Morgunblaðið - 27.03.2002, Page 57
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002 57
SKÁLDIÐ Matthías Johannessen les
úr ljóðum sínum í kvöldmessu í Nes-
kirkju skírdagskvöld 28. mars kl. 20.
Á skírdagskvöld minnist kirkjan
þess að Jesús Kristur stofnsetti heil-
aga kvöldmáltíð með fylgjendum
sínum í Jerúsalem áður en hann var
handtekinn. Þá bauð hann til hinnar
hefðbundnu páskamáltíðar gyðinga
en gaf þeirri máltíð nýtt innihald er
hann braut brauðið og blessaði
kaleikinn og útdeildi handa vinum
sínum. Brauðið og vínið táknar hann
sjálfan, líf hans og starf, hugsjónir
og kenningar, dauða á krossi og
upprisu. Kirkjan kennir að í heilagri
kvöldmáltíð sé Drottinn sjálfur ná-
lægur. Og meira en það: Hann er í,
með og undir, brauðinu og víninu,
svo vitnað sé til orða Marteins Lúth-
ers. Bakaður verður sérstakur
brauðhleifur af þessu tilefni í stað
obláta sem venjulega eru notaðar í
messum.
Lesið verður úr píslarsögunni og
Passíusálmum séra Hallgríms Pét-
urssonar. Þá les Matthías úr ljóðum
sínum og kallast þar með á við túlk-
un fyrri kynslóða á þjáningu Jesú
Krists með tilvísun til böls og þján-
ingar í samtíð og sögu.
Kór Neskirkju leiðir söng undir
stjórn organista kirkjunnar, Reynis
Jónassonar. Séra Örn Bárður Jóns-
son þjónar fyrir altari. Kaffisopi og
umræður í safnaðarheimilinu eftir
messuna.
Föstudagurinn langi kl. 11.
Píslarsagan lesin, tignun krossins,
litanían sungin. Kór Neskirkju syng-
ur undir stjórn Reynis Jónassonar,
organista. Séra Frank M. Hall-
dórsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 8 árdegis.
Hátíðarsöngvar séra Bjarna Þor-
steinssonar fluttir. Inga J. Backman
syngur einsöng. Kór Neskirkju
syngur undir stjórn Reynis Jón-
assonar, organista. Séra Örn Bárður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Söfnuðinum verður boðið uppá
kaffi og súkkulaði að guðsþjónustu
lokinni.
Hátíðarmessa og barnastarf kl.
11. Hátíðarsöngvar séra Bjarna Þor-
steinssonar fluttir. Kór Neskirkju
syngur undir stjórn Reynis Jón-
assonar, organista. Séra Frank M.
Halldórsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Barnastundinni lýkur með
því að börnin leita páskaeggja á
kirkjulóðinni samkvæmt venju.
Bænadagar og páskar
í Akureyrarkirkju
Á SKÍRDAG kl. 20.30 verður æðru-
leysismessa í Akureyrarkirkju. Að
venju verður sungið mikið, við heyr-
um reynslusögu ungrar stúlku,
bænakarfan er á sínum stað og
kirkjugestum verður boðið að þiggja
altarissakramenti. Þeir félagar
Pálmi Gunnarsson og Magnús Ei-
ríksson munu sjá um tónlistarflutn-
ing og leiða almennan söng. Einnig
munu Pálmi og Rut Reginalds
syngja einsöng. Prestur er sr. Jóna
Lísa Þorsteinsdóttir. Eftir messu er
boðið upp á kaffi og meðlæti í Safn-
aðarheimilinu. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Föstudaginn langa verða Passíu-
sálmar Hallgríms Péturssonar lesnir
í kirkjunni og hefst lesturinn kl. 13.
Björn Steinar Sólbergsson, org-
anisti, leikur á orgel kirkjunnar áð-
ur en lesturinn hefst og síðan á heila
tímanum þar til lestri lýkur, sem er
áætlað að verði um kl. 18. Meðan á
lestrinum stendur er boðið upp á
kaffisopa í Safnaðarheimilinu.
Að kvöldi föstudagsins langa
verður svo kyrrðarstund við kross-
inn, en mörgum finnst ekkert helgi-
hald kirkjunnar hafa meiri kyrrð og
frið en sú stund. Prestur er sr. Svav-
ar A. Jónsson og lesari er Heiðdís
Norðfjörð.
Upprisuhátíð í Akureyrarkirkju
verður nú haldin annað árið í röð.
Hún hefst með hátíðarmessu kl. 8
árdegis. Kór Akureyrarkirkju syng-
ur, Björn Steinar Sólbergsson er við
orgelið og prestur er sr. Svavar A.
Jónsson.
Frá kl. 9 til 11 er síðan opið hús í
Safnaðarheimilinu. Boðið verður
upp á léttan morgunverð og verður
ýmislegt um að vera. Unglingakór
kirkjunnar leiðir almennan söng og
páskahláturinn, gamall kirkjusiður,
sem var endurvakinn á upprisuhá-
tíðinni í fyrra verður á sínum stað.
Kl. 11 hefst svo fjölskylduguðs-
þjónusta í Akureyrarkirkju. Þar
syngja barna- og unglingakórar
kirkjunnar undir stjórn Sveins Arn-
ars Sæmundssonar við undirleik
Björns Steinars Sólbergssonar.
Prestur er sr. Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir. Að venju verður messað í
Minjasafnskirkjunni Annan páska-
dag kl. 17.
Hátíðartónleikar
í Sandgerði
Á SKÍRDAG fimmtudagskvöldið 28.
mars nk. verða hátíðartónleikar
haldnir af kór varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli í Safnaðarheimilinu í
Sandgerði kl. 20:30. Tónleikarnir
eru haldnir í tilefni páska og er
þema þeirra: Sigur upprisunnar.
Tveir leikarar og fjórir tónlist-
armenn koma fram ásamt kór. Flutt
verður margvísleg bandarísk tónlist.
Í desembermánuði síðastliðnum
hélt kór varnarliðsins jólatónleika í
Safnaðarheimilinu við frábærar
undirtektir. Þessa tónleika ætti því
enginn að láta framhjá sér fara.
Æðruleysisguðsþjónusta
í Hvalsneskirkju
ÆÐRULEYSISGUÐSÞJÓNUSTA
verður í Hvalsneskirkju föstudaginn
langa 29. mars nk. kl. 20:30. Í guðs-
þjónustunni er sjónum beint að boð-
skap og bataleið tólf spora leið-
arinnar.
Það gerist með predikun, reynslu-
sögu og fyrirbæn og ekki síst í al-
mennum söng og samfélagi við Guð
og náungann.
Hólmsteinn Sigurðsson segir frá
reynslu sinni og kór Hvalsneskirkju
syngur undir stjórn Pálínu Fann-
eyjar Skúladóttur. Prestur er séra
Björn Sveinn Björnsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dymbilvika og páskar
í Laugarneskirkju
ÞAÐ er sérstök reynsla að eiga sam-
leið með mörgu fólki í gegnum at-
burði píslarsögunnar og páskanna.
Laugarneskirkja opnar dyr sínar og
býður öllum þátttöku um bænadaga
og páska.
Komið er saman í kvöldmessu á
skírdag kl. 20:30, þar sem Gunnar
Gunnarsson leikur á hamm-
ond-orgel og Tómas R. Einarsson á
kontrabassa, en kór Laugarnes-
kirkju syngur. Félagar úr les-
arahópi kirkjunnar flytja texta skír-
dagskvöldsins og að lokinni
altarisgöngu fer síðan fram hin ár-
vissa afskrýðing altarisins, þar til
ljósin slokkna og þögnin tekur við
og fólk gengur hljóðlega út í myrkur
Getsemane-garðsins án þess að
messunni ljúki. Enda komum við svo
saman að nýju kl. 11 að morgni
föstudagsins langa til að halda
áfram að hugleiða píslir Jesú og
gildi krossins í eigin lífi.
Páskadag kl. 8 komum við loks til
kirkjunnar til að fagna sigri lífsins
við hátíðarguðsþjónustu. Allir mæta
á fastandi maga og koma svo saman
í Safnaðarheimilinu á eftir til að
neyta morgunverðar í boði safn-
aðarins þar sem sóknarnefnd-
armenn ganga um beina.
Einnig viljum við vekja athygli
barnafólks á því að annan dag páska
er sunnudagaskólinn með hátíð-
arbrag kl. 11. Þar munu lifandi
páskaungar gleðja börnin, saga
páskanna verður endursögð með
myndum og sungið af hjartans lyst.
Kvöldvaka í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
AÐ kvöldi föstudagsins langa verður
boðið til kvöldvöku í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði og hefst dagskráin kl.
20:30. Þessi kvöldvaka ber heitið
Kvöldvaka við krossinn og hefur
verið haldin í kirkjunni á þessu
kvöldi um áratugaskeið. Settur er
upp stór kross í kórdyrum og undir
honum tendruð sjö kertaljós meðan
sunginn er sálmurinn Ég kveiki á
kertum mínum við krossins helga
tré. Lesið er úr píslarsögunni og
kirkjukórinn syngur undir stjórn
Þóru Vigdísar Guðmundsdóttur. Þá
syngja einsöng Örn Arnarson og
Erna Blöndal. Undir lok stund-
arinnar lesa fermingarbörn síðustu
orð Krists á krossinum og slökkva
kertaljósin við krossinn. Kirkjan er
svo yfirgefin myrkvuð í lok stund-
arinnar. Á páskadag verður svo há-
tíðarguðsþjónusta kl. 8 árdegis og
glæsilegt morgunverðarhlaðborð í
Safnaðarheimilinu á eftir.
Fjölbreytt tónlist
í Hafnarfjarðarkirkju
TÓNLISTARFLYTJENDUR munu
setja mark sitt á guðsþjónustur í
dymbilviku og um páska í Hafn-
arfjarðarkirkju.
Við messu á skírdagskvöld 28.
mars nk. kl. 20:30 mun Bergþór
Pálsson syngja einsöng, Katalína
Lurincz leikur á orgelið og félagar
úr kór kirkjunnar leiða söng.
Við guðsþjónustu föstudaginn
langa, 29. mars kl. 14, (ath. breyttan
tíma) mun kór kirkjunnar flytja
kafla úr Requiem eftir G. Fauvre
undir stjórn Natalíu Chow. Ragn-
heiður Sara Grímsdóttir og Kristján
Helgason syngja einsöng.
Við hátíðarguðsþjónustu á páska-
dag 31. mars kl. 8 mun Guðmundur
Hafsteinsson leika á trompett og
Ragnheiður Sara Grímsdóttir
syngja einsöng. Eftir hátíðarguð-
sþjónustuna býður sóknarnefndin til
morgunverðar í Hásölum Strand-
bergs.
Við samkomu á vegum líkn-
arfélagsins Byrgisins annan dag
páska 1. apríl kl. 14 mun lofgjörð-
arsveit Byrgisins leika lofgjörð-
arsálma og lög.
Dýrmætt er að sækja guðsþjón-
ustur í dymbilviku og um páska þar
sem grunnátök góðs og ills, lygi og
sannleika, dauða og lífs birtast í frá-
sögnunum merkingarmiklu um
kveðjustund, krossfestingu og upp-
risu frelsarans sem varðar lífs-
tilgang allra manna. Fagur listflutn-
ingur eykur áhrif boðskapar hans
og fagnaðarerindis.
Prestar og sóknarnefnd
Hafnarfjarðarkirkju.
Passíusálmarnir lesnir
í Möðruvallakirkju
ALLIR fimmtíu Passíusálmarnir
verða lesnir í Möðruvallakirkju í
Hörgárdal föstudaginn langa.
Bryddað var upp á þessari ný-
breytni í fyrra í samvinnu við Leik-
félag Hörgdæla. Þá lásu 24 lesarar á
aldrinum 14- 77 ára. Mikill áhugi var
á lestrinum innan leikfélagsins og
var hann vel sóttur. Yfir hundrað
manns komu og hlustuðu einhvern
tíma yfir daginn, en lesturinn stóð
frá kl. 13 til kl. að verða 6 um kvöld-
ið. Nú mun sami háttur verða hafður
á og er mikill áhugi innan leikfélags-
ins á að taka þátt í þessu þrátt fyrir
miklar annir við að sýna leikritið
Þrek og tár, eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson, sem sýnt er í samkomuhús-
inu á Melum í Hörgárdal.
Lestur Passíusálmanna hefst eins
og í fyrra kl. 13 á föstudaginn langa
og getur fólk komið og hlustað í
lengri eða skemmri tíma. Leikið
verður á orgel eftir fimmta hvern
sálm. Organisti kirkjunnar, Birgir
Helgason, leikur.
Heitt verður á könnunni á prests-
setrinu allan daginn svo fólk getur
líka notið þess að sitja þar við rólega
tónlist og farið svo aftur út í kirkju
og haldið áfram að hlusta.
Páskahelgihald
í Fríkirkjunni
UPPRISUHÁTÍÐ Frelsarans er í
raun helgasta hátíð kristninnar og
því er mikilvægt að í helgihaldi
kirkjunnar sé að finna eitthvað við
allra hæfi, bæði hinna ungu sem og
þeirra sem eldri eru og vanafastari.
Í páskahelgihaldi þessa árs mun
Fríkirkjan í Reykjavík gera tilraun í
helgihaldi safnaðarins þar sem guðs-
þjónustan verður sambland hefð-
bundinnar kirkjutónlistar og óhefð-
bundinna lofgjörðarsöngva, þar sem
leikið verður á fjölbreytileg hljóð-
færi.
Skírdagur. Fjölskyldumessa kl.
11. Fermdir verða þrír drengir.
Tónlistarstjórar Anna Sigríður
Helgadóttir og Carl Möller. Alt-
arisganga.
Barnastund í umsjón Hreiðars
Arnar Stefánssonar og andabrauðið
verður á sínum stað í lok guðsþjón-
ustu.
Föstudagurinn langi. Aftan-
samvera kl. 17. Fjölbreytt tónlist við
hæfi dagsins. Anna Sigríður Helga-
dóttir syngur einsöng. Gospellkór
Fríkirkjunnar syngur ásamt Carli
Möller. Kór Kvennaskólans mun
einnig syngja nokkur lög.
Samkvæmt hefð verður lesið úr
Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar. Lesari Magnús Axelsson.
Safnaðarprestur flytur stutta hug-
leiðingu.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 9. Óhefðbundin lofgjörð-
arguðsþjónusta á sigurhátíð lífsins.
Tónlistarstjórar Anna Sigríður
Helgadóttir, söngkona, og Carl Möll-
er, organisti. Í heimsókn kemur
samkirkjulegur tónlistarhópur sem
kallast Upendo. Í guðsþjónustunni
verður sambland hefðbundinnar
kirkjutónlistar og óhefðbundinna
lofgjörðarsöngva, þar sem leikið
verður á fjölbreytileg hljóðfæri.
Safnaðarprestur predikar.
Að lokinni guðsþjónustu eru allir
hjartanlega velkomnir í safnaðarsal-
inn á Laufásvegi 13, þar sem sam-
veran heldur áfram og boðið verður
upp á kaffi og einfalt meðlæti.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
Laufásprestakall
um hátíðina
FJÖLBREYTT kirkjustarf verður í
boði nú í dymbilviku og á páskadag í
kirkjunum þremur í Laufáspresta-
kalli.
Á skírdag kl. 15 verður guðsþjón-
usta á dvalarheimilinu Grenilundi á
Grenivík. Kór Grenivíkurkirkju
syngur undir stjórn Petru Bjarkar
Pálsdóttur, organista. Sóknarprest-
urinn prédikar. Föstudaginn langa
verður sérstök dagskrá í Grenivík-
urkirkju sem hefst kl. 14. Þar mun
vaskur hópur lionsfélaga úr Lions-
klúbbnum Þengli lesa valda Pass-
íusálma og milli sálmanna munu
Björg Sigurbjörnsdóttir, organisti,
og Hannes Guðrúnarson, gítarleik-
ari, flytja fallega tónlist.
