Morgunblaðið - 22.02.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR Magnússon, for-
stöðumaður Þjóðmenningarhúss,
sendi Morgunblaðinu í gær eftirfar-
andi yfirlýsingu vegna greinargerðar
Ríkisendurskoðunar um Þjóðmenn-
ingarhúsið og fréttaflutnings af mál-
inu:
,,Ríkisendurskoðun gerði átta at-
hugasemdir við sex þætti í störfum
mínum, forstöðumanns hússins. Það
hefur komið fram að ég tek fullt
mark á þessum aðfinnslum og mun
haga störfum mínum í framtíðinni í
samræmi við þær þó því fari fjarri að
ég sé sammála öllum niðurstöðum
Ríkisendurskoðunar. Er ég raunar
mjög ósáttur við sum atriði og orða-
lag og framsetningu víða í greinar-
gerðinni.
Vegna greinargerðarinnar vil ég
koma eftirfarandi á framfæri:
1. Varðandi sérfræðilega vinnu
mína fyrir Þjóðskjalasafn Íslands, ís-
lensk innsigli frá miðöldum, bendir
Ríkisendurskoðun á að mér hafi láðst
að leita eftir samþykki ráðuneytis og
kjaranefndar til að sinna umræddum
verkefnum í frítíma mínum. Mér var
ekki ljóst að þessi störf heyrðu undir
ákvæði 20. gr. starfsmannalaga nr.
70/1996 og tel það raunar ekki liggja
skýrt fyrir samkvæmt bókstaf laga-
greinarinnar. Á sama hátt fellst ég
ekki á að þessi störf heyri undir úr-
skurð Kjaranefndar miðað við reglur
nefndarinnar. Viðurkennir Ríkisend-
urskoðun raunar að hér sé um lög-
fræðilegt álitamál að ræða. Ég tel
það mannréttindamál að fá að ráða
því sjálfur hvernig ég ráðstafa frí-
tíma mínum. Fjöldi blaðamanna
vinnur t.d. margs konar ritstörf fyrir
þóknun í frítíma sínum og varla dett-
ur nokkrum þeirra í hug að þeir þurfi
að biðja um leyfi vinnuveitenda sinna
til þess. Hvers vegna ættu aðrar
reglur að gilda um embættismenn?
Innsiglaverkefnið hefur staðið frá
því að ég réðist til Þjóðskjalasafnsins
1996 og ég hygg að öllum starfs-
mönnum þess og stjórnarmönnum
hafi verið um það kunnugt. Veit ég
ekki betur en að allir séu sammála
um að það sé fræðilega mjög áhuga-
vert. Fráleitt er og ósæmandi að láta
að því liggja að hér sé um einhverja
leynilega verktakavinnu á milli mín
og þjóðskjalavarðar að ræða. Vegna
þessa verkefnis var ég nýlega kjörinn
í alþjóðlega sérfræðinefnd um inn-
sigli á vegum Alþjóðasamtaka skjala-
safna (ICA).
Varðandi sérfræðileg störf og
aukavinnu í þágu Þjóðmenningar-
hússins vegna sýningargerðar er
þess að geta að þau voru öll unnin áð-
ur en Kjaranefnd tók að sér að úr-
skurða um laun mín og fella þau und-
ir reglur sínar.
2. Varðandi störf eiginkonu minn-
ar vil ég segja þetta: Þess eru ýmis
dæmi að maki forstöðumanns starfi á
sama vinnustað og hann. Um tíma-
bundin verkefni var að ræða sem
ekki reyndist unnt að sinna með þeim
hætti sem stefnt var að í upphafi
vegna þess að hagir fjölskyldunnar
breyttust óvænt. Fleiri starfsmenn í
Þjóðmenningarhúsinu hafa fengið að
vinna sveigjanlegan vinnutíma enda
hafa forstöðumenn skýra lagaheim-
ild til slíkrar tilhögunar. En ég fellst
á að störf maka af þessu tagi skapa
óþægileg úrlausnarefni. Um þau
verður því ekki að ræða frekar. Ég
verð þó að fá að segja að kona mín
hefur verið stoð mín og stytta í því
ótrúlega erilsama starfi undanfarin
fimm ár að gera Þjóðmenningarhúsið
að veruleika. Án hennar efast ég um
að mér hefði tekist að ljúka þessu
verkefni. Hefði ég kosið að framlag
hennar væri metið að verðleikum og
með öðrum hætti en í athugasemd
Ríkisendurskoðunar.
3. Greiðslur til þjóðskjalavarðar
eru fyrir sérfræðileg störf við sýning-
argerð í Þjóðmenningarhúsinu.
Ágreiningslaust er að Ólafur Ás-
geirsson er einn fremsti sérfræðing-
ur landsins á ýmsum þeim sviðum
sem sýningar hússins taka til. Var
leitað til hans sem slíks en ekki vegna
embættis hans eða setu í stjórn húss-
ins. Ég fellst á að eðlilegra hefði verið
að gera formlega samþykkt um verk-
efni hans í stjórn hússins.
