Morgunblaðið - 08.02.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
mun á næstu dögum birta nið-
urstöður úr viðamikilli úttekt á
dagvistun barna í heimahúsum.
Við gerð könnunarinnar voru allar
dagmæður utan Reykjavíkur og
fjöldi heimila í Reykjavík skv. úr-
taki heimsóttar fyrirvaralaust og
aðstæður kannaðar. Markmið út-
tektarinnar var að kanna aðbúnað
og fjölda barna hjá dagmæðrum,
hvort leyfisveitingar og önnur
skilyrði væru uppfyllt, hvort
tryggingar barnanna væru í lagi
o.fl.
Í framhaldi af þessari úttekt er
stefnt að því að gerðar verði
breytingar á gildandi reglugerð
um dagvistun barna í heimahúsum,
m.a. varðandi eftirlit sem sveit-
arfélögum er falið með starfsemi
dagmæðra, skv. upplýsingum sem
fengust í ráðuneytinu. Reglugerðin
er frá árinu 1992.
Mikil fjölgun barna undir
tveggja ára aldri í daggæslu
Börnum í daggæslu í heimahús-
um hefur fjölgað verulega á sein-
ustu árum. Á það sérstaklega við
um börn sem eru á aldrinum eins
og hálfs til tveggja ára. Árið 1996
voru 1.918 börn á einkaheimilum
skv. tölum Hagstofunnar en þeim
hafði fjölgað í 2.552 á landinu öllu
árið 1999. Fjölgunin hefur fyrst og
fremst verið í yngsta aldurshópn-
um en börnum tveggja ára og
yngri í daggæslu á einkaheimilum
fjölgaði úr 1.654 árið 1996 í 2.323
árið 1999.
Bragi Guðbrandsson, forstöðu-
maður Barnaverndarstofu, telur
nauðsynlegt að gerðar verði breyt-
ingar á gildandi reglugerð um dag-
gæslu barna í heimahúsum. ,,Fyrst
og fremst vegna þess að börnin
eru yfirleitt mun yngri en áður
var,“ segir Bragi en hann tók þátt
í smíði reglugerðarinnar á sínum
tíma. ,,Þegar unnið var að gerð
reglugerðarinnar fyrir tíu árum
áttu börn yngri en þriggja ára yf-
irleitt ekki möguleika á að komast
inn á leikskóla. Aukið framboð á
leikskólarýmum á síðustu árum
hefur leitt til þess að flest börn
sem náð hafa tveggja ára aldri fá
nú rými. Ég held að meðalaldur
[barna] hjá dagmæðrum hafi yngst
um a.m.k. eitt ár ef ekki meira,“
segir Bragi.
Þörf á skýrari ákvæðum um
eftirlit sveitarfélaganna
Ingibjörg Broddadóttir, deildar-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu,
tekur undir að þörf sé á að breyta
reglugerðinni um vistun barna í
heimahúsum og segir það hafa
verið tilefni þess að ráðuneytið lét
ráðast í úttekt á ástandi dagvist-
unar barna í heimahúsum. Ingi-
björg segir að reglugerðin hafi þó
að mörgu leyti staðist tímans tönn.
,,Þetta snýst kannski fyrst og
fremst um að það þurfi að vera
skýrari ákvæði um hvernig sveit-
arfélögin eigi að haga eftirlitinu,“
segir hún.
Ekki áhrif á slysatryggingu
barns þótt dagmóðir
hafi ekki leyfi
Öllum dagmæðrum er skylt að
kaupa slysatryggingu vegna barna
sem þær hafa í daggæslu. Í um-
ræðum að undanförnu um hvort
algengt sé að dagmæður séu með
fleiri börn í gæslu en leyfilegt er
hafa m.a. vaknað spurningar um
hvort börn í daggæslu sem ekki er
leyfi fyrir njóta sömu trygginga-
verndar og önnur börn.
,,Við höfum slysatryggingar í
gildi fyrir dagmæður í ýmsum fé-
lögum dagmæðra í Reykjavík og
nokkrum nágrannasveitarfélögum.
