Morgunblaðið - 20.04.2002, Síða 68
DAGBÓK
68 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Freri
kemur í dag. Namai,
Áskell , Arnomendi og
Ásbjörn fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Anne Hillena og Ludvig
Andersen fóru í gær.
Mannamót
Árskógar. Sumarfagn-
aður síðasta vetrardag
24. apríl, dansleikur frá
kl. 20.30–22.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga á föstudögum kl
11. Kóræfingar hjá Vor-
boðum, kór eldri borg-
ara í Mosfellsbæ á Hlað-
hömrum fimmtudaga kl.
17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586 8014,
kl. 13–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á mánu-
dag púttað í Bæj-
arútgerð kl. 10–11.30,
félagsvist kl. 13.30.
Dansleikur verður mið-
vikudaginn 24. apríl.
„Síðasta vetrardag“ kl
20.30 Caprí Tríó leikur
fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Garðabæ. Félagsfundur
verður í Kirkjuhvoli
laugardaginn 20. apríl
kl. 14. Hjálmar Bárð-
arson verður með
myndasýningu frá Ísa-
fjarðarsýslum.
Oddur Friðrik Helgason
ættfræðingur kynnir
ættfræðiforrit. Kaffi-
veitingar. Allir velkomn-
ir.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Félagsvist í
Kirkjuhvoli 23. apríl kl.
19.30. Uppskerudagar-
sýningar á tómstunda-
starfi vetrarins verða
22- 24. apríl kl. 13–18.
Fjölbreyttar sýningar
og skemmtidagskrá.
Kaffiveitingar. Garða-
berg ný félagsmiðstöð á
Garðatorgi. Opið kl. 13–
17. Kaffiveitingar.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og mat-
ur í hádeginu. Sunnu-
dagur: Félagsvist kl.
13.30. Dansleikur kl. 20,
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánud.: brids kl.
13 danskennsla Sigvalda
kl. 19 framhald og byrj-
endur kl. 20.30. Þriðjud:
Skák kl. 13 og alkort
spilað kl. 13.30. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í göngu frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10. Sögu-
slóðir á Snæfellsnesi og
þjóðgarðurinn Snæfells-
jökull 3 daga ferð 6–8
maí gisting á Snjófelli á
Arnarstapa, farið verður
á Snæfellsjökul, leið-
sögn Valgarð Runólfs-
son. Skráning hafin á
skrifstofu FEB. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá kl.
10–12 s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félag eldri borgara
Selfossi. Mörkinni 5,
Selfossi. Handverkssýn-
ing eldri borgara á Sel-
fossi verður í austur-
enda Hótels Selfoss,
13.–21. apríl kl. 14–18.
Vorfagnaður verður á
þessu vori í Básnum
föstudaginn 10. maí kl.
13.30. Ferðaáætlun
sumarsins kynnt. Veit-
ingar, söngur, fróðleikur
og dans.
Gerðuberg, félagsstarf,
í dag kl. 13–16 mynd-
listasýning Braga Þórs
Guðjónssonar opin, veit-
inga í Kaffi Berg. Kl. 16
vortónleikar í Fella- og
Hólakirkju hjá Gerðu-
bergskórnum, stjórn-
andi Kári Friðriksson,
undirleikarar Benedikt
Egilsson, Arngrímur
Marteinsson og Unnur
Eyfells, einsöngur Kári
Friðriksson.
Fjölbreytt dagskrá allir
velkomnir.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
frá Gjábakka í Kópavogi
alla laugardagsmorgna.
Krummakaffi kl. 9. Allir
velkomnir.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur í
kvöld kl. 21 í Konnakoti
Hverfisgötu 105. Nýir
félagar velkomnir. Mun-
ið gönguna mánu- og
fimmtudaga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla
3–5, og í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi. Á vegum
nefndarinn verða farnar
tvær ferðir á þessu
sumri á Kirkjubæj-
arklaustri 13.–15. júní, í
Skagafjörð 22.–24.
