Morgunblaðið - 12.05.2002, Síða 34
KIRKJUSTARF
34 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a
Sumum er ætla›
a› vera saman!
VORHÁTÍÐ barna- og unglinga-
starfs Árbæjar- og Grafarholts-
safnaðar verður í Árbæjarkirkju
sunnudaginn 12. maí.
Eftir mikið og gott starf í vetur
ætlar starfið að leggja af stað inn í
sumarið með hátíðahöldum innan
dyra og utan dyra (ef veður leyfir).
Íþróttafélagið Fylkir ætlar að sam-
einast okkur í tilefni dagsins og
vera sýnilegt á ýmsan hátt. Leik-
hópurinn Perlan kemur og verður
með eitt eða tvö stutt leikrit.
Barnakór Seltjarnarneskirkju
ásamt barnakór Árbæjarkirkju
syngja. Barn verður borið til skírn-
ar. Brúðurnar Solla og Kalli
kveðja. Það verður heilmikið sung-
ið eins og venjan er í barna- og
unglingastarfi Árbæjarkirkju.
Eftir að dagskránni í kirkjunni
lýkur verður boðið upp á gillaðar
pylsur, gos og ávaxtasafa gegn
mjög vægu gjaldi. Farið verður í
leiki og margt annað gert sér til
skemmtunar.
Það eru allir velkomnir, hvort
sem þeir að hafa verkið virkir í
starfi kirkjunnar í vetur eða ekki.
Það eina sem þið þurfið að hafa
með er góða skapið. Klæða sig eftir
veðri og nokkra aura fyrir veit-
ingum. Sjáumst í sólskinsskapi.
Djassað í Laugarnesi
KVÖLDMESSUR Laugarneskirkju
halda sínu striki. Þar ríkir létt
sveifla í tónum og tali og gleðiboð-
skapur trúarinnar er túlkaður með
ýmsu móti. Næstkomandi sunnu-
dagskvöld kl. 20.30 hefst kvöld-
messa maí. Kórar Laugarnes- og
Bústaðakirkju munu syngja saman
að þessu sinni undir stjórn Gunn-
ars Gunnarssonar, sem jafnframt
teflir fram Djassbandi sínu, sem
auk hans er skipað þeim Tómasi R.
Einarssyni á kontrabassa, Matt-
híasi Hemstock á trommur og Sig-
urði Flosasyni á saxófón. Þá mun
Kristján Kristjánsson (KK) gleðja
okkur með söng sínum en prests-
hjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og
Bjarni Karlsson þjóna að orðinu og
borðinu. Fyrirbænaþjónusta eftir
messu og messukaffi í safn-
aðarheimilinu. Djassinn hefst í
húsinu kl. 20 svo gott er að koma
snemma í góð sæti og njóta kvölds-
ins. Sjáumst í kirkjunni! (Sjá síðu
650 í Textavarpi.)
Beðið fyrir friði
í Neskirkju
Í TILEFNI af fundi Atlantshafs-
bandalagsins á Íslandi dagana 13. -
15. maí stendur Neskirkja fyrir
tveimur helgistundum þar sem
beðið verður fyrir friði í heiminum.
Þriðjudaginn 14. maí kl. 10.30
verður stutt helgistund með org-
elleik, ritningarlestrum og bæna-
gjörð. Miðvikudaginn 15. maí,
verður messa þar sem þátttak-
endum gefst tækifæri til að ganga
til altaris. Tendruð verða bænaljós
og sungnir sálmar. Báðar helgi-
stundirnar fara fram á ensku þar
sem vænta má að erlendir þátttak-
endur, fréttamenn og aðrir gestir
vilji einnig sækja kirkju þessa daga
ásamt Íslendingum sem flestir eru
enskumælandi. Prestar Neskirkju,
séra Frank M. Halldórsson og séra
Örn Bárður Jónsson þjóna báðir
við helgistundirnar og eru þau öll
sem áhuga hafa og vilja stuðla að
friði í heiminum velkomin.
