Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 1
72. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. MARS 2002
Umfangsmiklar björgunaraðgerðir
með þátttöku evrópskra hermanna
á vegum alþjóðlega hjálparliðsins,
með bækistöðvar í Kabúl, voru
hafnar í gær, en afganskir emb-
ættismenn sögðu að nauðsynlegt
væri að meiri hjálp bærist. Þrír
þjóðvegir liggja til héraðsins, en
að sögn talsmanns Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) eru tveir þeirra lok-
aðir vegna snjóa og því aðeins ein
leið fær. Af sömu sökum myndu
björgunarmenn reiða sig á þyrlur
til að koma hjálpargögnum til
fórnarlamba skjálftans.
Yfirmaður afganska hersins í
Baghlan, Haider Khan, sagði að
um 20 þúsund hús, sem byggð
voru úr mold og múrsteinum,
hefðu hrunið í skjálftanum, og
taldi Khan að allt að eitt þúsund
manns kynnu enn að vera grafnir í
rústunum. Hjálparstofnanir sögðu
að hátt í tíu þúsund manns hefðu
misst heimili sín, og eftirskjálft-
arnir ykju hættuna á skriðuföllum.
Auk eyðileggingarinnar í Nahrin,
þar sem búa um tíu þúsund
manns, varð mikið tjón í nærliggj-
andi þorpum.
Óttast að fleiri
hús hrynji
Annar eftirskjálfti reið yfir
svæðið í gærkvöldi og vakti ótta
meðal fólks um að fleiri hús
myndu hrynja. Sagði talsmaður SÞ
að margir hefðu lagst til svefns
undir berum himni, en hitastigið
var á bilinu 5–8 gráður. Sam-
kvæmt upplýsingum afganska
varnarmálaráðuneytisins höfðu
600 lík fundist og sjónvarpið í
Kabúl sagði að 12 þúsund metrar
af hvítum dúk hefðu verið sendir á
staðinn til að vefja líkin í.
Fulltrúar hjálparstofnana og
samtakanna Læknar án landa-
mæra komust til hamfarasvæð-
anna í gær og dreifðu þar tjöldum
og teppum og hjúkruðu slösuðum,
en þeir sem verst höfðu orðið úti
voru fluttir á sjúkrahús. Þá hafði
Matvælahjálp SÞ flutt á annað
hundrað tonna af mat á svæðið og
áætlaði að önnur fimm hundruð
tonn yrðu send í dag.
Annar jarðskjálftinn
á þremur vikum
Skjálftinn á mánudaginn átti
upptök sín í Hindu Kush-fjöllum,
sem eru um 120 kílómetra norður
af Kabúl, að því er jarðskjálfta-
fræðingar í nágrannaríkinu Pak-
istan greindu frá. Þetta er í annað
sinn á þremur vikum sem öflugur
skjálfti verður á þessu svæði, en
þarna er mikil skjálftavirkni.
Skjálftinn í byrjun mars var 7,2 á
Richter og fórust í honum um
hundrað manns.
Bandarískir jarðskjálftafræðing-
ar sögðu að upptök skjálftans á
mánudaginn hefðu ekki verið á
miklu dýpi, og af þeim sökum hefði
eyðileggingarmáttur hans verið
meiri en ella. Tveir miklir skjálftar
í febrúar og maí 1998 urðu hátt í
tíu þúsund manns að bana.
Um 2.000 manns farast í
jarðskjálfta í Afganistan
Kabúl. AFP, AP.
!
"
#
"$" "% $ "&' (
)% )"*+
!
"
#$
%&
'
,-
( )((
ÓTTAST er að um 2.000 manns að minnsta kosti hafi farist og um fjögur þús-
und slasast þegar hörð jarðskjálftahrina lagði afskekktan bæ í norðurhluta
Afganistans í rúst. Fyrsti skjálftinn, er mældist sex stig á Richter, reið yfir á
mánudagskvöld, að staðartíma, og herma fregnir að bærinn Nahrin í Baghl-
an-héraði hafi verið rústir einar eftir skjálftann. Harðir eftirskjálftar, er
mældust á bilinu 4–5,2 stig, urðu í gær.
MIKIL örtröð var fyrir utan
banka í Buenos Aires í Argentínu
í gær þar sem þúsundir manna
biðu eftir að komast að til að selja
pesóa fyrir dollara. Gengi pesósins
hefur hríðfallið undanfarna daga
og á mánudaginn féll það um 20%.
Alls hefur gengi pesósins fallið um
75% síðan tenging hans við Banda-
ríkjadollarann var afnumin í byrj-
un ársins, en í gær náði hann sér
aðeins á strik og fór í 3,4 á móti
einum dollara. Mun þetta hrun
óhjákvæmilega valda verðhækk-
unum og telja fréttaskýrendur
minnkandi líkur á að stjórn Ed-
uardos Duhaldes forseta muni ná
tökum á efnahagsmálunum í land-
inu.
