Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra sagði í umræðum utan dag- skrár á Alþingi í gær um ávísanir um ávanabindandi lyf að á síðustu tveimur árum hafi mál um tíu lækna verið til skoðunar hjá Landlæknis- embættinu vegna ávísana þeirra á ávana- og fíknilyf. Nokkrir þessara lækna hafi oftar en einu sinni verið undir ítarlegri athugun. „Ekki eru til tölur um hve oft gripið var til til- tals en áminningu var beitt nokkrum sinnum og var hún þá oftast und- anfari leyfissviptingar sem munu vera fjórar á undanförnum tveimur árum. Svo vill til að í öllum þessum tilvikum var um misnotkun læknanna sjálfra að ræða,“ sagði ráðherra. Ráðherra sagði að í tveim- ur af fyrrgreindum tilvikum hefðu málin verið meðhöndluð sem saka- mál að frumkvæði landlæknis. „Ann- að endaði með dómi en hitt var fellt niður á rannsóknarstigi.“ Margrét Frímannsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, var máls- hefjandi umræðunnar. Sagði hún m.a. að það væri óafsakanlegt að læknar ávísuðu ávana- og fíknilyfum til fíkniefnaneytenda. „Lítill munur er á þeim skammti sem kemur fíkl- inum í vímu og skammtinum sem dregur hann til dauða,“ sagði hún. Sagði hún að þeir læknar sem hefðu það á samviskunni að ávísa slíkum lyfjum til fíkla væru að kasta rýrð á störf annarra lækna og vekja tor- tryggni í garð starfssystra sinna og bræðra. Spurði hún heilbrigðisráð- herra m.a. að því hvort hann myndi beita sér fyrir hertum reglum og skilvirkara eftirlitskerfi með ávísun- um lækna á ávanabindandi lyf. Sagði ráðherra að samkvæmt nítjándu og tuttugustu grein lækna- laga mætti svipta lækni leyfi til að ávísa lyfjum. „Ferill slíkra mála samkvæmt lögunum er sá að Lyfja- stofnun ber að tilkynna landlækni ef rökstudd ástæða þykir vera til eft- irlits með ávísunum læknis á ávana- og fíknilyf. Telji landlæknir að lækn- ir hafi ávísað óhæfilegu magni lyfja leggur landlæknir málið til ráðherra sem er þá heimilt að svipta lækninn leyfi til að ávísa lyfjum, öllum eða einstökum flokkum. Í alvarlegum til- vikum má svipta lækni lækningaleyfi að fullu. Samkvæmt framangreindu tel ég að nægilegar lagaheimildir til að svipta lækna rétti til að ávísa lyfj- um séu í læknalögum. Um harðari refsingar er það að segja að auk sviptingar réttinda eru í læknalög- um ákvæði um allt að tveggja ára fangelsi. Ekki skal þó dæmt um það hér og nú hvort þau séu nógu ströng.“ Ráðherra sagði að hann hefði rit- að Lyfjastofnun og Landlæknisemb- ættinu bréf þar sem hann beindi þeim tilmælum til þeirra að tekið yrði upp hert eftirlit með óeðlilegum lyfjaávísunum lækna. Eftirlit Landlæknis styrkt Margir þingmenn tóku til máls í umræðunni og kom fram í máli flestra þeirra mikilvægi þess að Landlæknisembættið fengi peninga og heimildir til að taka á málum sem þessum. Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá nið- urstöðu fundar stjórnar Lækna- félags Íslands í vikunni með aðstoð- arlandlækni og yfirlækni á Vogi. „Niðurstaða fundarins var sú að mæla með að haldið yrði enn betur utan um þennan málaflokk og lögð til fimm atriði sem munu berast ráð- herra á næstunni,“ sagði hún. Í fyrsta lagi hefði verið lagt til að stofnuð verði afeitrunarstöð. Í öðru lagi að svokallað verkjateymi á Landspítala – háskólasjúkrahúsi verði eflt. Í þriðja lagi að eftirlit Landlæknisembættisins verði styrkt. Í fjórða lagi að eftirlit með lyfseðlum verði aukið og í fimmta lagi að komið verði á lyfjakortum. Ávísanir lækna á ávana- og fíknilyf Tíu læknar til skoðunar á síðustu tveimur árum ÓHÆTT er að segja að miklar annir hafi verið hjá þingmönnum und- anfarna daga enda hafa nefnd- arstörf hafist snemma á morgnana og þingfundir síðan tekið við og staðið yfir fram eftir kvöldi. Mörg þingmál hafa verið tekin til fyrstu eða fyrri umræðu í vikunni og ljóst að keyra þarf einhver þeirra í gegn- um þingið á methraða áður en það fer í sumarfrí. Önnur fást hins vegar ekki afgreidd og því tekin til um- fjöllunar aftur á næsta þingi. Stefnt er að frestun þingsí næstu viku en óvíst er hvort það tekst. Þótt fæst þeirra þingmála sem til umfjöllunar voru í þinginu í vikunni hafi vakið upp miklar pólitískar deil- ur urðu sum þeirra til þess að tekist var á um pólitísk mál. Þannig varð breytingartillaga Geirs H. Haarde fjármálaráðherra