Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 24
ERLENT
24 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLÖMSKUM hreyfingum, jafnt rót-
tækum sem hófsömum, hefur vaxið
ásmegin í Afríku, allt frá norðurhlut-
anum til sunnarverðrar álfunnar.
Uppgangur íslams lýsir sér meðal
annars í því að tólf ríki í norðurhluta
Nígeríu hafa tekið upp íslömsk lög,
sem þarlend stjórnvöld segja að
gangi í berhögg við stjórnarskrá
landsins, og stuðningurinn við lögmál
íslams hefur aukist í mörgum öðrum
löndum.
Kristnar kirkjur eru reyndar einn-
ig í sókn í Afríku. Af um 770 millj-
ónum íbúa álfunnar eru 310 milljónir
íslamskrar trúar, þar af eru 90%
súnnítar. Um það bil jafnmargir Afr-
íkumenn eru kristinnar trúar en þeim
sem aðhyllast hefðbundna andatrú
hefur fækkað.
„Áhuginn á íslam hefur aukist
hvarvetna í álfunni,“ segir Ibraheem
Zakzaky, einn af forystumönnum rót-
tækra múslíma í Nígeríu. Hann segir
að trúarvakningin einskorðist ekki
við fátækustu íbúa álfunnar og dæmi
séu um að læknar og lögfræðingar
hafi efnt til leynilegra trúarfunda í
Egyptalandi þar sem stjórnvöld hafa
reynt að stemma stigu við uppgangi
róttækra íslamskra hreyfinga.
„Kristni hefur líka eflst, en ég bendi á
uppgang íslams frá Súdan til Nígeríu
og Suður-Afríku. Íslam er í sókn í
allri Afríku.“
Tólf ríki í norðurhluta Nígeríu, þar
sem múslímar eru í meirihluta, hafa
tekið upp íslömsk lög en mannrétt-
indahreyfingar og leiðtogar kristinna
manna, sem eru í meirihluta í suður-
hluta landsins, segja að þau gangi í
berhögg við stjórnarskrá landsins.
Sex mönnum hefur verið refsað fyrir
þjófnað með því að höggva af þeim
hendurnar og íslamskir dómstólar
hafa úrskurðað að grýta eigi tvær
konur til bana fyrir hórdóm. Ísl-
amskur áfrýjunarréttur þyrmdi
reyndar annarri konunni og ógilti
dauðadóminn yfir henni á þeirri for-
sendu að mál hennar hefði ekki fengið
rétta meðferð.
Barist gegn íslamskri
róttækni í Norður-Afríku
Stjórnvöld í múslímaríkjum Norð-
ur-Afríku hafa reynt í rúman áratug
að stemma stigu við uppgangi rót-
tækra íslamskra hreyfinga. Í Egypta-
landi, þar sem um 90% íbúanna eru
múslímar, grundvallast mörg lög á
lögmálum íslams, en stjórn Hosnis
Mubaraks forseta hefur reynt að
uppræta róttækar hreyfingar músl-
íma, einkum eftir að reynt var að ráða
hann af dögum árið 1995.
Stjórnvöld í Túnis og Alsír hafa
einnig skorið upp herör gegn róttæk-
um múslímum. Stríð hefur geisað frá
1992 milli stjórnar Alsírs, sem herinn
myndaði, og róttækra hreyfinga
múslíma. Stríðið hefur kostað meira
en 100.000 manns lífið að sögn stjórn-
valda, en alsírskir fjölmiðlar telja að
meira en 150.000 manns hafi fallið.
Leiðtogi róttækustu hreyfing-
arinnar í Alsír, GIA, féll í bardaga 8.
febrúar en önnur hreyfing, GSPC,
hefur sótt í sig veðrið. Síðarnefnda
hreyfingin var stofnuð 1998 og teng-
ist al-Qaeda, hryðjuverkasamtökum
Osama bin Ladens.
Herforingjastjórnin í Súdan hefur
beitt íslömskum lögum, meðal annars
á svæðum þar sem kristnir menn og
andatrúarmenn eru í meirihluta.
