Morgunblaðið - 08.02.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 08.02.2002, Síða 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Agnar Guð-mundsson fædd- ist í Kaupmannahöfn 6. mars 1914. Hann lést á heimili dóttur sinnar í Reykjavík 31. janúar síðastlið- inn. Hann var sonur Elínar Stephensen húsmóður og Júl- íusar Guðmundsson- ar, stórkaupmanns og útgerðarmanns. Elín var dóttir Elín- ar Thorstensen og Magnúsar Stephen- sen landshöfðingja en Júlíus var sonur Andreu H.B. Weywadt og Stefáns Guðmunds- sonar verslunarstjóra á Djúpa- vogi. Agnar var elstur systkina sinna og sá síðasti þeirra sem lést en þau voru: Eva, f. 4. ágúst 1915, d. 25. okt. 1984, gift Hans Erik Kokansky Vogler, f. 30. okt. 1915, d. 31. okt. 1982, þau áttu tvö börn; Elín (Mússí), f. 20. nóv. 1916, d. 27. júní 1996, gift Hans Jörgen Han- sen, f. 22. mars 1916, d. 6. ág. 1995, þau áttu þrjú börn; Valborg (Lill- en), f. 30. des. 1918, d. 31. júlí 1987, gift Agli Egilssyni, f. 13. febr. 1917, d. 13. sept. 1967, þau áttu þrjú börn en skildu; Ása (Póa), f. 19. júlí 1919, d. 23. nóv. 2000, gift Ólafi M. Einarssyni, f. 25. mars 1919, þau áttu eina dótt- ur en skildu, seinni maður hennar var Gregers Hansen, f. 20. ág. 1918, d. 28. des. 1996, þau áttu fjögur börn; og Stefán (Númi), f. 13. maí 1925, d. 19. febr. 1994, kvæntur Þuríði Guðmundsdóttur, f. 21. febr. 1929, þau áttu þrjú börn. Systur Agnars, Eva og Elín fóru ungar til Danmerkur og bjuggu lengst af ævi sinni þar og Ása bjó lengi bæði í Danmörku og Kanada. Agnar fluttist til Íslands með foreldrum sínum og systkinum 1921 þegar hann var 7 ára gamall og bjó þar síðan, í Reykjavík. maki Vilhelmína Kristinsdóttir, f. 18. okt. 1959, þau skildu; þau eiga Eirík Kristinn, f. 17. maí 1983, Agnar Má, f. 10. júlí 1986 og Björn Ármann, f. 14. des. 1988. Agnar lauk gagnfræðaprófi 1929, var í Menntaskólanum í Reykjavík og tók verslunarskóla- próf í Englandi 1933. Hann tók stýrimannapróf frá Stýrimanna- skólanum 1939. Hann vann marg- vísleg störf frá unga aldri en lengst af við sjómennsku eða störf sem henni tengdust. Hann var í vega- og brúarvinnu á unglings- árum, var háseti á síldveiðum 1928–1930, léttadrengur á varð- skipinu Óðni og á norskum og dönskum skipum 1930–32 og há- seti á Andra og Gylli 1933–37. Einnig stýrimaður á hvalveiðibát- um hjá norsk-íslenska hvalveiði- fyrirtækinu Kópi á Suðureyri við Tálknafjörð 1937–1939, háseti og stýrimaður á togurum, m.a. Andra, Arctic og Arinbirni hersi 1939–1944 og sigldi margar ferðir með fisk til Bretlands á stríðsár- unum á skipum sem lentu í svað- ilförum. Agnar var t.d. stýrimaður á Arinbirni hersi er skipið varð fyrir vélbyssu- og sprengjuárás þýskrar flugvélar við Englands- strendur í árslok 1940. Hann var verkstjóri í Bretavinnunni 1942– 45, vann hjá Fiskimálanefnd 1944– 45 og hjá Jarðborunum ríkisins 1945–1951, fór til Bandaríkjanna að kynna sér bortækni 1947 og var bormeistari ríkisins 1947–1951 og vann með Gunnari Böðvarssyni verkfræðingi ásamt fleirum að borunum eftir heitu vatni, gufu og neysluvatni víðsvegar um landið. Hann var stýrimaður á hvalbátum Hvals hf. 1950–1951, skipstjóri og skytta 1951–1953, hafði umsjón með viðhaldi og viðgerðum skip- anna og vann jafnframt við önnur störf á vegum Hvals h.f. 1954– 1961. Agnar var skoðunarmaður sjótjóna hjá Sjóvá 1960–1968, skoðunarmaður hjá Könnun ehf., Lloyd’s umboðinu á Íslandi 1968– 1971 og framkvæmdastjóri þar 1971–1979 er hann lét af störfum. Útför Agnars fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hann kvæntist 1940, Birnu Petersen, f. 2. des. 1917, d. 27. nóv. 1969, dóttur Guðrún- ar Jónsdóttur Peter- sen, f. 8. júní 1892, d. 16. des. 1961, og Hans P. Petersen kaup- manns, f. 5. nóv. 1873, d. 8. maí 1938. Agnar og Birna eiga fimm börn: 1) Guðrún, f. 2. júní 1941, gift Helga Valdimarssyni, f. 16. sept. 1936, en börn þeirra eru: Birna Huld, f. 15. des. 1964, maki Tim S.P. Moore, f. 18. maí 1964, þau eiga Kristján Helga, f. 9. mars 1994, Lilju Guðrúnu, f. 29. febr. 1996, og Valdísi Sylviu, f. 19. júlí 1998. Agnar Sturla, f. 31. júlí 1968, maki Anna Rún Atladóttir, f. 13. okt. 1969, þau eiga Atla Snorra, f. 14. des. 1993, og Guð- rúnu Diljá, f. 19. sept. 2000. Krist- ján Orri, f. 24. okt. 1971, maki Ingibjörg J. Guðmundsdóttir, f. 4. okt. 1973, þau eiga Kjartan Þorra, f. 20. jan. 2001. 2) Björn, f. 12. nóv. 1942, d. 19. jan. 1943. 3) Hans, f. 29. maí 1945, kvæntur Kristjönu Margréti Kristjánsdóttur, f. 28. mars 1946, en börn þeirra eru: Agnar, f. 15. des. 1965, maki Guð- rún Kjartansdóttir, f. 1. okt. 1964, þau eiga Dóru Júlíu, f. 8. sept. 1992, Helgu Margréti, f. 20. ág. 1998, og Hans Trausta, f. 21. júlí 2000. Birna Ósk, f. 6. ág. 1976, maki Einar Örn Jóhannesson. f. 28. des. 1976. 3) Elín, f. 25. maí 1947, gift Þórði Skúlasyni, f. 19. júlí 1945, en börn þeirra eru Birna Guðrún, f. 4. maí 1971, maki Krist- ján Skúli Ásgeirsson, f. 28. okt 1968, þau eiga Hjalta, f. 27. jan. 1993, og Skúla, f. 18. febr. 1999. Skúli, f. 25. maí 1971, maki Ástríð- ur Guðrún Eggertsdóttir, f. 14. mars 1968, þau eiga Ragnheiði, f. 29. sept. 1995, og Þórð, f. 25. ág. 2000. 4) Júlíus, f. 22. febr. 1953, Vinur minn og tengdafaðir, Agnar Guðmundsson, var fágætur maður sem ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast. Hann var heiðursmaður af gamla skólanum, stór í sniðum bæði andlega og lík- amlega, traustur, grandvar og trygglyndur. Hann var stálminnug- ur, nákvæmur, afburðagreindur og gæddur næmu innsæi á menn og málefni. Agnar var hins vegar dulur á eigin tilfinningar en hafði ríka og óvenjulega kímnigáfu og ímyndunar- afl. Hann var mjög orðheppinn og ýmis tilsvör hans urðu landsfræg. Leiðir okkar Agnars lágu fyrst saman á heimili hans og Birnu Pet- ersen í Skólastræti 1 fyrir 38 árum og þar áttum við Guðrún, eiginkona mín og elsta dóttir þeirra, samastað þangað til við fluttum til London til framhaldsnáms haustið 1968 með Birnu Huld dóttur okkar og eldri son okkar Agnar Sturlu. Það var mjög gott að vera á heimili Agnars og Birnu; mér var strax tekið eins og ég hefði alist upp í