Morgunblaðið - 12.05.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NEFND sem fjallaði um umsækjend-
ur um starf lektors/dósents í forn-
leifafræði við heimspekideild Haskóla
Íslands hefur skilað áliti þar sem
komist er að þeirri niðurstöðu að tveir
umsækjendur séu hæfir til að gegna
stöðu lektors, þar af annar einnig til
að gegna stöðu dósents. Tveir eru
hins vegar ekki taldi hæfir til að
gegna þessum störfum. Nokkra at-
hygli hefur vakið innan Háskóla Ís-
lands hversu stór orð eru notuð um
verk þeirra, en þar er m.a. talað um
„ábyrgðarleysi“, „dómgreindarleysi“
og einn umsækjandi er sakaður um að
hafa með rannsókn sinni farið illa með
almannafé.
Í dómnefndinni sátu Guðrún Svein-
bjarnardóttir fornleifafræðingur, sem
var formaður nefndarinnar, Helgi
Þorláksson prófessor í sagnfræði og
John Hines prófessor í fornleifafræði.
Umsækjendur um stöðuna voru
fornleifafræðingarnir dr. Bjarni F.
Einarsson, dr. Margrét Hermanns-
Auðardóttir, dr. Orri Vésteinsson og
Steinunn Kristjánsdóttir. Steinunn er
sú eina af umsækjendum sem ekki
hefur lokið doktorsprófi.
Dómgreindarleysi
og sóun á almannafé
Dómnefndin taldi að Orri væri hæf-
ur til að gegna stöðu lektors og dós-
ents í fornleifafræði og að Margrét
væri hæf til að gegna stöðu lektors en
að hún uppfyllti ekki kröfur til að
gegna stöðu dósents. Bjarni og Stein-
unn voru hins vegar ekki talin hæf til
að gegna stöðunni. Bjarni er með
doktorspróf, en ekki er algengt að
þeir sem lokið hafa slíku prófi séu
dæmdir óhæfir til að gegna stöðum
við Háskóla Íslands.
Nokkur umræða hefur skapast inn-
an háskólans um hversu stór orð eru
höfð um Bjarna og Steinunni í dóm-
nefndarálitinu. Steinunn lagði fram
ófullgert handrit að doktorsritgerð
sem hún vinnur að. Í dómnefndar-
álitinu segir „að það lýsi skort á sjálfs-
gagnrýni og nánast dómgreindarleysi
að halda að svo hroðvirknislegt og
ófullburða verk geti orðið til fram-
dráttar umsókn um starf í háskóla“.
Almennt fær Bjarni neikvæða
dóma um verk sín, en tekið er fram að
hann vinni að jafnaði fagmannlega
sem fornleifafræðingur á vettvangi.
Um eitt af ritum Bjarna segir dóm-
nefndin að fullyrðingar hans séu ekki
„byggðar á neinum rökum, en það er
hreint og beint ábyrgðarleysi“. Um
rannsókn Bjarna við Kolgrafarfjörð
segir að tilgangi rannsóknarinnar
hafi ekki verið náð „og illa [hafi verið ]
farið með almannafé“.
Umsækjendur geta gert athuga-
semdir við dómnefndarálitin. Óvíst er
hvenær deildarfundur í heimspeki-
deild, sem greiðir atkvæði um um-
sækjendur, kemur saman.
Dómnefnd fjallaði um umsækjendur um stöðu lektors í fornleifafræði
Tveir dæmdir hæfir
til að gegna stöðunni
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að framkomin
ákæra á hendur Birni K. Leifssyni,
um mútugreiðslur vegna mála
tengdra Árna Johnsen, breyti að svo
stöddu ekki því samkomulagi sem
Reykjavíkurborg gerði við Björn um
byggingu íþróttamannvirkis í Laug-
ardal. Hún bendir á að borgin sé
einnig í margvíslegum samskiptum
við Ístak og ákæra á hendur einum
yfirmanna þess fyrirtækis breyti
heldur ekki því samstarfi sem borg-
in eigi við það fyrirtæki.
„Málið á eftir að fara sína leið í
gegnum dómskerfið og að fenginni
þeirri niðurstöðu meta menn sinn
gang. Eru menn ekki saklausir þar
til sekt er sönnuð?“ spyr borgar-
stjóri.
