Morgunblaðið - 12.05.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
LANGLOKUR eru vinsælar áheimili Víkverja, og einstaka
sinnum hefur hann gert vel við börn
sín með því að kaupa slíkar lokur og
sent þau með í nesti í skólann. Nú
bregður hins vegar svo við að í bak-
aríinu „sínu“ fær Víkverji ekki leng-
ur langlokur til að smyrja sjálfur að
vild. Nei, nú er aðeins boðið upp á
smurðar langlokur með alls kyns
áleggi. Aðeins tilbúnar til neyslu,
sem sagt. Þetta finnst Víkverja
slæmt og þykir bakaríið sitt sýna
merki um græðgi vegna þess að
þegar varan er tilbúin til neyslu,
smurð og með áleggi, er hún auðvit-
að seld mun dýrari en ella.
x x x
BARÁTTA Valsara og KA-manna um Íslandsmeistaratitil
karla í handknattleik var geysilega
skemmtileg og vart mátti á milli sjá
hvort liðið færi með sigur af hólmi í
fimmta og síðasta úrslitaleiknum á
föstudagskvöldið. Bæði lið hefðu
verið fullsæmd af því að hampa Ís-
landsbikarnum að þessu sinni, en í
íþróttunum er það víst svo að aðeins
einn stendur uppi sigurvegari. En
bæði lið geta verið fullsæmd af
frammistöðunni og rétt er að óska
Atla Hilmarssyni og lærisveinum
hans í KA til hamingju með meist-
aratignina. Þjálfarinn hverfur nú
sæll á braut eftir farsæl ár á Ak-
ureyri og getur ekki kvatt á betri
hátt; Valur vann fyrstu tvo leikina í
úrslitarimmunni en KA svaraði með
þremur sigrum.
x x x
ARSENAL er vel að enskameistaratitlinum í knatt-
spyrnu komið, að mati Víkverja. Fé-
lagið átti einfaldlega besta liðið í
Englandi á keppnistímabilinu og
gerði sér lítið fyrir og sigraði tvö-
falt; bæði í deild og bikar. Það hefur
líklega ekki skyggt á sigurgleði
Lundúnaliðsins að hafa tryggt sér
sigur í deildinni á heimavelli erki-
fjendanna í Manchester United, Old
Trafford eftir hörkuleik þeirra á
miðvikudaginn.
Þjálfari Arsenal, Arsene Wenger
hinn franski, hefur sett saman frá-
bært lið á Highbury og ekki í fyrsta
skipti. Wenger hefur margsannað
að hann kann ýmislegt fyrir sér í
fræðunum og vert er að nefna einn-
ig landa hans, Gérard Houllier, sem
hefur gjörbreytt liði Liverpool síð-
an hann tók við stjórninni þar á bæ
fyrir nokkrum misserum.
x x x
VÍKVERJI hefur verið aðglugga í bækur Halldórs Lax-
ness, stundað upprifjun ef svo
mætti segja, í tilefni 100 ára afmæl-
is Nóbelsskáldsins á dögunum.
Margt hefur verið rætt og ritað um
skáldið að undanförnu, en það sem
stendur upp úr að mati Víkverja er
hin tæra ritsnilld mannsins.
x x x
VÍKVERJI lagði leið sína ííþróttahúsið í Mosfellsbæ und-
ir lok vikunnar. Þar stóð yfir Ís-
landsmót öldunga í blaki, sem sann-
arlega er eitthvert athyglisverta
íþróttamót sem fram fer ár hvert
hér á landi. Víkverji getur vitnað
um það að gleðin og ánægjan sem
skín af andliti „öldunganna“ að
þessu sinni, eins og undanfarin ár á
þessum vettvangi, er ósvikin. Gleðin
er ekki minni á öldungamótinu í
blaki en t.d. á Andrésar andar leik-
unum á skíðum eða Shellmótinu í
fótbolta í Vestmannaeyjum.
Íslendingur
– Fyrirspurn
EF ÉG man rétt komu í
ágúst 1974 1 eða 2 víkinga-
skip siglandi frá Noregi til
Íslands með norskri og ís-
lenskri áhöfn. Í kjölfar þess
fengu Íslendingar 1 eða 2
skip í þjóðhátíðargjöf frá
Norðmönnum. Þessi skip
voru, að ég held, látin liggja
undir skemmdum. Veit ein-
hver hver urðu afdrif þess-
ara skipa og hver bar
ábyrgð á þessari gjöf frá
Norðmönnum.
Ég heyrði í viðtali við
Gunnar Marel að hann
sagði að engin eftirlíking af
svona skipum væri til.
Heidi Kristiansen.
Skoðanakönnun for-
sætisráðherrans
„Værir þú hlynnt(ur) eða
andvíg(ur) inngöngu Ís-
lands í Evrópusambandið
ef það leiddi til þess að
helmingur landsins legðist í
auðn“. Eitthvað á þessa leið
spyr forsætisráðherrann í
skoðanakönnun, og hljóm-
ar eins og verið sé að gera
grín að fólki. Það er um-
hugsunarefni að 66 prósent
aðspurðra skuli hafa látið
ginnast til að svara svona
spurningum.
