Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 48
UMRÆÐAN
48 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM daginn hitti ég
hjón, ellilífeyrisþega,
sem hafa búið í Kópa-
vogi í marga áratugi.
Þau sögðu mér frá því að
á síðasta ári hefðu þau
þurft fyrirgreiðslu hjá
bænum varðandi
greiðslu á gatnagerðar-
gjöldum sem á þau voru
lögð, þar sem verið var
að endurnýja götuna
sem þau búa við. Þetta
voru há gjöld miðað við
litlar tekjur. Eftir að
hafa safnað í sig kjarki
fóru þau á bæjarskrif-
stofurnar og báru upp
erindið. Þar var þeim
tjáð að þau yrðu bara
að tala við bæjarstjóra
og bæjarfulltrúa og
reyna að fá þá til að
gera eitthvað í málinu.
Þau héldu heim á ný og
þurftu nú að safna enn
meiri kjarki til að tala
við hina háu herra.
Töldu þau að ef þau
drifu sig til bæjar-
stjóra myndi hann
leysa málið snarlega.
Þau pöntuðu viðtal,
fóru til hans, en þegar
fundi þeirra með honum lauk voru
þau jafnnær og áður.
Enn fóru þau heim án þess að hafa
fengið nokkra úrlausn. Þau gátu ekki
gefist upp því það myndi leiða til þess
að þau kæmust í vanskil og það
kærðu þau sig ekki um, enda alltaf
staðið í skilum með allt sitt. Þau fóru
því í auglýstan viðtalstíma hjá tveim-
ur bæjarfulltrúum meirihlutans sem
höfðu góð orð um að ganga í málið og
komu með ákveðna tillögu í því. Leið
nú og beið og í ljós kom að ekki var
hægt að fara þá leið sem bæjarfull-
trúarnir lögðu til. Nú tók við tími
hugarangurs, símhringinga og stapps
og um síðir kom viðunandi lausn.
Ég varð hissa þegar ég heyrði
þessa sögu. Hissa á því að nú, þegar
fyrirtæki og stofnanir keppast um að
veita fljóta, góða og sanngjarna þjón-
ustu, skuli fólk sem þarf að leita til
bæjarins með sín erindi þurfa að
ganga frá Heródesi til Pílatusar.
Lenda jafnvel í þrasi við pólitíkusana
og fá svo úrlausn eftir dúk og disk.
Allir bankar eru komnir með þjón-
ustufulltrúa, það þarf ekki lengur að
fara fyrir bankastjóra til að fá fyr-
irgreiðslu í bankanum, Alþingi er
með umboðsmann sem almenningur
getur leitað til, börnin hafa sérstakan
umboðsmann. Af hverju er Kópa-
vogsbær ekki með starfsmann sem
íbúar bæjarins geta leitað til með mál
af þessu tagi, sem gengur í málin og
finnur sanngjarna og góða lausn?
Það fyrirkomulag sem ríkir í þess-
um málum í Kópavogi er úrelt. Það
átti við á dögum fyrirgreiðslana, þeg-
ar pólitíkusar voru að gera mönnum
„greiða“ út um allan bæ. En á 21. öld-
inni er stjórnsýsla af þessu tagi al-
gjörlega úr takti við samfélagið. Auð-
vitað eiga bæjarfulltrúar að vera með
viðtalstíma, það á líka að vera hægt
að senda þeim tölvupóst og almenn-
ingur á að hafa greiðan aðgang að
þeim. Fólk á ekki að þurfa að ganga á
milli þeirra með viðkvæm og erfið
mál.
Hafsteinn Karlsson
Kópavogur
Af hverju, spyr Haf-
steinn Karlsson, er
Kópavogsbær ekki með
starfsmann sem íbúar
bæjarins geta leitað til
með ýmis mál?
Höfundur er skólastjóri og skipar 3.
sæti á lista Samfylkingarinnar í
Kópavogi.
Heródes og Pílatus
eru enn í Kópavogi
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Vélstjóri
2. vélstjóri óskast á Danska Pétur VE-423.
Þarf að hafa réttindi á 750 kw vél.
Upplýsingar í síma 852 0169.
Skipstjóri.
Vélaverkstæði
Hjalta Einarssonar ehf.,
Melabraut 21-25, Hafnarfirði
Óskum eftir
vélvirkjum, vélstjórum eða mönnum
vönum járnsmíðavinnu.
Framtíðarstarf í boði fyrir réttan mann.
Nánari upplýsingar veitir Unnar á staðnum.
Leikskólakennarar
Aðaldælahreppur auglýsir eftir leikskóla-
stjóra við leikskóla Aðaldælahrepps.
Einnig vantar leikskólakennara í 80% stöðu.
Leikskólinn er í nýlegu húsnæði, um 20 börn
eru í skólanum.
Ráðið verður í stöðurnar frá 15. ágúst eða eftir
samkomulagi.
Aðaldælahreppur mun veita aðstoð við
útvegun á húsnæði ef þess gerist þörf.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Aðaldæla-
hrepps í síma 464 3510 þriðjudaga til föstudaga
frá kl. 13—17, og hjá leikskólastjóra í síma
464 3590 eða heimasíma 464 3532.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk.