Fyrsta skóflustunga að 50 metra
yfirbyggðri keppnislaug og líkams-
ræktarstöð í Laugardal var tekin
um síðustu mánaðamót. Ingibjörg
segir að World Class, sem er í eigu
Björns, komi til með að eiga og reka
líkamsræktarstöðina og borgin sjái
um byggingu og rekstur laugarinn-
ar. Um aðskilda verkþætti sé að
ræða.
„Við gerðum samning um að ein-
stakir verkþættir yrðu boðnir út
sameiginlega, en hvor aðili fyrir sig
greiðir sinn hlut og fjármagnar.
Samspil að öðru leyti er ekkert
þarna á milli,“ segir Ingibjörg.
Aðeins er búið að bjóða út jarð-
vinnu vegna verksins, sem Reykja-
víkurborg og World Class stóðu
sameiginlega að, en útboð eiga eftir
að fara fram vegna annarra verk-
þátta. Reiknað er með að fram-
kvæmdum við mannvirkin verði lok-
ið um áramótin 2003/2004.
Byggingin verður á um 5.600 fer-
metrum, kostnaðaráætlun Reykja-
víkurborgar vegna keppnislaugar-
innar hljóðar upp á um 1 milljarð
króna og bygging líkamsræktar-
stöðvarinnar á að kosta um 1,5 millj-
arða króna.
Borgarstjóri um samstarf við Björn K. Leifsson og Ístak
Engin breyting
verður að svo stöddu
SÖFNUÐUR Maríukirkju í Breið-
holti fór í sína árlegu pílagrímsferð
til Kristskirkju á Landakoti í gær.
Fjöldi fólks tók þátt í pílagríms-
ferðinni. Gengið var frá kirkjunni
við Raufarsel niður Mjóddina og um
göng undir Reykjanesbraut, þaðan
niður Fossvogsdalinn, í Nauthóls-
vík og til Kristskirkju. Alla leiðina
söng fólkið sálma, bað bænir og var
einnig lesið úr ritningunni.
Sr. Jakob Rolland, sóknarprestur
í Jósefskirkju, segir að pílagríms-
ferðir séu táknrænar fyrir ferð
mannanna til Guðs. „Við erum
ferðalangar á jörðinni á leiðinni til
Guðs og er Jesús Kristur vegurinn
sem leiðir okkur til föður síns,“ seg-
ir sr. Jakob. Á öldum áður voru
farnar pílagrímsferðir til Skálholts
í kringum Þorlákshátíðina 20. júlí,
einnig fóru Íslendingar mikið til
Noregs að gröf heilags Ólafs.
Maímánuður er tileinkaður
Maríu mey, að sögn sr. Jakobs, og
því velji Maríukirkja að fara í píla-
grímsferð í þessum mánuði. Frá
Jósefskirkju er farið í pílagríms-
ferðir í september. Um 5.000 manns
eru í kaþólsku kirkjunni á Íslandi.
Árleg pílagrímsferð Maríukirkju
Morgunblaðið/Kristinn
YFIRKJÖRSTJÓRN Blönduós-
bæjar og Engihlíðarhrepps hefur
í kjölfar niðurstöðu Héraðsdóms
Norðurlands vestra ákveðið að
taka lista bæjarmálafélagsins
Hnjúka gildan vegna komandi
sveitarstjórnakosninga. Gunnar
Sig. Sigurðsson, formaður yfir-
kjörstjórnar, segir að ekki hafi
verið annað ráð en að taka fram-
boðið gilt, ekki hafi komið til
greina að áfrýja niðurstöðu hér-
aðsdóms til Hæstaréttar.
Gunnar segir að yfirkjörstjórn-
in hafi fyrst og fremst verið að
vinna eftir gildandi lögum um
kosningar til sveitarstjórna, þar
sé skýrt kveðið á um framboðs-
frest.
Yfirkjörstjórn hafði áður fellt
þann úrskurð að taka framboð
Hnjúka ekki gilt þar sem listinn
barst 11 mínútum of seint þegar
auglýstur framboðsfrestur rann
út á hádegi laugardaginn 4. maí sl.
Bæjarmálafélagið leitaði fyrst til
félagsmálaráðuneytisins til að fá
úrskurði yfirkjörstjórnar hnekkt
en ráðuneytið vísaði málinu frá.
Því ákváðu hnjúkamenn að fara
fyrir dómstóla og fékk málið sér-
staka flýtimeðferð.