um 14% virð- isaukaskatt á öllum bókum til þess að fjörugar umræður hófust um hugsanlega aðild Íslands að Evrópu- sambandinu. Í umræðunni byrjuðu þeir Ögmundur Jónasson, þingmað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, og Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylking- arinnar, að deila um ágæti þess að Ísland gengi í ESB. Ögmundur var því algjörlega mótfallinn og sagði að með inngöngu í ESB myndi Ísland afsala sér fullveldisréttinum til að gera viðskiptasamninga við aðrar þjóðir. Össur Skarphéðinsson benti hins vegar á að ESB hefði fleiri og víðtækari viðskiptasamninga víða um heim heldur en nokkurt annað bandalag. „Allir okkar samningar í gegnum EFTA eru ekkert annað en eltingarleikur við þá samninga sem ESB hefur gert,“ sagði hann og áréttaði að í gegnum ESB myndu Íslendingar ná miklu víðtækari samningum um frjálsa verslun held- ur en við gerðum utan ESB. Á þessu stigi blandaði Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylking- arinnar, sér inn í umræðuna og sagði að jafnaðarmenn í Samfylk- ingunni teldu að tími væri kominn til þess að setja Evrópusambands- umræðuna inn á hina pólitísku dag- skrá. Davíð Oddsson forsætisráð- herra tók einnig til máls og sagði að þegar Samfylkingin talaði um Evr- ópusambandið talaði hún eins og hún væri nú þegar í „trúar- bragðavíking“, eins og hann orðaði það. Hann sagði að það kæmi sér á óvart að Samfylkingin skyldi tala um að móta stefnu í Evrópusam- bandsmálum í haust þar sem svo virtist sem hún væri þegar búin að taka afstöðu í málinu. „Hvað ætla þeir að meta eða ákveða í haust, þessir menn, sem eru löngu búnir að ákveða hvað þeir ætla að gera?“ spurði Davíð. „Ætla þeir að fá nokkra ofstækisfulla Evrópusinna og starfsmenn Evrópusambandsins til að búa til handa sér bækur og segja: við höfum rannsakað málið?“ spurði Davíð ennfremur. Guð- mundur Árni kom hins vegar aftur í pontu og sagði það vera spurningu hverjir væru ofstækismenn í þess- um málum. Sagði hann að þingmenn VG væru heittrúaðir í ýmsum mál- um og að hann vissi ekki betur en að þingmenn Sjálfstæðisflokksins væru sama marki brenndir. „Það virðist fara mikið í taugarnar á þeim að menn vilji taka Evrópusambands- málin á dagskrá.“ Evrópusam- bandsmálin komust reyndar aftur á dagskrá þingsins í vikunni þegar þingmenn gerðu að umtalsefni ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á þemaráðstefnu Norð- urlandaráðs sem hófst í Reykjavík í vikunni en þar gerði hann Evrópu- sambandið m.a. að umtalsefni og gagnrýndi ýmsa þætti þess. Guð- mundur Árni gerði þessa ræðu for- seta Íslands að umtalsefni í upphafi þingfundar í vikunni og sagði það „hættulega braut“ sem fetuð væri ef forsetaembættið ætlaði sér að blanda sér í „pólitísk, viðkvæm deilumál“. Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra tók í sama streng og sagði að á því væru „ýmsir gall- ar“, eins og hann orðaði það, ef for- seti Íslands blandaði sér í slíka um- ræðu. Andstæðingar aðildar Íslands að ESB voru þó ekki eins óánægðir með ræðu forseta Íslands og sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, m.a. að sér fyndist dálítið sér- kennilegt að þeir stjórnmálamenn sem vældu undan því að ekki mætti ræða ESB-málin ætluðu að ganga af göflunum þegar forseti Íslands legði slíkri umræðu lið. En það voru fleiri mál en Evrópu- sambandsmálin sem læddu sér inn í umræður á Alþingi í vikunni. Af um- mælum nokkurra þingmanna er nefnilega ljóst að kosningaskjálfti vegna komandi sveitarstjórnarkosn- inga er farinn að gera vart við sig á þingi. Kom það m.a. fram þegar Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, kom inn á það í ræðu sinni um umferðarmál í vikunni að R-listinn í Reykjavík hefði ekki tekið ákvörðun um mis- læg gatnamót á einum fjölförnustu gatnamótum Reykjavíkur, þ.e. mót- um Miklubrautar og Kringlumýr- arbrautar. Eftir að Þorgerður hafði komið inn á þessi mál spurði Kol- brún Halldórsdóttir, þingmaður VG, Þorgerði hvort hún væri komin í kosningaslaginn í Reykjavík. Því vísaði Þorgerður hins vegar á bug. Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingarinnar, blandaði sér á hinn bóginn í þessa umræðu og sagði: „...