Morgunblaðið - 08.02.2002, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 51
DAGBÓK
Garðatorgi, sími 565 6550
SKINY
Bómullarbolir, leggings,
buxur og nærfört.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákaflega gáfuð mann-
eskja. Mörg ykkar hafa
áhuga á tölvum og tækni og
þar getið þið náð góðum ár-
angri. Auk rökvísinnar ertu
gædd(ur) innsæi og hug-
myndaauðgi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ergelsið sem þú kannt að hafa
fundið fyrir á framabrautinni
virðist vera að taka enda. Þetta
verður þér léttir og núna finnst
þér þú afkastamikil(l) og áhrifa-
rík(ur).
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tafir tengdar útgáfu, fjölmiðl-
um, frekari menntun og lögum
tilheyra núna fortíðinni. Þú skalt
ganga fram veginn af auknu
sjálfstrausti.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Merkúr, sem er ráðandi í þínu
stjörnumerki, hefur farið hnign-
andi á síðastliðnum þremur vik-
um. Í dag stendur beint á hann
og þess vegna mun þér líða miklu
betur og finnast þú hafa mun
betri stjórn í lífi þínu en áður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fjárhagsleg atriði verða skyndi-
lega mun eftirsóknarverðari í
þínum augum. Sameiginlegt
eignarhald á einhverju gæti ver-
ið kostur sem þú ættir að íhuga
alvarlega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tafir sem þú fannst fyrir á
vinnustað munu verða að engu.
Þú mátt vænta aukinnar skil-
virkni í öllu sem þú gerir tengdu
vinnunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Miklar vonir sem þú gerðir þér
varðandi börn eða ástamálin líta
út fyrir að vera vel grundvallað-
ar. Þetta er þér bæði léttir og
huggun vegna væntinga sem þú
hefur fyrir sjálfa(n) þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú skalt halda óhikað til streitu
áformum þínum varðandi heim-
ilið eða hvaðeina sem hefur með
fasteignir að gera. Sú hindrun
sem hefur gert þér gramt í geði
tilheyrir nú fortíðinni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Líf þitt tekur jákvæðari stefnu.
Vandkvæði tengd samgöngum
að undanförnu leysast. Þú verð-
ur ánægðari með daglegt líf.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér finnst þú hlaðin(n) orku og
áhuga varðandi vinnuna í dag.
Jákvætt hugarfar þitt er smit-
andi og aðrir njóta þess að vera í
návist þinni vegna þess að þú
lætur þeim líða vel.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hnignandi Merkúr hefur látið
þér finnast þú vera klaufsk(ur)
og þreytt(ur) og dregið úr láni
þínu. Frá og með deginum í dag
er þetta úr sögunni og þú getur
haldið fram veginn léttari en
ákveðnari í spori.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samskipti þín við stjórnvöld eða
stórar stofnanir fá grænt ljós líkt
og þú varst að vonast eftir.
Áform þín um velgengni eru lík-
legri til að ná fram að ganga.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú skalt leita eftir stuðningi
þeirra vina sem áður hafa hafnað
þér. Þú kannt að verða undrandi
yfir þeirri samvinnu sem aðrir
eru núna tilbúnir í.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ERTU maður eða mús?
Lesandinn er beðinn að
tylla sér í norður til að
byrja með og taka afstöðu
yfir opnun vesturs á þrem-
ur tíglum. NS eru á hættu.