4. Varðandi athugasemdir við
færslu akstursdagbókar er það að
segja að þær eru teknar til greina.
Dæmi um misræmi í færslum skýr-
ast af því að akstursbókin var stund-
um færð eftir á og þegar um hundruð
tilvika er að ræða er misræmi óhjá-
kvæmilegt.
5. Um ferðalagið til Skotlands vil
ég segja þetta. Aðeins var um eina
ferð að ræða. Ég fékk heimild til að
fara í heimsókn á safn í Edinborg um
mánaðamótin september/október.
Um sama leyti gerðist sá hörmulegi
atburður að yngri bróðir minn, sem
er mikill sjúklingur, hvarf í London
að talið var. Stóð Interpol, íslenska
sendiráðið og fleiri aðilar fyrir víð-
tækri leit að honum. Hann fannst svo
óvænt meðvitundarlaus og mjög al-
varlega skaddaður í Dundee á Skot-
landi. Þá hélt ég að ég gæti sameinað
í eina ferð flutning hans heim og ferð
á vegum hússins. Það reyndist ekki
unnt og ég fór því aldrei til Edinborg-
ar heldur aðeins til Dundee og flutti
drenginn heim með hjálp hjúkrunar-
fræðings frá Landspítala. Þegar Rík-
isendurskoðun spurði um þessa ferð
var kostnaðurinn enn færður sem
skuld mín á viðskiptareikningi hjá
húsinu þótt greiðsla hefði verið innt
af hendi og þá skuld hef ég gert upp.
Í ljósi aðstæðna þótti mér svívirðilegt
að sjá Reyni Traustason blaðamann
búa til orðið ,,skemmtiferð“ um þetta
erindi mitt á baksíðu DV í gær. Það
orð á sér hvergi stoð nema í hugar-
heimi hans og illkvittni. Blaðamenn
tala mikið um að axla ábyrgð og sýna
gott fordæmi og siðferði. Hér vakna
spurningar um ábyrgð, heilindi og
siðferði í fjölmiðlastétt.
6. Varðandi ávísanir í sjóði var um
yfirsjón að ræða. Ég fellst á að menn
eiga ekki að taka sér óbeint lán með
þessum hætti þótt upphæðin sé lítil
og þetta tíðkist á mörgum vinnustöð-
um. Ávísanirnar voru innleystar
strax og þær voru nefndar á nafn. Og
ég geymdi þær ekki heldur umsjón-
armaður tekjubókhalds í húsinu. En
mín er að sjálfsögðu ábyrgðin.
Ég leyfi mér að vona að framan-
greindar skýringar svari flestum
þeim spurningum sem greinargerð
Ríkisendurskoðunar vekur upp. Ég
ítreka það sem ég hef áður sagt að
mér þykir leitt að hafa gefið tilefni til
þeirra athugasemda sem fram hafa
komið frá Ríkisendurskoðun. Ég tek
fullt mark á þeim og mun færa starfs-
hætti í húsinu til samræmis við þær.
Mér þykir vænt um að njóta trausts
forsætisráðuneytis og stjórnar húss-
ins til að lagfæra það sem farið hefur
úrskeiðis og vona að ég reynist þess
trausts verður.“
Yfirlýsing Guðmund-
ar Magnússonar
EKKERT lát er á samdrætti í eft-
irspurn innanlands ef marka má töl-
ur um innheimtu virðisaukskatts í
janúarmánuði síðastliðnum saman-
borið við árið áður. Tekjur af inn-
heimtu virðisaukaskatts drógust
saman um 16%, en það jafngildir
tæplega fjórðungssamdrætti að
raungildi, að því er fram kemur í
nýju vefriti fjármálaráðuneytisins
fjr.is.
Þar kemur einnig fram að bílainn-
flutningur haldi áfram að dragast
saman þriðja árið í röð, en vörugjald
af bifreiðum í janúar hafi skilað
þriðjungi minni tekjum en á sama
tíma í fyrra sem svari til 40% sam-
dráttar að raungildi.
Hins vegar skili tekjuskattur ein-
staklinga umtalsverðum tekjuauka
miðað við síðasta ár sem endur-
spegli fyrst og fremst áframhald-
andi tekjuaukningu heimilanna,
enda hafi árshækkun launavísitöl-
unnar verið um 9% allt síðastliðið
ár. Þá skili fjármagnstekjuskattur
einnig um þriðjungi meiri tekjum en
á sama tíma í fyrra.
Fram kemur að samkvæmt tölum
um greiðsluafkomu ríkissjóðs í jan-
úar hafi handbært fé frá rekstri
numið rúmum 700 milljónum kr.,
samanborið við 1,8 milljarða í janúar
2001. Hreinn lánsfjárjöfnuður var
hins vegar svipaður bæði árin, eða
nánast í jafnvægi. Staðan gagnvart
Seðlabanka hafi batnað talsvert
milli ára og numið rúmlega þremur
milljörðum króna, samanborið við
1,8 milljarða á sama tíma í fyrra.