Kl. 20:30 að kvöldi föstudagsins
langa verður samverustund í Lauf-
áskirkju og er yfirskrift þessarar
stundar orð Passíusálmsins: „Kross-
ferli að fylgja þínum fýsir mig, Jesús
kær.“
Þar verður píslarsaga Krists tjáð í
söng og töluðu máli. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Petru Bjarkar
Pálsdóttur. Fermingarbörnin munu
flytja helgileikinn Sjö orð Krists á
krossinum og sakramenti verður
framborið.
Að morgni páskadags verður há-
tíðarguðsþjónusta í Grenivík-
urkirkju og hefst hún kl. 8. Þar
syngur kór Grenivíkurkirkju undir
stjórn organistans, Bjargar Sig-
urbjörnsdóttur. Sóknarpresturinn
prédikar. Eftir guðsþjónustuna
verður gengið í samkomusal skól-
ans, þar sem sameiginlegur morg-
unverður verður fram borinn; heitt
kakó og kaffi auk meðlætis.
Páskadag kl. 14 verður hátíðar-
guðsþjónusta í Svalbarðskirkju. Þar
syngur kór kirkjunnar undir stjórn
Hjartar Steinbergssonar, organista.
Kulliki Matson syngur einsöng úr
Stabat Mater e. Pergolesi. Sókn-
arpresturinn, sr. Pétur Þórarinsson,
þjónar fyrir altari og prédikar.
Allir, bæði heimafólk sem gestir,
eru velkomnir í þessar samveru-
stundir.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt-
ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr-
irbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12. Samverustund aldraðra kl. 14. Þorvald-
ur Halldórsson, tónlistarmaður, kemur í
heimsókn og syngur og spilar. Biblíulestur,
bænastund, kaffiveitingar og samræður.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára
börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára börn kl.
17.30. Föstustund kl. 20. Schola cantorum
syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson flytur hugvekju.
Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa
og brauð kl. 12 í hádegi í Setrinu á neðri
hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir
eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir
kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur.
Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk.
Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30 und-
ir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætl-
aður börnum úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl.
18. Í fótspor Krists kl. 20.30. Sr. Jurgen
Jamin, prestur í Landakoti, flytur erindi um
hugsunina í sálumessum í kaþólskri trú.
Frumflutt verður á Íslandi Requiem eftir
John Rutter. Flytjendur Kristín R. Sigurðar-
dóttir, sópran. Kirkjukór Háteigskirkju og
kammersveit. Stjórnandi dr. Douglas A.
Brotchie.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05. Gospelkvöld Laugarneskirkju og ÖBÍ
kl. 20 í Hátúni 10. Guðrún K. Þórsdóttir
djákni stýrir stundinni. Þorvaldur Halldórs-
son og Margrét Scheving sálgæsluþjónn
syngja og spjalla en heimafólk kemur fram
með fjölbreytta dagskrá.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið
er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Allir velkomnir.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið
á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma
567 0110.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á
Álftanesi. Notalegar samverustundir með
fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Er-
lendur sjá um akstur á undan og eftir.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti
Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtu-
dögum kl. 10–12. Opið hús fyrir eldri borg-
ara í dag kl. 13:00. Helgistund, spil og
kaffiveitingar
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Opið hús
fer í páskafrí.
Þorlákskirkja. Barna– og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund
kl. 20. Allir velkomnir.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð. Allt
ungt fólk velkomið.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í
safnaðarheimili.
Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12. Org-
elleikur, altarissakramenti og fyrirbæn.
Léttur hádegisverður á vægu verði.
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Samkoma í Kristniboðssalnum í kvöld kl.
20.30. Hjónin Margrét Hróbjartsdóttir og
Benedikt Jasonarson tala. Allir hjartanlega
velkomnir.
Safnaðarstarf
Helgihald í Nes-
kirkju um bæna-
daga og páska
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Neskirkja
SJÁ SÍÐU 59