farþega- flugi en það er Svíinn Lars Lind- gren sem kynnir þetta málefni. Höfundur er framkvæmdastjóri TVG-Zimsen og formaður Sænsk- íslenska verslunarráðsins. stretch- gallabuxur Kringlunni, sími 588 1680 v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun 3 skálmalengdir STEFNT er að upp- byggingu hálendisvega sagði samgönguráð- herra í ríkisútvarpinu þriðjud. 29. jan sl. Hann sagði ástæðuna vera að ferðamenn þyrftu að komast að náttúruperl- um og nefndi í því sam- bandi Kjalveg, Sprengi- sandsleið, veg að Dettifossi, Fjallabaks- leið nyrðri og etv. fl. sem ég heyrði ekki. Nei takk ! Uppbygging hálend- isvega er ekki í þágu náttúrunnar og ekki það sem sannir unnendur hennar vilja. Við viljum viðhalda helstu veg- slóðum og merkja þá vel. Við viljum vernda, bæta og njóta ósnortinnar náttúru eins og hún er, en alls ekki af „hraðbrautum“ um hálendið. Þá er náttúrunni voðinn vís. Í mínum huga gætu slík mannvirki og allt það sem af þeim leiðir nálgast það að skyndi- gróðaöfl og Landsvirkjun, sem engu eira, hafi tekið völdin. Ég hef enga samúð með þeim sem vilja aka á fleygiferð í stífri umferð eftir uppbyggðum vegum um hálend- ið. Þeir geta allt eins farið í bílaleik á tölvuskjá eða skoðað landslagið heima hjá sér af myndbandi. Ég minni hins vegar á að við eigum margt ógert í vegamálum innan sveita og til að tengja byggðir. Stuðl- um því heldur að alvöru byggðastefnu m.a. með góðum samgöngum á lág- lendi og þjónustustöðv- um innan byggða í jaðri hálendis, en alls ekki með malbiki og stórum mannvirkjum í óbyggð- um. Byggjum landið af skynsemi og gerum fólki kleift að búa með reisn þar sem lífvænlegt er og fólk vill búa í sátt við landið. Fækkum frekar en fjölgum snjó- þungum og erfiðum vegaköflum um heiðar, t.d. með jarðgöngum, og beinum fjármunum gegn slysagildrum á fjölförnum vegum í byggð. Þar er af nógu að taka fyrir takmarkað almannafé. Auðvitað eigum við ekki að berjast gegn því sem til framfara horfir fyrir íslenska þjóð þótt einhver röskun verði, en gleymum því aldrei að auður þjóðarinnar felst m.a. í óspilltum svæðum sem hafa að geyma stórkost- leg náttúruundur sem okkur ber skylda til að vernda, ekki aðeins til að njóta fyrir okkur sem hér búum núna, heldur allan heiminn um ókomna tíð. Förum því varlega í mannvirkjagerð á hálendinu. Hér er engin neyð á ferð- inni sem afsakar eyðileggingu sem verður aldrei aftur tekin. Stöndum vörð um náttúru Íslands. Hálendisvegir Snorri Sigurjónsson Höfundur er lögreglufulltrúi. Náttúruvernd Auður þjóðarinnar felst m.a. í óspilltum svæð- um, segir Snorri Sig- urjónsson, sem hafa að geyma stórkostleg nátt- úruundur sem okkur ber skylda til að vernda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.