Það verða væntanlega breytingar á því hvernig ákvarðanir verða teknar í Hafnarfirði eftir næstu bæjarstjórnarkosningar því ýmislegt... bendir til þess að þar verði breytingar á meirihluta þrátt fyrir að háttvirtur þingmaður (Þor- gerður Katrín) geri sér fulla grein fyrir því að það eru engar líkur á því að það verði breytingar á meirihluta í Reykjavík.“ Semsé kosningaskjálftinn er kom- inn inn á þing.      Kosningaskjálfti á þingi EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is Páls góða og að hún muni vafalaust auka mjög umræðuna um þessi mál á næstunni. Haukur segir að sennilega sé fólk almennt þeirrar skoðunar að landlæknisembættið hafi ennþá betra yfirlit yfir þessi mál en það hafi í raun. Landlæknir hefur t.d. ekki leyfi til að halda skrá yfir lyfjanotk- un, að hans sögn. Samkvæmt lækna- lögum hafi landlæknir almennt eft- irlit með ávísunum lækna á lyf. Lyfjastofnun tilkynni landlækni telji það rökstudda ástæðu til eftirlits með ávísunum læknis á ávana- og fíknilyf. Getur ráðherra, að tillögu land- læknis, svo lagt fyrir lækninn að halda skrá yfir ávísanir og tilefni notkunar þeirra. Skv. lögunum má svipta lækni sem brýtur gegn lög- unum lækningaleyfi og gera lögin einnig ráð fyrir þeim möguleika að EMBÆTTI landlæknis kannar nú með öllum tiltækum ráðum hvað hæft er í ábendingum sem borist hafa að undanförnu um óhóflegar lyfjaávísanir einstakra lækna til vímuefnasjúklinga, skv. upplýsing- um sem fengust hjá Hauki Valdi- marssyni aðstoðarlandlækni. Á miðvikudag birtist grein í Morg- unblaðinu eftir Pál Halldórsson, fyrrv. flugstjóra og aðstandanda fíkniefnaneytanda, þar sem hann lýsir áralangri og árangurslausri baráttu við að stöðva ónefndan lækni sem ávísi reglulega á lyf fyrir vímu- efnaneytandann án þess að nokkur fái rönd við reist og eyðileggi líf fjölda fólks. Landlækni óheimilt að halda skrá yfir lyfjanotkun Haukur Valdimarsson segir grein að hlíti viðkomandi læknir ekki fyr- irmælum eða verði uppvís að því að ávísa lyfjum óhæfilega leggur land- læknir málið fyrir ráðherra sem er heimilt að svipta lækninn leyfi til þess að ávísa lyfjum. Eftirlit byggt á ábend- ingum sem berast ,,Okkar eftirlit byggist því annað- hvort á ábendingum Lyfjastofnunar eða ábendingum fólks úti í samfélag- inu,“ segir hann. ,,Við erum á kafi í að skoða þetta eins og við mögulega getum út frá þeim ábendingum sem hafa komið fram,“ sagði Haukur og bætti við að yfirgnæfandi meirihluti lækna væri þeirrar skoðunar að ef ástandið væri eins og umræðan ber með sér beri nauðsyn til að taka á málinu og útiloka óeðlilegar lyfja- ávísanir. Aðstoðarlandlæknir um meintar óhóflegar lyfjaávísanir Kannar hvað hæft er í ábendingum RÆÐULIÐ Menntaskólans við Hamrahlíð bar í gærkvöldi sigur úr býtum í viðureign við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti í úr- slitum Morfís, ræðukeppni fram- haldsskólanna. Ræðumaður kvöldsins og þar af leiðandi ræðumaður Íslands, var Atli Bollason úr ræðuliði MH. Úrslitarimman fór fram í Há- skólabíói og var umræðuefnið „heimur versnandi fer“. Var MH sammála en FB á móti. Fimmtán lið hófu keppni í haust en heltust hvert af öðru úr lestinni en keppnin er með útsláttarfyr- irkomulagi. Morgunblaðið/Sverrir Þeir voru glaðbeittir, Kári Hjálmar Ragnarsson, Atli Bollason, Orri Jök- ulsson og Georg Kári Hilmarsson, eftir sigur í Morfís 2002. MH sigurvegari í Morfís HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað karlmann af ákæru ríkissaksóknara fyrir líkamsárás, og hnekkti þar með hálfs árs fangelsisdómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 2. mars 2001. Ákærða var á sínum tíma gefið að sök að hafa slegið konu í höfuðið á skemmtistað í byrjun febrúar árið 2000 með þeim afleiðingum að gat kom á hljóðhimnu vinstra eyra henn- ar svo hún hlaut mikið heyrnartap. Hæstarétti þótti konan ekki hafa verið að fullu samkvæm sjálfri sér í lýsingu atvika sem ekki hafði að öllu leyti staðist framburð annarra og önnur gögn málsins. Auk þessa hafi orðið nokkur dráttur á rannsókn lög- reglu. Þegar alls þessa var gætt þótti réttinum ekki nægileg sönnun fyrir sekt ákærða og var hann því sýkn- aður af kröfum ákæruvaldsins. Málið dæmdu hæstaréttardómararni Guð- rún Erlendsdóttir, Árni Kolbeinsson og Markús Sigurbjörnsson. Fangelsis- dómi fyrir líkamsárás hnekkt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.