Morgunblaðið - 20.04.2002, Side 1
91. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 20. APRÍL 2002
STÓRSÝNINGIN
M a t u r 2 0 0 2
19.-21. apríl
Opið fyrir
alla
fjölskylduna
ÍSRAELSKI herinn dró sig til baka
frá flóttamannabúðum Palestínu-
manna í borginni Jenín á Vestur-
bakkanum í gær,
og fólk í búðunum
gróf í rústum
húsa í þeirri von
að finna ástvini á
lífi. Talsmaður
Hvíta hússins,
Ari Fleischer,
sagði að George
W. Bush Banda-
ríkjaforseti væri
því fylgjandi grafist yrði fyrir um
staðreyndir varðandi hernaðarað-
gerðir Ísraela í búðunum. „Hann er
fylgjandi því að rannsókn fari fram.“
Leiðtogar Palestínumanna full-
yrða að hundruð manna hafi fallið í
hörðum bardögum er geisuðu í búð-
unum í viku. Ísraelar segja að tala
fallinna nemi tugum, en engin
ástæða sé til að utanaðkomandi aðili
rannsaki málið. „Allt það sem gerðist
í Jenín blasir við nú þegar,“ sagði
Ranaan Gissin, talsmaður Ariels
Sharons, forsætisráðherra Ísraels.
Lík Palestínumanna voru jörðuð í
fjöldagröf í grafreit í borginni í gær.
Fleischer sagði ennfremur að
Bush hefði ekki tiltekið hverjir hann
teldi að ættu að sjá um rannsókn
málsins. Á fimmtudagskvöldið sagði
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, John Negroponte,
að Bandaríkjamenn myndu beita
neitunarvaldi til að stöðva tillögu
Sýrlendinga um ályktun þess efnis
að stofnuð yrði nefnd til að fara í
saumana á því hvað gerðist í Jenín.
Terje Rød-Larsen snupraður
Varnarmálaráðherra Ísraels, Bin-
yamin Ben Eliezer, snupraði í gær
Terje Rød-Larsen, sérstakan sendi-
mann SÞ í Mið-Austurlöndum, fyrir
harkalega gagnrýni á framgöngu
Ísraela í Jenín. Rød-Larsen sagði í
fyrradag, að ekki væri með nokkru
móti hægt að réttlæta aðgerðir Ísr-
aela. Ben Eliezer sagði aftur á móti,
að Rød-Larsen hefði viljandi tekið
atburðina í Jenín úr samhengi. Í
flóttamannabúðunum hefðu orðið
harðir bardagar, en engin fjölda-
morð átt sér stað.
Ísraelar héldu með her sinn inn í
Jenín þriðja apríl sl., og var það liður
í umfangsmiklum hernaðaraðgerð-
um þeirra á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna á Vesturbakkanum.
Sögðu Ísraelar markmið aðgerða
sinna vera að uppræta hryðjuverka-
starfsemi Palestínumanna. Hörð-
ustu bardagarnir urðu í Jenín, sem
Ísraelar sögðu vera helsta hreiður
hryðjuverkamanna. Alls féllu 23 ísr-
aelskir hermenn í bardögunum í
borginni, þar af 13 í einni fyrirsát.
Ben Eliezer sagði í gær að herinn
yrði einnig á brott frá borgunum
Nablus og Ramallah á morgun, en
umsátrinu um höfuðstöðvar Yassers
Arafats Palestínuleiðtoga í Ramall-
ah yrði haldið áfram, og einnig um-
sátrinu um Fæðingarkirkjuna í
Betlehem, þar sem um 250 Palest-
ínumenn eru innandyra.
Amnesty krefst rannsóknar
Í tilkynningu frá mannréttinda-
samtökunum Amnesty International
í gær sagði, að fulltrúar samtakanna
í Jenín hefðu fundið „eindregnar vís-
bendingar“ um að alvarleg brot á
bæði mannréttindum og alþjóðleg-
um lögum hafi verið framin í aðgerð-
um Ísraela. Hefði réttarlæknir á
vegum Amnesty krufið tvö lík á
sjúkrahúsi í Jenín, og í báðum til-
vikum hefðu vaknað grunsemdir.
Þá hefðu fulltrúar samtakanna
ennfremur heyrt frásagnir af því, að
hús hefðu verið jöfnuð við jörðu á
meðan fólk var enn þar innandyra,
og að farið hefðu fram aftökur án
dóms og laga. Í ljósi alls þessa væri
nauðsynlegt að fram færi óháð, al-
þjóðleg rannsókn sérfræðinga.
Bush hlynntur rannsókn
á atburðunum í Jenín
Jenín-flóttamannabúðunum, Washington. AFP.