ágúst. Hvíldar- og
hressingardvöl á Laug-
arvatni 24.–30. júní. Þær
konur sem ekki hafa
notið orlofs síðastliðin
2–3 ár ganga fyrir um
rými. Innritun í s.
554 0388 Ólöf, s.
554 2199 Birna frá 18.
apríl–10. maí.
MG-félag Íslands Félag
sjúklinga með sjúkdóm-
inn Myasthenia gravis
(vöðvaslensfár) heldur
aðalfund laugardaginn
27. apríl kl. 14 í Hátúni
10a í kaffisal Ör-
yrkjabandalags Íslands.
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum alls
konar notuð frímerki,
innlend og útlend, ný og
gömul, klippt af með
spássíu í kring eða um-
slagið í heilu lagi (best
þannig). Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Sambandið ver
ágóðanum af þessu til
boðunar- og hjálp-
arverkefna í Eþíópíu og
Kenýu. Móttaka í húsi
KFUM&K, Holtavegi
28, Rvík og hjá Jóni
Oddgeiri Guðmunds-
syni, Glerárgötu 1, Ak.
Minningarkort
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588-8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til sölu
í kirkjunni í síma
587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, Reykja-
vík.
Líknasjóður Dómkirkj-
unnar, minningaspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningarkort Ás-
kirkju eru seld á eft-
irtöldum stöðum:
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, þjónustuíbúðum
aldraðra við Dalbraut,
Norðurbrún 1, Apótek-
inu Glæsibæ, og Ás-
kirkju, Vesturbrún 30,
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28, í s. 588
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kredidkortaþjónusta.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Í dag er laugardagur 20. apríl, 110.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: Jes-
ús mælti við þá: „Leyfið börnunum
að koma til mín, varnið þeim eigi,
því að slíkra er Guðs ríki.“
(Mark. 10, 14.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 slæpast, 4 binda, 7
brennur, 8 svífum, 9
hnöttur, 11 hina, 13 for-
boð, 14 jurt, 15 gamall, 17
smáskip, 20 töf, 22 ferma,
23 hagvirkni, 24 synja, 25
vitlausa.
LÓÐRÉTT:
1 svera, 2 geigur, 3 forar,
4 stórhýsi, 5 hljóðfæri, 6
formóðirin, 10 skömm, 12
elska, 13 tjara, 15 ólund-
in, 16 endasneið, 18 ekki
gamlan, 19 klaufdýra, 20
hamagang, 21 rispa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 geðveikar, 8 vonar, 9 lægja, 10 góa, 11 lirfa, 13
nurla, 15 solls, 18 safna, 21 ket, 22 rella, 23 efins, 24
kampakáta.
Lóðrétt: 2 efnir, 3 varga, 4 iglan, 5 angur, 6 hvel, 7 bata,
12 fól, 14 una, 15 sorg, 16 lilja, 17 skaup, 18 stekk, 19
feitt, 20 assa
Meðlagsgreiðslur
frádráttarbærar
ÉG er alveg hissa á því að
enginn stjórnmálaflokkur
skuli setja það á stefnuskrá
sína að meðlagsgreiðslur
verði frádráttarbærar til
skatts. Þótt meðlag með
barni sé kannski ekki hátt
þá er oft erfitt að fóta sig
aftur í lífinu þegar borgað
er með fleiri en einu barni
af meðallaunum.
Það eru örugglega marg-
ir sem myndu kjósa þann
flokk, þar á meðal ég.
Meðlagsgreiðandi.
Fyrirspurn
JÓN Trausti spyr þing-
menn og forráðamenn olíu-
félaganna hvenær þunga-
skattur leggist á olíuna.
Fyrirspurn
HELGI Pálmason spyr
þingmenn hvort leggja eigi
fram lagafrumvarp um ein-
elti og þá hvenær?
