Morgunblaðið - 20.04.2002, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HESTHÚSAEIGENDUR
og íbúar í Norðlingaholti eru
ósáttir við hversu þeim er
gefinn stuttur tími til að
koma hestum fyrir annars
staðar áður en framkvæmdir
hefjast á svæðinu í sumar
vegna nýrrar byggðar sem
þar á að rísa. Um 600 hross
eru í Norðlingaholti og eru
eigendur þeirra um 200 tals-
ins.
Skömmu fyrir jól barst
eigendum lands og bygginga
í Norðlingaholti bréf frá
Reykjavíkurborg þar sem
þess er farið á leit að hefja
viðræður um kaup Skipu-
lagssjóðs á eignunum. Var
tilgreint í bréfinu að hafin
væri vinna að deiliskipulagi
íbúðabyggðar í Norðlinga-
holti og stefnt væri að því að
það yrði kynnt landeigend-
um á svæðinu við fyrsta
tækifæri. Stærsti hluti lands-
ins er í eigu Reykjavíkur-
borgar og Rauðhóls ehf. en
þessir aðilar hyggjast standa
saman að uppbyggingu
svæðisins.
Í janúar í ár birtist svo
frétt í Morgunblaðinu þar
sem greint var frá deiliskipu-
laginu. Meðal annars var þar
vísað í samning Reykjavíkur-
borgar og Rauðhóls ehf., en í
honum var kveðið á um að
borgin myndi leita eftir
kaupum á öllu landi innan
svæðisins sem væri í eigu
annarra en borgarinnar eða
Rauðhóls. Næðist ekki sam-
komulag við eigendur myndi
borgin beita eignarnámi eftir
því sem heimildir leyfðu.
Lenda á
vergangi í vor
Þorgeir Benediktsson,
sem á hesthús á svæðinu,
segir hestaeigendur óskap-
lega óhressa með hversu
stuttur fyrirvari þeim sé gef-
inn til að rýma svæðið þrátt
fyrir að ekki séu tilgreind
tímamörk varðandi samn-
ingaviðræður því stefnt sé að
því að hefja framkvæmdir
við gatnagerð og ræsi í sum-
ar. „Í öllu Norðlingaholtinu
eru um 600 hross og um 200
eigendur að þessum hrossum
lenda þá á vergangi í vor.
Þeir eru ekki búnir að kaupa
af okkur ennþá en ef það
byrja þarna framkvæmdir þá
leiðir það af sjálfu sér að það
verða engin hross þarna. Þó
við eigum eignina áfram þá
verður hún ónothæf ef þarna
verður búið að grafa allt í
sundur í kring. Þannig að við
erum þvinguð til að fara,
hvort sem við viljum það eða
ekki.“
Hann segir fólk einnig
mjög ósátt við það sem hann
kallar hótun um eignarnám
ef ekki næst að semja. „Við
vorum rétt búin að fá bréfið í
hendurnar um áramótin þeg-
ar frétt kom í Morgunblaðinu
um að þetta land verði tekið
undir byggingar og ef menn
láti það ekki af fúsum og
frjálsum vilja þá verði það
tekið eignarnámi. Við vorum
mjög óhress með þessa hót-
un áður en nokkuð var komið
í gang með viðræður.“
Hann segir stöðuna hjá sér
í dag vera þá að hann sé að
hefja samningaviðræður við
borgaryfirvöld en búið er að
meta eignir hans.
Hafa átt jörðina
í 50 ár
Berglind Eva Ólafsdóttir,
býr á svæðinu í húsi sem er í
eigu föður hennar, en hann á
einnig land í Norðlingaholti.
Hún segir ekki búið að ganga
frá sölu á þeirra eignum.
„Við setjumst ekki við samn-
ingaborð fyrr en í sumar.
