Morgunblaðið - 12.04.2002, Side 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 13
Akureyrarbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 20. gr. skipulags- og
byggingarlaga neðangreindar tillögur að breytingum á aðalskipulagi, og
skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga neðangreindar tillögur að breytingum á
deiliskipulagi.
1. Hlíðarfjallsvegur, reiðleið o.fl. – Breytingar á aðalskipulagi.
Tillagan er þríþætt: a) Tenging fyrirhugaðs „Ofanbyggðarvegar“ við
Hlíðarfjallsveg færist um ca 120 m til vesturs. b) Áætluð vegartenging
frá Hlíðarfjallsvegi að Lögmannshlíðarkirkju og hesthúsahverfi falli út,
en í hennar stað komi vegartenging við Ofanbyggðarveg, því sem
næst í núverandi legu Lögmannshlíðarvegar. c) Lega reiðleiðar
breytist á kafla, þannig að hún þveri Hlíðarfjallsveg vestar en áformað
var.
2. Íbúðarsvæði við Furulund - Breytingar á aðal- og deiliskipulagi.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi felur í sér að landnotkun á vestur-
hluta reits norðan Furulundar breytist úr athafnasvæði í íbúðarsvæði.
Jafnframt er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi sama reits, í stað
deiliskipulags frá 1989. Tillagan gerir ráð fyrir þyrpingu einnar hæðar
raðhúsa með 20 íbúðum á reitnum.
3. Klettaborg - Breyting á deiliskipulagi.
Tillagan varðar vestari raðhúsalóð í deiliskipulagi sem samþykkt var í
febrúar 2001. Í meginatriðum felur tillagan í sér stækkun lóðarinnar til
vesturs, breytingu á umferð og bílastæðum innan lóðar, fjölgun húsa
og íbúða og lengingu hljóðmanar til vesturs og suðurs, upp með
Dalsbraut.
Tillöguuppdrættir ásamt frekari skýringargögnum liggja frammi í þjón-
ustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá
birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 24. maí 2002, svo að
þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athuga-
semdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar:
http://www.akureyri.is/.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16.00
föstudaginn 24. maí 2002 og skal athugasemdum skilað til Umhverfis-
deildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá, sem ekki gerir
athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests, telst vera henni
samþykkur.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar.
Akureyrarbær auglýsir:
Tillögur að breytingum
á aðal- og deiliskipulagi
HÁSKÓLINN á Akureyri og
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri standa fyrir öðru nám-
skeiði um heilbrigðisþjónustu í
dreifbýli dagana 19. og 20. apríl
næstkomandi.
Námskeiðið fjallar um
bráðalækningar barna og er til-
gangur námskeiðsins að þjálfa
heilsugæslulækna, unglækna
og hjúkrunarfræðinga í með-
ferð bráðveikra barna. Nám-
skeiðið verður í formi fyrir-
lestra en jafnframt verða
umræður
um sjúkratilfelli og verkleg-
ar æfingar í bráðameðferð og
endurlífgun. Mest áhersla
verður lögð á skjóta greiningu
og fyrstu meðferð algengra
vandamála eins og eitrana,
áverka, alvarlegra sýkinga,
andnauðar, losts og krampa.
Umsjón með námskeiðinu
hefur Björn Gunnarsson
barnalæknir á FSA, en fjöldi
sérfræðinga tekur þátt í
kennslu á námskeiðinu. Dag-
skrá námskeiðsins má finna á
heimasíðu HA, www.unak.is
undir símenntun. Frekari upp-
lýsingar og skráning eru á
skrifstofu Rannsóknastofnunar
Háskólans á Akureyri.
Bráða-
lækning-
ar barna
KAREN Leening opnar sýningu í
Kompunni, Kaupvangsstræti 23 á
Akureyri, á morgun, laugardaginn
13. apríl kl. 14.
