Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 45 strokin eins og hvítur stormsveipur hreinlætisins ætti lögheimili þar enda var daginn út og inn verið að dytta að einhverju eða þá snurfusa. Hiklaust má líkja Vestmannaeyja- flugvelli við glæsilegt blóm sem Diddi, og Ingibergur samstarfsmað- ur hans til margra ára, voru sífellt að vökva og hlúa að. Flugvélarnar nutu þess að setjast á blómið og far- þegarnir voru hunangið sem þær gáfu af sér. Spóinn er einn af vorboðum Eyjanna en um þennan fagra fugl orti skáldið Tómas Guðmundsson yndislegt ljóð sem er vel við hæfi að grípa niður í á kveðjustund Didda þar sem spóarnir voru næstu ná- grannar í paradísinni við flugvöll- inn: Hér þræði ég ennþá gróinn götuslóða. Þar geyma ástríkar moldir mín bernskuspor. Og hvílík gæfa að hitta þar aftur í vor sinn hollvin frá æskunnar dögum, spóann minn góða. Samt veit ég að margur fuglinn þykist þér fegri og fjölmargir eru þeir stærri og tignarlegri, en spóinn minn góði er heill í háttum og fasi og heldur sér jafnan frá tilgerð og þarflausu masi. Þeir senn munu hópa sig saman og byrja bíða og brátt skal lagt upp til flugs yfir hafdjúpið víða. En spádómsgáfa og glöggskyggni úr báð- um ættum mun gera þér, spói minn, léttara að verj- ast þess hættum Og heim til vetrarins liggur mín leið að sinni. Samt lýsir óvæntu hugboði í vitund minni, að þrátt fyrir aldursmun okkar spóa við aftur að vori hittust í þessum móa. Ég votta eftirlifandi eiginkomu Didda, Guðbjörgu Kristjánsdóttur, börnum þeirra og öðrum ástvinum einlæga samúð mína. Ég bið þeim Guðs blessunar. Elsku karlinn minn, hjartans þökk fyrir allar ánægjulegu stund- irnar er við áttum í höfn flugsins úti í Eyjum. Góð samviska er betri en hundrað vitni og mér þykir vænt um að geta kvatt þig í hinsta sinn sannfærður um að þín góða sam- viska í lífinu verður þér mjúkur svæfill. Megir þú líða á skínandi væng út í heiðið bjarta. Gunnar Þorsteinsson. Glaðbeittur og einlægur að vanda heilsaði hann Diddi okkur jafnan, þegar við lentum á Vestmannaeyja- flugvelli: „Komið þið blessuð og vel- komin til Vestmannaeyja.“ Þannig heilsaði hann okkur brosandi, hvernig sem viðraði eða gekk á í erli dagsins. Nú hefur þessi ljúfi vinur okkar verið kvaddur á braut eftir tuttugu ára samveru meðal okkar starfsfélaga hjá Flugmálastjórn. Jó- hann I. Guðmundsson eða Diddi eins og hann var jafnan kallaður var lærður málari og starfaði síðan lengi sem verkstjóri í Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum. Hann hafði starf- að í 21 ár við flugstarfsemi er hann lést þann 23 janúar síðastliðinn. Hann starfaði bæði hjá Loftleiðum, Flugfélagi Íslands og hjá flugmála- stjórn, síðast sem flugvallarstjóri á Vestmanneyjaflugvelli. Hjá Didda var alltaf röð og regla á öllum hlutum. Í starfi flugvall- arstjóra á Vestmannaeyjaflugvelli felst öryggisstarf sem krefst ná- kæmni við slökkviþjónustu, eftirlit og stjórn á almennum rekstri flug- vallarains. Oft reyndi á fámennt starfslið flugvallarins, einkum þegar mikið álag var vegna Þjóðhátíðar. Diddi leysti öll verkefni af hendi með ósérhlífni og stakri kostgæfni. Hann var bóngóður, með afbrigðum traustur og ábyggilegur þegar til