Morgunblaðið - 12.05.2002, Page 8

Morgunblaðið - 12.05.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Menningarvaka Vestfirðingafélagsins Áhuginn virðist vera að glæðast Vestfirðingafélagiðrekur grósku-mikla starfsemi, auk styrktarsjóðs fyrir vestfirsk ungmenni eins og þar stendur og á næstunni er á dagskrá menningar- vaka á vegum félagsins. Haukur Hannibalsson er í stjórn félagsins og hann svaraði nokkrum spurn- ingum Morgunblaðsins er eftir því var leitað á dög- unum. – Segðu okkur eitthvað frá Menningarvöku Vest- firðingafélagsins, hvar verður hún, hvenær og hvað verður þar mönnum til skemmtunar? „Menningarvaka Vest- firðingafélagsins verður að þessu sinni haldin í félags- heimilinu Gullsmára, Gull- smára 13 í Kópavogi, hinn 14. maí og hefst klukkan 20. Menningar- vakan verður helguð minningu Sigríðar Valdemarsdóttur, fyrr- verandi talsímakonu, sem andað- ist í nóvember á síðasta ári, en Sigríður var formaður félagsins um áratugabil. Dagskrá vökunnar verður fjöl- breytt og má þar nefna að Aðal- steinn Eiríksson, fyrrverandi skólastjóri, minnist Sigríðar. Pét- ur Bjarnason framkvæmdastjóri flytur erindi sem hann kallar Sér- kenni Vestfirðingsins, Ragnar og Guðbrandur Torfasynir taka lag- ið, ungir dansarar úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar sýna dansa og Torfi Guðbrandsson, fyrrverandi skólastjóri, flytur ljóð eftir Guðmund Inga Kristjánsson frá Kirkjubóli. Ekki má gleyma rúsínunni í pylsuendanum en það er hinn landskunni skemmtikraft- ur Jóhannes Kristjánsson sem ætlar að kitla hláturtaugar gest- anna.“ – Segðu okkur aðeins frá Vest- firðingafélaginu, hvenær var það stofnað og hversu margir eru þar félagar? „Vestfirðingafélagið var stofn- að 16. desember 1940. Það verður því 62 ára á þessu ári. Í dag eru fé- lagarnir um 70. Eitt af markmið- um félagsins er að halda tengslum við átthagana og stuðla að kynn- um brottfluttra Vestfirðinga. Vestfirðingafélagið hefur starfað í 62 ár af mismikilum krafti. Und- anfarin ár hefur félagið eins og önnur átthagafélög átt erfitt upp- dráttar á stundum. Nú virðist áhugi fyrir félaginu vera að glæð- ast og á síðasta aðalfundi gengu inn nokkrir áhugasamir félagar sem allir eru á góðum aldri. Því verður að leiða líkum að því að áhugi fyrir félaginu fari vaxandi.“ – Hvað gerir félagið annað en að halda menningarvökur? „Að sjálfsögðu heldur félagið árlega sinn aðalfund í lok nóvem- ber og er þá jafnan eitthvað til gamans gert sem tengist árstíð- inni. Á vegum félagsins hefur ver- ið farið í fræðslu- og skemmtiferð- ir t.d. til Vestfjarða. Einnig er í tengslum við félagið afar merki- legt fyrirbæri sem er Menningarsjóður vest- firskrar æsku sem Sig- ríður Valdemarsdóttir stofnaði ár- ið 1967.