fjölskyldunni. Birna var óvenjulega hlý og jákvæð mann- eskja sem laðaði að sér fólk af marg- víslegu tagi. Agnar, sem á þessum árum vann við tjónaskoðun á skipum og skipsförmum, byrjaði daginn snemma en kom að jafnaði heim á sama tíma með hollt og gott hráefni í kvöldmatinn, gjarnan þann besta fisk sem var á boðstólum hverju sinni. Eftir kvöldmatinn settist hann oftar en ekki aftur við borðstofu- borðið til að skrifa ítarlegar tjóna- skýrslur, oft á ensku. Ég kíkti stund- um í þessar skýrslur og undraðist hversu vandaðar og skýrar þær voru en hann var mikill tungumálamaður. Veturinn 1967 veiktist Birna tengdamóðir mín aftur af illkynja sjúkdómi sem greindist fyrst 1965, og þurfti að leita sér lækninga er- lendis þar sem nauðsynlegur búnað- ur var ekki til hér á landi. Ég dvaldist þá með tengdaforeldrum mínum í London í nokkrar vikur meðan á þessari lækningatilraun stóð. Þetta var erfiður tími sem styrkti mjög vináttuböndin milli okkar Agnars. Birna náði tímabundnum bata, en sjúkdómurinn tók sig upp aftur og hún andaðist tveimur árum síðar, öll- um harmdauði. Fráfall hennar var Agnari mikið áfall; þau Birna höfðu verið mjög náin og trygglyndi var einn af mörgum sterkum eðliskost- um Agnars. Þrátt fyrir djúpa og langvarandi sorg, tókst Agnari á þessum árum að byggja upp nýtt fyr- irtæki, Könnun ehf, sem var og er umboðsaðili Lloyds á Íslandi, og annast skoðun og uppgjör á tjónum á alþjóðlegum grundvelli. Þetta lýsir vel baráttuþreki hans, hæfileikum og persónustyrk. Þótt starfsferill Agnars hafi mest- an partinn, beint og óbeint, tengst sjómennsku, efast ég ekki um að hann hefði getað náð góðum árangri á mörgum öðrum sviðum, svo fjöl- þættir voru hæfileikar hans, jafnt á huglægum sem verklegum sviðum. Hann var mikill lestrarhestur og hafði alla tíð mikinn fræðilegan áhuga á margvíslegum málum og viðfangsefnum og ég hef ekki ennþá kynnst manneskju með jafnóbrigðult minni. Ég er sannfærður um að Agn- ar hefði getað náð langt sem vísinda- eða fræðimaður á ýmsum sviðum svo sem í læknisfræði, stærðfræði, eðl- isfræði, jarðfræði eða öðrum grein- um náttúruvísinda. Það var erfitt fyrir Agnar að sætta sig við þegar sjónin bilaði fyrir u.þ.b. tveimur árum að því marki að hann hætti að geta lesið, en hann reyndi að bæta það að einhverju leyti upp með því að hlusta á útvarp þar til heyrnin var orðin svo slæm að það dugði ekki lengur. Þá var aðdáunarvert að fylgj- ast með því hvernig hann undi og þraukaði í þeirri einangrun sem hon- um var nú búin með því að rifja upp alls kyns gamlar minningar og þekk- ingu. Þar geymdi minni hans digran sjóð. Ótrúlegustu viðfangsefni gátu hjálpað honum til að láta daginn líða t.d. að rifja upp formúlu til að breyta hitastigum á Celsíus yfir í Fahren- heit og öfugt eða gömul ferðalög sem þau Birna höfðu farið í. Börnin hans öll og barnabörnin önnuðust hann vel, heimsóttu hann, buðu honum heim til sín í mat og reyndu að gera honum lífið léttbærara. Í haust fór Agnar að finna fyrir því meini sem nú hefur orðið honum að aldurtila. Fram að því