Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 25
RÁÐHERRAR samgöngumála í
Evrópusambandsríkjunum stað-
festu einróma í gær að hefja fram-
kvæmdir við gervihnattastaðsetn-
ingaráætlunina Galileo, sem á að
verða samkeppnisfær við bandaríska
GPS-kerfið frá og með 2008. Leið-
togar ESB höfðu samþykkt fram-
kvæmdina á fundi sínum í Barcelona
um þarsíðustu helgi.
Samgönguráðherrarnir sam-
þykktu 450 milljóna evra fjárveit-
ingu til verkefnisins til greiðslu á
kostnaði til 2006, þegar fyrstu gervi-
hnettirnir eiga að fara á loft, en alls
verða 30 gervitungl í Galileo, sem
gera munu fólki kleift að finna stað-
setningu sína, hvar sem það er í
heiminum, með einungis um eins
metra skekkjumörkum.
ESB og Evrópska geimvísinda-
stofnunin hafa þegar veitt peninga
til verkefnisins, en alls er áætlað að
kostnaður við það muni nema 3,6
milljörðum evra, eða rúmlega þrjú
hundruð milljörðum króna. Einka-
fyrirtæki munu taka þátt í þeim
kostnaði.
Bandarísk stjórnvöld hafa beitt
sér gegn því að Galileo verði komið á
fót, og segja kerfið óþarft, þar eð
GPS-kerfið sé þegar fyrir hendi og
notkun þess kosti neytendur ekkert.
Auk þess geti Galileo truflað næstu
kynslóð GPS-merkjakerfisins, sem
ætluð er til hernaðarnota. Sex Evr-
ópuríki, með Þjóðverja í fararbroddi,
höfðu einnig látið í ljósi efasemdir
um réttmæti Galileos, sökum kostn-
aðarins, einkum þar sem GPS-kerfið
sé til staðar. Svo fór þó, að Þjóðverj-
ar, og hin ríkin fimm, sættust á að
Galileo yrði komið á fót.
Pólitík réð einnig miklu um hvern-
ig fór og höfðu ýmsir Evrópuleiðtog-
ar varað við því, að Evrópumenn
ættu á hættu að verða „lénsmenn“
bandarískrar tækni í geimnum.
Sagði Jean-Claude Gayssot, sam-
gönguráðherra Frakklands, þegar
ráðherrarnir höfðu formlega sam-
þykkt áætlunina í gær, að Galileo
gerði Evrópu kleift að losna undan
áhrifum bandaríska GSP-kerfisins.
Loyola de Palacio, sem fer með sam-
göngumál í framkvæmdastjórn
ESB, sagði að samþykktin í gær
þýddi að „Evrópa vilji hasla sér völl á
alþjóðavettvangi ... á öllum sviðum
nýjustu tækni“.
ESB-ríki stað-
festa Galileo
Brussel. AFP, AP.
SUÐUR-kóreskir námsmenn
efndu til mótmæla við höfuð-
stöðvar varnarmálaráðuneytisins
í Seoul í gær og kröfðust þess að
stjórnin hætti við að kaupa nýjar
orrustuþotur. Stjórnin hyggst
kaupa orrustuþotur fyrir andvirði
400 milljarða króna og tilkynnt
verður á næstu dögum hvaða gerð
verður fyrir valinu. Lögreglu-
menn handtaka hér einn náms-
mannanna.
Reuters
Vígvélakaupum mótmælt
BARNADEILDIR danskra
sjúkrahúsa þurfa nú að fást við æ
fleiri tilfelli svonefndra geðvef-
rænna sjúkdóma sem talið er að
stafi oft af streitu. Á sjúkrahúsinu
í Hillerød eru tilfellin nú tvöfalt
fleiri en fyrir fimm árum, að sögn
Berlingske Tidende.
Geðvefrænir sjúkdómar eru
þess eðlis að ekki er við fyrstu sýn
hægt að greina líkamlegar orsakir
þeirra en samt valda þeir miklum
sársauka og óþægindum, maga-
kvölum, næringartruflunum og
ótímabærum þvaglátum. Oft er
talið að streita valdi þeim.
Að sögn Marianne Rix, yfir-
læknis á sjúkrahúsi Álaborgar, er
erfitt að slá því föstu hvert um-
fang vandans er vegna þess að oft
eru börnin í skýrslum sögð þjáð af
öðrum sjúkdómum. „Þjáningarn-
ar eru alveg jafn raunverulegar
og aðrar þjáningar og þess vegna
er oft erfitt fyrir börn og foreldra
að skilja að orsökin sé sálræn van-
líðan,“ segir Rix.
Ráðamenn á sjúkrahúsi Hill-
erød hafa undanfarna mánuði gert
tilraun með að kenna leikskóla-
kennurum aðferðir til að greina
vandann þegar fyrstu hættu-
merkin koma í ljós svo að gripið sé
til ráðstafana áður en eina úrræð-
ið er innlögn.
Umskiptin eru yfirleitt talin
eiga rætur í aukinni streitu í nú-
tímalífsháttum og bent á að þörfin
fyrir sérkennslu og sálfræðiað-
stoð til handa börnum aukist einn-
ig.
Per Fink, yfirlæknir við Árósa-
spítala, segir þó erfitt að fullyrða
að streita sé orsökin. Börn séu
viðkvæm og líklegri til að bregð-
ast líkamlega við streitu en full-
orðnir.
„En hvort það er vegna aukins
hraða í daglegu lífi eða að fólk er
ófúsara að sætta sig við að eitt-
hvað sé að og að geðvefrænar
þjáningar séu þess vegna fremur
viðurkenndar er erfitt að fullyrða
nokkuð um,“ segir Fink.
Streita þjakar
dönsk börn