Útgjöldin hækkuðu um
2,1 milljarð frá fyrra ári
Þá kemur fram að heildartekjur
ríkissjóðs námu 18,6 milljörðum
króna í janúar og hækkuðu um einn
milljarð frá fyrra ári, eða um 6%.
Heildarskatttekjur hækkuðu um
svipað hlutfall, en það jafngildir 3%
samdrætti að raungildi.
„Útgjöld ríkissjóðs námu 17,9
milljörðum króna og hækkuðu um
2,1 milljarð frá fyrra ári, eða um
13%. Þessi hækkun skýrist einkum
af hærri framlögum til ýmissa fé-
lagsmála. Þannig nam hækkun til
skólamála og heilbrigðismála um
einum milljarði og til almannatrygg-
inga um 300 milljónum króna. Þess-
ar niðurstöður eru nokkru lakari en
gert var ráð fyrir í áætlunum.
Heildarútgjöld voru þannig um 1,9
milljörðum króna hærri og heildar-
tekjur um 1,2 milljörðum lægri. Það
er hins vegar rétt að hafa nokkra
fyrirvara við slíkan samanburð þar
sem uppgjörið nær aðeins til eins
mánaðar og bæði tekjur og gjöld
geta færst til milli mánaða,“ segir
síðan.
Ekkert lát
á samdrætti
innanlands
Vörugjald af bílum skilaði minni
tekjum í janúar en á sama tíma í fyrra
EKKI eru bara endur á Tjörninni í
Reykjavík og aðrir fuglar gera ekki
síður tilkall til brauðsins þó upp-
haflega hafi erindið verið að „gefa
öndunum brauð“. Álftin er ófeimin
við að reigja langan háls sinn eftir
brauðbitanum þyki henni biðin löng
eða félagar sínir á Tjörninni of
frekir til matar síns.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ekki bara endurnar sem vilja brauð
FULLTRÚAR Leigjendasamtak-
anna, ASÍ, BSRB, Öryrkjabandalags-
ins, Félagsbústaða og Reykjavíkur-
borgar funduðu á dögunum um
ástandið í húsnæðismálum og leiðir til
úrbóta. Var rætt sérstaklega um upp-
byggingu leigumarkaðar í borginni
og eflingu Leigjendasamtakanna í
framhaldi af því.
Á fundinum var samþykkt að
stofna starfshóp sem í ættu sæti
fulltrúar flestra ofangreindra sam-
taka. Starfshópurinn mun í samvinnu
við borgina og sveitarfélögin í landinu
móta nýja húsnæðisstefnu með sér-
staka áherslu á leigumarkaðinn.
Guðmundur St. Ragnarsson, lög-
maður Leigjendasamtakanna, segir
Leigjendasamtökin hafa átt frum-
kvæðið að þessum fundi en ástæðan
sé fyrst og fremst mikil vöntun á
leiguhúsnæði, bæði á almenna mark-
aðinum og félagslega markaðinum.
Leiguverð á almenna markaðinum sé
og hafi verið svimandi hátt um all-
langa hríð og ekki hafi verið byggt
nægilega mikið af félagslegu leigu-
húsnæði.
Guðmundur segir að starfsemi
Leigjendasamtakanna hafi til þessa
ekki verið mikil og nánast allt verið
unnið í sjálfboðavinnu. Það sé eitt af
markmiðunum að gera þau að „al-
vöru“ samtökum sem gæti hagsmuna
leigjenda í hvívetna.
„Viðbrögð þeirra sem komu að
þessum fundi voru mjög jákvæð og
ljóst að það er mikill vilji fyrir hendi
að taka á þessum málaflokki og end-
urreisa samtökin með okkur. Við
ákváðum að skipa strax starfshóp
sem á að fara í það af fullum krafti nú
mjög fljótlega að móta tillögur um
hvaða leiðir séu heppilegastar til úr-
bóta á leigumarkaðinum.“
Húsnæðisstefna miðuð við
áherslu á leigumarkaðinn
JARÐSKJÁLFTI, sem
mældist liðlega þrjú stig á
Richter, fannst í Þorlákshöfn
tuttugu mínútur í tvö aðfara-
nótt fimmtudags
Að sögn Steinunnar Jak-
obsdóttur, jarðskjálftafræð-
ings á Veðurstofu Íslands,
átti skjálftinn upptök sín úti
fyrir mynni Ölfusáróss. Hún
segir að um stakan skjálfta
hafi verið að ræða og honum
hafi einungis fylgt tveir litlir
eftirskjálftar. Engin frekari
skjálftavirkni hafi mælst
þarna. Hún segir jarðskjálfta
á þessum stað ekki algenga,
svæðið þarna sé ekki eins
virkt og norðar, en þó verði
þar alltaf skjálftar öðru
hvoru.
Stakur
skjálfti í
Þorlákshöfn