Morgunblaðið - 12.05.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 12.05.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. f í t o n / s í a www.bi.is Þú fellur aldrei á tíma í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans GERT er ráð fyrir að utanríkisráð- herrar Atlantshafsbandalagsins og Rússlands muni ganga efnislega frá samkomulagi um nýjan samráðs- vettvang bandalagsins og Rússlands á fundi utanríkisráðherra NATO og samstarfsríkja þess í Reykjavík 14. og 15. maí. Formleg undirritun sam- komulagsins fer síðan fram á fundi þjóðarleiðtoga bandalagsins og Rússlands í Róm 28. maí. ,,Þó að efnislega séð marki Reykjavíkurfundurinn þessi tíma- mót, sem allir hafa verið að vonast eftir, verður þjóðarleiðtogum vænt- anlega látið eftir að ýta þeim úr vör í Róm,“ segir Gunnar Pálsson, fasta- fulltrúi Íslands hjá Atlantshafs- bandalaginu í Brussel. Gengið frá ,,Rómaryfir- lýsingunni“ í Reykjavík Reykjavíkurfundurinn markar ekki einungis tímamót hvað þetta varðar heldur er hann einnig mjög þýðingarmikill áfangi varðandi að- lögun bandalagsins að nýjum að- stæðum sem ganga þarf frá fyrir leiðtogafund NATO í Prag í lok nóv- ember, að sögn Gunnars. Skipulagn- ing og framkvæmd Reykjavíkur- fundarins hefur farið fram á Íslandi en málefnavinnan hefur farið að meira eða minna leyti fram í Brussel að sögn Gunnars. ,,Við vinnum að sjálfsögðu í nafni stjórnvalda heima fyrir og í samráði við þau, en þegar komið er til fundarins í Reykjavík verður búið að taka saman bæði yf- irlýsingu fundarins og fjölmargar skýrslur um hvað eina sem ráðherr- arnir vilja ræða eða álykta um. Það er gríðarlega mikil vinna við slíkan undirbúning,“ segir Gunnar. Gunnar segir allt útlit fyrir að tak- ast muni að ljúka allri efnislegri vinnu og ná samkomulagi með Rúss- um um öll megin atriði hins nýja samráðsvettvangs fyrir fundinn. Ut- anríkisráðherrarnir muni svo leggja blessun sína yfir þrennt á fundinum í Reykjavík. ,,Þeir munu samþykkja fyrir sitt leyti starfsreglur nýs sam- ráðsvettvangs NATO og Rússlands, þeir munu líka samþykkja starfs- áætlun þessa nýja ráðs og sam- þykkja svo fyrir sitt leyti og til áframsendinga, það sem við höfum kallað hér innanhúss ,,Rómaryfirlýs- inguna“, sem leiðtogarnir munu svo samþykkja og undirrita í Róm 28. maí,“ segir Gunnar. Hann segir Reykjavíkurfundinn einnig þýðingarmikinn að því leyti að á honum þurfi utanríkisráðherr- arnir að komast að niðurstöðu um þær spurningar sem svara verði á leiðtogafundinum í Prag, m.a. varð- andi aðlögun bandalagsins að nýjum aðstæðum sem við blasa, ekki síst í baráttunni gegn hryðjuverkamönn- um. ,,Við erum því að hefja gríðarlega umfangsmikla vinnu í Reykjavík sem ljúka á fyrir Pragfundinn. Þýðing Reykjavíkurfundarins er ekki síst fólgin í því að hann er ákaf- lega mikilvægur áfangi á þessari leið til Prag í lok nóvember,“ segir Gunnar. Gunnar Pálsson, fastafulltrúi hjá NATO, segir fundinn afar þýðingarmikinn Getur markað tímamót í sam- skiptum NATO og Rússlands FASTEIGNAVERÐ í Þingholtun- um í Reykjavík hefur farið hækkandi á síðustu mánuðum, einkum á stórum og vel staðsettum einbýlis- húsum og er til dæmi um að kaup- endur hafi keppst um hús sem á end- anum seldist á rúmar 100 milljónir króna. Algengt markaðsverð fyrir einbýlishús á svæðinu er hins vegar talið vera á bilinu 40 til 50 milljónir króna, að sögn fasteignasala sem Morgunblaðið ræddi við. Sverrir Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Eignamiðlunar, segist hafa þá reynslu undanfarið af Þing- holtunum að þar hafi verðið verið að hækka nokkuð frá því sem áður var og eftirspurn aukist eftir því. „Við höfum á síðustu misserum selt mörg hús í Þingholtunum. Eft- irspurnin er mikil og við höfum feng- ið gott verð fyrir þessar fasteignir, þær hafa farið fljótt. Hverfið er greinilega mjög vinsælt, enda gróið og sum húsanna ákaflega falleg, með þeim fallegustu frá sínum bygging- artíma. Húsin eru í misjöfnu ástandi en það virðist ekki skipta kaupendur máli. Stundum hefur skapast biðröð hjá okkur, eftirspurnin hefur verið slík. Við erum með marga kaupend- ur á okkar lista og sumir eru tilbúnir að greiða fyrir gott hús í Þingholt- unum með