Einnig eru hjá okkur nokkrar
dagmæður utan þessara félaga
með slysatryggingar fyrir börn í
gæslu. Um er að ræða almenna
slysatryggingu þar sem greiddar
eru dánarbætur, örorkubætur og
bætur vegna sjúkrakostnaðar,“
segir Arnór Hjartarson, deildar-
stjóri hjá Sjóvá-Almennum trygg-
ingum. Aðspurður hvernig fari
með tryggingavernd barna ef dag-
móðir er með óleyfilegan fjölda
barna í gæslu segir hann að ef
dagmóðir hafi fleiri börn en leyfi
er fyrir hafi það ekki áhrif á rétt-
indi barnanna úr slysatrygging-
unni.
Skv. upplýsingum sem fengust
hjá Vátryggingafélagi Íslands,
VÍS, kaupa dagmæður slysatrygg-
ingu fyrir börnin auk ábyrgðar-
tryggingar ef til skaðabótaskyldu
kemur.
Innifalið í slysatryggingunni eru
dánarbætur sem samsvara útfar-
arkostnaði og örorkubætur. Bóta-
upphæðirnar taka mið af slysa-
tryggingu skólabarna sem sveit-
arfélög kaupa.
Félagsmálaráðuneytið gerði úttekt á ástandi daggæslu barna í heimahúsum
Könnuðu aðbúnað
og tryggingar barna
Sjö árekstrar
í Kópavogi
ÖKUMENN sem áttu leið um Kópa-
voginn í gær virðast ekki hafa varað
sig á hálkunni að sögn lögreglu.
Tilkynnt var um sjö árekstra í
bænum frá morgni og fram á miðjan
dag sem telst óvenju mikið.
Ekki urðu slys á fólki en talsvert
eignatjón.
Ökumaður missti stjórn á bíl sín-
um á Reykjanesbraut á móts við Ás-
velli í Hafnarfirði síðdegis í gær og
hafnaði bíllinn á ljósastaur.
Beita þurfti klippum til að ná
manninum úr bílnum. Var hann
fluttur á slysadeild, en hann var tal-
inn lærbrotinn.
Ók á kyrr-
stæðan vörubíl
FARÞEGI fólksbíls slasaðist nokk-
uð þegar bílnum var ekið á kyrr-
stæðan vörubíl í Þorlákshöfn um
hádegisbil í gær.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var vörubíllinn illa staðsettur með
tilliti til annarrar umferðar. Höfðu
fiskikör fallið af vörubílnum og var
verið að eiga við farminn þegar
áreksturinn varð. Farþeginn var
fluttur á Heilbrigðisstofnunina á
Selfossi og þaðan á slysadeild í
Fossvogi. Síðdegis urðu tveir
árekstrar á Selfossi en þar urðu
ekki slys á fólki.
UNDANFARNA daga hefur staðið
yfir talning ökutækja á ákveðnum
tíma á ákveðnum gatnamótum í
Reykjavík á vegum borgarinnar.
Björg Helgadóttir, landfræð-
ingur hjá verkfræðistofu um-
hverfis- og tæknisviðs Reykjavík-
urborgar, segir að reglulega fari
fram svona talning í þeim tilgangi
að fylla í eyður í gagnabanka, en
upplýsingarnar komi að gagni við
margt, meðal annars vegna hugs-
anlegra eða fyrirhugaðra gatna-
framkvæmda, endurskipulagn-
ingar á umferðarljósum og svo
framvegis.
Að þessu sinni hefur talning farið
fram á Bústaðabrú, á gatnamótum
Bústaðavegar og Suðurhlíðar og
Bústaðavegar og Litluhlíðar, á
Hringbraut, m.a. við hringtorgið á
Hringbraut við Þjóðminjasafnið,
við Hofsvallagötu og Framnesveg.
Talning fer alltaf fram frá kl. sjö til
tíu á morgnana og síðan frá kl. hálf-
fjögur til hálfsjö síðdegis. Reikni-
líkan er síðan notað til að reikna út
umferðina á sólarhring.
Nemendur við land- og jarð-
fræðiskor Háskóla Íslands annast
talninguna sem verktakar, en á
hverju hausti eru auk þess settir
teljarar í lykkjur víða um borgina,
en lykkjurnar eru tengdar við
ákveðinn búnað sem síðan er lesið
af vikulega. Björg Helgadóttir seg-
ir að til viðbótar þurfi að telja á
öðrum stöðum til að fylla upp í
gagnabankann og það sé það sem
nú sé verið að gera.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óðinn Valdimarsson og Árni Gunnarsson telja bifreiðar á Bústaðavegi í gær.