Það er búið að óska eftir
samningaviðræðum og að fá
að meta þetta en við höfum
hafnað því vegna þess að við
leigjum út hesthús þarna og
okkur finnst ekki viðeigandi
að vera með matsaðila þarna
á meðan þetta er í útleigu.“
Hún segir að fjölskyldan
hafi stefnt að því að vera
áfram á svæðinu áður en
hugmyndir um íbúðabyggð
voru settar fram. „Við ætl-
uðum að kaupa íbúðarhúsið
og annað af föður mínum og
vorum búin að gera munn-
legt samkomulag um það. En
svo er búið að teikna blokk á
staðnum þar sem húsið er og
við hliðina á því þannig að
það er engin ánægja af því að
halda húsinu eins og þeir
skipuleggja hverfið. Það er
eiginlega búið að útiloka það
með skipulaginu sem við
höfðum engin tækifæri til að
taka þátt í.“
Hún segir hafa verið í um-
ræðunni að byggja þarna síð-
astliðin 40 ár. „Stóran hluta
af þeim tíma hefur landeig-
endum verið haldið í járnum
því þeir hafa ekki fengið leyfi
fyrir neinum framkvæmdum
þrátt fyrir að eiga þessar
jarðir. Faðir minn er búinn
að eiga þetta land í 50 ár og
er orðinn ósköp ónæmur fyr-
ir þessu. En núna virðist
vera alvara á ferðum með að
byggja þarna.“
Hún er sammála um að sá
frestur sem hestaeigendum
er gefinn til að finna sér ann-
an samastað sé of stuttur en
bætir því við að sumir vilji
meina að ekki verði byrjað á
framkvæmdunum í sumar.
Að sögn Berglindar ríkir því
nokkur óvissa um framhald-
ið. „Þeir eru búnir að gefa
okkur skýr skilaboð um að
þeir vilji kaupa og byrja að
byggja. Óvissan liggur í því
hvort það náist sættir um
verðið og hvort þeim sé al-
vara í því að byrja á þeim
tíma sem þeir ætla sér.“
Hestaeigendur og íbúar gagnrýna stuttan frest til að finna annan samastað
„Þvinguð
til að fara“
Norðlingaholt
SAMNINGUR milli Kópa-
vogsbæjar og fjármálaráðu-
neytisins um kaup á um 150
hekturum lands í Vatnsenda-
hvarfi og Rjúpnahæð verður
undirritaður næstkomandi
mánudag en um er að ræða
land sem kennt hefur verið við
Landssímann.
Af hálfu Kópavogsbæjar
munu bæjarfulltrúarnir Sig-
urður Geirdal, Gunnar I.
Birgisson og Flosi Eiríksson
undirrita samninginn og af
hálfu ríkisins Geir H. Haarde
fjármálaráðherra.
Bærinn kaup-
ir Lands-
símalandið
Vatnsendi
BORGARSTJÓRN hefur
samþykkt að bæta inn á
aðalskipulag möguleika á
byggingu smábátahafnar
við Grundarhverfi á
Kjalarnesi. Ósk þar að
lútandi kom frá íbúum
svæðisins á íbúaþingi í
janúar.
Að sögn Þórarins Þór-
arinssonar, arkitekts hjá
Skipulags- og bygginga-
sviði Reykjavíkur, er um
gamla hugmynd að ræða
sem eitt sinn var á að-
alskipulagi en þó aðeins
sem fjarlægur möguleiki.
Hann segir að íbúar
svæðisins hafi talið að
það gæti nýst á ýmsa
vegu að fá slíka höfn í
hverfið en samþykkt
borgarstjórnar gerir ráð
fyrir því að hún yrði
staðsett í Hofsvík. „Eftir
þingið var unnin eins
konar skipulagshugmynd
eftir hugmyndum íbú-
anna og á henni sýnum
við höfn. Hún getur þess
vegna tengst möguleika
á ferjusiglingu til ann-
arra hafna sem valkost
við strætó, eða fyrir
skemmtisiglingar. Þá
gæti smábátahöfn verið
aðlaðandi fyrir þá sem
búa á svæðinu því það
yki valkosti í lifnaðar-
háttum ef menn gætu
verið með bát á svæð-
inu.“
Höfn í tengslum
við nýtt miðsvæði
Hann segir hugmyndir
um höfnina hafa verið
kynntar í framhaldi af
þinginu og að eftir fund
borgarstjórnar á fimmtu-
dag virðist sem sátt sé
um hana meðal pólítískra
fulltrúa borgarinnar.