einni ávísun. Framboðið hefur bara ekki verið mikið,“ segir Sverrir og bendir á að ekkert ein- býlishús í Þingholtunum sé nú á skrá hjá Eignamiðlun. Jón Guðmundsson hjá Fasteigna- markaðnum segir að eftirspurn eftir góðum fasteignum í Þingholtunum sé langt umfram framboðið. Dæmi um 100 milljóna tilboð Hann kannast við að hafa verið með undir höndum tilboð upp á um 100 milljónir króna frá kaupanda í tiltekið hús á góðum stað, en hærra tilboði hafi verið tekið. Jón segir að hér sé um einstakt tilfelli að ræða sem endurspegli ekki markaðsverð í Þingholtunum, þetta hafi verið hús í sérflokki sem miklu hafi verið kostað til í endurbótum og lagfæringum. Markaðsverðið á svæðinu sé miklu nær því að vera frá 40 og upp undir 50 milljónir fyrir gott einbýlishús. Mikil eftirspurn eftir ein- býlishúsum í Þingholtunum COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að í ljósi breyttra tíma beri að endurmeta staðsetningu herafla Bandaríkjamanna. Powell kveðst vita að þessi mál séu afar viðkvæm á Íslandi. „En vegna þess að aðstæður hafa breyst tel ég ekki ósanngjarnt að endurmeta stað- setningu herafla okkar. Okkur ber að spyrja hvort við séum á réttum stöð- um í ljósi breyttra tíma. Það er líka nauðsynlegt að endurmeta skipulag hersins og sjá hvort það sé skynsam- legt. Og ég vona að okkur takist að sannfæra vini okkar og bandamenn um að ef við teljum að breytinga sé þörf á yfirstjórn hersins sé því ekki tekið á þann veg að verið sé að draga úr vægi samstarfsins. Það má heldur ekki túlka það sem áhugaleysi eða að verið sé að draga máttinn úr innviðum NATO. Við lítum frekar á þetta sem stjórnskipulegar aðgerðir og bætta stjórnunarhætti,“ segir utanríkisráð- herrann ennfremur. Colin Powell Breyttar aðstæður kalla á endurmat  Tel ekki/10–11 GUÐJÓN Þórðarson og læri- sveinar hans í Íslendingaliðinu Stoke City tryggðu sér í gær sæti í ensku 1. deildinni með því að bera sigurorð af Brentford, 2:0, í úrslitaleik á Þúsaldarvell- inum í Cardiff. Deon Burton skoraði fyrra markið á 15. mín- útu eftir hornspyrnu Arnars Gunnlaugssonar og síðara markið, sem var sjálfsmark, kom á 42. mínútu eftir fasta aukaspyrnu Bjarna Guðjóns- sonar. Bjarni lék allan tímann fyrir Stoke en Arnari var skipt útaf á 75. mínútu. Ívar Ingi- marsson var í liði Brentford all- an leikinn en Ólafur Gottskálks- son sat á bekknum. Gríðarlegur fögnuður braust út hjá stuðn- ingsmönnum Stoke eftir leikinn en fjögur ár eru liðin frá því fé- lagið lék síðast í 1. deild. Guðjón var spurður eftir leik- inn hvort hann yrði áfram með liðið en hann kvaðst ekki vita það. Málið væri í höndum stjórnar Stoke en hann sagðist á tveimur og hálfu ári hafa lokið því verki sem hann ætlaði sér að gera, það er að koma liðinu í upp í 1. deild. Stoke í 1. deildina ÞEGAR er uppselt á fjölda við- burða á Listahátíð í Reykjavík, sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri setti í Borgarleikhús- inu í gær. Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, segir að fjöldi þeirra sem koma fram á hátíðinni skipti hundruðum, innlendir listamenn séu hátt á fjórða hundrað og erlendir á ann- að hundrað. Miðasala á hátíðina hefur gengið mjög vel og er þegar uppselt á stóran hluta hennar. Heildarkostnaðaráætlun hljóðar upp á 120 milljónir króna og er rúmlega helmings þeirrar upp- hæðar aflað með miðasölu og styrkjum frá samstarfsaðilum, sem mun vera hátt hlutfall. „Listiðkun og listnautn stendur sífellt betur undir nafni sem al- menningseign og sú skoðun gerist útbreidd að hvort tveggja sé mik- ilsverður hluti af lífsgæðum og óaðskiljanlegur hluti af nútíma- nlegum borgarbrag,“ sagði borg- arstjóri meðal annars. 17. Listahátíð í Reykjavík sett við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu Morgunblaðið/Kristinn Litadýrð og leikgleði einkenndi hóp fjöllistamanna sem léku listir sínar við upphaf Listahátíðar í gær. Fjöl- listamennirnir tilheyra hópnum Mobile Homme, sem starfar með Transe Express í Frakklandi. Hópurinn vakti heimsathygli við árþúsundamótin í París með tilkomumiklu sjónarspili við Pompidou-nýlistasafnið. Þegar upp- selt á stór- an hluta há- tíðarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.