Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MEÐ nýju ári og hækkandi sól er tímabært að þakka vísnavinum Morg- unblaðsins fyrir góð orð og hvatningu til okkar Djúpbænda, mín og Aðal- steins á Strandseljum, vegna fáeinna fátæklegra tækifærisvísna sem hér hafa birst og við berum ábyrgð á. Sérstaklega erum við lukkulegir vegna viðbragða þess sómakæra heiðursklerks, séra Brynjólfs í Staf- holti í Borgarfirði. Þrátt fyrir að við séum bæði „stirð- kvæðir“ og greinilega haldnir „skammdegisþunglyndi“ á mjög háu stigi finnst guðsmanninum full þörf á að vernda „sína minnstu bræður“, sem í þessu tilviki eru forsætisráð- herra og hirð hans, fyrir einelti og níði okkar Aðalsteins. Mitt sjálfsálit sem vísnasmiðs jókst stórum við þennan ritdóm. Meira af svo góðu, séra Brynjólfur! Eftir kristindómsfræðslu sem ég naut, ungur drengur hjá Baldri í Vatnsfirði, situr eftir það grundvall- aratriði að „enginn kunni tveim herr- um að þjóna“ en svoleiðis smámunir vefjast greinilega ekki fyrir Stafholts- klerki. Skurðgoð ljótt sér frómur fann sem frekt í þanka trónar. Drottni því – og Davíð, hann dyggilega þjónar. Undanfarið hef ég verið að lesa seinna bindi hinnar stórgóðu ævisögu Steins Steinars, skráða af Gylfa Grön- dal, en Steinn er einmitt fæddur hér í Skjaldfannardal 13. október 1908. Fer því að styttast í aldarafmæli skáldsins og vonandi minnisvarða- gerð hér því samfara. En hvað er eðli- legra en að þeir sem hafa alist upp á þessum slóðum og fást við kveðskap hafi litast af Steini, sem sagði meðal annars: Í kulda og myrkri ég kvað og baðst ekki vægðar, og kvæðið var gjöf mín til lífsins, sem vera ber. Ég veit hún er lítil og þó var hún aldrei til þægðar þeim, sem með völdin fóru á landi hér. Væri Steinn enn á dögum efast ég ekki um að hann væri stjórnarand- stæðingur og fyrirliti presta sem bukka sig og beygja og gjamma fyrir valdstjórnina. Eftir áramótin hefur ríkisstjórnin verið að hamast við að efla kostnaðar- vitund sjúkra og þeirra sem þurfa á lyfjum að halda. Ömurleg er okkar stjórn, ei má leyna slíku. Sjúka lætur færa fórn fyrir hina ríku. Utanríkisráðherra hefur einnig verið á fullum dampi eftir áramótin við að tala fyrir erlendri fjárfestingu og að veita öðrum Evrópuþjóðum hlutdeild í fullveldinu. Við að selja mold og mið má nú ekki slóra. Ekki flækist fullveldið fyrir honum Dóra. Það væru svik við lesendur að geta hér í engu 11. september sl. Þessi vísa sem gæti nefnst „Tillaga að óendur- kræfri hernaðaraðstoð“ fæddist síðla í þeim mánuði. Ef að þarf að steðja í stríð að styðja Kanans óra, best væri fyrir land og lýð að losna við Björn og Dóra. Öryrkjadómurinn og afleiðingar hans bar hvað hæst innlendra mála á liðnu ári og nýjársávarp forseta í þeirrri orrahríð miðri fannst mér þunnur þrettándi. Ykkur þetta segi satt sem að annað haldið. Ekki er lengur borubratt Bessastaðavaldið. Og síðan er horft til Bessastaða að lokinni undirritun öryrkjalaga ríkis- stjórnarinnar. Fátt er nú til fremdar hér, fólks að hjarta þrengist vegur, forsetinn því orðinn er ósköp stimpilpúðalegur. En við verðum að vera jákvæð og horfa á björtu hliðarnar og ráðdeild- arhvatningar í síðasta nýjársávarpi forseta vors. Ég hlustaði huga glöðum og heillaður las í blöðum og því finnst mér bara að vel megi spara viðhald á Bessastöðum. INDRIÐI AÐALSTEINSSON, Skjaldfönn v/Djúp. Vísnabréf að vestan Frá Indriða Aðalsteinssyni: ÉG ÞAKKA Ástu Möller ágæta ábendingu um frumvarp sem liggur nú fyrir Alþingi frá mér og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur um af- nám gjalds á menn utan trúfélaga. Frumvarpið hefur nú verið prentað upp með breytingu sem tryggir að tilgangur þess náist, nefnilega að þeir sem ekki eru í trúfélagi þurfi ekki að greiða sérstakt gjald – í þartilgerðan sjóð uppi í Háskóla – fyrir að vera ekki í trúfélagi. Þetta gjald er jafnhátt sóknargjaldi fólks í trúfélögum og er innheimt með tekjuskatti. Lofsverður áhugi Ástu Möller á frumvarpi okkar um af- nám gjalds á menn utan trúfélaga hefur hingað til beinst einkum að lagatæknilegri hlið þess, bæði í morgunspjalli á Rás tvö á föstudag og í grein í Morgunblaðinu á laug- ardag. Ég hlakka ofur mikið til að heyra hvað Ásta Möller hefur að segja um sjálft efni frumvarpsins þegar það verður tekið til umræðu á Alþingi. MÖRÐUR ÁRNASON, varaþingmaður í Reykjavík fyrir Samfylkinguna. Gott frumvarp verður enn betra Frá Merði Árnasyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.