Framboðslistar í Blönduósbæ
og Engihlíðarhreppi verða því
þrír hinn 25. maí nk., auk Á-lista
Hnjúka eru það D-listi Sjálfstæð-
isflokks og H-listi Vinstrimanna
og óháðra.
Yfirkjörstjórnin á Blönduósi
Listi Hnjúka
tekinn gildur
HARALDUR Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvars-
sonar hf. á Akranesi, segir í pistli
sínum á vefsíðu
fyrirtækisins að
auðlindagjald
sem Alþingi sam-
þykkti að leggja
á sjávarútveg sé
staðreynd sem
ekki verði horft
framhjá. Með því
sé verið að leggja
sérstakan skatt á
helsta atvinnuveg
þjóðarinnar, sjáv-
arútveginn. Nærri láti að 85–90% af
kvóta landsmanna séu hjá fyrir-
tækjum við sjávarsíðuna um landið.
„Þess vegna kasta ég fram þeirri
hugmynd að landsbyggðarskattur-
inn verði nýttur á þeim stöðum þar
sem hann er tekinn. Mér finnst eðli-
legt að hann sé nýttur til þess að
efla viðkomandi byggðarlög til þess
að takast á við samkeppnina við höf-
uðborgarsvæðið, t.d. hvað varðar
uppbyggingu íþróttamannvirkja,
mennta-, menningar- og heilbrigð-
ismála og til atvinnuuppbyggingar,“
segir Haraldur og telur að krafan
um að nýta landsbyggðarskattinn á
þeim stöðum sem hann sé tekinn
geti bætt samkeppnisstöðu sjávar-
byggðanna.
Högg á landsbyggðina
Haraldur hvetur alla þá sem eru í
framboði til sveitarstjórna að íhuga
þessi mál og setja þau á oddinn fyr-
ir komandi kosningar.
„Álagning auðlindagjalds gæti
orðið eitthvert mesta högg sem
landsbyggðinni hefur verið veitt ef
ekki verður brugðist við með réttum
hætti. Aðalatriðið er að fjármagnið
sé ekki flutt í burtu heldur verði það
nýtt í heimabyggð,“ segir Haraldur.
Hann segir jafnframt að sumir al-
þingismenn, og aðrir sem hafi tjáð
sig á opinberum vettvangi, telji auð-
lindagjaldið smánarlega lágt. Þeim
finnist hvergi nærri nóg að leggja á
Vestmannaeyjar nýjan skatt, þar
sem reikningurinn hljóði upp á um
200 milljónir króna á ári. Haraldur
segir að þetta þýði einnig að 7 millj-
ónir verði fluttar suður frá Grímsey,
100 milljónir fari frá Ísafirði og 110
milljónir frá Akranesi, svo dæmi
séu tekin. „Ég segi suður vegna
þess að féð rennur til Reykjavíkur
nema kröfur verði gerðar um ann-
að.“
Verði nýtt
á þeim
stöðum sem
það er tekið
Haraldur
Sturlaugsson
Framkvæmdastjóri
Haraldar Böðvarssonar
hf. um auðlindagjaldið
HARÐUR árekstur varð skammt
utan við Strandará við Reyðar-
fjörð í fyrrakvöld þegar tveir
fólksbílar skullu saman á blind-
hæð. Fjórir voru í bílunum og voru
þrír þeirra fluttir til aðhlynningar
á Fjórðungssjúkrahúsið á Nes-
kaupstað. Að sögn vakthafandi
læknis voru meiðsl þeirra ekki al-
varleg og fengu þremenningarnir
að fara heim af sjúkrahúsinu í
gær.
Aðkoma á slysstað var ljót, að
sögn lögreglunnar á Eskifirði, og
eru bílarnir stórskemmdir eftir
áreksturinn.
Reyðarfjörður
Harður
árekstur á
blindhæð
BIKARMEISTARAR Hauka í
handknattleik karla fengu góð-
an liðsstyrk í gær er Litháinn
Robertas Pauzuolis, sem leikið
hefur með Selfyssingum og
Frömurum, skrifaði undir 3 ára
samning við Hafnarfjarðarliðið.
Pauzuolis, sem er öflug skytta,
er annar leikmaðurinn sem
Haukar fá frá Selfyssingum á
skömmum tíma en á dögunum
gekk hornamaðurinn Þórir
Ólafsson til liðs við félagið.
Pauzuolis
í Haukana