hans var leitað. Diddi hafði ávallt mikinn áhuga á flugmálum og lærði ungur flug. Hann var gæfumaður í einkalífi með ágætri eiginkonu sinni Guðbjörgu Kristjánsdóttir og tveimur dætrum þeirra. Góður drengur er genginn á guðs vegu. Við kveðjum Didda með sökn- uði og þökkum honum fyrir sam- veruna. Guðbjörgu og fjölskyldu hennar vottum við okkar dýpstu samúð og biðjum þeim velfarnaðar í framtíð- inni. F.h. samstarfsfélaga hjá Flug- málastjórn Haukur Hauksson. Eftir erfið veikindi er félagi okk- ar, Jóhann I. Guðmundsson, fallinn frá. Jóhann var starfsmaður Flug- málastjórnar í hartnær þrjá áratugi við flugvöllinn í Vestmannaeyjum. Eins og við má búast er það mikið starf að sjá um og viðhalda öllu því sem tilheyrir einum fjölfarnasta flugvelli landsins. Allir þeir sem til þekktu vissu að allt var í röð og reglu hjá Jóhanni og samstarfs- mönnum hans í Eyjum. Við félagar hans hér uppá fastalandinu nutum prúðmennsku hans og lipurðar, þeg- ar við komum til Eyja og gistum í Heiðabæ, vinalegum bústað flug- málastjórnar við flugvöllinn. Félag flugmálastarfsmanna ríkis- ins kveður nú góðan félaga hinstu kveðju og þökkum við honum sam- fylgdina.Við sendum fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Félag flugmála- starfsmanna ríkisins. Fallinn er í valinn Jóhann Ingvar flugvallarstjóri, Vestmannaeyjaflug- vallar, Diddi, eins og hann var kall- aður. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi, að kynnast og vinna með Didda um langan tíma. Hann var verkstjóri í Fiskiðjunni, þegar ég byrjaði að vinna þar. Lágu leiðir okkar síðan saman hjá Flugfélagi Íslands, þá um nokkurn tíma hjá Flugleiðum og síðustu 22 árin sem hann var starfsmaður Flugmála- stjórnar. Hvarvetna sem hann starfaði ávann hann sér góðan orðs- tír fyrir dugnað, samviskusemi og um fram allt heiðarleika. Þegar ég lít til baka verður mér fyrst hugsað til allra þeirra góðu samverustunda sem við áttum. Það var oft setið yfir kaffibolla og spjall- að um samgöngur í nútíð og framtíð og landsmálin, að ógleymdum bæj- armálefnum en Diddi hafði fastmót- aðar skoðanir og var mikill sjálf- stæðismaður. Diddi þekkti vel flugsögu Eyjanna. Hann byrjaði ungur sem sumarstarfsmaður hjá Loftleiðum, á fyrstu árum farþegaflugs til Eyja. Síðan spannar árafjöldinn tengdum flugi 35 ár. Hann var þátttakandi í þeirri miklu uppbyggingu, sem hef- ur átt sér stað á Vestmannaeyja- flugvelli. Flugvallarsvæðið er stórt og að mörgu þurfti að hyggja, líta eftir girðingu, þvo og mála flugstöðina að utan, hreinsa flughlaðið og snyrta umhverfis flugstöðina auk þess að fylgjast með brautum og lendingum flugvéla. Á fyrstu árum hans við flugvöllinn voru öll tæki til snjó- mokstur höfð úti. Hann stóð vaktina oft frá kl. 4 að morgni þegar snjóaði og byrja þurfti að huga að tækjum, gangsetja, moka snjó af og frá tækj- unum til að áætlun flugsins stæðist. Diddi og hans samstarfsmenn við flugvöllinn hafa oft orðið að vinna myrkranna á milli, við erfiðar að- stæður, til að halda uppi samgöng- um, en tækjakostur var frábrotinn og lítill fyrstu árin. Á hverju ári voru öll tæki yfirfar- in, hreinsuð og máluð, síðan þegar tækjageymslan kom varð aðbúnað- ur allt annar