Herforingjastjórnin hefur þó tekið
upp hófsamari stefnu á síðustu tveim-
ur árum, hnekkt dauðadómum ísl-
amskra dómstóla og handtekið leið-
toga róttækra múslíma, Hassan
al-Turabi.
Orðrómur um að Bandaríkjastjórn
íhugi hernaðaraðgerðir í Sómalíu hef-
ur kynt undir andúð á Vesturlöndum
þar í landi. Stjórn Bandaríkjanna tel-
ur að hreyfingin Al-Itihaad Al-Islam
(„Eining íslams“), sem hefur hvatt til
stofnunar íslamsks ríkis í Sómalíu,
tengist al-Qaeda.
Atvinnuleysið vatn á
myllu öfgahreyfinga
Örbirgð og atvinnuleysi í Afr-
íkuríkjunum hafa verið vatn á myllu
íslömsku hreyfinganna. Til að mynda
er helmingur alsírskra karlmanna
undir þrítugu án atvinnu og atvinnu-
leysið er einnig mikið meðal ungs
fólks í Nígeríu, þar sem helmingur
íbúanna er undir tvítugu.
Af 40 milljónum íbúa Suður-Afríku
er tæp milljón íslamskrar trúar og
nokkrar róttækar hreyfingar músl-
íma hafa látið mikið að sér kveða þar
síðustu árin. Bandaríkjastjórn hefur
skilgreint tvær þeirra sem hryðju-
verkahreyfingar. Önnur þeirra, Fólk
gegn glæpum og eiturlyfjum, er talin
hafa staðið fyrir 190 sprengju-
tilræðum í Höfðaborg og nágrenni á
árunum 1996-2000. Þrír menn biðu
bana og um 130 særðust í tilræð-
unum.
Þriðja hreyfingin, Múslímar gegn
ólögmætum stjórnvöldum, sagðist
hafa sent um þúsund karlmenn til
Afganistans í fyrra til að berjast með
talibönum. Fjölmennustu samtök
múslíma í Suður-Afríku hafa afneitað
hreyfingunni.
Uppgangur íslams og kristni eykur
hættuna á átökum milli múslíma og
kristinna manna og jafnvel borg-
arastyrjöld eins og í Súdan. Þúsundir
manna hafa beðið bana í átökum
kristinna og múslíma í Nígeríu síð-
ustu tvö árin og á Fílabeinsströndinni
blossuðu upp átök í fyrra sem rakin
voru til deilna íslamskra „útlendinga“
og kristinna „frumbyggja“.
Íslam í sókn í allri Afríku
Abuja. AFP.
AP
Safiya Hussaini, 35 ára nígerísk kona (t.v.), með dóttur sinni í dómhúsi í Norður-Nígeríu. Íslamskur undirréttur
úrskurðaði í október að grýta ætti Hussaini til bana fyrir að eignast barn utan hjónabands en áfrýjunarréttur
ógilti dauðadóminn á mánudag. Nokkrum dögum áður var önnur kona dæmd til sömu refsingar fyrir hórdóm.
’ Uppgangur íslams og kristni
eykur hættuna á
trúarstríði ‘
TALIÐ er að KirchMedia-fjölmiðla-
samsteypan í Þýskalandi muni senn
semja við nokkra stóra hluthafa um
að þeir fái yfirráðin í sínar hendur
gegn því að leggja til fé sem tryggi
að samsteypan fari ekki á hausinn.
Kirch rekur meðal annars sjón-
varpsstöðvar, það er fjölskyldufyr-
irtæki og eiga Leo Kirch og sonur
hans, Thomas, samanlagt 79% hlut.