“ – Hver er tilgangur menningar- sjóðsins? „Stofnun þessa sjóðs er ein- stakt framtak konu sem ekki hafði tök á að ganga menntaveginn, en langaði mikið til þess. Sigríður stofnaði þennan sjóð til minningar um foreldra sína þau Elínborgu Hannibalsdóttur og Valdemar Jónsson og móðursystur sína Matthildi Hannibalsdóttur. Sjóðnum var fyrst og fremst ætl- að að styrkja vestfirsk ungmenni sem ekki gátu stundað nám í sinni heimabyggð. Í stofnskrá sjóðsins segir meðal annars að þeir aðilar sem ganga fyrir styrkveitingum frá sjóðnum séu „vestfirsk ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður, einstæðar mæður svo og konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun“. Eins og fyrr sagði var sjóðurinn stofnaður fyrir lið- lega 30 árum og hlýtur að teljast einstakt framtak. Á aðalfundi fé- lagsins eru kosnir tveir einstak- lingar í stjórn sjóðsins en sá þriðji skal tilnefndur af afkomendum Valdemars og Elínar sem sjóður- inn er stofnaður til minningar um. Fjármögnun sjóðsins hefur verið frjáls framlög en þó aðallega leigutekjur af íbúð sem Sigríður átti. Hún arfleiddi sjóðinn að íbúð- inni eftir sinn dag, en hún greiddi allan kostnað af íbúðinni meðan hún lifði.“ – Er mikið sótt í sjóðinn? „Á hverju ári berast sjóðnum nokkrar umsóknir og frá stofnun hans hafa verið veittir 139 styrkir, misjafnlega háir eftir fjölda umsókna og framlögum til sjóðsins á hverjum tíma.“ – En ef við snúum okkur aftur að menningarvökunni, er hún öllum opin? „Allir eru velkomnir á þessa menningarvöku og ættu Vestfirð- ingar sem og aðrir að eiga saman góða stund í félagsheimilinu Gull- smára á þriðjudagskvöldið, 14. maí, njóta þjóðlegra veitinga og góðrar skemmtunar, en allur ágóði af menningarvökunni renn- ur til menningarsjóðsins.“ Haukur Hannibalssson  Haukur Hannibalsson er fæddur í Þernuvík í Ísafjarðar- djúpi 18. september 1941. Ólst upp á Hanhóli í Bolungarvík. Lauk námi við Iðnskólann í Reykjavík 1966. Sveinspróf í bif- vélavirkjun 1966. Hefur unnið við lyfjaframleiðslu í Borgartúni 6 frá 1968, fyrst hjá Lyfjaverslun ríkisins til 1994 að henni var breytt í Lyfjaverslun Íslands hf. og frá 1998 að Delta keypti fram- leiðsludeildir fyrirtækisins. Hef- ur setið í stjórn Skógræktar- félags Kópavogs, verið virkur félagi í Vestfirðingafélaginu og í stjórn Menningarsjóðs vest- firskrar æsku. Maki er Sigur- björg Björgvinsdóttir forstöðu- maður og eiga þau fimm börn, fimm tengdabörn og níu barna- börn. Hún arfleiddi sjóðinn að íbúðinni HAGKAUP opnuðu nýja verslun í Kringlunni í vikunni þar sem áður var Nýkaupaverslun og að sögn Finns Árnasonar framkvæmda- stjóra hafa viðtökur neytenda verið mjög góðar. Verðlag er mun lægra en Ný- kaup buðu upp á, að sögn Finns og segir hann að neytendur hafi tekið sérlega vel við sér á föstu- dag þegar sérstök opnunartilboð tóku gildi yfir helgina í öllum verslunum Hagkaupa. Rekstri Nýkaupaverslana hefur nú verið hætt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hagkaupum vel tekið í Kringlunni ♦ ♦ ♦ TIL stendur að leita að nýju hús- næði fyrir Hagstofu Íslands en gert er ráð fyrir að hún flytji snemma á næsta ári. Málið var á dagskrá á fundi rík- isstjórnarinnar í fyrradag. Skarp- héðinn B. Steinarsson, skrifstofu- stjóri í forsætisráðuneytinu, segir að vegna skipulagsbreytinga hjá Hag- stofunni, sem meðal annars tengist auknum verkefnum frá Þjóðhags- stofnun, henti núverandi húsnæði ekki lengur. Hagstofan flytur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.