Morgunblaðið - 12.05.2002, Page 60

Morgunblaðið - 12.05.2002, Page 60
UM daginn var Stuttmynda-hátíð grunnskóla í Reykja-vík haldin í 21. skipti. ÍTR veitti verðlaun í tveimur aldurs- flokkum, 10–12 ára og 13–16 ára. „Það voru aðalmennirnir í kvik- myndagerð í dag sem byrjuðu á þessu á sínum tíma,“ segir Mar- teinn Sigurgeirsson umsjónarmað- ur hátíðarinnar og myndvers grunnskóla í Reykjavík sem um fjörutíu skólar hafa aðgang að. „Það voru bara tólf myndir sendar inn í þetta skiptið, en menningar- árið 2000 voru þær 26, því þá komu listamenn inn í skólana og það kveikir út frá sér,“ segir Margeir sem var þó mjög ánægður með myndirnar í ár. Í aldurshópi 10–12 ára vann 7. bekkur G í Grandaskóla fyrir myndina Lífið er hafið. Höfundar hennar eru Nína H. Þorkelsdóttir, Sigurður R. Þorkels- son, Ragnheiður R. Valgeirsdóttir, Þorsteinn S. Sveinsson, Sigrún Arnarsdóttir Johnsen, Sindri M. Stepensen, Óli B. Karlsson, Bjarni Frímann Bjarnason, Ólöf K. Helga- dóttir og Greipur Hjaltason. Og umsögn dómnefndar var hin besta: „Myndin bar af öðrum myndum í þessum flokki. Í myndinni hjálpast allt að, góð myndataka, vel úthugs- aður söguþráður, góð persónusköp- un og ágætur leikur.“ Morgunblaðið hafði samband við einn að aðstandendunum, Nínu H. Þorkelsdóttur, og óskaði henni til hamingju með árangurinn. „Já, takk,“ segir Nína og bætir við að það hafi verið mjög skemmti- legt að gera myndina. „Þetta er fyrsta alvörumyndin sem ég er með í að búa til.“ Nína segist hafa skrifað hand- Sakamál, hryll- ingur og spenna Morgunblaðið/Jim Smart Þau voru stolt með vinningspeninginn um hálsinn. Aftari röð f.v.: Ragnheiður, Ólöf, Sigrún, Greipur og Sigurður. Fremri röð f.v.: Bjarni, Nína, Sindri, Óli og Þorsteinn. Stuttmyndahátíð grunnskóla 60 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 370. Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd sumarsins er komin til Íslands.  kvikmyndir.is  MBL Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Ísl tal. Vit 358. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl 4, 6, 8 og 10. Vit 367  kvikmyndir.is Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375. „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ Frumsýning Frumsýning Með hasargellunum Milla Jovovich The Fifth Element og Michelle Rodriguez The Fast and the Furious. Frá leikstjóra Event Horizon. Hasartryllir ársins. Sýnd kl. 5.45 og 8.30. Vit 380. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Frá framleiðendum Austin Powers 2 kemur þessi sprenghlægilega gamanmynd um mann sem leggur allt í sölurnar til að fara á vit ævintýranna. Annað eins ferðalag hefur ekki sést! Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 379. Jim Carrey í hreint magnaðri mynd sem kemur verulega á óvart Einnig sýnd í lúxussal VIP Hvernig er hægt að flýja fortíð sem þú manst ekki eftir? FRÁ LEIKSTJÓRA THE SHAWSHANK REDEMPTION OG THE GREEN MILE. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 16. Vit 377. Sýnd í lúxus kl. 3.15, 6.15 og 10. Mán kl. 6.15 og 10. B. i. 16. Vit nr. 380. Lokað til 16.maí vegna NATO fundar Þann 16. maí munu sýningar hefjast á Apocalypse Now: Redux (Dómsdagur Nú: Sérútgáfan).52 mín hefur verið bætt við sem gerir myndina að heil- steyptu meistaraverki. Myndin verður aðeins sýnd í nokkra daga á stærsta sýningartjaldi landsins. Ekki missa af einstakri bíóupplifun. LEIKSTJÓRI: Francis Ford Coppola. Eftirtaldar myndir verða einnig áfram til sýninga Scorpion King You Can Count on Me Mulholland Drive John Q ÍSLENSKT rapp er löngu bú-ið að slíta barnsskónum, sex áreru síðan Quarashi sendi frásér fyrstu smáskífuna og Subterranean fyrstu lög- in. Margar aðrar sveitir voru starf- andi í íslensku hip- hop þá og enn fleiri hafa látið í sér heyra síðar. Þrátt fyr- ir það hefur íslenski hip- hop-heimurinn ekki verið eins áberandi og vert væri, ekki eins mikið heyrst af tónlistinni og sveitirnar sem hana hafa skapað hafa vissulega átt skilið. Síðasta ár var ár vorsins í íslensku rappi, ekki bara fyrir það að sífellt fleiri virt- ust vera að fást við tónlistina, heldur líka vegna þess að loks- ins tóku menn að gefa út plötur með íslensku hiphop, ekki bara Rottweilerhundarnir heldur líka Sesar A, Messías, Afkvæmi Guð- anna og Skytturnar frá Akureyri. Allar þessar sveitir notuðu íslensku til að koma boðskap sínum til skila, hvort sem sá boðskapur var gal- gopaleg skreytni, beittar árásir á yfirdrepsskap og hræsni, eða djúp- ar pælingar um lífið og tilveruna. Skytturnar frá Akureyri sendu frá sér disk í mjög takmörkuðu upp- lagi á síðasta ári og áttu síðan lög í kvikmyndinni Gemsum og á disk sem gefinn var út með tónlistinni úr þeirri mynd. Sveitina skipa Styrmir Hauksson, Sigurður Kristinn Sig- tryggsson, Heimir Björnsson, Gunnar Líndal Sigurðsson og Hlyn- ur Ingólfsson. Þeir félagar hafa starfað saman í um þrjú ár, hétu fyrsta árið Definite Skillz og röpp- uðu á ensku en sneru sér síðan að íslensku. „Allir áhrifavaldar okkar á þessum tíma röppuðu á ensku og það heyrðist varla í neinum íslensk- um hiphop-böndum, þannig að það er kannski eðlilegt að við skyldum hafa byrjað á ensku. Við skiptum aftur á móti yfir í íslensku vegna þess að það er einfaldara, maður getur miklu betur tjáð sig á íslensku þó maður skilji enskuna. Það skiptir líka máli að þeir sem hlusta á okkur skilja betur það sem við erum að segja. Það eru vitanlega til gaurar sem eru jafnvígir á bæði málin og það er ekkert að því að menn rappi á ensku, auðvitað mega menn ráða því hvernig þeir tjá sig.“ Margir hafa reyndar haft orð á því að það sé svo erfitt að rappa á íslensku og flæðið sé ekki eins gott og í ensku. Þeir félagar taka þó ekki undir það nema að litlu leyti, segja að víst hafi rappið hjá þeim verið hálfgert spýturapp en lagaðist eftir því sem sem menn fóru að skrifa meira. Þegar nefnt er íslenskt hiphop verður líkast til flestum hugsað til Rottweilerhundanna og krassandi texta þeirra, en þeir Skyttuliðar fara jafnan aðrar leiðir í sínum rím- um. Þeir segjast ekki gera út á vera hardcore, þeirra stíll sé til að mynda allt öðruvísi en hundanna; „við erum ekki hardcore, við erum ekki úr Breiðholtinu,“ segja þeir og kíma. „Við erum í öðrum pælingum, upp- lifum aðra hluti og segjum öðruvísi frá.“ Músíkin fyrir sveitina kemur aðallega frá Sig- urði Kristni og Styrmi, en hinir sjá um textana. Þeir segjast yfirleitt hafa með sér ákveðið samstarf, ræði um hvað hvert lag eigi að vera og yrki síðan samkvæmt því. Þó séu líka dæmi um að menn komi með tilbúna texta fyrir heilt lag ef þeim ligg- ur mikið á hjarta. Oft er það þannig að Sig- urður Kristinn kemur með takt og um leið og hann spilar hann fyrir fé- laga sína kviknar hugmynd af texta eða andanum í laginu. Það er einnig algengt að ekki sé hægt að leggja síðustu hönd á lag fyrr en textinn er tilbúinn, svo haldast í hendur taktur og texti. Fyrsti diskur þeirra félaga kom út á síðasta ári í mjög takmörkuðu upplagi, en alls voru brennd af hon- um sjötíu eintök. Getur nærri að upplagið er búið, en þeir segjast vera með breiðskífu í smíðum, hyggist taka upp stóra plötu í sum- ar. Þeir gáfu diskinn út sjálfir en segjast vera að svipast um eftir ein- hverjum sem vilji gefa næstu plötu út. „Ef við finnum aftur á móti eng- an sem vill gefa okkur út gerum við það sjálfir, við ætlum að koma út plötu í haust,“ sega þeir ákveðnir. Ekki má svo gleyma því að Skytt- urnar áttu lög í kvikmyndinni Gemsum sem frumsýnd var snemma á þessu ári eins og getið er, lagið Ég geri það sem ég vil. Þeir fé- lagar segja það hafa borið þannig að að Gunnar Lárus Hjálmarsson, sem margir kalla Dr. Gunna, heyrði Ég geri það sem ég vil á muzik.is, varð sér úti um diskinn og setti það lag í myndina og lagið Einskis nýtt líf einnig. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Skytturnar frá Akureyri Vorið í íslensku hiphop á síðasta ári skilaði fjölmörgum for- vitnilegum plötum sem margar voru gefnar út í takmörkuðu upplagi. Það á meðal var stuttskífa Skyttanna frá Akureyri. M or gu nb la ði ð/ K ris tin n

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.