Morgunblaðið - 08.02.2002, Page 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKI bankamaðurinn
John Rusnak var álitinn ósköp
venjulegur og heiðarlegur millistétt-
armaður þar til á miðvikudag þegar
hann var sakaður um falsanir og svik
sem sögð eru hafa kostað stærsta
banka Írlands, Allied Irish Banks,
andvirði 75 milljarða króna.
Þegar vinir og kunningjar Rusn-
aks eru spurðir hvers konar maður
hann sé lýsa þeir honum sem góðum
eiginmanni, föður og kirkjuræknum
kaþólikka. Árstekjur hans námu
andvirði 8,5 milljóna króna og hann
bjó í miðstéttarhverfi í Baltimore,
Mount Washington, ásamt eigin-
konu sinni og tveimur börnum. Þau
búa í 119 ára gömlu einbýlishúsi sem
þau keyptu fyrir andvirði 22 milljóna
króna árið 1994. Húsið er glæsilegt
og Rusnak prúttaði það niður, að
sögn seljandans.
„Þau eru alls ekki glysgjörn, áttu
ekki dýra eða íburðarmikla hluti og
voru ekki eyðslusöm,“ sagði einn
kunningi hjónanna, en hann heim-
sótti þau nýlega til að hlýða á lista-
mann sem þau höfðu fengið til að
flytja fyrirlestur á heimili þeirra.
Nágrannar Rusnaks, sem er 37
ára, trúðu því varla að
fjölmiðlarnir væru að
fjalla um réttan mann
þegar skýrt var frá mál-
inu. „Þau virðast mjög
vingjarnleg og heiðar-
leg,“ sagði einn þeirra.
„Hann er indæll, við-
kunnanlegur, skemmti-
legur, vingjarnlegur og tekur virkan
þátt í safnaðarstarfinu,“ sagði kona
sem er með Rusnak í stjórn leirlist-
arstofnunar í Baltimore. „Mér hefði
aldrei dottið í hug að hann yrði upp-
vís að slíku.“
Rusnak starfaði um tíma í New
York en fluttist þaðan vegna streitu,
að sögn eins kunningja hans, sem
sagði að hann hefði virst mjög tauga-
spenntur eftir að hann hefði fengið
stöðuhækkun hjá Allfirst Financial,
dótturfyrirtæki AIB.
Lögfræðingur Rusnaks segir að
hann hafi farið á fund saksóknara og
fulltrúa bandarísku alríkislögregl-
unnar, FBI, á miðvikudag þegar
bankinn óskaði eftir því að lögreglan
leitaði hans. „Hann er ekki flótta-
maður,“ sagði lögfræðingurinn.
Hann bætti við að Rusnak hefði
ekki verið handtekinn
en aðstoðaði yfirvöld
við upplýsa málið.
Lögfræðingurinn vildi
ekki svara því hvort
Rusnak hefði hagnast
á svikunum og kvaðst
telja að tap bankans
væri „gróflega ýkt“.
Hann sagði að bank-
inn væri að reyna að
firra sig ábyrgð á mál-
inu.
Enginn viðskipta-
vina bankans tapaði fé
á svikunum og engin
hætta er á að hann
verði gjaldþrota, að
sögn talsmanna bankans. Allfirst er
44. stærsti banki Bandaríkjanna og
eignir hans nema 17,8 milljörðum
dala, andvirði tæpra 1.800 milljarða
króna. Bankinn er með meira en 250
útibú á austurströndinni.
Michael Buckley, aðalbankastjóri
AIB, sagði að ekki væri vitað hvort
Rusnak hefði hagnast á svikunum.
Falsaði kaupréttarsamninga
Rusnak starfaði við gjaldeyrisvið-
skipti og starfið fólst í því að reyna
að hagnast á gengissveiflum með því
að fjárfesta í gjaldmiðlum, bæði fyrir
bankann sjálfan og viðskiptavini
hans. Þegar hann veðjaði á ákveðinn
gjaldmiðil átti hann að greiða fyrir
rétt til að kaupa annan gjaldmiðil á
ákveðnu verði í framtíðinni til að
tryggja að tapið af gjaldeyrisvið-
skiptunum yrði sem minnst ef geng-
isþróunin yrði önnur en hann taldi.