Prayer for Peace at
Neskirkja
Lutheran Church
ON THE occasion of the NATO
summit in Reykjavík May 13-15
Neskirkja Lutheran Church will
invite people to gather and pray
for peace in the world. The church
is located in the summit area at the
Hagatorg-square together with
the Saga Hotel and the University
Theatre. Two prayer meetings will
be held with readings from the
Scriptures and organ music. The
former will be on Tuesday May 14
at 10.30 and the latter Wednesday
May 15 at 10.30. On Wednesday the
Holy Communion will be celebrat-
ed. The Reverend Frank M. Hall-
dórsson and the Reverend Örn
Bárður Jónsson will both serve at
the prayer meetings which will be
conducted in english. All are wel-
come.
Vorhátíð
Árbæjarkirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri
borgara í Setrinu á neðri hæð safn-
aðarheimilis mánudag kl. 13.
Laugarneskirkja. Framhaldsfundur í
12 spora-starfinu mánudag kl. 20.
Margrét Scheving sálgæsluþjónn leiðir
starfið. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Bænastund kl. 18 í kap-
ellu. Litli kórinn, kór eldri borgara,
þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J.
Backman. Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Sunnudagur: Æsku-
lýðsfundur kl. 20. Mánudagur: TTT-
klúbburinn frá kl. 17–18.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
fullorðna í safnaðarheimilinu kl.
13.30–16. Samvera og bænastund.
Umsjón hefur Lilja G. Hallgrímsdóttir,
djákni. Þeir sem vilja fá akstur til og
frá kirkjunni láti vita fyrir hádegi á
mánudag. Starf fyrir 11–12 ára stúlk-
ur kl. 17–18. Starf fyrir 9–10 ára
drengi kl. 17–18. Unglingastarf á
mánudagskvöldum kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bæna-
hópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum
alla virka daga frá kl. 9–17 í síma
587-9070. Mánudagur: KFUK fyrir
stúlkur 9–12 ára kl. 17.30–18.30.
KFUM yngri deild í Borgaskóla kl. 17–
18. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í Korpu-
skóla kl. 17.30–18.30. TTT (10–12
ára) kl. 18.30–19.30 í Korpuskóla.
Hjallakirkja: Þriðjudagur: Prédikunar-
klúbbur presta í Reykjavíkurprófast-
sæmi eystra kl. 9.15–10.30. Umsjón:
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK-fundur
fyrir stelpur á aldrinum 9–12 ára kl.
17.15 í kirkjunni. Fjölbreytt fundar-
efni. Allar stelpur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt
starf fyrir 9–12 ára drengi í Kirkjuhvoli
á mánudögum kl. 17.30 í umsjón
KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudags-
kvöld kl. 20–22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon-
fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl.
20. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla
kl. 13.15–14.30. TTT-fundir í safn-
aðarheimili kl. 16–17. Fundir í æsku-
lýðsfélaginu Sánd kl. 17–18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu-
dag kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf
kirkjunnar í Hrakhólum mánudag kl.
17.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Mánu-
dagur: Kl. 17 óvissuferð æskulýðs-
sstarfs fatlaðra.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Vörður L. Trausta-
son. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir
söng. Barnakirkja fyrir 1–9 ára börn
meðan á samkomu stendur. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnu-
dagur: Samkoma kl. 14. Ræðumaður
Sigrún Einarsdóttir. Bænastund fyrir
samkomu kl. 13.30. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Tvískipt barnastarf fyrir börn
frá eins árs aldri. Þriðjud: Bænastund
kl. 20.30. Miðvikud.: Samverustund
unga fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð
og orð guðs rætt. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Fundur í Æskulýðs-
félaginu í kapellu kl. 17.
Hjálpræðisherinn, Hvannavellir 10,
Akureyri. Mánudagur: Kl. 15 heim-
ilasamband. Síðasti fundur vetrarins.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ fer mik-
inn í leiðara í gær og gagnrýnir
einn þátt af rannsóknarniður-
stöðum mínum hvað varðar opn-
un sendiráða í ríkjum Evrópu-
sambandsins. Niðurstöðurnar
eru fengnar úr rannsókn á því
hvernig íslenska stjórnsýslan
hefur unnið að EES-samningn-
um og hvort að hún hafi burði til
þess að takast á við Evrópusam-
bandsaðild. Þessar niðurstöður
voru kynntar á ráðstefnu sem
bar yfirskriftina Evrópa á kross-
götum sem haldin var í Háskóla
Íslands. Varðandi leiðara Morg-
unblaðsins og frétt í blaðinu sl.
föstudag um sama efni ber
tvennt að hafa í huga sem ekki
kom þar fram.
