Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 49
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
Byggingafélag Gylfa og Gunnars er með
eftirtalið húsnæði til leigu:
Hlíðasmári: Í nýju og fallegu húsnæði, hentar
vel fyrir skrifstofu, verslun eða þjónustu.
Stærðir frá 150—600 fm.
Síðumúli: Í nýju og glæsilegu húsnæði,
stærð ca 300 + fm.
Borgartún: Skrifstofuherbergi,
stærð ca 25 fm.
Grandavegur: Í húsnæði fyrir eldri borgara.
Hentar vel fyrir nudd eða heilsugæslu,
stærð 103 fm.
Dugguvogur: Til leigu eða sölu 913 fm hús-
næði sem er innréttað til matvælavinnslu.
Ýmsir möguleikar.
Uppl. gefur Gunnar í síma 693 7310.
lager-, þjónustu-
og skrifstofuhúsnæði
Stærðir: 100 fm—1.000 fm á góðum
stöðum í borginni
Verð á fm frá kr. 675.
Einnig eru til leigu góð skrifstofu-
herbergi í miðborginni með afnot af
kaffiaðstöðu og fleiru.
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll,
traust fasteignafélag sem sérhæfir
sig í útleigu á atvinnuhúsnæði,
sími 892 0160, fax 562 3585.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Fundarboð
Boðað er til kynningarfundar um deili-
skipulag Valla, á nýju byggingasvæði
sunnan Ástjarnar. Um er að ræða bæði
íbúðahverfi og þjónustusvæði.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal
Hafnarborgar,Strandgötu 34, fimmtu-
daginn 7. febrúar 2002 klukkan 20:00.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Yfirvélstjóra
og 1. vélstjóra
vantar á togara sem fer á rækjuveiðar við
Grænland. Vélarstærð 1.300 kw.
Upplýsingar í símum 430 3500 og 896 0065.
Ritari
Við leitum að ritara til starfa hjá innflutnings-
fyrirtæki í Reykjavík. Verður að hafa góða þekk-
ingu á tölvum, s.s. Word, Excel og Navision
Financials ásamt reynslu af almennum skrif-
stofustörfum. Nákvæmni og skipulag mjög
mikilvægt í þessu starfi.
Vinnutími er frá kl. 8.30—17.00 mán.—fim. og
frá kl. 8.30—14.00 á föstudögum.
Áhugasamir sendið inn umsókn fyrir 14. febrú-
ar til auglýsingad. Morgunblaðsins merkta:
„11949 — Ritari“.
Staða kennara
í íslensku máli
og bókmenntum
við Manitóbaháskóla í Kanada
Dómnefnd um stöðu kennara í íslensku máli
og bókmenntum við Manitóbaháskóla óskar
eftir umsóknum og tilnefningum. Staðan er
kennslu- og rannsóknastaða prófessors eða
dósents og verður ráðið til tveggja eða þriggja
ára, frá og með 1. júlí 2002, eða stuttu síðar.
Umsækjendur um stöðuna skulu hafa dokt-
orsgráðu eða jafngildi hennar í rannsóknar-
vinnu. Umsóknum skal fylgja listi yfir útgefin
verk og staðfesting á kennsluhæfni. Laun og
ráðingarkjör verða miðuð við hæfni og
reynslu.
Umsækjendur skulu vera sérhæfðir, annað
hvort í íslenskum miðaldabókmenntum eða
í vestur-íslenskum bókmenntum. Hluti af skyld-
um kennarans er að vera tengiliður milli há-
skólans og vestur-íslenska samfélagsins. Kenn-
aranum er ekki ætlað að kenna áfanga í nútíma
íslensku, en sérhæfing í forníslensku, goða-
fræði eða Íslendingasögunum er æskileg.
Íslenskuskorin býður upp á áfanga í íslensku
nútímamáli, íslenskum og vestur-íslenskum
nútímabókmenntum, forníslensku og íslensk-
um miðaldabókmenntum, auk áfanga í goða-
fræði og Íslendingasögunum í enskri þýðingu.
Skorin hefur á að skipa fjölmörgum sjóðum
til styrkjaveitinga, rannsókna, útgáfu og ferða-
laga og hefur aðstöðu til að bjóða gestafyrirles-
urum og fræðimönnum í heimsókn.
Bókasafn Manitóbaháskóla hefur á að skipa
næststærsta safni íslenskra bóka í Norður-
Ameríku, þar á meðal besta safni vestur-
íslenskra bóka og tímarita, svo og besta safni
íslenskra nútímabókmennta og tímarita utan
Íslands. Íslenska bókasafnið er til húsa í nýjum,
sérstökum lestrarsal með góðri lestraraðstöðu
og aðstöðu til ráðstefnuhalds og sýninga.
Manitóbaháskóli hvetur alla hæfa einstaklinga,
konur og karla, til þess að sækja um stöðuna,
þar á meðal fólk úr minnihlutahópum, svo sem
frumbyggja Norður-Ameríku og fatlaðra. Hins
vegar mun kanadískum ríkisborgurum og föst-
um íbúum vera veittur forgangur.
