Morgunblaðið - 12.05.2002, Side 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 49
Símar: 515 1735 og 515 1736
Bréfasími: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna
sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk.
fer fram í Ármúlaskóla ALLA DAGA kl. 10 - 22.
Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar
og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar.
Utankjörsta›askrifstofa
Sjálfstæ›isflokksins
Sjálfstæ›isfólk!
Láti› okkur vita um stu›ningsmenn
sem ekki ver›a heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík
EINS OG GÓÐ VEIÐISAGA,
Lygilegt en satt!
Tilboð á Simms Gore-tex
vöðlum ásamt Simms
Freestone skóm
Allir veiðimenn vita að Simms stend-
ur uppúr í framleiðslu veiðifatnaðar
fyrir erfiðar aðstæður. Veiðihornið
býður nú frábært tilboð á Simms
Gore-tex vöðlum ásamt Simms
Freestone skóm. Vöðlurnar einnig
fáanlegar í dömusniði.
Aðeins kr. 38.500 settið.
Mjög takmarkað magn. Hægt að
skipta greiðslum á Visa og Euro.
Magnað tilboð fyrir
fluguveiðimenn
Ókeypis Scierra flugulína að
verðmæti kr. 5.895 fylgir öllum
Scierra XDA fluguhjólum í maí.
Gildir á meðan birgðir endast.
Verð frá kr. 15.995.
Scierra Lightweight öndunar-
vöðlur ásamt Scierra Grey-
hound vöðluskóm. Aðeins
kr. 21.590 settið
Nýi bæklingurinn okkar er kominn út.
Kíktu í Veiðihornið og náðu þér í ein-
tak. Sumarið er handan við hornið og
við bjóðum mörg frábær tilboð á veiði-
græjum og fatnaði.
M.a. Ron Thompson fluguveiðisett á kr.
16.995, Ron Thompson tvíhendupakki á
kr. 25.690, Sage fluguveiðisett á kr.
32.500 og fleira og fleira.
Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 - Síðumúli 8 - sími 568 8410
www.veidihornid.is
Opið alla daga í Hafnarstræti og alla daga nema sunnudaga í Síðumúla
Veiðihornið Hafnarstræti 5 Veiðihornið Síðumúla 8
Ron Thompson Classic. 5 mm
neophrenevöðlur ásamt Ron
Thompson Scandinavian
veiðijakka sem er vatnsheldur
og með öndun. Aðeins
kr. 19.995 settið
Í JÚLÍ 1970 birtist grein í Mbl. und-
ir þessari fyrirsögn og fjallaði um
veg er tengdi saman Reykjavík og
Suðurland við miðhluta Norðurlands
um Sprengisand, auk afleggjara
austur á land. Um þær mundir var
búið að brúa Tungnaá og verið að
leggja veg þaðan að Þórisvatni, en
Skeiðará var enn óbrúuð og hring-
vegurinn því ekki orðinn að veru-
leika. Mörgum þótti hugmyndin því
ekki tímabær.
Nú aftur á móti virðast hálendis-
vegir vera komnir á dagskrá í fullri
alvöru og eru nefndar fjórar leiðir,
þ.e. Kaldidalur, Kjölur, Sprengi-
sandur og Fjallabaksleið nyrðri, en
réttnefni hennar er „Landmanna-
leið“. Auk þess hefur verið bent á
fimmtu leiðina, framhald vegar um
Kaldadal yfir Stórasand norðan
Langjökuls, framhjá Blöndulóni,
niður af hálendinu um Gilhagadal,
þaðan yfir á Kjálka og að Norður-
árdal í Skagafirði rétt austan við
Silfrastaði.
Síðastnefndi vegurinn er sagður
stytta leiðina milli Reykjavíkur og
Akureyrar um nærri 80 km og færi
þá niður undir 300 km. Þetta yrði
veruleg stytting sem kæmi sér vel
fyrir vöruflutninga og einnig fyrir
fólk á hraðferð. Þá yrðu þarna góð
tengsl við Blöndudal í Húnavatns-
sýslu og Blönduhlíð í Skagafirði.
Með þessu móti yrði hvergi farið inn
á miðhálendið. Líklega yrði þetta
notadrýgsta hálendisleiðin og kæmi
sér mun betur en „góðvegur“ um
Kjöl. Þar aftur á móti ættu lengi að
duga endurbætur á núverandi slóð-
um. Sama er að segja um „Land-
mannaleið“. Þar sýnist heldur engin
þörf á hraðferðum, en laga þyrfti nú-
verandi slóða til þess að þeir gætu
nýst í því tilfelli að hlaup úr Mýrdals-
jökli ryfi hringveginn tímabundið í
kjölfar Kötlugoss.
Aðra sögu er að segja um Sprengi-
sandsveg sem tengdi saman Suður-
land og Norðurland. Þangað uppeft-
ir er reyndar næstum kominn vegur
að sunnanverðu, þar af klæddur að
Þórisvatni. Síðan lægi leiðin yfir
„sandinn“ og áfram nálægt Skjálf-
andafljóti niður í Bárðardal með af-
leggjara að Mývatni. Annar afleggj-
ari lægi til austurs yfir nýja brú á
Jökulsá á Fjöllum í stefnu á Háreks-
staðaleið. Hagkvæmast yrði að þess-
ir vegir lægju sem næst fyrirhugaðri
háspennulínu sem ætlað er að tengja
saman orkuver Suðurlands og Aust-
urlands til aukins öryggis fyrir báða
landshluta.
Niðurstaðan af þessum hugleið-
ingum er því sú að tengja saman leið
1 og 5 (þ.e. Kaldadal og Stórasand)
og leggja veg um Sprengisand til
norðurs og austurs, en halda leiðum
2 og 4 (þ.e. Kjalvegi og „Landmanna-
leið“) að mestu óbreyttum. Áður en
kemur að þessum verkefnum þarf þó
að klæða allan hringveginn og lag-
færa hann þar sem mest þörf er á,
svo sem í miðhluta Borgarfjarðar og
í Norðurárdal í Skagafirði.
VALDIMAR KRISTINSSON,
viðskipta- og landfræðingur.
Vegir um hálendið
Frá Valdimari Kristinssyni: