Morgunblaðið - 12.05.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KYNNTU fiÉR STEFNUSKRÁNA Á WWW.XR.IS REYKJAVÍKURLISTINN
Reykjavík er
frístundaborg
Vi› munum
• Byggja vatnaparadís í Laugardal • Leggja 100 km af n‡jum göngu-,
hjóla- og rei›stígum • Gera átak í uppbyggingu á eldri sundlaugum og
íflróttamannvirkjum • Leggja fleiri sparkvelli fyrir almenning • Hvetja
til og styrkja auki› samstarf íflróttafélaga vi› skóla, félagsmi›stö›var,
eldri borgara og frjáls félagasamtök.
Vi› höfum
• Stórauki› framlög til íflróttamála og framkvæmdastyrki til íflróttafélaga • Endurn‡ja›
íflróttamannvirkin í Laugardal og byggt skautahöll • Hafi› byggingu 50 m. innisundlaugar
og heilsumi›stö›var í Laugardal • Lagt 11 n‡ja sparkvelli, n‡jan golfvöll vi› Korpúlfssta›i,
endurgert rei›höllina í Ví›idal, byggt íflróttahús í Vesturbæ og knattspyrnuhús í Grafarvogi
• Stórbætt a›stö›u til göngu, hlaups og hjólrei›a me› n‡jum stígum og göngubrúm.
ALÞJÓÐLEG friðarráðstefna,
sem bar yfirskriftina Friðsæl
framtíð, fór fram á Hótel Loftleið-
um í gær og í fyrradag. Samtök
herstöðvaandstæðinga stóðu að
ráðstefnunni sem tæplega eitt
hundrað ráðstefnugestir sóttu.
Fjórir erlendir fyrirlesarar
héldu erindi á ráðstefnunni. Ant-
hony Simpson frá Bertrand Rus-
sell-stofnuninni í Lundúnum, Sara
Flaunders, frá International Act-
ion Center, sem stóð um síðustu
helgi fyrir fjölmennum aðgerðum
friðarsinna í Washington og Jan
Öberg, frá TFF-friðarrannsóknar-
stofnuninni í Lundi í Svíþjóð.
Öberg er um þessar mundir að
ljúka gerð skýrslu stríðsglæpa-
dómstólsins í Haag um málefni
Makedóníu. Bandaríska baráttu-
konan Leanore Foerstel hugðist
sækja ráðstefnuna en þurfti að
hætta við þátttöku af heilsufars-
ástæðum og hljóp Bandaríkjamað-
urinn Joseph Gainza, sem hefur
um langt skeið verið framarlega í
flokki friðarsinna þar í landi, í
skarðið fyrir hana. Einnig hélt
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður
félagsins Ísland-Palestína, erindi á
ráðstefnunni.
Tæplega 100 manns
sóttu alþjóðlega
friðarráðstefnu
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri
Kópavogs, vígði nýtt húsnæði Bóka-
safns Kópavogs og Náttúru-
fræðistofu Kópavogs í Hamraborg
6a í gær, laugardag, en þá var jafn-
framt 47. afmælisdagur Kópavogs-
bæjar. Nýju húsakynnin eru ríflega
2.000 fermetrar og eru við hliðina á
Tónlistarskólanum í Kópavogi og
Salnum. Með vígslu húsnæðisins er
síðasti áfangi Menningarmiðstöðvar
Kópavogs tekinn í notkun.
Húsnæðið er á þremur hæðum og
verður bókasafnið starfrækt á um
1.400 fermetrum, þ.e. á hluta af jarð-
hæð, miðhæð og efstu hæð, og Nátt-
úrufræðistofan verður starfrækt á
um 500 fermetrum á fyrstu hæð
hússins. Á jarðhæð bókasafnsins má
m.a. finna bækur, tímarit, mynd-
bönd og fleira. Á miðhæð er m.a. að-
alþjónustudeild og á efstu hæðinni
er m.a. barnadeild safnsins. Bæj-
arbókavörður er Hrafn Harðarson.
Náttúrufræðistofan verður, eins
og áður segir, einungis starfrækt á
jarðhæð. Þar verður m.a. sérstök
sýningardeild með safni nátt-
úrugripa. Þar má m.a. finna safn lin-
dýra, skelja og kuðunga, ennfremur
úrval uppstoppaðra fugla og ann-
arra dýra. Aukinheldur rekur Nátt-
úrufræðistofa sérstaka rann-
sóknadeild á sviði vatnalíffræði.
Forstöðumaður Náttúrufræðistofu
er Hilmar Malmquist.
Opið hús verður í nýja húsnæðinu
í dag, sunnudag, kl. 13 til 17 en þá
gefst gestum færi á að kynna sér
hina nýju aðstöðu undir sérstakri
leiðsögn starfsmanna. Opið verður á
bókasafninu og náttúrufræðistof-
unni á mánudögum og fimmtudög-
um milli kl. 10 og 21, á föstudögum
milli kl. 11 og 17.
