Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 23

Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 23 MESTU þurrkar í meira en áratug þjaka nú íbúa Mið-Ameríku. Í Guatemala þar sem ástandið er einna verst hafa meira en 120 börn látist og hungurdauði vofir yfir þús- undum manna sökum uppskeru- brests. Þurrkurinn hefur lagst yfir stór svæði í Guatemala, El Salvador, Hondúras og Nicaragua. Hans tók að gæta í fyrra er kornuppskeran stóð ekki undir væntingum en smá- bændur í afskekktum þorpum á landsbyggðinni eiga allt sitt undir því að þeim takist að færa björg í bú. Helmingur barnanna vannærður Ástandið í Guatemala vekur sér- staklega áhyggjur. Stjórnvöld þar segja að um helmingur barna í land- inu sé þjakaður af viðvarandi nær- ingarskorti og 75% þjóðarinnar draga fram lífið undir skilgreindum fátæktarmörkum. Þar ræðir um gríðarlegan fjölda fólks því 11 millj- ónir manna búa í Guatemala. Forseti landsins, Alfonso Portillo hefur sjálf- ur lýst ástandinu á þann veg að 80% þjóðarinnar búi „við ömurleg kjör“. Sameinuðu þjóðirnar greindu frá því í vikunni að ákveðið hefði verið að senda matvæli til landsins og yrði þeim komið til 60.000 vannærðra barna en af þeim eru um 6.000 talin í lífshættu. Nú þegar er vitað um rúm- lega 125 börn og hvítvoðunga sem orðið hafa hungurdauðanum að bráð í litlum, afskekktum þorpum. Þær tölur koma frá stjórnvöldum í Guate- mala. Örþrifaráðin uppurin Jordan Dey, talsmaður Matvæla- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir að mikill fjöldi bláfátæks fólks í Guatemala hafi nú þegar nýtt sér þau örþrifaráð sem því séu tæk í slíku árferði. „Fólkið er þegar búið að slátra þeim fáu skepnum sem það átti; ekkert sáðkorn er að hafa; börn- in eru hætt í skólanum og farin að hjálpa fjölskyldunni að komast af; ekki er lengur hægt að deila matnum með öðrum því hann er uppurinn,“ segir hann. Heilbirgðisráðuneyti Guatemala lét nýverið gera víðtæka könnun og kom þá í ljós að allt að 80% íbúanna glíma við næringarskort á þeim svæðum sem þurrkurinn hefur eink- um leikið grátt. Þetta á sérstaklega við um austurhluta landsins nærri landamærunum að Hondúras. Stjórnvöld hafa gripið til ýmissa ráðstafana. Rúmlega 60 „fæðumið- stöðvum“ hefur verið komið á fót en sagt er að þær þyrftu að vera næst- um tvöfalt fleiri. Í þorpinu Cajon del Rio um 160 kílómetra austur af Guatemala-borg hefur verið komið upp sjúkraskýlum og þangað geta mæður leitað með börn sín. Hjúkr- unarfræðingar vega börnin og meta ástand þeirra með tilliti til næring- arskorts. „Þetta venst“ Fyrir rúmum hálfum mánuði fékk eins árs gamall sonur Alba Lidia Sanchez niðurgang og lést þremur dögum síðar. Í þorpinu þeirra búa 900 manns og þar hafa nú fimm börn dáið. „Honum hrakaði svo hratt að ég gat ekkert gert,“ segir Sanchez um leið og grindhoruð tveggja ára dóttir hennar grípur í kjólgopa móður sinn- ar. Við hlið hennar stendur Bern- ancia Hernandez. Hún er 44 ára og heldur á nýfæddu barni sínu. Þetta er 12. barn hennar; sex þeirra náðu ekki þriggja ára aldri. Þegar hún er spurð hvernig hún hafi þrek til að halda áfram segir hún: „Þetta venst“ og brosir svo að rotnandi leifar tanna í báðum gómum blasa við nærstödd- um. Gloria Calderon, kaþólsk nunna sem starfar í Cajon del Rio, segir að fjögur börn hafi dáið í sjúkraskýli hennar á undanliðnum mánuðum. Sú tala endurspegli hins vegar engan veginn ástandið: „Flestir vilja að börnin þeirra deyi heima“. Þurrkurinn hefur einnig komið illa við almenning í nágrannaríkjunum þó svo að flest bendi til þess að þar sé ástandið ekki jafnalvarlegt og í Guatemala. Ríkin syðst í Mið-Amer- íku, Panama og Costa Rica, virðast þannig hafa sloppið að mestu. Óttast að þúsundir manna deyi úr sulti Næringarskortur er þegar tekinn að draga börn til dauða í Guatemala og miklar hörmungar vofa yfir Cajon del Rio í Guatemala. The Washington Post. Washington Post/Kevin Sullivan Hjúkrunarfræðingarnir í Cajon del Rio hvöttu Rosario Garcia til að fara með syni sína á sjúkrahús sökum næringarskorts. Hún sagði að of dýrt væri að fara með þá báða þannig að hún skildi þann yngri eftir. ’ Flestir vilja aðbörnin þeirra deyi heima ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.