Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 57
Í HLAÐVARPANUM
Vegna frábærra undirtekta:
„A toast to Harlem"
— Svört melódía“
Blús- og gospeltónlist ásamt leiknu efni. Jóhanna
Jónas, Margrét Eir og Guðmundur Péturs. á gítar.
Mið. 13.3. kl. 21 — Fös. 22.3 kl. 21
Mið. 27.3 kl. 21 — Síðasta sýning
„Ein besta sýning sem ég hef séð um
langa hríð. Sýning sem allir ættu að
sjá strax í kvöld!" ÓS. DV.
123&(&4&.(.1&))*5-6-
!!!
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN
Hóllinn, þ.e. nemendur úr
Digranesskóla, sigraði í æsi-
spennandi og skemmtilegri
spurningakeppni félagsmið-
stöðva Kópavogs sem
íþrótta- og tómstundaráð
bæjarins stóð nýlega að. Fé-
lagsmiðstöðvar í Kópavogi
eru sjö talsins og sendu allar
þátttakendur í keppnina
sem var með útsláttarfyrir-
komulagi.
Úrslitaviðureignir fóru
fram í Félagsheimili Kópa-
vogs 28. febrúar. Hóllinn
sigraði þar Ekkó (Þinghóls-
skóla) í keppni um fyrsta
sætið með 34 stigum gegn 24
eftir mjög góðan endasprett, en liðin
höfðu staðið jöfn að vígi eftir hraða-
spurningarnar. Í keppni um þriðja
sætið sigraði lið Kjarnans (Kópavogs-
skóla) lið Igló (Snælandsskóla).
Mikil stemning var meðal áhorf-
enda, enda fjölmargir mættir til að
hvetja sín lið. Í hléum sáu nokkrir
nemendur um skemmtiatriði, t.d.
rapptónlist og dans.
Í sigurliði Hólsins voru Benedikt
Hallgrímsson, Gunnar B. Björgvins-
son og Víðir Smári Petersen. Spyrj-
andi var Sigurjón Kjartansson, en
dómari og höfundur spurninga var
Úlfur Teitur Traustason.
Spurningakeppni félags-
Hóllinn fór með
sigur af hólmi
Sigurlið Hólsins frá vinstri: Benedikt
Hallgrímsson, Gunnar B. Björgvinsson
og Víðir Smári Petersen.
miðstöðvanna í Kópavogi