Umsóknir sendist til Aðaldælahrepps,
Iðjugerði 1, 641 Húsavík.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skeifan —
verslunarhúsnæði til leigu
Eitt besta verslunarhúsnæðið í ný uppgerðu
húsi í Skeifunni. Stærð um 820 m².
Næg bílastæði. Frábært auglýsingagildi.
Upplýsingar í síma 894 7997.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalsafnaðarfundur
Seltjarnarneskirkju
verður haldinn sunnudaginn 28. apríl kl. 9.00.
Venjuleg aðalfundarstörf, allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja.
Aðalfundur
Sparisjóðs Vestfirðinga
Stjórn Sparisjóðs Vestfirðinga hefur ákveðið
að halda aðalfund sparisjóðsins laugardag-
inn 4. maí 2002 kl. 14.00 í félagsheimilinu
á Patreksfirði.
Dagskrá aðalfundarins verður samkvæmt
samþykktum sjóðsins.
Stjórnin.
Aðalfundur
Heilsuhringsins
verður haldinn í Norræna húsinu laugardaginn
27. apríl kl. 13.00.
Að loknum aðalfundarstörfum kl. 14.00 verða
flutt þessi erindi:
Lífsleikni - Gunnar Eyjólfsson, leikari.
Samstilltir hormónar með réttu mataræði -
Þorbjörg Hafsteindóttir, næringarþerapisti.
Hvað er náttúrulegt prógesteron? -
Ævar Jóhannesson.
Öllum velkomið að koma og hlusta á erindi.
Stjórnin.
KVÓTI
Varanlegar aflaheimildir
til sölu
Kauptilboð óskast í eftirfarandi varanlegar afla-
heimildir. Heimildir þessar seljast án skips.
Þorskur 260,5 tonn
Ýsa 30,5 tonn
Ufsi 110,0 tonn
Steinbítur 70,5 tonn
Karfi 10,0 tonn
Einnig fylgir með í þessum pakka 40 tonn af
ýmsum flatfisktegundum. Tilboð sendist með
tölvupósti á box@mbl.is merkt: „V — 12221“.
TIL SÖLU
Lagerútsala — bílskúrssala
Í dag, laugardaginn 20. apríl, frá kl. 11—15 selj-
um við allt af lagernum.
Seldir verða borðar frá Sopp, 60 mm, 40 mm
og 25 mm á 20 m — 25 m rúllum.
Tilbúnar slaufur. Krullubönd 5 mm og 10 mm.
Viðarbönd 10 mm. Umbúðapappír 200 m.
Pappírspokar m. haldi.
Silkivörur: Peysur, bolir, toppar, slæður, nátt-
föt, náttkjólar og náttsloppar.
Nú er um að gera að koma og gera góð kaup
— allt á að seljast.
Tilvalið fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Staðgreiðslusala.
Toja,
Skógarhjalla 19, 200 Kópavogi,
sími 898 5111.
TILKYNNINGAR
Úrval Laxnessbóka, Bergsætt,
Kollsvíkurætt, Strandamenn,
Bjarni Hermannsson,
Islendica 1—30,
Náttúrufræðingurinn 1—45,
Vor borðsilfur G.M., stokkabelti.
Gvendur dúllari, Kolaportinu.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Prestastígur á Reykjanesi.
Fyrsta raðganga FÍ í tilefni 75
ára afmælis um fornar þjóð-
leiðir. Verið með frá byrjun.
Saga og jarðfræði. Verð kr.
1.700/2.000. Brottför frá BSÍ kl.
10.30, komið við í Mörkinni 6 og
austan við kirkjugarðinn í Hafn-
arfirði. Sjá nánar á heimasíðu FÍ,
www.fi.is, og í prentaðri áætlun
bls. 11. Fáið stimpla í áætlun
og takið þátt í happdrætti.
Verið velkomin í bás FÍ í Smára-
lind um helgina.
21. apríl
Reykjavegur – Stóra Sandvík
– Þorbjarnarfell (R1)
Nú byrjar fyrsti hluti Reykjaveg-
arins, en samtals eru þetta átta
áfangar. Gangan hefst við Stóru-
Sandvík og gengið um eldvörp
að Þorbjarnarfelli. Brottför kl.
10:30 frá BSÍ. Verð kr. 1.500 fyrir
félaga/1.700 fyrir aðra.
Farastjóri: Margrét Björnsdóttir.
Hvetjum alla til að vera með
frá byrjun.
21. apríl
Árnastígur
Árnastígur — gömul leið á
milli Njarðvíkur og Grinda-
víkur.
Gangan hefst við Stapafell og
gengið um Eldvörp að Húsatótt-
um í Grindavík. Brottför kl. 10:30
frá BSÍ. Verð kr. 1.500 fyrir fé-
laga /1.700 fyrir aðra.
Fararstjóri: Steinar Frímansson.
23. apríl
Deildarfundur jeppadeildar.
Fundurinn er haldinn á skrifstofu
Útivistar á Laugavegi 178 kl.
20.00. Innanfélagsmál, GPS ný-
ungar frá Garmin (R. Sigmunds-
son), myndasýning (slides).
Kaffi og meðlæti í boði Merrild.
Allir velkomnir.
24. apríl
Helgafell — Mosfellsbæ
(Útivistarræktin)
Brottför á eigin bílum frá skrif-
stofu Útivistar kl. 18.30.
Ekkert þátttökugjald.
mbl.is
ATVINNA