Í fyrsta lagi kom fram í upp-
hafi erindis míns á ráðstefnunni
að rannsóknin byggðist m.a. á
viðtölum við embættismenn inn-
an íslensku stjórnsýslunnar og
starfsmenn EFTA og ESA. Nið-
urstöður rannsóknarinnar
byggðust þannig m.a. á mati
þessara aðila á því hvernig ís-
lensku stjórnsýslunni hefði tek-
ist að sinna EES-samningnum
og möguleikum hennar til að
starfa innan ESB eins og um
stjórnsýslu aðildarrríkis væri að
ræða.
Í öðru lagi er aðild að Evrópu-
sambandinu lögð til grundvallar
þeim niðurstöðum að opna þurfi
sendiráð í nær öllum núverandi
aðildarríkjum ESB. Þannig að
þegar fjallað er um að opna þurfi
sendiráð í fleiri ríkjum Evrópu-
sambandsins þá er verið að tala
um að það þurfi að gera ef Ísland
væri eitt af aðildarríkjum sam-
bandsins.
Þegar fjallað er um niðurstöð-
ur rannsókna er mjög mikilvægt
að grundvöllurinn sem þær
byggjast á liggi fyrir. Ef svo er
ekki er veruleg hætta á mistúlk-
un.
Það er dýrt og kostnaðarsamt
að halda úti alþjóðasamstarfi.
Það er því sérstaklega mikilvægt
fyrir lítil ríki að þau forgangsraði
hvaða málum þau beina kröftum
sínum að í samvinnu við önnur
ríki. Vöxtur utanríkisþjónust-
unnar hefur verið hraður á und-
anförnum árum. Utanríkisþjón-
ustan hefur tekist á við fjölda
nýrra verkefna og ný sendiráð
hafa verið stofnuð í Kína, Japan,
Kanada, Mósambík, Finnlandi
og Austurríki. Þessi vöxtur utan-
ríkisþjónustunnar hefur verið
hraðari en flesta óraði fyrir. Það
grunaði varla nokkurn mann fyr-
ir 10 til 15 árum að Ísland yrði
komið með friðargæslusveit,
væri að sækja um aðild að ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna
og væri með sendiráð staðsett í
nær öllum heimshlutum. Það er
nú samt raunveruleikinn í dag.
Morgunblaðið telur brýnna að
utanríkisþjónustan taki þátt í
friðargæslu og þróunarhjálp
frekar en að tryggja hagsmuni
Íslands betur á Spáni og Portú-
gal þar sem hagsmunir sjávarút-
vegsins eru miklir. Það má vel
vera að það sé rétt mat. Hins
vegar geta aðrir verið á allt ann-
arri skoðun og upphrópanir sem
byggjast á engu öðru en
heimóttarskap eru ekki til þess
fallnar að stuðla að málefnalegri
umræðu um þátttöku Íslands í
alþjóðasamstarfi.
Baldur Þórhallson
Morgunblaðið
og sendiráðin
Höfundur er lektor við Háskóla
Íslands.
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum
úr Þróunarsjóði leikskóla. Mennta-
málaráðuneytið auglýsti í janúar
eftir umsóknum um styrki til þró-
unarverkefna á tveimur forgangs-
sviðum: A. Tvítyngd börn – fjöl-
menningarlegur leikskóli. B. Tölvur
í leikskólastarfi. Auk þess var aug-
lýst eftir almennum þróunarverk-
efnum.
Alls bárust 24 umsóknir um
styrki úr sjóðnum og voru sam-
anlagðar kostnaðaráætlanir þeirra
um 50 milljónir króna. Til ráðstöf-
unar eru 3 milljónir króna sam-
kvæmt fjárlögum 2002. Mennta-
málaráðherra hefur ákveðið, að
tillögu úthlutunarnefndar, að veita
styrki að upphæð 2,7 milljónir
króna til samtals 11 verkefna.
Eftirtalin verkefni hljóta styrk
úr Þróunarsjóði leikskóla árið
2002–2003:
Fjölmenningarleikskóli kr.
Úthlutun úr Þró-
unarsjóði leikskóla