hafði hann bú- ið á sínu gamla heimili í Skólastræti 1 þar sem Júlíus, yngri sonur hans býr einnig. Það var ekki fyrr en ljóst var að hverju stefndi eftir erfiða skurð- aðgerð í október sl. að hann fékkst til að flytja heim til okkar Guðrúnar. En Agnar var ekki á þeim buxunum að gefast upp. Hann var svo máttfarinn eftir aðgerðina að hann ætlaði varla að komast hjálparlaust stigann upp á efri hæðina hjá okkur þegar hann kom heim af sjúkrahúsinu. En fljót- lega fór hann að reyna að byggja upp þrek á nýjan leik. Hann tók á þessu verkefni eins og öðrum sem hann hafði glímt við um ævina, með ótrú- legum viljastyrk, einbeitni og ná- kvæmni. Þannig bað hann mig að mæla vegalengdina frá svefnher- bergi hans út að stofuglugga og síðan setti hann sér markmið fyrir hvern dag, hversu marga metra hann ætl- aði að ganga. Og á hverju kvöldi þeg- ar ég kom heim úr vinnu var það fyrsta sem hann sagði mér hve marga metra hann hafði gengið þann daginn, í fyrstu nokkra tugi en ekki leið á löngu þar til hann var kominn upp í 1.000 metra á dag, og stiginn sem var svo erfiður í byrjun var nú genginn sjö sinnum á dag. Þegar hann var búinn að gera mér grein fyrir líkamlegum framförum sínum, fékk ég hjá honum yfirlit yfir helstu fréttir og veður, hérlendis og erlend- is svo og veðurhorfur næstu daga. Svo vel fylgdist hann með. Þetta gat hann vegna þess að Júlíus sonur hans hafði útbúið fyrir hann hljóð- mögnunartæki svo að hann gat nú aftur hlustað á útvarp. Þótt ég vissi vel hve sterkur bar- áttujaxl Agnar hafði verið alla tíð kom þetta mikla og jákvæða baráttu- þrek hans síðustu vikur ævinnar mér á óvart. Það var nánast sama hve lít- ilfjörlegan stuðning ég var að reyna að veita honum, alltaf sagði hann – takk Helgi minn – um leið og hann strauk á mér höndina. Og svipað var viðmót hans gagnvart okkur öllum og einnig þeim ágætu manneskjum sem komu til að aðstoða hann frá Heilsugæslunni og Félagsþjónustu aldraðra í Árbæ og Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins, en þeim þakkar fjölskyldan stuðning og alúð. Um síðustu jól safnaðist fjölskyld- an saman umhverfis hann, börn, barnabörn og barnabarnabörn, vit- andi að hann var á förum. Þá var tækifæri til þess að sýna honum ást- úð og umhyggju sem hann kunni vel að meta. Við Guðrún erum afar þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að vera með honum svo náið þessa síðustu mánuði ævi hans. Með Agnari er genginn glæsilegur fulltrúi þeirrar ósérhlífnu kynslóðar sem byggði upp með ótrúlegri atorku og útsjónarsemi þá hagsæld og menningu sem við Íslendingar bú- um við í dag, auðlegð sem veitir okk- ur og afkomendum okkar ævintýra- leg tækifæri ef við erum framsýn og stöndum rétt að málum. Sjálfur lærði ég margt af Agnari og ég veit að hann hafði sterk áhrif á afkomendur mína. Fyrir það er ég þakklátur. Blessuð sé minning hans. Helgi Valdimarsson. Tengdafaðir minn Agnar Guð- mundsson skipstjóri lést fimmtudag- inn 31. janúar. Agnar var stór, glæsilegur og virðulegur maður og mikill fjöl- skyldumaður. Honum leið best