Benedikt Gunnarsson
heiðurslistamaður
Húsnæðið var formlega vígt um
kl. 14.30 en opnunarhátíðin sjálf
hófst um kl. 14 í Salnum þar sem
m.a. var tilkynnt val á heiðurslista-
manni Kópavogs. Var það Benedikt
Gunnarsson listmálari sem varð þess
heiðurs aðnjótandi.
Bókasafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs í nýtt húsnæði
Síðasti áfangi Menningarmið-
stöðvar Kópavogs tekinn í notkun
Morgunblaðið/Kristinn
Ríflega 2.000 fermetra húsnæði undir Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs var formlega tekið í
notkun í gær. Húsið er í Hamraborg 6a, við hliðina á Tónlistarskóla Kópavogs og Salnum í Kópavogi.
Bókasafn Kópavogs hefur um 1.400 fermetra til um-
ráða. Á efstu hæðinni er barnadeild safnsins og efni
sem tengist tónlist, myndlist og fl.
Dr. Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúru-
fræðistofu Kópavogs, leggur lokahönd á eina sýningu
safnsins með uppstoppuðum fuglum.
FRAMBOÐSLISTI Frjálslyndra
og óháðra, sem býður fram til
borgarstjórnar í sveitarstjórnar-
kosningum í vor, hefur á kosn-
ingabæklingi sínum þýtt slagorð
sitt; umhyggja, hreinskilni og rétt-
læti, yfir á fjögur önnur tungumál,
auk þess sem slagorðið er sýnt á
táknmálsmyndum fyrir heyrnar-
lausa. Tungumálin fjögur eru
enska, pólska, taílenska og filipp-
seyska.
Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokks-
ins, veit ekki til þess að þetta hafi
verið gert áður í kosningabaráttu
hér á landi en hún segir að til-
gangurinn sé að vekja athygli á
því að á Íslandi búi Íslendingar
sem tali önnur tungumál en ís-
lensku. „Þetta er tímanna tákn,“
segir hún, „vegna þess að við vit-
um um marga íslenska ríkisborg-
ara sem eru af erlendu bergi
brotnir. Með því að þýða slagorðið
viljum við sýna þessu fólki að við
munum eftir því.“ Það sama á við
um þá sem nota táknmál, segir
Margrét, því þeir eru ótrúlega ein-
angraðir.
Létu teikna táknmálsmyndir
Aðspurð segir Margrét að
Frjálslyndir og óháðir hafi fengið
mjög góð viðbrögð vegna þessara
þýðinga. „Og ég hef tekið eftir því
að margt af þessu fólki er það ein-
angrað að það veit varla að það
eru sveitarstjórnarkosningar
framundan sem það þyrfti að láta
sig einhverju skipta,“ segir hún.
Margrét segir að tungumálin sem
valin voru á kosningabæklinginn
hafi m.a. tekið mið af því að hér á
landi búa margir sem eiga rætur
að rekja til Póllands og Taílands.
Þá segir hún að framboðslistinn
hafi þurft að láta teikna táknmáls-
myndirnar sérstaklega fyrir bækl-
inginn því slíkt myndmál sé ekki
að finna í bókum.
Frjálslyndir
og óháðir
Slagorðið
á fimm
tungu-
málum
EINKUNNIR í samræmdu prófi í
stærðfræði í 10. bekk verða sendar
til grunnskólanna 20.-24. maí nk. en
heildarárangur í prófinu mun vænt-
anlega verða ljós í þessari viku.
Að sögn Sigurgríms Skúlasonar,
sviðsstjóra hjá Námsmatsstofnun,
er næstum lokið við að fara yfir próf-
ið. Aðspurður segir hann að ekkert
liggi fyrir um niðurstöður en sögu-
sagnir hafi verið á kreiki um mikið
fall.
Fjölmargar kvartanir bárust
Námsmatsstofnun vegna prófsins
sem var sagt mjög þungt og að mis-
ræmis hafi gætt milli þess og
kennsluefnis í vetur. Sigurgrímur
segir að í næstu viku verði lagst yfir
niðurstöður prófanna og þær at-
hugasemdir sem borist hafa. Sé
ástæða til komi til greina að fella nið-
ur einstakar spurningar á prófinu.
Námsmatsstofnun gefur út ein-
kunnir sem miðast annarsvegar við
hlutfall réttra svara en hinsvegar við
árangur nemenda miðað við lands-
meðaltal. Síðarnefndu einkunnirnar
hafa að jafnaði aðeins verið sendar
grunnskólunum en verði mikið fall á
prófinu segir Sigurgrímur að vænt-
anlega verði það lagt til að grunn-
skólarnir sendi þessar einkunnir
áfram til framhaldsskólanna.
Samræmt próf í
stærðfræði í 10. bekk
Heildar-
árangur ljós
í vikunni