Morgunblaðið - 12.05.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 12.05.2002, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í TILEFNI utanríkisráð-herrafundar Atlantshafs-bandalagsins í Reykjavík íþessari viku veitti Colin Po-well, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðtal þar sem rætt var um stækkun NATO, ástandið í Mið-Austurlöndum, hugsanlegar aðgerðir gegn Írak, togstreitu inn- an bandarísku ríkisstjórnarinnar og tengslin við Ísland. Bandaríkjamenn fagna stofnun NATO-Rússlands-ráðs í Reykjavík Á undanförnum mánuðum hefur ríkisstjórn Bush Bandaríkjaforseta lagt mikla áherslu á að styrkja tengslin við Rússland með ýmsu móti. Á þeim nótum segist Colin Powell telja „að helsta niðurstaða Reykjavíkurfundarins verði sam- komulag um stofnun NATO-Rúss- lands-ráðsins“. Hann bætir við: „Í því felst að Rússar verða boðnir velkomnir í nýjan hóp, að sjálf- sögðu ekki sem aðilar að Atlants- hafsbandalaginu, enda hafa þeir ekki lýst yfir áhuga á slíku og við teljum það heldur ekki við hæfi. Það er aftur á móti tímabært að Rússar starfi nánar með bandalag- inu á sviði málaflokka eins og hryðjuverka og baráttunnar við fíkniefni, sem og öðrum sem kunna að koma upp, þar sem það liggur í augum uppi að frekari samvinna á milli Atlanshafsbandalagsins og Rússa er beggja hagur.“ Bandaríkin eru þar af leiðandi dyggir stuðningsmenn stofnunar NATO-Rússlands-ráðsins. „Við horfum ekki eingöngu fram til þess að samningar náist um ráðið í Reykjavík, heldur líka til leiðtoga- fundar NATO og Rússlands á Ítal- íu í lok maí. Þar mun ráðið halda sinn fyrsta formlega fund þegar Pútín Rússlandsforseti og leiðtogar NATO-ríkjanna hittast í Róm.“ Aðspurður um stækkun NATO segir ráðherrann: „Það liggur ljóst fyrir að nýjum ríkjum verður boðin þátttaka í bandalaginu á leiðtoga- fundinum í Prag í haust. Hversu mörgum á enn eftir að koma í ljós. Ég finn að stuðningur fer vaxandi við að fleirum verði boðin þátttaka en færri, en get ekki sagt að svo stöddu hver sú tala verður. Við viljum sjá öll þau lönd sem hyggj- ast sækja um aðild vinna að því hörðum höndum og ekki ganga út frá neinu vísu á þessu stigi máls- ins.“ Þau lönd sem í daglegu tali þykja helst koma til greina við stækkun NATO, án þess þó að embættismenn séu tilbúnir að nefna þau opinberlega, eru, auk Eystrasaltslandanna þriggja, Búlg- aría, Rúmenía, Slóvakía og Slóven- ía. Hvað varðar hugmyndir um hugsanlega aðild Finnlands og Sví- þjóðar vill Powell sem minnst segja, enda um innanríkismál við- komandi landa að ræða. Á þeim ár- um sem liðin eru frá lokum kalda stríðsins hafa reglulega vaknað spurningar um mikilvægi Atlants- hafsbandalagsins og hvort þessi stofnun eigi enn fullan rétt á sér. Atlantshafsbandalagið skiptir enn máli? Utanríkisráðherra Bandaríkj- anna er ekki í nokkrum vafa um það: „Það er merkilegt að hugsa til þess að Atlantshafsbandalagið, sem er bæði stjórnmála- og hern- aðarlegt í eðli sínu, var stofnað til þess að mæta ógnun frá Sovétríkj- unum og hefur nú staðið af sér þá ógn. Takmarkinu er náð og Sov- étríkin eru liðin undir lok. Þetta gerðist þegar ég var formaður herráðs Bandaríkjanna, en allt mitt líf bjó ég mig undir að fara í þetta stríð sem síðan varð að engu. Rússneskir kollegar mínir lögðu niður Varsjárbandalagið og síðan funduðum við og þeir sögðu: Allt í lagi, við lögðum niður Varsjár- bandalagið, hvenær ætlið þið að losa ykkur við NATO? Atlantshafs- bandalagið var mótsvar við okkur og nú erum við á brott. Hvað með NATO? Spurningunni var ekki hægt að svara á einfaldan máta í fyrstu, en síðan varð svarið aug- ljóst: fleiri þjóðir vilja sækja um aðild. Jafnvel þótt Sovétríkin séu ei meir sjá fyrrverandi aðilar þeirra sem og Varsjárbandalagsins sér hag í að ganga í bandalag sem er ekki bara evrópskt, heldur tengt Norður-Ameríku og hefur áfram- haldandi pólitísku hlutverki að gegna jafnframt því að vera hern- aðarbandalag. Og til hvers, spyrja sumir. Til að berjast við Rauða herinn? Nei, til að fást við þær hættur sem enn steðja að í heiminum. Og til þess að samlaga heri aðildarríkjanna á skipulegan máta þannig að við get- um klárlega sýnt að við erum hóp- ur þjóða sem deila með sér sama gildismati hvað varðar lýðræði og frjálst hagkerfi og stöndum saman tilbúin til að vernda þau gildi. Erum við að leita að óvinum? Nei. En NATO er að störfum í Bosníu og Kosovo. Við fundum sem sagt óvini í Evrópu sem takast þurfti á við. Bandalagið þjónar þannig áfram ákveðnum tilgangi, bæði pólitískum og hernaðarlegum. Og það má ekki gleyma því að fljótlega eftir árásirnar á Banda- ríkin hinn 11. september var gripið til 5. greinar sáttmálans. Ekki af því að Rússarnir voru að koma, heldur vegna þess að hryðjuverka- menn höfðu gert árás á eitt af bandalagsríkjunum. Þetta sýnir glögglega mikilvægi bandalagsins. Það hefur meira að segja verið kvartað yfir því að NATO var ekki notað sem skyldi í Afganistan. En slíkt var ekki nauðsynlegt þótt bandalagið væri tilbúið til aðgerða. Það má svo benda á að eftirlits- flugvélar NATO (AWACS) voru notaðar í lofthelgi Bandaríkjanna allt fram í síðustu viku. Vélarnar voru smíðaðar til að fylgjast með ferðum rússneska flughersins ef kæmi til innrásar í Evrópu. Og til hvers eru þær svo notaðar 54 árum seinna? Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um NATO-fundinn í Reykjavík og um varnarliðið í Keflavík Eðlilegt að endurm staðsetningu herafl Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkj- anna, segist vonast eftir að samkomulag náist við Ísland um áfram- haldandi varnarsam- starf landanna, byggt á gagnkvæmum skilningi á breyttum ytri að- stæðum. Margrét Björgúlfsdóttir ræddi ásamt fjórum norræn- um blaðamönnum við Powell um utanríkis- ráðherrafund NATO, sem haldinn verður í Reykjavík í vikunni, og fleiri mál. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á blaðamannafundinum í Washington á föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.