í faðmi fjölskyldunnar. Mest alla sína búskapartíð bjó hann á ættarsetrinu Skólastræti 1 ásamt konu sinni og börnin ólust þar upp. Áttu þau þar fallegt og fágað menningarheimili sem var þeim hjónum og börnum þeirra mikils virði. Hann missti konu sína, Birnu Petersen, allt of snemma en hún dó í nóvember 1969. Oft sást hversu sárt hann saknaði hennar þó svo að hann ræddi það sjaldan. Ég hef oft hugsað um það hversu dýr- mætt það er að fá að eyða ævinni með þeim sem maður elskar og hefur eignast börnin sín með og hversu þakklátt fólk ætti að vera að fá að vera saman sem lengst. Agnar var víðsýnn maður og ferð- aðist mikið í tengslum við vinnu sína og síðan á efri árum ferðaðist hann sér til fróðleiks og ánægju. Helst vildi hann hafa sem flesta úr fjöl- skyldunni með sér á ferðalögunum þegar það var mögulegt. Þegar Guð- rún elsta dóttir hans og Helgi eig- inmaður hennar bjuggu í London og barnabörnin voru lítil skipulagði hann og hvatti okkur til að vera sam- an í London um páska í nokkur ár. Eins fórum við í sólarlandaferðir til Portúgal og Túnis á þeim tíma þegar slíkt var nánast óþekkt. Þetta voru yndislegar ferðir sem tengdu fjöl- skylduna sterkum böndum og barna- börnin kynntust mjög vel og urðu góðir vinir. Gott var að leita til Agn- ars með hin ýmsu málefni og tók hann manni með virðingu og ljúf- mennsku. Hann hafði hárbeittan húmor og ákveðnar skoðanir á hlut- unum. Agnar bjó alla sína tíð í miðbæ Reykjavíkur og lifði mjög reglu- bundnu lífi. Hann vildi hafa hlutina í föstum skorðum. Hann fór reglulega í gönguferðir um Reykjavíkurborg, hér áður fyrr með vini sínum og mági Hans Petersen en eftir andlát hans gekk hann einn eða með einhverju barnabarna sinna og oftar en ekki lá leiðin að höfninni. Hann hafði mikla ánægju af lestri góðra bóka en fyrir nokkrum árum tapaði hann sjóninni það mikið að hann gat ekki lesið. Það hlýtur að hafa verið honum erfitt en hann tók því með æðruleysi eins og öðru. Ég minnist tengdaföður míns sem sterks, tryggs og duglegs manns og þakka fyrir að hafa fengið að kynnast honum og vera hluti af fjölskyldu hans. Guð blessi minningu Agnars Guð- mundssonar. Kristjana M. Kristjánsdóttir. Það er komið að leiðarlokum og ég kveð Agnar tengdaföður minn og vin með nokkrum fátæklegum orðum. Kynni okkar Agnars ná orðið yfir 40 ár, frá því að ég sem 15 ára unglingur hóf sumarstarf hjá fyrirtækinu Hans Petersen. Agnar var þá með verkstæði í kjallara Skólastrætis 1, þar sem fyr- irtækið hafði lager. Á þeim tíma var lagður grunnur að sambandi okkar sem alla tíð byggðist á fullkomnu trausti og virðingu hvor fyrir öðrum. Þegar ég seinna fór að skjóta mig í dóttur hans naut ég traustsins, þótt alltaf yrði ég að skila dótturinni heim fyrir miðnætti. Ég man hversu mikil upphefð mér þótti af því á þessum ár- um að vera tekinn með þeim vinun- um Agnari, Hans Petersen og fleir- um í veiðiferðir. Eflaust hef ég, unglingurinn, verið ætlaður sem lið- léttingur. Ég minnist t.d. ferðar í Veiðivötn sem farin var frá BSÍ með Guðmundi Jónassyni, fara þurfti