Höfnin var ekki inni á
skipulaginu sem sam-
þykkt var í borgarstjórn
á fimmtudag en eftir að
breytingatillaga Sjálf-
stæðisflokksins var sam-
þykkt verður hún sett
þar inn sem möguleiki.
Breytingartillagan var
samþykkt með 14 at-
kvæðun og segir í grein-
argerð að tillaga íbúanna
geri ráð fyrir höfninni í
tengslum við íbúðasvæði
og mögulegt nýtt mið-
svæði. Eðlilegt sé að
vinna áfram að fram-
gangi þessara hug-
mynda.
Smá-
bátahöfn
komi í
Hofsvík
Kjalarnes
NÝTT og glæsilegt húsnæði
Bókasafns Hafnarfjarðar að
Strandgötu 1 hefur verið tek-
ið í notkun. Húsnæðið, sem er
alls um 1.700 fermetrar, er á
fjórum hæðum og er gert ráð
fyrir að skjalasafn Hafnar-
fjarðar verði einnig þar til
húsa.
Í fréttatilkynningu frá
bænum kemur fram að jarð-
hæðin að Austurgötu 4 verður
tengd við bygginguna. Við
það stækkar tónlistardeild
safnsins og verður eftir breyt-
ingarnar opin til jafns við
safnið. Þá verður rekið tölvu-
ver fyrir notendur safnsins á
þriðju hæð og tölvukaffi á
jarðhæð. Loks segir að lesað-
staða og aðgengi fatlaðra
verði mun betra en í dag og
verður fjölnota herbergi með
sérútgangi í kjallara.
Það var Knútur Jeppesen
arkitekt sem hannaði hús-
næðið í samstarfi við Pétur
Örn Björnsson en verkþjón-
usta Kristjáns ehf. hafði yfir-
umsjón með verkinu. Aðal-
verktaki framkvæmda var
Háberg ehf.
Nýtt og betra
bókasafn
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Kristinn
Anna Sigríður Einarsdóttir bæjarbókavörður við opnun nýja húsnæðisins í gær.
LITLU krílin í leikskól-
unum Fellaborg, Völvuborg
og Ösp létu votviðri ekkert
á sig fá á miðvikudag þegar
þeim var boðið til vorhátíð-
ar leikskóla í Fella- og
Hólasókn. Kappklædd í
vatnsheldar flíkur þrömm-
uðu þau hvert af öðru inn í
kirkjuna og biðu spennt
þess sem fram átti að fara
næsta hálftímann.
Það var heldur ekki
dónaleg dagskrá sem í boði
var. Fyrst gátu þau fylgst
með honum venjulega
Hreini breytast í Hrein
prest með því að hann tók á
sig undarlegar flíkur en að
því loknu steig sjálfur vet-
urinn á svið í gervi útskrift-
arhópsins í Völvuborg. Vor-
ið kom síðan með tvöföldum
krafti því þar voru á ferð-
inni útskriftarkrakkar úr
hinum tveimur leikskól-
unum, Fellaborg og Ösp.
Að sögn Elínar Elísabet-
ar Jóhannsdóttur, æsku-
lýðsfulltrúa sóknarinnar, er
yfirskrift vorhátíðarinnar
Vetur kveður, vorið kemur.
„Þetta er eiginlega bjart-
sýnisboðskapur kirkjunnar
og við erum að reyna að
koma því inn að það sé
ástæða til að vera ánægð-
ur,“ segir hún.
Til vorhátíðarinanr voru
boðnir allir leikskólar í
sókninni. Leikskólarnir þrír
sem sóttu hátíðina á mið-
vikudag voru úr Fellahverfi
en von var á leikskólunum
úr Hólahverfi daginn eftir.
„Ástæða
til að vera
ánægður“
Breiðholt
Morgunblaðið/Ásdís
Vetur konungur, í gervi útskriftaraðalsins í Völvuborg, kveður gesti sína með virktum.