Reuters
Vilja selja pesóa
Ótti við/22
FINNSKA fjarskiptafyrirtækið
Sonera og hið sænska Telia
greindu frá því í gær að ákveðið
hefði verið að sameina fyrirtækin.
Með sameiningu þeirra verður til
stærsta fjarskiptafyrirtæki á
Norðurlöndum og eitt hið stærsta í
Evrópu.
Höfuðstöðvar samstæðunnar
nýju verða í Stokkhólmi, en starfs-
menn fyrirtækisins verða í kring-
um 34 þúsund. Eignarhlutur Telia
verður 64% en hlutur Sonera 36% í
hinu nýja fyrirtæki, sem enn hefur
ekki hlotið nafn.
Gert er ráð fyrir að 8,1 milljón
farsímanotenda á Norðurlöndum
og í Eystrasaltsríkjunum verði í
viðskiptum við nýja fyrirtækið og
7,6 milljónir fastlínunotenda.
Telia er að 70% í eigu sænska
ríkisins og Sonera að 53% í eigu
finnska ríkisins. Báðar ríkisstjórn-
ir hafa lýst yfir áformum um að
minnka eignarhlut sinn í fyrirtækj-
unum á næstu fimm árum.
Markaðir lítt hrifnir
Orðrómur hefur verið á kreiki
síðustu tvö árin þess efnis að fyr-
irtækin hygðust sameinast. Í fyrra
hófu fyrirtækin viðræður í þessu
skyni en þeim var slitið sökum erf-
iðrar skuldastöðu Sonera.
Ekki mæltust fréttir af samein-
ingunni þó sérlega vel fyrir á
markaði. Bréf í Telia féllu í verði
um 7,58% í kauphöllinni í Stokk-
hólmi en í Sonera hækkuðu þau lít-
illega eða um 0,7%.
Sonera
og Telia
sameinast
Helsinki. AFP.
YASSER Arafat, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, fer ekki á
ráðstefnu Arababandalagsins, sem
hefst í Beirút í Líbanon í dag, að því
er sagði í tilkynningu frá heima-
stjórninni í gærkvöldi. Myndi Arafat
halda sig á heimastjórnarsvæðunum,
því ekki þætti ástæða til að gefa Ísr-
aelum tilefni til að meina honum að
snúa til baka.
Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn
hafi þrýst á Ísraela að leyfa Arafat
að fara til Beirút sagði Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, í gær að
Ísraelar yrðu að eiga rétt á því að
meina Arafat að snúa aftur ef
hryðjuverk yrðu unnin í fjarveru
hans. Ísraelar hafa haldið Arafat í
herkví í borginni Ramallah á Vest-
urbakkanum frá því í desember síð-
astliðnum, en nýverið sögðu þeir að
honum væri frjálst að fara um
heimastjórnarsvæðin.
Sér eftir að hafa lofað
að þyrma Arafat
Í viðtali sem birt er í dag segir
Sharon m.a. að hann sjái eftir því að
hafa lofað George W. Bush Banda-
ríkjaforseta að Ísraelar muni ekki
skaða Arafat eða reka hann á brott.
Sharon segir í viðtali við dagblaðið
Yediot Ahronot að á öllum fundum
sem hann hafi átt með Bush í Hvíta
húsinu undanfarið ár hafi hann verið
beðinn um að gefa slík loforð.
„Í forsætisráðherratíð minni hef
ég gefið ein þau fyrirheit sem ég tel
hafa verið mistök; ég lofaði að vinna
Arafat ekki mein,“ sagði Sharon.
Arafat ekki til Beirút
Ísraelar
settu
skilyrði
Gazaborg, Jerúsalem. AFP, AP.
Arabaríkin/22
TVEIR eftirlitsmenn á vegum
Alþjóðlegu gæslusveitarinnar í
Hebron, Svisslendingur og
Tyrki, voru skotnir til bana á
Vesturbakkanum í gær, að því
er ísraelskir landnemar og út-
varpsstöðvar hermdu. Sá þriðji
særðist lítillega. Þetta er í
fyrsta sinn sem liðsmenn
gæslusveitarinnar eru felldir
síðan hún var stofnuð fyrir átta
árum.
Eftirlitsmennirnir voru á
ferð í bíl á vegi sem ísraelskir
landnemar nota mest þegar
skotið var á þá og virðist sem
palestínskir byssumenn hafi
verið að verki, að sögn ísr-
aelska hersins. Talsmaður
gæslusveitarinnar segir bíl
mannanna hafa verið greinilega
merktan.
Eftirlits-
menn
skotnir
Jerúsalem. AP.