Morgunblaðið - 20.04.2002, Page 61
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 61
Í dag milli kl. 14 og 16
verður opið á skrif-
stofu okkar í Bæjar-
hrauni 22, Hafnarfirði,
þar sem við verðum
með kynningu á ný-
byggingum í Hafnar-
firði. Við erum með á
skrá yfir 40 eignir í
byggingu í Áslandinu
í Hafnarfirði, raðhús, parhús, einbýlishús og fjölbýli.
Kíktu við! Kaffi á könnunni og með því.
Opið laugardag og sunndag milli kl. 14 og 16.
Nýbyggingadagar
í Hafnarfirði!
Bæjarhrauni 22 Hafnarfirði
Sími 565 8000 • www.hofdi.is
KVÖLDVAKA verður sunnudags-
kvöld 21. apríl kl. 20 í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði.
Að venju mun Örn Arnarson
ásamt hljómsveit og félögum úr kór
kirkjunnar leiða tónlist og söng.
Yfirskrift kvöldvökunnar að
þessu sinni er kirkjan og stjórn-
málin. Fulltrúar þeirra flokka sem
bjóða fram í Hafnarfirði við bæj-
arstjórnarkosningarnar í vor mæta
á kvöldvökuna og svara því hvort
þau telji að boðskapur Krists eigi
eitthvað erindi við samtímann.
Þau sem mæta eru Gestur Svav-
arsson frá Vinstri grænum, Hildur
Helga Gísladóttir frá Framsókn-
arflokknum, Gunnar Svavarsson frá
Samfylkingunni og Magnús Gunn-
arsson bæjarstjóri frá Sjálfstæð-
isflokknum. Auk þeirra munu prest-
ar kirkjunnar fjalla um þessa sömu
spurningu.
Þetta er eflaust í fyrsta skipti sem
efnt er til slíkrar umræðu stjórn-
málamanna í kirkju í aðdraganda
kosninga og verður áhugavert að
hlýða á boðskap flokkanna á þess-
um vettvangi.
Það eru allir hjartanlega vel-
komnir til þessarar kvöldvöku í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði.
Kuggur og Málfríður
í Grensáskirkju
Í FYRRAMÁLIÐ, sunnudag kl. 11,
verður sýnt í Grensáskirkju barna-
leikritið „Ævintýri Kuggs og Mál-
fríðar“ sem byggt er á vinsælum
barnabókum Sigrúnar Eldjárn. Þar
segir frá því að Kuggur litli er flutt-
ur í nýtt hverfi. Í því hverfi búa eng-
ir krakkar en mest gamalt fólk og
honum leiðist. Þá kynnist hann Mál-
fríði. Hún er gömul kona en ung í
anda. Saman lenda þau í ýmsum æv-
intýrum.
Stoppleikhópurinn sýnir leikritið.
Áður hafði verið auglýst að það yrði
sýnt í Grensáskirkju í mars en sú
sýning var afboðuð samdægurs
vegna veikinda leikara.
Sýningin er liður í barnastarfi
safnaðarins sem fer fram alla
sunnudaga kl. 11 árdegis. Leikritið
höfðar einkanlega til barna undir 10
ára aldri og sýning þess er að sjálf-
sögðu öllum opin, endurgjaldslaust.
Æðruleysismessa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar tileinkuð fólki í leit að bata
eftir tólfsporakerfinu verður í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík sunnudags-
kvöldið 21.apríl kl. 20:30. Þar eru
allir velkomnir til tilbeiðslu og
æðruleysis. Lofgjörðina leiðir söng-
konan lífsglaða Anna Sigríður
Helgadóttir við undirleik bræðr-
anna Birgis og Harðar Bragasona.
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir pre-
dikar og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
leiðir stundina og þjónar ásamt
prestunum Karli V. Matthíassyni og
Jakobi Ágústi Hjálmarssyni. Jafn-
framt verður reynslusögu deilt með
viðstöddum.
Í lok stundarinnar verður alt-
arisganga við altari Dómkirkj-
unnar.
Æðruleysismessur eru einstakar
og helgar stundir þar sem fólk kem-
ur og leitar af heiðarleika og ein-
lægni eftir samfélagi við Guð. Það
sem einkennir messurnar er létt
sveifla í helgri alvöru. Allir eru vel-
komnir.
Eftir messuna verður Ömmukaffi
í Austurstræti 20 (Gamli Hressing-
arskálinn) sérstaklega opið fyrir
þau sem koma til messunnar, en það
er bjart og reyklaust kaffihús í
hjarta borgarinnar.
Barnamessa
í Dómkirkjunni
BARNASTUND verður í Dómkirkj-
unni á sunnudaginn. Stundin hefst
með messunni kl. 11:00 en fer síðan
fram á kirkjuloftinu. Það verður létt
og skemmtilegt andrúmsloft ásamt
góðu samfélagi barna og fullorð-
inna í Dómkirkjunni á sunnudaginn.
Umsjón verður í höndum Þorvaldar
Víðissonar, Maríu Ellingsen og Jón-
asar M. Ingólfssonar.
Andrea Gylfadóttir
í Hafnarfjarðarkirkju
GUÐSÞJÓNUSTAN í Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 11.00 á sunnudaginn
kemur 21. apríl verður með léttu
sniði. Söngkonan vinsæla Andrea
Gylfadóttir flytur sönglög með
djasssveiflu og gefandi textum við
undirleik Kjartans Valdimarssonar
píanóleikara. Fyrir stuttu héldu þau
tónleika í Akureyrarkirkju og vöktu
mikla hrifningu. Andrea söng líka á
liðnu hausti með Fjarðarbandinu í
fjölsóttri dægurlagamessu í Hafn-
arfjarðarkirkju.
Kór kirkjunnar syngur einnig lof-
gjörðarsálma. Allir prestar kirkj-
unnar annast helgiþjónustu. Eftir
guðsþjónustuna er opið hús í safn-
aðarheimilinu Strandbergi.
Prestar og sóknarnefnd Hafn-
arfjarðarkirkju.
Kvöldmessa
í Grensáskirkju
KVÖLDMESSA verður í Grens-
áskirkju annað kvöld, sunnud. 21.
apríl, kl. 20.
Að þessu sinni verður dansatriði í
messunni. Tinna Ágústsdóttir og
Hákon Atli flytja það en þau eru
nemendur í Listdansskóla Íslands.
Kvöldmessan byggist á einföldu
og aðgengilegu formi. Tónlistin er
lífleg og ljúf. Kirkjukórinn leiðir al-
mennan söng, auk þess að syngja
sérstaklega nokkur lög undir stjórn
organistans, Árna Arinbjarn-
arsonar. Þá er líka bænagjörð og
orð Guðs er lesið og íhugað. Alt-
arisganga er í lok messunnar.
Eftir á verður á boðstólum kaffi,
djús og kex. Komum og fögnum
saman í húsi Drottins!
Kvennakór
í Kópavogskirkju
GUÐSÞJÓNUSTA verður sunnu-
daginn 21. apríl kl. 14. Kvennakór
Kópavogs, sem nýlega var stofn-
aður, kemur í heimsókn og syngur
að lokinni prédikun. Kórinn skipa
tugir kvenna og hann hefur æft af
krafti undanfarna mánuði en stjórn-
andi hans er Natalía Chow. Kór
Kópavogskirkju syngur einnig í
guðsþjónustunni og leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Julian Hew-
lett kórstjóra og organista.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Hjallakirkja
– Tónlistarandakt
TÓNLISTARANDAKT verður í
Hjallakirkju í Kópavogi á sunnduag
kl. 17.00. Þau Gréta Þ. Jónsdóttir
messósópran og Jón Ólafur Sigurðs-
son organisti Hjallakirkju sjá um
tónlistarflutninginn og sóknarprest-
urinn séra Íris Kristjánsdóttir sér
um talað mál.
Þessar stundir sem taka um 40
mínútur eru bornar uppi af tónlist-
arflutningi og inn á milli er upp-
lestur, ritningarlestur og bæn.
Að þessu sinni verður flutt „Hug-
leiðing um Davíðssálm 29“ eftir
þýska barokktónskáldið Heinrich
Shütz fyrir söngrödd og orgel.
Meistari Bach samdi nokkra sálm-
forleiki yfir páskasálma og verða
nokkrir þeirra fluttir ásamt Prelú-
díu í G dúr BWV 541. Þá verða flutt-
ar tvær aríur úr óratóríunni Elía
eftir Mendelssohn ásamt orgelverki
eftir hann. Af íslenskum verkum má
nefna sálminn „Ó, undur lífs“ við
lag Jakobs Hallgrímssonar og einn-
ig lag Páls Ísólfssonar við sálminn
„Ég kveiki á kertum mínum“.
KFUM&K
– opnun leikskólans
FORMLEG opnun leikskólans verð-
ur kl. 15.30. Formaður bygging-
arnefndar, Arnmundur Kr. Jón-
asson flytur ávarp. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson flytur húsblessun.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri flytur ávarp og opnar leik-
skólann.
Kl. 17:00 Samkoma þar sem sr.
Ólafur Jóhannsson, formaður
KFUM og KFUK í Reykjavík, talar.
Barnasamkoma hefst kl. 17.
Tveggjahæða strætóinn verður á
staðnum. Allir krakkar 6 ára og
eldri hvattir til að fjölmenna.
Barnagæsla fyrir yngstu börnin í
Maríustofu.
Fjölskyldumáltíð á hagstæðu
verði eftir samkomuna.
Vaka kl. 20:30. Hvað fæ ég að
launum? Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson talar og syngur ein-
söng. Mikil lofgjörð og fyrirbæn.
Endurmenntunar-
dagur Prestafélags
Íslands
MENNTANEFND PÍ vill vekja at-
hygli á endurmenntunardegi í
Grensáskirkju 29. apríl.
Dagskráin er öllum opin og til
þess gerð að efla guðfræðilega um-
ræðu.
Dagskrá endurmenntunardags-
ins er sem hér segir :
15:00 Lúther og fyrsta boðorðið.
Erindi dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar.
16:00 Kaffi og uppistand. 16:30
Guðfræði á ólíkum vettvangi. Rætt
verður um hvernig guðfræðin nýtist
á ólíkum vettvangi. Umræður.
17:30 Söngstund.
17:45 Notkun Netsins við guð-
fræðiiðkun.
Frummælendur eru þau : Árni
Svanur Daníelsson guðfræðingur,
sr. Carlos Ari Ferrer og sr. Íris
Kristjánsdóttir. Umræður.
19:00 Leikfimi.
19:15 Matur.
20:00 Predikun við útför.
Frummælendur eru þau sr. Flóki
Kristinsson, sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir og sr. Örn Bárður Jóns-
son. Rætt verður eðli og tilgangur
útfararpredikunarinnar. Umræður.
21: 00 Lok dagskrár. Kvöldbænir.
Stjórnmálamenn
í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðis-
félaganna í Vesturbyggð hefur
samþykkt nýtt fyrirkomulag á
framboði Sjálfstæðisflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar í Vest-
urbyggð 25. maí næstkomandi.
Framboðslistinn mun bera heit-
ið D-listi Sjálfstæðisflokks og
óháðra.
Á yfirstandandi kjörtímabili
hafa bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins átt samstarf við Kol-
brúnu Pálsdóttur, bæjarfulltrúa
Vesturbyggðarlistans, og mynda
nú meirihluta í bæjarstjórn með
henni.
Kolbrún hefur ákveðið að ganga
til samstarfs við sjálfstæðismenn í
kosningunum í vor og taka sæti á
listanum ásamt fleira fólki sem
ekki er flokksbundið í Sjálfstæðis-
flokknum. Listinn er þannig skip-
aður: 1. Jón B.G. Jónsson, yfir-
læknir og forseti bæjarstjórnar,
Patreksfirði, 2. Guðmundur Sævar
Guðjónsson, húsasmíðameistari og
bæjarfulltrúi, Bíldudal, 3. Kolbrún
Pálsdóttir, kaupmaður og formað-
ur bæjarráðs, Patreksfirði, 4. Þur-
íður Ingimundardóttir, hjúkrunar-
forstjóri og bæjarfulltrúi,
Patreksfirði, 5. Geir Gestsson sjó-
maður, Patreksfirði, 6. Nanna Á.
Jónsdóttir bóndi, Efri-Rauðsdal,
Barðaströnd, 7. Jón Páll Jakobs-
son skipstjóri, Bíldudal, 8. Keran
Stueland Ólason ferðaþjónustu-
bóndi, Geitagili, Örlygshöfn, 9.
Gunnar Ingvi Bjarnason sjómaður,
Patreksfirði, 10. Ýr Harris Einars-
dóttir húsmóðir, Patreksfirði, 11.
Víðir Hólm Guðbjartsson bóndi,
Grænuhlíð, Arnarfirði, 12. Óskar
H. Gíslason, skipstjóri, Patreks-
firði, 13. Erlendur Kristjánsson
rafvirkjameistari, Patreksfirði, 14.
Ingveldur Á. Hjartardóttir trygg-
ingafulltrúi, Patreksfirði.
Listi Sjálfstæðis-
flokks og óháðra
í Vesturbyggð B-LISTI Framsóknarmanna ogóflokksbundinna í Hveragerði opn-
aði nýlega heimasíðu sína. Slóðin er
www.xb.is/hveragerdi
Á heimasíðunni eru birtar upplýs-
ingar um frambjóðendur listans
vegna komandi sveitarstjórnarkosn-
inga, fréttir af kosningastarfi,
myndasyrpur og þegar fram í sækir
stefnuskrá listans, segir í fréttatil-
kynningu.
Heimasíða
B-lista í
Hveragerði
INNGRITUN er hafin í orlofs-
vikur Bergmáls á Sólheimum í
Grímsnesi.
Fyrri vikan verður 23.–30. maí
og er ætluð fyrir blinda og lang-
veika. Síðari vikan verður 23.–30.
ágúst og er ætluð krabbameins-
sjúkum, segir í frétt frá Líknar- og
vinafélaginu Bergmáli.
Orlofsvikur
Bergmáls
á Sólheimum
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14.
Farið verður í heimsókn til Íslenskrar
erfðagreiningar. Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir. Umsjón sr. Frank M. Halldórs-
son.
KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Sam-
koma í kvöld kl. 20.30. Gestir samkom-
unnar eru hópur sem kallast Worship
Planet frá Bandaríkjunum. Þeir ætla að
sjá um alla dagskrá samkomunna, vitn-
isburði og kröftuga tónlist. Það eru allir
hjartanlega velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl.
11.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11-12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið
fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum
starfa barna- og unglingadeildir. Létt
hressing eftir samkomuna. Allir hjart-
anlega velkomnir. Biblíufræðsla alla
virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
Akureyrarkirkja. Krossamaraþon
æskulýðsfélagsins kl. 15 í safnaðar-
heimili.
Safnaðarstarf