Norður
♠ KD10874
♥ K8765
♦ 5
♣6
Vestur Austur
♠ 652 ♠ Á3
♥ 4 ♥ DG92
♦ DG10762 ♦ Á943
♣D95 ♣873
Suður
♠ G9
♥ Á103
♦ K9
♣ÁKG1042
Þetta er andstyggileg
staða. Norður er í raun
með alltof veik spil til að
koma inn á þriðja þrepi á
hættunni, en á hinn bóginn
er hart að láta þagga niður
í sér með svona fallega
skiptingu. Þessi vandi
blasti við keppendum á
Cap Gemini-boðsmótinu í
Hollandi, og merkilegt
nokk – flestir meistaranna
kusu að stinga sér inn á
þremur spöðum. Einn
þeirra var Zia Mahmood,
en makker hans, Andy
Robson, hafði ekki húmor
fyrir þessum óbærilega
léttleika tilverunnar og
linnti ekki látum fyrr en í
sex gröndum:
Vestur Norður Austur Suður
Verhees Zia Jansma Robson
3 tíglar 3 spaðar 4 tíglar 4 grönd
5 tíglar Pass Pass 5 hjörtu
Pass 5 spaðar Pass 6 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Í andstöðunni voru Hol-
lendingarnir Verhees og
Jansma. Með fjórum
gröndum var Robson að
spyrja um lykilspil (ásana
fjóra og trompkóng), en
Verhees truflaði svarið
með frekari hindrun. Lík-
lega hefur pass Zia við
fimm tíglum átt að sýna
staka tölu lykilspila (hér
spaðakóng), en Robson
trúði því hreinlega ekki að
makker væri ekki með
a.m.k. einn alvöru ás fyrir
innákomunni og keyrði í
sex grönd.
Jansma horði á tvo ása
og leyfði sér að dobla, en
gaf síðan mikinn afslátt í
vörninni. Út kom tígul-
drottning, sem Jansma tók
með ás og lagði strax niður
spaðaás. Robson slapp því
einn niður, en ef austur
spilar tígli áfram í öðrum
slag fer slemman 1.700 nið-
ur!
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Á morgun, laugardaginn 9. febrúar,verður sjötug Ása Marinósdóttir, Ytra-Kálfsskinni,
Árskógsströnd. Eiginmaður hennar, Sveinn Jónsson, varð
sjötugur 13. janúar síðastliðinn. Þau hjónin taka á móti gest-
um í samkomuhúsinu Árskógi frá kl. 20 annað kvöld, laug-
ardagskvöldið 9. febrúar.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 8. febr-
úar, er sextug Agnes Löve,
píanóleikari og skólastjóri
Tónlistarskóla Garðabæjar.
Agnes tekur á móti ættingj-
um, vinum og fyrrverandi og
núverandi samstarfsfólki á
heimili sínu, Fálkagötu 1,
frá kl. 18–21 á afmælisdag-
inn.
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6
4. Rf3 Bg4 5. Be2 c6 6. c4
Rb6 7. exd6 exd6 8. Db3
Be7 9. Rc3 O-O
10. h3 Bxf3 11.
Bxf3 a5 12. Be2
a4 13. Dd1 a3
14. bxa3 c5 15.
Hb1 Bf6 16. Rb5
Rc6 17. dxc5
dxc5 18. O-O
Rd4 19. Rxd4
cxd4 20. Bd3
Dc7 21. Df3 Ha5
22. Bd2 Hxa3
Staðan kom
upp í Rilton Cup
sem lauk fyrir
skömmu í
Stokkhólmi.
Sænski stór-
meistarinn Tom Wedberg
(2529) hafði hvítt gegn
Harald Lögdahl (2259). 23.
Bxh7+! Kxh7 24. Dxa3
Rxc4 25. Dxf8 Rxd2 26.
Hbc1 Da5 27. Hc5 Da6 28.
He1 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 8. febr-
úar, er sextug Svanhildur
Gunnarsdóttir, kennari,
Urriðakvísl 24, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Stur-
laugur Grétar Filippusson.
Þau verða að heiman á af-
mælisdaginn.
Ó, ég átti víst að
hlæja að sögunum
þínum.
LJÓÐABROT
VERTU Í TUNGUNNI TRÚR
Vertu í tungunni trúr,
tryggur og hreinn í lund.
Hugsaðu um það, hýr sveinn,
á hverja stund.
Í góðu þó að þú gildi sért,
geri eg þér það að inna bert,
mjúkur í ræðu og mildur vert
við menn og sprund.
Hugsaðu um það, hýr sveinn,
á hverja stund.
– – –
Lifðu nú sæll, en lukkan fríð
lendi hjá þér árla og síða.
Dvals svo brotnar drafnar skíð
við drauma fund.
Hugsaðu um það, hýr sveinn,
á hverja stund.
Ókunnur höfundur
Alltaf á þriðjudögum