Morgunblaðið - 27.03.2002, Side 56
56 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
" "
#
$% BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ ERU ekki til margir sannleik-
ar. Sannleikanum er ekki hægt að
hagræða fyrir hvern og einn. Ekki
geta menn leyft sér að hagræða um-
ferðarreglunum og velja á milli
hvort þeir fari yfir á grænu ljósi eða
rauðu. Sannleikans má hins vegar
leita á hvaða hátt sem er, en þá eru
góð ráð dýr. Setjum sem svo að
reikningsdæmi hafi útkomuna 358.
Ímyndum okkur síðan að menn fái
mismunandi útkomur. Þær gætu
verið eitthvað á þessa leið: 376, 12,
400, 1536 og 358. Það er klárt mál að
358 er, þrátt fyrir mismunandi að-
ferðir, ennþá eina rétta svarið. Hins
vegar eru sum svör nær réttu út-
komunni en önnur.
Samkvæmt mínum útreikningum
er sannleikann að finna í Jesúm
Kristi; ekki í trúarbrögðum, hefðum,
mannasetningum eða jafnvel sið-
venjum, heldur að líf mitt sé nátengt
Guði, sem er sannleikur. Heimur án
trúar er keppikefli margra einstak-
linga, sem eru orðnir þreyttir á
linnulausum þrætum, óeirðum og
stríði í nafni ólíkra trúarhópa sem
aldrei komast til botns á vandamál-
unum. Ég trúi því að hægt sé að
komast fram hjá þessum örðugleik-
um með því að fylgja fordæmi
Krists; með auðmýkt og kærleika.
Við trúleysingjann vil ég segja þetta:
Gerðu þér grein fyrir stöðu þinni.
Getur þú fundið 10 einstaklinga sem
eru hamingjusamari með því að vera
trúleysingjar? Ef ekki myndi ég at-
huga hvort þú fyndir ekki 100 manns
sem hafa fundið von í trúnni, ég er
þess fullviss um að þá megi finna. Þú
þarft heldur ekki að vera hræddur
við einhver boð og bönn. Guð hefur
sett okkur leiðbeiningar varðandi líf-
ið, okkur til blessunar ekki til að
njörva okkur niður. Hvað væri ann-
ars gaman að spila fótbolta ef við
hefðum ekki reglurnar.
Hvað er það nákvæmlega sem
gerir trúna svona frábæra? Svarið
er einfalt: Ástæða til að lifa; sú full-
vissa að líf okkar sé í hendi Guðs,
sama hvernig fer og að ekkert geti
gert okkur viðskila við kærleika
hans. En er þá ekki hægt að treysta
á næsta mann? Vissulega, öll leitum
við á hvors annars náðir, en bregð-
umst við ekki stundum? Þá er gott
að eiga árnaðarmann hjá Guði, sem
er Jesú Kristur. Hvernig komum við
til dæmis fram við þá sem eru öðru-
vísi en við? Við erum sífellt tilbúin að
brennimerkja aðra með fordómum,
hata, ofsæka og mismuna. Þetta fyr-
irfinnst meira segja ekki síst innan
kristindómsins. Þá er ágætt að hafa
hugfast þessi kenniorð: Hvað myndi
Jesú gera? Hann var þó vinur ber-
syndugra og þeirra sem minna
máttu sín. Hann segir að hvað sem
við gerum einum af hans minnstu
bræðrum höfum við jafnframt gjört
honum. Eru þetta ekki alvarleg orð
og þörf áminnig fyrir það hvernig við
komum fram við annað fólk frá degi
til dags?
Ég vona að þessi grein geti verið
einhverjum til uppörvunar og vil að
lokum segja að við höfum öllum val.
Ég hef val og þú hefur val, val sem
Guð grundvallaði sem fullkominn
rétt hvers og eins. Ég trúi því að
kristin trú henti öllum, við erum
bara sköpuð þannig.
BÖÐVAR INGI BÖÐVARSSON,
nemandi í MS,
Jörfagrund 24, Reykjavík.
Um trúna
Frá Böðvari Inga Böðvarssyni:
ÉG UNDIRRITAÐUR mótmæli
því harðlega fyrir hönd minna fé-
laga, að sjóðstjórnin gíni við gýli-
gjöfum og vogi sér að veðja lög-
bundnum lífeyrissparnaði félags-
manna á hæpinn vonarpening ál-
spekúlanta, í stað þess að byggja
þeim óheillaskepnum út.
Hverjum ætlar íslenska ríkið og
formaður iðnaðarnefndar, dýrðar-
maðurinn Hjálmar Árnason, að
tryggja ágóða af áli úr Reyðarfirði?
Væntanlega þeim sem borga niður
lán og vexti ríkissjóðs, sem bæði
fljúga hátt og víða, þeim sömu og
kjósa munu hann á þing undirokað-
ir af heimsku. Hversu þungt,
hversu leynt og hversu víða munu
álögur dreifast á íslenskt athafnalíf,
neytendur og skattþegna þegar um
baktryggða framkvæmd á borð við
virkjanir jökulánna austanlands er
vélað? Hvað ef t.d. Rússarnir
tækajavæddu áliðnaðinn hjá sér
með aðstoð Hydro? Ríkisstjórn Ís-
lands auglýsir um þessar mundir
dýrasta virkjunarkostinn á Íslandi
vænlegt gróðafyrirtæki. Gróðavæn-
legt fyrir hverja? Fjárfestana? Þá
sem borga upp ríkisábyrgðina á
verkinu og vextina, greiða niður
rafmagnið til áliðjunnar? Marar
fundið fé í laumusjóði stjórnmála-
flokkanna í hálfu kafi á flúðum skol-
vatnsins, sem ofan flýtur af fjöllum?
Hvað um ágóða verktakanna, höf-
uðskepnuna ríkissjóð, bráð fram-
sóknaíhaldsins; hvað líður hégóma-
dýrð þeirra, sem nurla á kostnað
samborgara sinna í skjóli þrælknos-
aðrar ríkisábyrgðar? Hvað með þá,
sem níða í sundur hjá sér heima-
torfuna, Austfirðinga, kjósendur
Halldórs Ásgrímssonar? Ætlar rík-
isvaldið íslenska að hleypa fram
ófyrirleitnustu spekúlöntum at-
hafnalífsins og forframa líkt og
tíðkast hefur í Japan og á Sikiley?
Er mál að linni.
JÓN BERGSTEINSSON,
Snorrabraut 30, Rvk.
Opið bréf til stjórn-
ar lífeyrissjóðs
Framsýnar
Frá Jóni Bergsteinssyni: