Morgunblaðið - 27.03.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 9
Fyrir páskana!
Sparidragtir og kjólar
Sportlegur ferðafatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
St
afr
æn
a H
ug
m
yn
da
sm
ið
jan
/
17
26
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnakosning-
arnar í Kópavogi hinn 25. maí er eft-
irfarandi samkvæmt fréttatilkynn-
ingu:
1. Gunnar I. Birgisson alþingis-
maður, 2. Ármann Kr. Ólafsson að-
stm. sjávarútvegsráðherra, 3. Gunn-
steinn Sigurðsson skólastjóri, 4.
Sigurrós Þorgrímsdóttir stjórnmála-
fræðingur, 5. Halla Halldórsdóttir
hjúkrunarfr./ljósmóðir, 6. Bragi
Mikaelsson eftirlitsmaður, 7. Ásdís
Ólafsdóttir íþróttakennari, 8. Mar-
grét Björnsdóttir bókari, 9. Sigrún
Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur,
10. Jóhanna Thorsteinson fóstra, 11.
Gísli Rúnar Gíslason lögfræðingur,
12. Pétur M. Birgisson vélstjóri, 13.
Ingimundur Guðmundsson kerfis-
fræðingur, 14. Björn Ólafsson mat-
reiðslumeistari, 15. Oddný Halldórs-
dóttir flugfreyja, 16. Hildur Björg
Aradóttir flugumferðarstjóri, 17.
Þórir Bergsson íþróttakennari, 18.
Þórður Guðmundsson atud.-jur, 19.
Elísabet Arnórsdóttir nemi, 20. Guð-
rún Vigfúsdóttir vefjarlistakona.
Framboðslisti Sjálfstæð-
isflokksins í Kópavogi
NÝR segull í segulómtæki Hjarta-
verndar komst klakklaust í hús-
næði samtakanna í gær en sams-
konar segull eyðilagðist í
flutningum fyrir um hálfum mán-
uði. Þá var talið að festingar hefðu
slitnað en að þessu sinni gekk allt
að óskum.
Guðmundur Hreiðarsson, deild-
arstjóri hjá Heklu hf., segir að það
hafi gengið vonum framar að út-
vega nýjan segul. Framleiðandi
segulsins, bandaríska fyrirtækið
General Electrics, hafi sett Hjarta-
vernd fremst í röðina og því hafi
tekist að útvega nýjan segul þrem-
ur dögum eftir að sá fyrri eyðilagð-
ist.
Morgunblaðið/RAX
Flutningamenn hafa væntanlega fengið fiðring í magann þegar seg-
ullinn var hífður upp.
Flutningur
á segli gekk
áfallalaust
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði á aðalfundi Þró-
unarfélags miðborgarinnar á þriðju-
dag, að tímabært væri að horfast í
augu við þá staðreynd að miðborgin
væri ekki lengur sá verslunarkjarni
sem hún hefði verið, en gegndi nú
hlutverki mannlífsmiðstöðvar.
Hún sagði þætti eins og frístunda-
iðju, menningarframleiðslu og vit-
undariðnað renna styrkari stoðum
undir verslun og viðskipti í borginni
auk stjórnsýslu og ferðaþjónustu, en
þessir þættir skiptu miklu máli í
hverri borg. Hún sagði að sókn eftir
upplifun myndi einkenna borgir og
atvinnulíf framtíðarinnar og notaði
hugtakið upplifunarsamfélagið yfir
slíkar borgir.
„Það er andrúmsloftið, upplifunin
og fjölbreytilegar athafnir sem
munu skipta máli og gera það að
verkum að miðborgir fá æ ríkara
hlutverk,“ sagði Ingibjörg. Hún
sagði flesta kannast við það að þeir
færu ekki til erlendra borga án þess
að heimsækja miðborgir þeirra og
búast mætti við nákvæmlega sömu
þróun meðal erlendra ferðamanna í
Reykjavík. Því þyrfti við uppbygg-
ingu Reykjavíkur að gæta þess að
gamalt og nýtt héldust í hendur
þannig að unnt væri að halda í and-
rúmsloft sem fyrir væri þegar skap-
að væri rými fyrir nýjar þarfir.
„Þetta held ég að við verðum að
hafa í huga þegar við skoðum mið-
borgina. Hún er ekki og verður aldr-
ei aftur sá verslunarkjarni sem hún
einu sinni var. Núna er hún kjarni
mannlífs og mannlífsmiðstöð. Við
höfum kannski verið of upptekin af
því að horfa bara á verslunina og hin-
ar hefðbundnu atvinnugreinar sem
tengjast miðborginni,“ sagði Ingi-
björg.
Borgarstjóri um breytta stöðu miðborgarinnar
Miðborgin verður aldrei aftur
sá verslunarkjarni sem hún var
TILKYNNT var um ránstilraun til
lögreglunnar í Reykjavík í gær þeg-
ar reynt var að ræna verðmætaflutn-
ingabíl á Laugaveginum, að því er
talið var í fyrstu. Í ljós kom að um
misskilning var að ræða.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
voru málsatvik þau að íbúi við
Laugaveg var ekki sáttur við stöðu
verðmætabílsins sem lagt hafði verið
framan við hús hans. Bílstjóranum
og íbúanum varð sundurorða vegna
stöðu bílsins og í framhaldinu hrifs-
aði íbúinn poka með verðmætum úr
bílnum. Þá ýtti bílstjórinn á neyð-
arhnapp í bílnum, sem gefur til
kynna að um rán hafi verið að ræða.
Upp úr því kom lögregla á vettvang
og gerði út um málið. Sagði lögregl-
an að íbúinn hefði aldrei haft í
hyggju að ræna bílinn.
Tilkynnt um
meint rán á verð-
mætaflutningabíl