090329-4219.
Dýrahald
Tinnu vantar heimili
TINNU vantar heimili.
Hún er tveggja ára gelt
læða, innikisa, mjög þrifin
og kelin. Ferðabúr og ann-
að fylgir. Uppl. hjá Helenu
í síma 568 7026.
Kettlingur fæst gefins
FALLEGUR og kassavan-
ur kettlingur fæst gefins á
gott heimili. Upplýsingar í
síma 820 2470.
Kanína í óskilum
KANÍNA, kolsvört með
hvítt strik á snoppunni,
fannst á Sólvallagötu sl.
miðvikudagskvöld. Upplýs-
ingar í síma 551 3122.
Týndur kisi
ÞESSI kisi týndist í Hlíð-
unum í nóvember sl. Hann
var með fjólubláa ól og er
eyrnamerktur R!H023.
Þeir sem vita um afdrif
hans vinsamlega hafi sam-
band í síma 865 6405.
Tapað/fundið
Barnaregngalli
í óskilum
BARNA-regngalli, nýleg-
ur, fannst í Öskjuhlíðinni sl.
miðvikudag. Upplýsingar í
síma 552 1581.
Gleraugu
í óskilum
MÁNUDAGINN 13. maí
kom eldri maður í Bókabúð
Máls og menningar (rit-
fangadeild) við Hlemm og
gleymdi þar gleraugunum
sínum. Upplýsingar í síma
511 1170.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
NÝLEGA birtist í Morg-
unblaðinu stutt en laggóð
grein eftir Freystein Jó-
hannsson um lífshlaup
Jörundar hundadagakon-
ungs. Ekkert er þar að
mínu viti missagt, en það
vantar mikilvægar stað-
reyndir. Agnar Þórðarson
samdi fyrstur manna á Ís-
landi framhaldsleikrit fyr-
ir útvarp sem nefndist
„Víxlar með afföllum“.
Síðan kom „Ekið fyrir
Stapann“ og seinast
„Hæstráðandi til sjós og
lands“ sem fjallar um Jör-
und og afrek hans á Ís-
landi.
Á þeim árum tæmdust
næstum götur þegar slík
verk voru á boðstólum, en
þessi verk Agnars nutu fá-
dæma vinsælda. Fyrir svið
hafði hann áður samið
„Kjarnorka og kvenhylli“,
sem var sýnd 80 sinnum.
Bókspekingar og aðrir
sérfróðir þekkja ekki einu
sinni af afspurn höfuðverk
hans, „Þeir koma í haust“.
Agnar skrúfaði fyrir
fyndni sína, forðaðist
hana jafnvel eins og heit-
an eldinn, og hafi hver
fyrir sig hvað honum
finnst um þá ákvörðun.
Í upphafi ætluðu þeir
Jónas, að tillögu Agnars,
að semja saman söngleik
um Jörund. Skyldi Jónas
yrkja söngtexta en Agnar
sjá um söguþráðinn, en
svo fór að Jónas samdi
verkið einn, sem alkunna
er. Enginn veit betur en
við, sem erum við aldur,
hversu fljótt fennir í spor-
in.
Kjartan Guðjónsson.
Fljótt fennir í sporin
LÁRÉTT:
1 tekur fastan, 8 slitur, 9
láta falla, 10 liggi á hálsi,
11 snjóa, 13 leturtákn, 15
manns, 18 hugsa um, 21
þáði, 22 frumu, 23 hlut-
deild, 24 ofsækir.
LÓÐRÉTT:
2 flýtinn, 3 vitleysa, 4 er
minnugur misgerða, 5
snaginn, 6 bílífi, 7 brak,
12 nægt, 14 fíngert regn,
15 sæti, 16 borguðu, 17
tími, 18 snjódyngja, 19
synji, 20 bylgja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 sýpur, 4 fella, 7 kokið, 8 losti, 9 arm, 11 aurs, 13
hadd, 14 úldin,15 selt, 17 étir, 20 sin, 22 álfan, 23 annað,
24 karat, 25 gaupa.
Lóðrétt: 1 sækja, 2 pukur, 3 riða, 4 fálm, 5 lesta, 6 aðild,
10 ruddi, 12 sút, 13 hné,15 skálk, 16 lofar, 18 tunnu, 19
riðla, 20 snót, 21 nagg.
K r o s s g á t a
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Nor-
sund og Selfoss koma
dag og fara á mánudag.
Akraberg og Margrét
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Barði og Ljósafoss koma
á morgun
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 vinnustofa og
leikfimi, kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17 fóta-
aðgerð, kl. 10
samverustund, kl. 13.30–
14.30 söngur við píanóið,
kl. 13–16 bútasaumur.
