Morgunblaðið - 12.04.2002, Page 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 37
ORKUVEITA
Reykjavíkur er eitt
stærsta fyrirtæki
landsins og hefur lengi
skilað góðum arði í
kassa borgarsjóðs.
Arður þeirra fyrir-
tækja sem mynda
Orkuveituna var oft á
bilinu 1,2–1,5 milljarð-
ar króna á ári og hluti
af því var greiddur til
borgarsjóðs sem svo
notaði þessa peninga
til uppbyggingar í
Reykjavík. Reykvík-
ingar og aðrir eigendur
nutu góðs af þessum
góða rekstri. Orkuveit-
an hefur alltaf verið í miklum fram-
kvæmdum og hefur engin breyting
orðið þar á.
Fyrirtækið hefur hins vegar aldr-
ei verið jafn skuldsett og nú. Á þessu
eru nokkrar skýringar. Í fyrsta lagi
eru það lántökur vegna áframhald-
andi framkvæmda við Nesjavalla-
virkjun, í öðru lagi eru það skuld-
bindingar vegna Línu.Nets, í þriðja
lagi eru það 4 milljarðar sem R-list-
inn tók út úr fyrirtækinu til að laga
rekstur borgarsjóðs og í fjórða lagi
lántökur vegna nýrra höfuðstöðva
Orkuveitunnar.
1,7 milljarðar í Línu.Net
Framkvæmdir á Nesjavöllum
munu væntanlega skila arði til eig-
enda fyrirtækisins og eru hluti af
eðlilegri uppbyggingu Orkuveitunn-
ar. Lína.Net er tapað fé fyrir Reyk-
víkinga, 1,7 milljarðar, og fer hækk-
andi, tala sem almenningur á erfitt
með að skilja. 4 milljarðarnir, sem
R-listinn tók út úr Orkuveitunni, eru
tapaður peningur fyrir
Orkuveituna og von-
andi síðasta skiptið
sem R-listinn gengur
þannig á sjóð þessa
ágæta borgarfyrirtæk-
is. Nýjar höfuðstöðvar
Orkuveitunnar áttu að
kosta 1,8 milljarða en
það verða um 3 millj-
arðar króna. Það eru
jafnframt áhöld um
það hvort Orkuveitan
hafi þurft þetta gímald
og það á þeim tíma sem
fyrirtækið er upp fyrir
haus í skuldum.
Arður Orkuveitunn-
ar hefur verið 1,2 til 1,5
milljarðar á ári. Hagnaður var áætl-
aður 600 milljónir á árinu 2001, spá
Orkuveitunnar segir 260 milljónir
og þá er ekki tekið inn í tap dótt-
urfyrirtækja hennar eins og Línu.-
Nets sem væntanlega er verulegt.
Það er sorglegt að sjá stjórnmála-
menn fara illa með traust fyrirtæki
eins og Orkuveituna og vonandi
verður það henni ekki að falli.
Spilað með Orku-
veitu Reykjavíkur?
Skúli
Sveinsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Reykjavík
Lína.Net er tapað
fé fyrir Reykvíkinga,
segir Skúli Sveinsson,
1,7 milljarðar og fer
hækkandi.