Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 46
FRÉTTIR
46 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Pálmi B. Almarsson
löggiltur fasteignsali
Þóroddur S. Skaptason
löggiltur fasteignsali
Guðrún Gunnarsdóttir
ritari
Jón Guðmundsson
sölustjóri
Sverrir B. Pálmason
OPIÐ HÚS Í DAG, ÍBÚÐ 0601. Í þessu fal-
lega húsi er til sýnis og sölu mjög góð 91
m² 3ja herb. íbúð á 6. hæð. Glæsilegt út-
sýni. Húsvörður. Verð 10,4 millj. Í DAG kl.
14 -17 taka Bjarki Þór og Erla á móti þér
og þínum. Sjón er sögu ríkari.
ORRAHÓLAR 7 - OPIÐ HÚS
Stórglæsilegt 125 m² einbýlishús á einni
hæð ásamt 33 m² sérstæðum bílskúr. Þrjú
svefnherbegi og tvær stofur. Glæsilegur
garður. Heitur pottur. Áhv. 2,5 millj. Verð
21,9 millj. Eign í sérflokki. Földi mynda á
vef.
Hverafold - einbýlishús
Vorum að fá í einkasölu stórglæsileg 111
m² 4ra herbergja hæð á 2. hæð í nýju húsi
við Grettisgötu. Glæsilegt baðherbergi og
eldhús. Gegnheilt parket og flísar. Góðar
suðursvalir. Þetta er eign í sérflokki. Áhv. 6
millj. Verð 16,9 millj. Fjöldi mynda á vef.
Glæsihæð í miðbænum
TIL SÖLU EÐA LEIGU
BÆJARHRAUN 12C, GARÐABÆ LAUST
MIÐSVÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Til sölu eða leigu nýtt og glæsilegt iðnaðarhúsnæði í
Suðurhrauni 12C í Garðabæ. Húsnæðið, sem er alls 1070 fm,
skiptist í lagerhúsnæði með 5 til 7 metra lofthæð ca 800 fm
og skrifstofur ca 270 fm. Tvennar stórar innkeyrsludyr (4x4
metrar). Góð bílastæði, góð aðkoma. Söluverð ca 75 millj.
Leiguverð ca 60 þús/fm. Lyklar og allar nánari upplýsingar á
skrifstofu vorri.
FASTEIGNASALA BRYNJÓLFS JÓNSSONAR EHF.
Sími 511 1555
Borgartúni 22
105 Reykjavík
Sími 5-900-800
Opin hús í dag
Akurgerði 7 - Einbýli.
Vorum að fá í sölu þetta 134 fm einbýli á
frábærum stað innarlega í botnlanga.
Húsið skiptist í kjallara og tvær hæðir.
Skipulag er frábært, m.a. 4 svefnher-
bergi, 2 baðherbergi, stofa og borðstofa
þar sem gengið er út á sólpall og í fallegan garð. Þak hússins var algjör-
lega endurnýjað fyrir 2 árum. Áhvílandi er 4,0 millj.húsbréf. Verð 17,9 millj.
Guðbjörg og Hilmar taka á móti gestum í dag á milli 14 og 16.
LINDARGATA 12
RISÍBÚÐ
Vorum að fá í einkasölu mjög fallega 90
fm rísíbúð (eina íbúðin á hæðinni) á góð-
um stað í miðbænum við rólega götu.
Sérlega björt íbúð 2 stórar stofur með
parketi og góðu útsýni yfir borgina.
Hjónaherbergi með fataherbergi og eld-
hús með góðri innréttingu, stórt baðherbergi með sturtu og t.f. þvottavél.
TOPP EIGN SJÓN ER SÖGU RÍKARI Áhv. 7,3 bygg.sj.rík. og húsbréf Verð
12,6 millj.
Vignir og Inga taka á móti gestum í dag á milli 14 og 16.
Gistiaðstaða í Hafnarfirði
Vorum að fá í einkasölu ca 175 fm með 7
herbergjum, stóru og rúmgóðu eldhúsi
og baðherbergi. Mjög hagstæð rekstr-
areining. Hagstæð kjör. Getur verið af-
hent strax.
Nýbýlavegur Kópavogi Vor-
um að fá í sölu ca 113 fm skrifstofuhús-
næði í TOYTA-húsinu. Húsnæðið skiptist
í fimm herbergi með eldhúsaðstöðu og
snyrtingu. Hagstæð kaup og kjör fyrir
góða aðstöðu.
Raðhús á svæði 103 í Reykjavík
Á tveimur hæðum með bílskúr, fæst í
skiptum fyrir raðhús eða einbýli á svæði
110 eða 113 í Reykjavík.
Sími 588 8787 — Fax 588 8780
Suðurlandsbraut 16
www.h-gaedi.is - netfang: sala@h-gaedi.is
Sigurberg Guðjónsson. hdl. og lögg. fasteignasali
Ártúnsholt Vorum að fá í einkasölu
eign á tveimur hæðum, sem getur verið
tvær íbúðir. Um er að ræða hæð og
kjallara, samtals 7-8 herbergi, tvö eldhús
og tvær snyrtingar. Eign á besta stað í
bænum, sem gefur mikla möguleika.
Heildarverð 18,9 millj.
Sérhæft trésmíðaverk-
stæði Vorum að fá í einkasölu tré-
smíðaverkstæði sem er vel tækjum búið
og hentar stærð fyrirtækisins 2-4 starfs-
mönnum. Óvenju bjart og vel skipulagt
verkstæði. Reksturinn getur verið til af-
hendingar fljótl.. Mjög hagstætt verð.