Bush
FLUGMAÐURINN, sem flaug lít-
illi vél á hæstu byggingu Mílanó í
fyrradag, gerði það af ásettu ráði til
að fyrirfara sér, að því er ítalska
dagblaðið La Repubblica hafði eftir
syni hans í gær. Saksóknarar sögðu
hins vegar að einnig væri hugs-
anlegt að vélin hefði bilað eða að
flugmaðurinn hefði veikst. Gerardo
D’Ambrosio, aðalsaksóknari Míl-
anóborgar, kvaðst telja að sjálfs-
morð væri ólíklegasta skýringin.
Þrír menn létu lífið, flugmaðurinn
og tvær konur sem störfuðu í bygg-
ingunni, þegar vélin skall á 25. hæð
Pirelli-turnsins, 30 hæða byggingar í
miðborg Mílanó. Um 60 aðrir slös-
uðust og ellefu voru enn á sjúkrahúsi
í gær.
Tapaði á fjárfestingum
Óttast var í fyrstu að um hryðju-
verk væri að ræða, líkt og í Banda-
ríkjunum 11. september, en Claudio
Scajola, innanríkisráðherra Ítalíu,
var fljótur að útiloka þann mögu-
leika. Hann sagði að þetta hefði lík-
lega verið slys og fregnir hermdu að
flugmaðurinn hefði sagt flugumferð-
arstjórum að hann ætti í erfiðleikum
með lendingarbúnaðinn áður en vél-
in skall á byggingunni.
Flugmaðurinn, Luigi Fasulo, 67
ára Svisslendingur, hafði auðgast á
sölu flugvéla en tapað miklu fé á
fjárfestingum, að sögn La Repub-
blica. Blaðið hafði eftir syni Fasulo,
Marco, og vini að hann hefði flogið
vélinni á bygginguna til að stytta sér
aldur.
„Hvað eigið þið við með slysi?
Þetta var sjálfsmorð,“ var haft eftir
syni flugmannsins. „Ákveðnir menn
vildu koma honum á kné fjárhags-
lega, þannig að hann fyrirfór sér.“
Vinur flugmannsins kvaðst síðast
hafa rætt við hann á sunnudag. „Ég
er búinn að vera, þeir eyddu öllu
sem ég átti, þetta er hópur í Mílanó,
þeir höfðu af mér meira en milljón
dala [tæpar 100 milljónir króna],“
hafði vinurinn eftir flugmanninum.
Nokkrir embættismenn í Mílanó,
þeirra á meðal borgarstjórinn, Gabr-
iele Albertini, sögðu að þessi tilgáta
yrði rannsökuð. „Ég tel að við getum
útilokað tilgátuna um hryðjuverk en
ekki er óhugsandi að þetta hafi verið
vísvitandi verk manns sem hafi ekki
alveg haft stjórn á sér,“ sagði Al-
bertini.
Flugmaður sagður hafa flogið vél sinni á Pirelli-turninn af ásettu ráði
Talið um
sjálfsvíg
að ræða
Róm. AFP, AP.
Reuters
Slökkviliðsmenn kanna skemmdir í Pirelli-turninum í miðborg Mílanó í gær. Tvær konur, er störfuðu á skrif-
stofum í turninum, létust, auk flugmannsins sem flaug vélinni á bygginguna. Tugir manna slösuðust.
STJÓRNVÖLD í Kanada hafa
ákveðið að eiga ekki að svo komnu
máli hlut í nýju fyrirkomulagi yfir-
stjórnar herafla Bandaríkjamanna,
Norðurherstjórninni, sem Donald
Rumsfeld varnarmálaráðherra
kynnti á miðvikudag. Um er að ræða
eina mestu breytingu á skipulagi og
yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í
tæp 40 ár.
Í frétt kanadíska blaðsins The
Globe and Mail kemur fram að rík-
isstjórn frjálslyndra í Kanada hafi
ákveðið að standa utan áætlana
Bandaríkjamanna og segir Jean
Chrétien forsætisráðherra að Kan-
adamenn muni áfram sjá að fullu um
eigin varnir. Tillögur Rumsfelds fela
hins vegar í sér að Norðurherstjórn-
in annist heimavarnir Bandaríkja-
manna, auk þess að taka til Kanada,
Mexíkó og hluta Karíbahafsins.
Bill Graham, utanríkisráðherra
Kanada, segir að Kanadamenn
myndu hugsanlega gerast aðilar að
áætlunum Bandaríkjamanna á síðari
stigum.
Tekið er dæmi í frétt The Globe
and Mail um það hvaða afleiðingar
ákvörðun Kanadastjórnar geti haft.
Segir að yrðu Bandaríkjamenn t.d.
varir við flutningaskip í landhelgi
Kanada, sem talið væri að hefði
hugsanlega meðferðis kjarnorku-
vopn, myndu þeir verða að hafa sam-
band við stjórnvöld í Ottawa og biðja
þau að senda herskip til að stöðva för
skipsins. Væru Kanadamenn aðilar
að Norðurherstjórninni gætu yfir-
menn hennar hins vegar sent kan-
adísk herskip á staðinn án beins
samráðs við stjórnvöld.
Kanada
ekki í
Norður-
herstjórn