Karen er Hollendingur, búsett í
Rotterdam og útskrifaðist frá AKI 2
Enschede. Hefur hún nýtt sér ýmsa
miðla til listsköpunar og í þetta sinn
notar hún tölvu og myndbandstækni
til að segja sögur.
Kompan hefur nú tekið upp það
fyrirkomulag að hafa eina sýningu í
hverjum mánuði sem stendur í tvær
vikur og er lokað þess á milli. Sýning
Karenar stendur til 25. apríl næst-
komandi og er opin alla daga frá kl.
14 til 17.
Karen sýnir í
Kompunni
ÞRETTÁN yngismeyjar á aldrinum
18–20 ára taka þátt í keppninni um
titilinn Ungfrú Norðurland 2002,
sem fram fer í KA-heimilinu á Ak-
ureyri í kvöld, föstudagskvöld.
Það verður mikið um dýrðir í KA-
heimilinu en dagskráin hefst með
borðhaldi. Boðið verður upp á tísku-
sýningu, keppendur í keppninni Hr.
Norðurland, sem fram fer í maí,
mæta á svæðið, sýnd verða atriði úr
sýningu VMA á Rocky Horror og
dægurlagapönkhljómsveitin Húfa
leikur. Kynnir kvöldsins verður
Magnús Már Þorvaldsson.
Ungfrú
Norðurland
krýnd í kvöld
MIKLAR leysingar undangengna
sólarhringa ásamt hvassri SV-átt
leiddi til þess eftir hádegi á mið-
vikudag að vatnselgur rauf Kís-
ilveg skammt ofan við skýli Slysa-
varnafélagsins. Vegagerðarmenn
eru á staðnum og vinna að lagfær-
ingu.
Þeir bjuggust við að vegurinn
yrði ökufær aftur í kvöld. Síðdegis
þennan dag sneri til norðanáttar
og kólnaði undir frostmark með
smávegis úrkomu.
Morgunblaðið/BFH
Mikið leysingarvatn safnaðist fyrir norðan vegarins. Þegar vatnið fór
að fljóta yfir veginn rofnaði hann þannig að 3 metra breiður og eins
metra hár foss myndaðist. Unnið er að lagfæringum.
Kísilvegur
rofnaði
Mývatnssveit
♦ ♦ ♦
FYRIRTÆKIÐ GV-gröfur ehf. á
Akureyri átti lægsta tilboð í gatna-
gerð og lagnir í fyrsta áfanga
Naustahverfis en tilboðin voru
opnuð í gær.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið
og voru tvö þeirra langt yfir kostn-
aðaráætlun.
GV-gröfur buðust til að vinna
verkið fyrir um 82,5 milljónir
króna, sem er 74,5% af kostnaðar-
áætlun en hún hljóðaði upp á 110,7
milljónir króna. G. Hjálmarsson hf.
átti næstlægsta tilboð en það
hljóðaði upp á um 93,8 milljónir
króna eða 84,7% af kostnaðaráætl-
un. Jarðverk hf. bauð tæpar 180
milljónir króna í verkið og Nónt-
indur ehf. tæpar 230 milljónir
króna.
Útboð Akureyrarbæjar nær til
nýbyggingar á 1,5 km af götum og
rúmlega 1 km af stígum ásamt til-
heyrandi holræsa-, vatns- og hita-
veitulögnum. Verkinu skal lokið
17. ágúst í sumar.
Gatnagerð og lagnir í Naustahverfi
GV-gröfur með
lægsta tilboðið
LEIKFÉLAG Menntaskólans á
Akureyri frumsýnir í kvöld,
föstudagskvöldið 12. apríl, hinn
sívinsæla söngleik hippaáranna,
Hárið, í Samkomuhúsinu.
Um er að ræða viðamikla upp-
færslu sem er í leikstjórn Hrafn-
hildar Hafberg en tónlistarstjóri
er Björn Þórarinsson. Alls taka
um 60 nemendur þátt í sýning-
unni, þar af eru leikendur og
söngvarar rúmlega 20 talsins og
þá er sjö manna hljómsveit á svið-
inu. Í aðalhlutverkum eru þau
Ævar Þór Benediktsson (Berger),
Guðrún Fönn Tómasdóttir
(Sheila), Sindri Gunnar Ólafsson
(Voffi), Hildur Halldórsdóttir
(Jeanie), Eiríkur Valdimarsson
(Hud), Jóhanna Vala Höskulds-
dóttir (Dionne), og Ingimar Björn
Davíðsson (Claude).
Æfingar hafa staðið yfir allt
frá því í haust og hafa leikarar,
söngvarar og hljóðfæraleikarar
staðið í ströngu við að koma sýn-
ingunni upp, en sjö manna stjórn,
undir forystu formanns leik-
félagsins, Arnórs Brynjars Þor-
steinssonar, hefur verið í eldlín-
unni við það verkefni.
Sýningar LMA eru í samvinnu
við Leikfélag Akureyrar sem veit-
ir ýmsa tæknilega aðstoð, en öll
vinna, svo sem í sambandi við
tækni, svið, búninga og þess hátt-
ar, er að öðru leyti í höndum
nemenda.
Alls verða fimm sýningar á
Hárinu um helgina, frumsýning
sem fyrr segir í kvöld kl. 20, þá
verða tvær sýningar á laugardag
kl. 20 og miðnætursýning kl.
23.30 og einnig verða tvær sýn-
ingar á sunnudag, kl. 17 og 20.
Hægt er að panta miða í miða-
sölu Leikfélags Akureyrar frá kl.
17 til 19.
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Leikfélag Menntaskólans frumsýnir söngleikinn Hárið í kvöld.
Frumsýnir söng-
leikinn Hárið
LOKAUMFERÐIN í Esso-deild
karla í handbolta verður háð á
morgun, laugardag. Mjög hörð
barátta er um að komast í úrslita-
keppnina en það ræðst á morgun
hvaða átta lið munu berjast þar.
Þór mætir Aftureldingu í Íþrótta-
höllinni á Akureyri kl. 16 og með
sigri tryggir Þór sér sæti í úrslita-
keppninni í fyrsta sinn. Aftureld-
ing hefur þegar tryggt sér sæti í
úrslitakeppninni.
Þórsarar vonast eftir góðum
stuðningi á morgun og hvetja alla
félagsmenn og aðra velunnara að
fjölmenna í Höllina. Miðaverð á
leikinn er 500 kr. fyrir fullorðna
en frítt er fyrir 15 ára og yngri. Þá
verður boðið upp á andlitsmálun í
Höllinni fyrir leik.
Lokaumferðin í Esso-deild karla
Kemst Þór í úr-
slitakeppnina?
STRÁKARNIR í 5. flokki KA í
handbolta gerðu góða ferð til Vest-
mannaeyja um síðustu helgi. Þar
fór fram þriðja og síðasta fjölliða-
keppnin á Íslandsmótinu og gerðu
KA-menn sér lítið fyrir og unnu
Íslandsmeistaratitla í keppni A-,
B- og C-liða, auk þess sem fjórða
lið félagsins hafnaði í þriðja sæti í
keppni C-liðanna. Alls fóru um 40
strákar frá KA til Eyja og er ekki
hægt að segja annað en árangur
þeirra hafi verið frábær. Þetta
mun vera í fjórða skipti sem KA-
menn fagna þreföldum sigri á Ís-
landsmóti þeirra yngstu í hand-
bolta.
Þjálfari 5 flokks er Sævar Árna-
son fyrirliði meistaraflokks félags-
ins. Sævar komst ekki til Eyja þar
sem hann var sjálfur að leika með
liði sínu og stjórnaði Kristján Að-
alsteinsson aðstoðarþjálfari strák-
unum til sigurs.
Morgunblaðið/BJ
B-lið 5. flokks KA með sigurlaunin ásamt Kristjáni Aðalsteinssyni að-
stoðarþjálfara t.v. og Magnúsi Sigurólasyni fararstjóra t.h.
Þrefaldur sigur KA