Nánari upplýsingar
á söluskrifstofu H-Gæðis, sími 588 8787
Opið milli kl. 13-17
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Vogatunga 25a - Kópav. - 60 ára og eldri
Opið hús í dag frá kl. 14.00 til 17.00
Sérlega falleg neðri sérhæð í raðhúsi á þessum frábæra stað. Fallegur sér-
garður með verönd. Mjög gott aðgengi. Þuríður tekur á móti áhugasömum
milli kl. 14.00 og 17.00 í dag, sunnudag. Verð 12,9 millj.
MÁLÞING um atvinnulíf, menntun
og búsetu í Borgarfirði var haldið
nýverið í Hótel Borgarnesi. Sveitar-
félögin í Borgarfirði norðan Skarðs-
heiðar stóðu saman að málþinginu en
markmiðið var að skerpa ímynd
Borgarfjarðar, gera svæðið að sýni-
legri kosti til búsetu og til uppbygg-
ingar avinnustarfsemi. Málþingið
var öllum opið og greinilegt að þetta
er hugðarefni margra því húsfyllir
var í salarkynnum Hótels Borgar-
ness. Margir þingmenn úr Vestur-
landskjördæmi og Norðurlandi
vestra voru einnig mættir.
Sex valinkunnir einstaklingar sem
tengdust þessu verkefni á ólíkan
hátt héldu framsögu. Stefán Logi
Haraldsson, framkvæmdastjóri Vír-
nets Garðastáls hf., hélt fyrsta erind-
ið, sem bar yfirskriftina ,,Sókn á
réttum vallarhelmingi“. Stefán Logi
heimfærði aðferðafræði vinnings-
liðsins yfir á markmið Borgfirðinga
til að hlúa að atvinnulífinu, gefa ungu
fólku tækifæri til að búa hér til fram-
búðar og síðast en ekki síst að gera
Borgarfjörðinn að eftirtektarverð-
um stað til að búa á.
Guðmundur Ólafsson, lektor við
HÍ og Viðskiptaháskólann á Bifröst,
fór ótroðna slóð í framsetningu sinni
en erindi hans bar titilinn: ,,Hvað
vildi Búkarín: Hvaða fyrirtæki og
hver ekki ?“ Niðurstaðan var að
hættulegt er að dæma atvinnuvegi
úr leik og einblína á þrönga kosti.
Taka á öllum kostum vel sem skapa
arð, en ekki má þó skilgreina hagnað
of þröngt því og gæta þarf að því að
meðalkostnaður sé lægri en meðal-
kostnaður í viðkomandi atvinnu-
grein.
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir,
sjálfstætt starfandi landslagsarki-
tekt, rökstuddi í sinni framsögu mik-
ilvægi þess að sveitarfélögin bjóði
upp á dagvistun barna frá níu mán-
aða aldri eða eftir að fæðingarorlofi
lýkur. Ennfremur minntist hún á að
hlekk vantaði í menntunarkeðjuna í
Borgarfirði þar sem enginn fram-
haldsskóli væri í héraðinu.
Jón Sigurðsson rekstrarhagfræð-
ingur fjallaði um Borgarfjörð og
hverjar horfurnar í íslenskum
byggðamálum væru, einkum á Mið-
Vesturlandi, eftir um það bil tíu ár.
Jón fjallaði um ákveðna samfélags-
byltingu sem gæti valdið því að
Borgarnes og Mið-Vesturland öðlist
nýtt samfélagshlutverk, ný tækifæri
og nýja möguleika. Menn eiga að
festa sjónir á tækifærum og mögu-
leikum en ekki láta breytingar,
óvissu, áhættu og erfiðleika kúga sig.
Mið-Vesturland gæti vel þróast og
náð góðum árangri sem hluti borg-
ríkisins.
Bjarnheiður Hallsdóttir, ferða-
málafræðingur og framkvæmda-
stjóri Katla Travel, fjallaði faglega
um málefni ferðaþjónustunnar og
endaði með því að ítreka að Borg-
arfjörður er í lykilaðstöðu til að
stækka sína sneið af ferðaþjónust-
unni. Ástæðan fyrir því er ekki síst
staðsetning og sú þjónusta sem er
fyrir hendi.
Síðasta framsöguerindið kom frá
Grétari Þór Eyþórssyni, forstöðu-
manni Rannsóknarstofnunar Há-
skólans á Akureyri og Byggðarann-
sóknarstofnunar. Hann fór yfir
hlutverk sveitarfélaganna í tengsl-
um við gæði þjónustunnar sem veitt
er auk þess að benda á atriði sem
fram komu í tengslum við rannsókn
á árangri sameiningar nokkurra
sveitarfélaga á síðustu 7 árum.
Eftir að framsögum lauk var skipt
upp í hópa og farið yfir ýmsa mála-
flokka og niðurstöður hópstarfsins
síðan kynntar. Félagsmálaráðherra
Páll Pétursson var þá kominn í hús
og fylgdist með ályktunum og nið-
urstöðum hópanna. Páll flutti stutt
ávarp í lok málþingsins og kom hann
inn á nokkra athyglisverða þætti
eins og beitingu skattkerfisins við að
gera búsetu á landsbyggðinni að
ákjósanlegri kosti. Að lokum þakk-
aði félagsmálaráðherra fyrir þetta
ágæta málþing. Bjarni Guðmunds-
son málþingsstjóri sleit þinginu eftir
að hafa þakkað Hólmfríði Sveins-
dóttur fyrir skipulagningu þessa
málþings.
Málþing um atvinnulíf
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Hólmfríður Sveinsdóttir hvatamaður málþingsins ásamt nokkrum ánægðum Borgnesingum í lok málþingsins.
Borgarnes