og þá var hægt að lag- færa snjómoksturtækin við bestu skilyrði. Lögð var áhersla á það að öll tæki væru í lagi, áður en fyrstu snjóar komu. Það voru mjög oft erfiðir tímar, en samviskusemin var það mikil, að ekki var unnt sér hvíldar fyrr en að brautir og flughlað voru komin í lag. Diddi var ekki óvanur löngum vinnutíma. Þegar hann var í Fisk- iðjunni var oft ekki meiri hvíld en 5-6 tímar á sólarhring á vertíðum. Þess vegna var langur vinnutími við flugvöllinn, þegar á þurfti að halda, lítið mál í hans augum. Gengið var til verka af áhuga og eljusemi. Flugleiðir og Flugfélag Íslands standa í mikill þakkarskuld við hann, því kappkostað var að halda flugvéllinum opnum sem mest til flugs. Diddi sagði oft og tíðum; flug- völlurinn fær ekki tekjur ef ekki er hægt að fljúga. Flugmenn hafa sagt mér, að kynni þeirra af Didda hafi verið góð, maðurinn einstaklega ljúfur og árvekni hans í starfi til fyrirmyndar. Rómað var hve Diddi hugsaði vel um húsnæði Flugmálastjórnar. Á hverju hausti voru öll herbergi og farþegasalur flugstöðvarinnar þveg- inn og það sem var skemmt var lag- fært og málað. Það var honum og öðrum samstarfsmönnum hans mik- ið kappsmál að halda húsnæðinu vel við og var Diddi mjög vakandi yfir að allt væri í góðu lagi. Það er erfitt að sjá á bak jafn góðum félaga og Didda. Hann sem ætlaði að njóta þess að vera kominn á eftirlaun og það var margt sem hann ætlaði að taka sér fyrir hend- ur. Diddi var mjög hjálplegur fjöl- skyldu sinni og vinum. Það voru óf- ár stundir sem hann átti með pensilinn á lofti við að mála. Hann hafði unnið nokkur sumur og haust við málningarvinnu og kunni því vel til verka. Vandvirkni og ósérhlífni voru honum í blóð borin, átti enda ekki langt að sækja mannkosti sína. Foreldar hans, Guðmundur og Klara, voru einstaklega vandað fólk. Ég minnist þeirra með hlýju og virðingu. Svona er lífið óútreikanlegt. Diddi var unglegur, bar aldur sinn vel og þess vegna var maður ekki viðbúinn því að veikindi hans væru svona alvarleg. Hann var full- ur bjartsýni á að ná fullum bata. Viku fyrir andlátið kom hann í tví- gang út á flugvöll til að ganga um í göngugrind. Hann var staðfastur í því að ná upp þreki. Við Laufey og aðrir starfsmenn Flugfélags Íslands í Eyjum sendum Guðbjörgu, dætr- um hennar og fjölskyldum, Steina bróður Didda og fjölskyldu, inni- legar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að varðveita þau. Bragi I. Ólafsson. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar 0  .     >?# !4! $ *. (&.@('+1 %'(  ' ?'% ' 0    - 0 )   "    !"  " 3 !     4#  5  '   $$ $)() -, #     0%  1 '1                     0$  6 &&           %/   )1                             6 ?#      &  & #1  $  91 6'( ''  #/  )1 A%                                "> " 4> 1%')%/) B= *&+./&  "     4#  ."  )7 0  ( 1 '+  C 1 '1    1 ''  0  # 7'1  /% 21  )  @  '*  '+  1 '1 %   > '  #  7'1  (   DE ''           4? 6   0./ %    /' /       1  % #  ."  -, #      0            !"#! !  4$ 7''()  F'   =, *&+./&    !"   -         ( 4#  0 '6 '  $ $(()   + >) '1 >)  )( ''  #/ '1   + )( '1      ''  */' +& )( '1 $   '& )( ''  . +& $%'1    
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.