Hunsa ábendingar
TIL hvers er R-listinn að
biðja fólk um ábendingar
sem þeir hunsa algerlega.
Sem dæmi vil ég nefna:
Strætisvagnaskýli fyrir ut-
an Laugaveg 178, sem held-
ur hvorki vatni né vindi og
örugglega sérhannað fyrir
R-listann. Hefði Sjálfstæð-
isflokkurinn verið við völd
hefði verið búið að ansa
þessari ábendingu fyrir
löngu. Margoft hefur verið
kvartað um þennan skúr/
skýli og birtar myndir af í
blöðunum, en ekkert bólar
á aðgerðum til breytingar á
skýlinu og mun ekki verða í
valdatíð R-listans.
Kt. 230626-4059.
Dúnkoddar
í óskilum
DÚNKODDAR fundust
fjúkandi og eru þeir í óskil-
um á Digranesheiði í Kóp-
vogi. Upplýsingar í síma
554 3774 eftir kl. 17.
Gullarmband
týndist
GULLARMBAND, líklega
eina sinnar tegundar hér-
lendis, tapaðist helgina 15.-
16. desember sl. Eigandi
armbandsins var á ferð við
hjúkrunarheimilið Holts-
búð í Garðabæ, við IKEA
og við Ársali 5, Kópavogi,
þennan dag.
Finnandi getur hringt í
Sigurbjörgu í síma
554 5701, í Berglindi síma
561 4707, eða skilað því í
upplýsingar Mbl. merkt
Berglind/bókasafn. Fund-
arlaun.
Tapað/fundið
Telpuúlpa týndist
LJÓSBLÁ telpuúlpa týnd-
ist fyrir ca viku til 10 dögum
á leiksvæði við leikskólann í
Efra-Breiðholti, Fella-
hverfi. Þeir sem gætu gefið
upplýsingar hafi samband í
síma 557 4336. Fundarlaun.
Handklæði
SONUR minn týndi hand-
klæðinu sínu í byrjun árs-
ins. Það er ljósblátt og á
það er saumað Hauka-
merkið og nafnið Sigurður
Gunnar. Ef einhver hefur
uppl. um handklæðið þá
vinsamlega hafið samband
við Sigurbjörgu í síma 565-
1943 eða 692-6784.
Dýrahald
Kattmann
er týndur
KATTMANN týndist frá
Digranesheiði 41 í Kópa-
vogi og er sárt saknað.
Hann er svartur og hvítur
ca 11⁄2 árs högni. Ef einhver
hefur séð hann þá vinsam-
legast látið vita í síma
568 2658 eða 691 7010.
Kettlingur
í óskilum
KETTLINGUR fannst við
Klausturhvamm 15 í Hafn-
arfirði. Þetta er gulbrönd-
óttur fress sem er mjög
gæfur og saknar þess að
koma heim. Nánari upplýs-
ingar í síma 565 4671 eða
690 8973.
Hamstrabúr
óskast
ÞRJÚ systkini í Vestur-
bænum langar í hamstra en
eiga ekki búr og eru þau að
vonast til að einhver geti
gefið þeim gamalt búr sem
er ekki lengur í notkun.
Vinsamlega hafið samband
við Kristján í síma
552 6737.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fagnar því að loksins,loksins hafi Skífan kyngt stolt-
inu og viðurkennt að hugsanlega hafi
verðið á geislaplötum verið orðið ívið
of hátt. Verðlækkunin um allt að 9%
sem tilkynnt var um síðustu helgi er
svo sem engin himnasending og nær
ekki að leiðrétta þá miklu verðhækk-
un sem átti sér stað á heildsöluverði
fyrir síðustu jól en henni ber samt að
fagna. Hún er spor í rétta átt og vitn-
isburður um að Skífumenn eru orðnir
sér meðvitandi um þá annars aug-
ljósu staðreynd að rétta leiðin til þess
að lifa af sívaxandi samkeppni frá
Netinu og ólöglegri fjölföldun sé að
lækka verðið á geislaplötunni úti í
búð. Gera hana á ný að vöru sem al-
menningur – og þá einkum stærsti
kaupendahópurinn; unga, févana
fólkið – telur sig hafa efni á að fjár-
festa í.
x x x
MÁLIÐ er nefnilega að geisla-plata er af langflestum álitin
munaðarvara sem hægt er að vera án,
t.d. með því einfaldlega að hlusta tón-
list í gegnum útvarpið eða Netið, fá
lánaða hjá náunganum og afritað með
auðveldum hætti. Ef verð á geisla-
plötunni er orðið það hátt að hinn al-
menni neytandi verður virkilega að
líta í pyngjuna og velta alvarlega fyrir
sér hvort hann hafi efni á að leyfa sér
slíkan munað þá er voðinn vís fyrir
geislaplötusalana. Salan á geislaplöt-
um ku ekki hafa verið sem skyldi
undanfarna mánuði. Auðvelda skýr-
ingin er að skella skuldinni á ólöglega
fjölföldun en Víkverji telur að ekki
megi horfa framhjá verðhækkuninni í
desember og hvað geislaplatan var í
raun orðin dýr. Með öðrum orðum þá
telur Víkverji að verðið hafi verið
komið á hættusvæði, sem hleypti af
stað viðvörunarbjöllum í höfðinu á
neytendum er þeir litu á verðmiðann.
Auðvitað eru á vissan hátt eðlileg
viðbrögð þegar hart er í ári og auka
þarf tekjurnar að hækka álagninguna
en önnur leið er líka fær, sérstaklega
þegar munaðarvara eins og geisla-
plata er annars vegar, að lækka
álagningarverðið svo mikið að neyt-
andinn telur sig á ný hafa efni á að
kaupa sér vöruna – og það oftar en
áður. Einnig eykur slíkt líkurnar á
því að neytendur sem steinhættir
voru að kaupa vöruna fari að gera það
á ný. Tekjurnar koma kannski hægar
í kassann þannig en þær koma þó inn.
x x x
VÍKVERJI er sannfærður um aðmeð lækkandi geislaplötuverði
líði brátt að því að neytandinn meti
stöðuna sem svo að hann nenni ekki
að standa í því að afrita – það taki því
hreinlega ekki – því verðmunurinn sé
svo lítill. Þá fer líka fleira að spila inn
í. Eins og t.d. að auðvitað vilja allir
eiga upprunalega útgáfu frekar en
einhverja heimatjaslaða eftirprentun
sem verri er að gæðum í alla staði. Og
svo má ekki gleyma blessaðri sam-
viskunni. Þegar menn eru argir út í
geislaplötusalann vegna háa verðsins
veigra þeir sér ekki við að snúa baki
við samviskunni og standa í ólöglegri
fjölföldun. En þegar allt kemur til alls
trúir Víkverji því innilega að allir vilji
vera heiðarlegir og löghlýðnir – hafi
þeir efni á því það er að segja.
Verðlækkun Skífunnar um allt að
9% mun ekki valda svo gagngerri
hugarfarsbreytingu en hún er vissu-
lega spor í rétta átt og nú er bara
halda slíku áfram og sigrast á ólög-
hlýðninni!
VIÐ vinirnir vorum að
lesa í Morgunblaðinu um
helgina að það ætti að
læsa geisladiskum hjá
Skífunni. Við höfum ver-
ið að fjárfesta undanfarið
í Playstation 2 og notum
hana ekki bara fyrir
tölvuleiki heldur líka
DVD myndir og til að
spila CD geisladiska á.
Nú langar okkur að vita
hvort það verði hægt að
spila hina læstu CD
geisladiska í Playstation
2 eða ekki því þetta skipt-
ir okkur miklu máli.
Vinir.
Fyrirspurn til Skífunnar