Umsóknum og tilnefningum skulu fylgja grein-
argóðar upplýsingar um námsferil og störf,
svo og bréf, sem lýsir í grófum dráttum hæfi-
leikum umsækjanda eða þess sem tilnefndur
er, og skulu þær sendar til dr. Robert O'Kell,
Dean, Faculty of Arts, 310 Fletcher Argue
Building, University of Manitoba, Winnipeg,
Canada, R3T 5V5.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2002.
Umsækjendur skulu einnig sjá til þess að þrjú
meðmælabréf verði send sérstaklega beint
á sama heimilisfang.
Frekari upplýsingar um stöðuna, íslenskuskor-
ina, háskólann eða Winnipegborg má fá frá
dr. David Arnason, Acting Head, 204: 474-9551,
eða frá heimasíðu deildarinnar:
www.umanitoba.ca/arts/icelandic .
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR Verkalýðsfélagið Hlíf
Þeir félagsmenn Verkalýðsfélagsins Hlífar, sem
áhuga hafa á að leigja orlofshús hjá félaginu
yfir páskana, eru beðnir að hafa samband við
skrifstofu félagsins fyrir kl. 16.00 föstudaginn
15. febrúar nk.
Leigutími nær yfir dagana frá 27. mars
til 3. apríl nk.
Félagsmönnum standa til boða 2 hús í Ölfus-
borgum, 2 hús í Húsafelli, 2 hús í Vaðnesi og
íbúð á Akureyri.
Skrifstofa Vlf. Hlífar á Reykjavíkurvegi 64
er opin alla virka daga frá 9.00—16.30.
Símar 555 0307, 555 0944 og 555 0987.
Stjórn Hlífar.
Bessastaðahreppur
Aðalskipulag Bessastaða-
hrepps — breyting
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Bessa-
staðahrepps 1993—2013 auglýsist hér með
samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Austan við Breiðumýri er í tillögunni gert ráð
fyrir breyttum mörkum svæðis fyrir þjónustu-
stofnanir og tilkomu svæðis fyrir verslun og
þjónustu. Vestan við Breiðumýri koma svæði
fyrir íbúðarbyggð, svæði fyrir þjónustustofnan-
ir og opin svæði til sérstakra nota í stað
blandaðrar þjónustu- og íbúðarbyggðar. Um-
hverfis Sviðholtsbæinn kemur þjóðminjavernd-
arsvæði. Í tillögunni er einnig gert ráð fyrir
breyttum stígatengslum og breyttu nýtingar-
hlutfalli á íbúðarsvæðum.
Skipulagsuppdráttur, sem sýnir aðalskipulags-
breytinguna, verður til sýnis á skrifstofu Bessa-
staðahrepps á Bjarnastöðum frá kl. 8.00-16.00
alla virka daga frá 6. febrúar til 22. mars
2002. Hverjum þeim, sem telur sig eiga hags-
muna að gæta, er hér með gefinn frestur til
að skila skriflegum athugasemdum til sveitar-
stjóra Bessastaðahrepps til 22. mars 2002.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við hina aug-
lýstu tillögu innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Deiliskipulag við Breiðu-
mýri og norðan Sviðholts
Tillaga að deiliskipulagi við Breiðumýri og
norðan Sviðholts í Bessastaðahreppi auglýsist
hér með samkvæmt skipulagslögum nr. 73/
1997 með síðari breytingum. Vesturmörk
skipulagssvæðisins eru við Suðurnesveg, norð-
urmörk liggja sunnan við hesthúsahverfi að
Breiðumýri, vesturmörk eru um Breiðumýri
og skólasvæði austan hennar og suðurmörk
liggja um tún í landi Gerðakots og Sviðholts
frá Breiðumýri og þaðan norðan Sviðholtsbæj-
arins að Suðurnesvegi aftur.
Samkvæmt skipulaginu er gert ráð fyrir að
reisa við íbúðargötu út frá Suðurnesvegi, norð-
an Sviðholts, 22 einbýlishús og tólf parhús,
alls 34 íbúðir og við tvær íbúðargötur vestur
úr Breiðumýri munu rísa samtals tólf níu íbúða
fjölbýlishús og tólf raðhús, samtals 120 íbúðir.
Milli íbúðargatnanna tveggja verður leiksvæði
og lóð undir nýjan leikskóla. Við þjónustugötu
austur úr Breiðumýri, sunnan lóðar leikskólans
Krakkakots, mun rísa eitt hús fyrir verslun og
þjónustu, auk þess sem gert er ráð fyrir við-
byggingum við leikskólann Krakkakot.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá kl.
8.00—16.00 alla virka daga frá 6. febrúar til
22. mars 2002. Athugasemdum skal skilað
skriflega til sveitarstjóra Bessastaðahrepps
í síðasta lagi 22. mars 2002. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillöguna.
Deiliskipulag við Hvol
Tillaga að deiliskipulagi þriggja íbúðarlóða
vestan við íbúðarhúsið Hvol auglýsist hér með
samkvæmt skipulagslögum nr. 73/1997 með
síðari breytingum. Samkvæmt skipulaginu er
gert ráð fyrir að reisa við íbúðargötu út frá
Jörfavegi þrjú einbýlishús.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá kl.
8.00—16.00 alla virka daga frá 6. febrúar til
22. mars 2002. Athugasemdum skal skilað
skriflega til sveitarstjóra Bessastaðahrepps
í síðasta lagi 22. mars 2002. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillöguna.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is