Meðal þeirra sem hyggjast auka
hlut sinn eru Mediaset, fyrirtæki
Silvio Berlusconis, forsætisráðherra
Ítalíu og fjölmiðlakóngurinn Rupert
Murdoph. Berlusconi ræður yfir
nær öllum einkareknum sjónvarps-
stöðvum á Ítalíu og fleiri fyrirtækj-
um. Fyrirtæki Murdochs, sem er
ástralskur að uppruna en nú banda-
rískur ríkisborgari, á meðal annars
sjónvarpsstöðvarnar Fox og Sky,
dagblöðin The Times og fleiri fjöl-
miðla. Einnig hefur Murdoch reynt
að hasla sér völl á kínverskum sjón-
varpsmarkaði.
Aðrir eigendur hlutabréfa eru
bandaríski bankinn Lehman Brot-
hers og sádi-arabíski prinsinn
Alwaleed Bin Talal og nokkrir
þýskir bankar. Fréttavefur BBC
segir að áðurnefndir fjárfestar og
nokkrir í viðbót muni leggja fram
800 milljónir evra, um 70 milljarða
króna, til að efla fyrirtækið en hlut-
ur Kirch í samsteypunni fari þá
undir 50%.
KirchMedia skuldar alls um 6,5
milljarða evra. Heimildarmenn
sögðu að ef samningar tækjust
myndu Leo Kirch og hægri hönd
hans, Dieter Hahn, ef til vill hverfa
úr stjórnunarstöðum þar sem erfitt
yrði að endurskipuleggja reksturinn
án þess að skipta um forystu. Hugs-
anlegt væri að Kirch fengi einhvers
konar „heiðursstöðu“ til að halda
andlitinu en einnig kæmi álitleg
peningafjárhæð í vasa hans fyrir að
hætta til greina.
Talsmenn Kirch neituðu í gær að
tjá sig um fregnirnar en hann mun
hafa átt fundi með bankastjórum í
gær og farið yfir stöðu mála. Fyr-
irtæki hans er eitt af þekktustu fjöl-
miðlafyrirtækjum Þýskalands og á
meðal annars meirihluta í ProSie-
benSAT 1-sjónvarpsstöðinni,
stærstu stöð landsins.
Verður Kirch
bjargað?
Frankfurt. AFP.
SPÁNVERJAR búa sig hér undir að
leggja upp í páskagöngu á vegum
bræðralagsins „Santa Genoveva“ í
miðborg Sevilla, höfuðstaðar Anda-
lúsíu. Farið er í hundruð slíkra
gangna í borginni í dymbilvikunni.
Reuters
Páska-
ganga í
Sevilla
STJÓRNVÖLD í Nepal hyggj-
ast banna börnum undir 16 ára
aldri að klífa Everest-fjall, en
slíkar tillögur liggja á borði
þeirra frá bæði ferðamálaráðu-
neytinu og flugmálayfirvöldum.
Ástæðan fyrir tillögunum,
sem eiga einungis eftir að
hljóta staðfestingu ríkisstjórn-
arinnar til þess að öðlast gildi,
er ótti um heilsu og öryggi
ungra burðarmanna sem fylgja
hópum fjallgöngumanna.
Frá því Edmund Hillary og
Sherpinn Tenzing Norgay klifu
Everest fyrstir manna fyrir
tæpri hálfri öld hefur tindurinn
verið sigraður meira en þúsund
sinnum. Um 180 fjallgöngu-
menn hafa týnt lífi í hlíðum
fjallsins á þeim tíma.
Fyrir ári varð 16 ára piltur,
Temba Tsheri, yngstur manna
til að sigrast á Everest, sem er
8.848 metra hátt. Embættis-
menn í Nepal óttast að ungir
burðarmenn freistist til að
standa honum jafnfætis og taki
í leiðinni of mikla áhættu.
Tsheri hafði áður gert mis-
heppnaða tilraun til að klífa
fjallið og missti þá nokkra fing-
ur vegna kals. Árið 1999 varð
15 ára nepalskur piltur, Arvin
Timilsina, frá að hverfa rétt við
tindinn vegna snjóblindu, en
Sherpar komu honum til bjarg-
ar.
Ekki er einungis í ráði að
banna ungu fólki að klífa Ever-
est heldur einnig öldruðu.
Börnum
bannað
að klífa
Everest
Katmandu. AFP.