Hafi hann til að mynda keypt evrur í
von um að gengi gjaldmiðilsins
myndi hækka átti hann að gera
samning um rétt til að kaupa annan
gjaldmiðil, svo sem dollarann, til að
minnka tapið ef gengi evrunnar
lækkaði.
Stjórnendur AIB segja að Rusnak
hafi ekki gert slíka kaupréttarsamn-
inga en falsað þá, annaðhvort til að
leyna tapi á gjaldeyrisviðskiptum
sínum eða stela peningum sem
greiða átti fyrir samningana. Emb-
ættismaður í Baltimore sagði þó að
svo virtist sem Rusnak hefði ekki
dregið sér fé.
Leeson „hneykslaður“
Sérfræðingar í gjaldeyrisviðskipt-
um segja það furða sæta að banka-
maðurinn hafi getað leynt svo miklu
tapi, andvirði 75 milljarða króna.
„Ég veit ekki um neina leið til að
gera svona án hjálpar annarra,“
sagði Christopher Blum, sérfræð-
ingur í fjármálaþjónustu.
Fjórir af yfirmönnum Allfirst hafa
verið leystir frá störfum meðan mál-
ið er rannsakað og stjórnendur AIB
segja að hugsanlega séu menn utan
bankans viðriðnir svikin.
„Ég er hneykslaður á því að menn
skuli ekkert hafa lært af máli mínu
og að slíkt skuli geta gerst aftur,“
sagði Nick Leeson, verðbréfamiðlar-
inn sem gerði Barings-banka gjald-
þrota árið 1995 með umfangsmikilli
spákaupmennsku. „Það er ótrúlegt
að fjárhagslegt eftirlit þessara risa-
stóru fyrirtækja sé svo slæmt.“
Sagður aðstoða
við að upplýsa
svikamálið
Reuters
Heimili bankamannsins Johns Rusnaks í Baltimore.
John Rusnak
Baltimore. The Baltimore Sun, Los Angeles Times, AP.
’ Hugsanlegtað fleiri séu við-
riðnir svikin ‘
Bankamaðurinn var álit-
inn heiðarlegur og dæmi-
gerður millistéttarmaður
BANDARÍSKA leyniþjónustan og
fjöldi blaðamanna hafa lengi leitað
að afganskri stúlku sem sögð er
heita Alam Bibi og vera í felum í
fjalllendi á landamærum Afganist-
ans og Pakistans, dauðhrædd um að
Bandaríkjamenn vilji hafa hendur í
hári hennar vegna þess að einu
sinni kenndi hún dætrum Osama bin
Ladens ensku.
Þegar hún var ung varð augn-
svipur hennar táknmynd þjáninga
heillar þjóðar. Þá birtist mynd af
henni á forsíðu júníheftis banda-
ríska tímaritsins National Geo-
graphic 1985. Það var ljósmynd-
arinn Steve McCurry sem tók
myndina þegar hann hitti stúlkuna
stuttlega í flóttamannabúðum í Pak-
istan 1983. Síðan hefur myndin birst
á óteljandi forsíðum, veggspjöldum,
jafnvel á veggteppum, en aldrei hef-
ur tekist að hafa uppi á stúlkunni.
Flúði til fjalla
Breska blaðið The Observer
greindi frá því sl. sunnudag að
heimildir væru fyrir því að stúlkan
væri á lífi en færi huldu höfði með
börnin sín tvö. Hún er núna rúm-
lega þrítug. Blaðið segir erfitt að
staðfesta að hún sé lifandi en haft er
eftir skyldmennum „Alam Bibi“ að
hún hafi flúið fyrir um hálfum mán-
uði eftir að hópur Vesturlandabúa
fór að sýna fólki myndina af henni á
útimörkuðunum í borginni Peshaw-
ar.
Blaðið segir að leitin að stúlkunni
hafi fangað athygli borgarbúa, ekki
síst vegna þess að þeir sem leita
hennar hafi boðið umtalsverðar
peningaupphæðir fyrir upplýs-
ingar. Óljóst er hverjir Vestur-
landabúarnir voru en þeir sögðust
vera blaðamenn.
Skyldmenni Alam Bibi segja að
hún hafi óttast að það væri banda-
ríska leyniþjónustan sem væri á
hælum hennar og þess vegna hafi
hún látið sig hverfa upp í afskekkt
fjöllin umhverfis borgina þar sem
byssumenn og ættbálkar ráði ríkj-
um og jafnvel pakistanska rík-
isstjórnin hafi ekkert vald. „Fjöl-
skylda hennar hefur áhyggjur af
því að hún verði handtekin eða jafn-
vel flutt til Bandaríkjanna,“ hefur
Observer eftir ónafngreindum fjöl-
skylduvini. „Hún er meira að segja
hætt að hafa samband við móður
sína. Þegar þeir fóru að spyrja
hverja einustu búðarloku um hana
lét hún sig hverfa.“
Lærði ensku í Peshawar
McCurry tók ljósmyndina frægu
af Alam Bibi í flóttamannabúðum í
útjaðri Peshawar. Að sögn skyld-
menna stúlkunnar hafði hún yf-
irgefið heimili sitt í þorpinu Agam,
skammt frá borginni Jalalabad í
Austur-Afganistan þegar Rússar,
sem höfðu ráðist inn í Afganistan
fjórum árum áður, lögðu þorpið í
rúst með þyrluárás. Þetta er í sam-
ræmi við þær upplýsingar sem
McCurry fékk.
Ættingjar Alam Bibi segja hana
hafa lært ensku í skóla sem vest-
rænar hjálparstofnanir ráku í Pesh-
awar. Fjölskyldan sneri heim til
Afganistans 1992 eftir að Rússar
hurfu frá landinu en heimilið í
Agam var í rúst og akrarnir fullir af
jarðsprengjum. Fjölskyldan stofn-
aði þá heimili skammt frá fjalla-
virki sem kallað var Tora Bora.
Fjórum árum síðar settust bin
Laden og um það bil eitt hundrað
arabískir hermenn hans og fjöl-
skyldur þeirra að í nágrenninu.
Alam Bibi varð vinkona sumra
arabísku kvennanna og fór að
kenna þeim ensku. Meðal nemenda
hennar voru dætur bin Ladens.
„Hún studdi ekki málstað arabanna.
Hún bara naut félagsskaparins og
samræðnanna,“ hefur Observer eft-
ir fjölskylduvini. Í desember í fyrra,
þegar hermenn al-Qaeda vígbjugg-
ust í Tora Bora, neyddist fjölskylda
Alam Bibi til að flýja aftur til Pak-
istans.
„Eiginlega búið mál“
Vesturlandabúarnir sem voru að
leita hennar í Peshawar kynntu sig
sem blaðamenn National Geograph-
ic, en fulltrúi tímaritsins neitaði því
um síðustu helgi að menn á vegum
þess væru að leita stúlkunnar. „Við
höfum eiginlega engan áhuga á
þessu núna. Þetta er eiginlega búið
mál,“ sagði fulltrúinn. Ekki er ljóst
hverjir mennirnir voru. Ættbálka-
höfðingjar neita því að Alam Bibi sé
stúlkan sem var á myndinni og gerir
það málið allt enn óljósara.
McCurry tjáði Observer að hann
hefði mikinn áhuga á að fá upplýs-
ingar um stúlkuna. „Ég hef oft leit-
að að henni og í mörg ár spurst fyr-
ir um hana.“
Forsíða júníheftis National Geographic 1985 með myndinni frægu.
Leitin að
Alam Bibi
’ Þegar þeirfóru að spyrja
hverja einustu
búðarloku um
hana lét hún
sig hverfa ‘