á vaði yfir Tungnaá. Seinna voru Agn- ar og Hans með Vesturdalsá í Vopnafirði á leigu í félagi við aðra og fóru fjölskyldurnar þangað í viku- langar veiðiferðir. Aflinn var frystur í kaupfélaginu og sendur suður um haustið. Þegar ekið var fyrir Hvalfjörð var það fast- ur liður að stoppað var hjá Magnúsi í Olíustöðinni og þegnar veitingar. Fyrir utan fjölskyldutengslin voru það einmitt sameiginleg áhugamál sem tengdu okkur Agnar sterkum böndum. Báðir höfðum við yndi af veiðimennsku jafnt á sjó og landi og ekki síður öllu sem þeim viðkom, s.s. byssum, bátum, trillum, skútum og fleiri farartækjum. Á yngri árum hafði hann látið smíða sér trilluna Ugga, langt og rennilegt fley með drottningarrassi. Eftir að Agnar varð eftirlauna- maður stakk hann eitt sinn uppá að keypt yrði eyja á Breiðafirði. Þá var dröslast með slöngubát vestur til að skoða. Á endanum varð svo eyjan Kýpur fyrir valinu, en þar dvaldist hann um nokkurn tíma og fór sinna ferða á mótorhjóli, synti daglega í sjónum, einnig í desember, líklega eini sundmaðurinn á þeim árstíma. Skömmu áður en sjónin tók að daprast flutti hann inn rafmagnsfjór- hjól ætlað fyrir aldraða að komst leiðar sinnar. Vegna vaxandi sjón- depru kom það þó að litlu gagni. Þessum áhuga á veiðum og tækni- búnaði hélt Agnar fram í andlátið. Síðastliðinn desember fór hann með okkur fjölskyldunni, dætrum sínum og tengdasonum austur í sumarbú- stað, veikur af þeim sjúkdómi sem nú hefur dregið hann til dauða og auk þess hálfblindur og hálfheyrnarlaus, en lét styðja sig út í kafaldssnjó til að skoða fjórhjól sem ég hafði nýlega keypt. Hann athugaði það allvel, sér- staklega dekkin og var ánægður með fjöðrunina. Hann gaf bensíngjöfina inn nokkrum sinnum en sagðist ætla á bak seinna. Hann var sannarlega maður fram- kvæmda, hann tengdapabbi. Þegar við keyptum okkur hús og fórum að gera það upp kom hann til aðstoðar. Lá á fjórum fótum við að skrapa hurðir, kleif uppá vinnupalla og að- stoðaði við að rífa þá niður. Eftir að hann féll niður af vinnupalli tvær mannhæðir þannig að far kom eftir hann í grasið fyrir neðan, óbrotinn en krafðist þess að fá að halda áfram sagði ég samt stopp. Þannig var Agnar á áttræðisaldri atorkusamur og óþreytandi. Hann var mikill húmoristi og best gæti ég trúað að það hafi ekki síst verið rík kímnigáfan sem fleytti hon- um yfir erfiðustu hjallana á ævinni. Hann var t.d. afar fær í að finna skondin nöfn á hlutina. Ég átti eitt sinn gamlan langan rauðan jeppa, sem tengdapabbi uppnefndi hestinn. Og þegar við dóttir hans fórum út úr bænum um helgar eftir vinnu og vor- um seint á ferð heyrðist oft kallað hátt: „Hvenær fer næturlestin?“ Agnar hafði mikinn áhuga á að borða góðan mat, sjálfur var hann lista- kokkur og lærði ég af honum mörg handbrögð í gegnum tíðina, t.d. að undirbúa bæði rjúpur og kalkún und- ir matreiðslu. Afinn, eins og hann var kallaður með stórum staf, var mikill fjöl- skyldumaður, afar áhugasamur og stoltur fylgdist hann með barna- AGNAR GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.