Álag á nokkrum
gatnamótum kannað
Íslandsbanki og Lands-
banki lækka verðskrár
Bregðast
við kalli ASÍ
STJÓRNENDUR Íslandsbanka
og Landsbanka hafa tekið ákvörð-
un um að lækka verðskrá og þá
skuldbinda bankarnir sig til þess
að verðbreytingin haldi út þetta
ár.
Í tilkynningum bankannna segir
að þannig vilji þeir leggja sitt af
mörkum til að verðlagsákvæði
kjarasamninga verði innan viðmið-
unarmarka.
Báðir bankarnir lækka lántöku-
gjald skuldabréfa, tilkynningar- og
greiðslugjald skuldabréfalána, ár-
gjald debetkorta og tékkhefta eða
í kringum 15%. Lækkun gjalda
vegna skuldabréfa gildir fyrir við-
skiptavini sem nýta sér greiðslu-
þjónustu bankanna og láta skuld-
færa afborganir af reikningi í
bankanum.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Höfðahrepp á Skagaströnd til að
borga starfsmanni vinnuskóla bæj-
arins 9,3 milljónir auk vaxta vegna
áverka sem hann hlaut í slysi í
starfi og leiddu til tímabundins at-
vinnutjóns, varanlegrar örorku og
varanlegs miska. Héraðsdómur
Reykjavíkur sýknaði Höfðahrepp af
kröfu mannsins í fyrra, en hann
krafðist 18,9 milljóna í bætur.
Slysið átti þann aðdraganda að
unglingar í vinnuskóla voru að ljúka
störfum og gerðu sér af því tilefni
dagamun, meðal annars með því að
skvetta vatni hver á annan og á full-
orðna, sem höfðu starfað með þeim
um sumarið. Þar sem maðurinn lá á
bakinu undir sláttuvél og reyndi að
losa aðskotahlut úr vélinni komu að-
vífandi tveir piltar, sem höfðu verið
í vinnuskólanum, og var hvor þeirra
með stóra fötu með köldu vatni, sem
þeir skvettu yfir hann.
Við þessu brást maðurinn með
því að leitast við að koma sér undan
sláttuvélinni. Við það rak hann
hægri öxlina harkalega upp undir
öxul vélarinnar og hlaut við höggið
áverka sem leiddu til tímabundins
atvinnutjóns, varanlegrar örorku og
varanlegs miska, sem hann krafði
hreppinn um bætur fyrir ásamt bót-
um fyrir þjáningar.
Hæstiréttur taldi viðbrögð
mannsins í alla staði eðlileg og að
þeir, sem voru valdir að ófarnaði
hans, hefðu jafnframt mátt sjá þau
fyrir. Í ljósi framburðar vitna var
lagt til grundvallar að tilteknir yf-
irmenn við vinnuskólann hefðu
sjálfir verið beinir þátttakendur í
aðgerðinni gagnvart manninum.
Þeir hafi þannig borið sök á slysi
hans.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson,
Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg
Benediktsdóttir.
Lögmaður áfrýjanda, starfs-
manns vinnuskólans, var Steingrím-
ur Þormóðsson hrl. og lögmaður
stefnda, Höfðahrepps, Hákon Árna-
son hrl.
Fékk 9,3 milljónir í bætur
vegna slyss í kjölfar ærsla
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
BHM fær
fulltrúa í
hugverka-
nefnd
BANDALAG háskólamanna, BHM,
mun fá fulltrúa í nefnd iðnaðar- og
viðskiptaráðherra um mótun löggjaf-
ar um hugverkaréttindi. Þetta var
ákveðið á fundi talsmanna BHM með
Valgerði Sverrisdóttur ráðherra í
gær en bandalagið hafði komið mót-
mælum á framfæri opinberlega við
það að fá ekki sæti í umræddri nefnd.
Taldi BHM það ótækt að ekki væri
í nefndinni fulltrúi sem gætti hags-
muna fólks þar sem hugverk og upp-
finningar væru daglegur þáttur í
starfi þess. Stjórn BHM mun skipa
fulltrúa í nefndina á allra næstu dög-
um, að því er fram kemur á vefsíðu
bandalagsins.