Eldri borgarar Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið Hlaðhömrum
er á þriðju- og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30, spil
og föndur. Lesklúbbur
kl. 15.30 á fimmtudög-
um. Jóga á föstudögum
kl. 11. Kóræfingar
fimmtudaga kl. 17–19.
Púttkennsla í íþrótta-
húsinu kl. 11 á sunnu-
dögum. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl.
13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566 8060 kl. 8–
16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska framhald.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un, mánudaginn, fé-
lagsvist kl. 13.30 og pútt-
æfingar í Bæjarútgerð
kl. 10–11. 30. Þriðjud.:
brids, nýir spilarar vel-
komnir, saumur undir
leiðsögn og frjáls handa-
vinna kl. 13.30,
spænskukennsla kl.
16.30. Opið hús í boði
Rótarí á fimmtud. 16.
maí kl. 14 í boði er
skemmtiatriði og kaffi.
Kór eldri Þrasta og Gafl-
arakórinn halda tónleika
í Víðistaðakirkju föstud.
17. maí kl. 20 aðgangur
ókeypis. Vestmann-
eyjaferð 2. til 4. júlí,
upplýsingar og skrá-
setning í Hraunseli, s.
555 0142
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Sun-
nud.: Félagsvist kl.
13.30. Dansleikur kl. 20
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánud.: Brids kl.
13. Þriðjud.: Skák kl. 13.
Göngu-Hrólfar fara í
leikhúsferð á Sólheima
laugardaginn 18. maí að
sjá „Hárið“ brottför frá
Ásgarði, Glæsibæ, kl.
14. allir velkomnir,
skráning á skrifstofu
FEB. Þeir sem hafa
skráð sig í Vest-
fjarðaferð 18.–23. júní
þurfa að staðfesta ferð-
ina fyrir 15. maí. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá kl.
10–12. í s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið sunnu-
daga frá kl. 14–16 blöðin
og kaffi. Á morgun kl.
9–16.30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
14 félagsvist. Hand-
verkssýning mánudag-
inn 13. maí kl. 10–16.
Félagsvist fellur niður
mánudag. Sunndags-
kaffið fellur niður í dag.
Félagsstarfið Seljahlíð.
Sýning á handverki
heimilismanna opin í
dag kl. 13.30–17. Kaffi-
veitingar á staðnum.
Allir vekomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 14 kóræfing, dans
fellur niður. Miðviku-
daginn 22. maí er leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið að sjá
„Kryddlegin hjörtu“,
skráning hafin. Veit-
ingar í Kaffi Berg. Upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl. 11
hæg leikfimi, kl. 13 lom-
ber og skák. Vorsýn-
ingin verður opnin frá
kl. 14–18 í félagsheim-
ilinu.Uppl. í s. 554 3400
og 564 5260.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró-
leg stólaleikfimi, kl. 13
brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Vorsýningin verður op-
in frá kl. 14–18 í félags-
heimilinu. Uppl. í s.
554 3400 og 564 5260.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13.30 gönguferð.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9–16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing. Handverkssýning
verður opin á morgun
frá kl. 13–17.
Vitatorg. Á morgun kl. 9
smíði og hárgreiðsla, kl.
9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og spil-
að.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13. Bridsdeild FEBK í
Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kvenfélag Breiðholts.
Fundur verður í safn-
aðarheimilinu Breið-
holtskirkju þriðjudaginn
14. maí kl. 20, sýndar
verða myndir frá ferð til
Kína.
Kristniboðsfélag karla,
fundur verður í kristni-
boðssalnum, Háaleit-
isbraut 58–60, mánudag-
inn 13. maí kl. 20.
Formaður félagsins sér
um fundarefnið. Allir
karlmenn velkomnir.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður miðviku-
daginn 15. maí kl. 20 á
Ásvöllum.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund
mánudaginn 13. maí kl.
20.
S.V.D. Hraunprýði. Hin
árlega kaffi- og merkja-
sala verður mánud. 13.
maí. Kaffisalan verður í
Hjallahrauni 9, kl. 15–
20. Tekið verður á móti
kökum og meðlæti í
Hjallahrauni 9 frá kl. 9
sama dag.
Kvenfélagið Hrönn
heldur fjölskyldubingó
mánudaginn 13. maí kl.
20 í Húnabúð, Skeifunni
11. Félagskonur taki
með sér gesti.
Bandalag kvenna í
Reykjavík. Vorfund-
urinn verður haldinn á
Hallveigarstöðum, Tún-
götu 14, mánudaginn 13.
maí kl. 20. Gestur fund-
arins verður Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir,
kaffiveitingar.
Í dag er sunnudagur 12. maí, 132.
dagur ársins 2002. Mæðradagurinn.
Orð dagsins: Drottinn, Guð her-
sveitanna, snú oss til þín aftur, lát
ásjónu þína lýsa, að vér megum
frelsast.
(Sálm. 80, 20.)