Morgunblaðið - 12.05.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 51
DAGBÓK
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákveðinn og skjót-
ráður og átt því að eiga auð-
velt með að ná markmiðum
þínum í framtíðinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur átt í ákveðnum
erfiðleikum sem nú eru að
baki. Njóttu þess að hafa
haft betur og gerðu þér
dagamun með þínum nán-
ustu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu óspar á að sýna öðr-
um hæfileika þína því það
þjónar þínum tilgangi best.
Reyndu samt ekki að gera
allt upp á eigin spýtur í
dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er gott að þekkja sín
eigin takmörk og þá ekki
síður að virða þau þegar á
það reynir. En ástæðulaust
er að prófa þau á hverjum
degi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að laga hugmyndir
þínar að því sem er fram-
kvæmanlegt. Það hefur
ekkert upp á sig að berja
höfðinu við steininn hvað
þetta snertir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki láta græðgina bera þig
ofurliði. Það er allt í lagi að
sækja það sem réttmætt er,
en óhóf kann ekki góðri
lukku að stýra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Mundu að það sem þú gerir
hefur sínar afleiðingar fyrir
sjálfan þig og aðra. Hafðu
þetta hugfast þegar þú
gengur fram á vettvangi
dagsins.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt auðvelt með að koma
málum þínum á framfæri en
mundu að segja ekkert á
kostnað annarra því það er
þér ekki til framdráttar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hættu að bera þig saman
við annað fólk því engir
tveir eru eins. Gerðu hlut-
ina bara á þeim hraða sem
þér hentar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Finndu þér áhugamál því þá
er möguleiki á að kynnast
nýju fólki og allt verður
auðveldara. Láttu eirðar-
leysið ekki ná tökum á þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að öðlast frið með
sjálfum þér áður en þú
hjálpar öðrum. Leystu því
eigin vandamál áður en þú
fæst við vanda annarra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu ekki öfund annarra
skemma fyrir þér. Haltu
þínu striki því sumum er
ekki sjálfrátt vegna eigin
mistaka.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Eitthvert vandamál skýtur
upp kollinum heima fyrir.
Það ríður á miklu að þú sért
til staðar að leysa málið og
sért snöggur að því.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 12. maí,
er sjötugur Hilmar Jónsson,
rithöfundur og formaður
FEB á Suðurnesjum. Hann
og eiginkona hans, Elísabet
Jensdóttir, taka á móti gest-
um í KK-húsinu við Vestur-
braut, Keflavík, í dag kl. 15–
18.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 23. mars í Los Angel-
es Þuríður Henrysdóttir og
Andri Rafnsson. Heimili
þeirra er í Hammarløv 46,
23194 Trelleborg, Svíþjóð.
EVRÓPUMÓT fer fram
um miðjan júní í Salso-
maggiore á Ítalíu og æfa
landslið Íslands nú af
kappi fyrir komandi
átök. Spil dagsins kom
upp á landsliðsæfingu
opna flokksins á mið-
vikudaginn:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ Á97
♥ KG1072
♦ 10975
♣Á
Suður
♠ K108654
♥ 43
♦ ÁK2
♣G9
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 spaði
Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Hvernig er best að
spila fjóra spaða með
tíguldrottningu út?
Spilið er sterkt, en alls
ekki öruggt. Hættan er
sú að vörnin fái tvo slagi
á hjarta, einn á tígul og
einn á tromp. Hið fyrsta
sem kemur í hugann er
að drepa á tígulás, spila
laufi á ás, taka tvo efstu í
spaða og trompa lauf.
Spilinu er nú lokið er
trompið hefur skilað sér
2-2, en ef ekki, er enn
möguleiki á að fá slag á
tígul eða hjarta. Þessi
leið var reynd á tveimur
borðum og gafst ekki vel:
Norður
♠ Á97
♥ KG1072
♦ 10975
♣Á
Vestur Austur
♠ DG2 ♠ 3
♥ 85 ♥ ÁD96
♦ DG64 ♦ 83
♣D1032 ♣K87654
Suður
♠ K108654
♥ 43
♦ ÁK2
♣G9
Við nánari skoðun er
líklega betra að spila
strax hjarta að blindum í
öðrum slag. Tvennt
vinnst með því: Ef vestur
á ásinn en ekki drottn-
inguna gæti hann farið á
taugum og tekið slaginn
af ótta við einspil hjá
sagnhafa. En hitt er
kannski mikilvægara að
með þessu móti gæti
unnist tími til að fría nið-
urkast fyrir þriðja tígul-
inn heima. Í þessari legu
tekur austur gosa blinds
með drottningu og spilar
tígli. Sagnhafi fer upp
með kónginn, tekur tvo
efstu í trompi og spilar
aftur hjarta. Austur
lendir inni, en á ekki tíg-
ul til. Hann spilar vænt-
anlega laufi og nú getur
sagnhafi henti tígultvist-
inum niður í hjartatíu og
þriðja tromp blinds sér
fyrir laufgosanum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
HEIÐLÓARKVÆÐI
Snemma lóan litla í
lofti bláu „dírrindí“
undir sólu syngur:
„Lofið gæzku gjafarans,
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.
Ég á bú í berjamó.
Börnin smá í kyrrð og ró
heima í hreiðri bíða.
Mata ég þau af móðurtryggð,
maðkinn tíni þrátt um byggð
eða flugu fríða.“
- - -
Jónas Hallgrímsson
Reiðskólinn Hrauni 2002
Reiðskóli fyrir 10-15 ára
Upplýsingar í síma 897 1992
Skoðið vefsíðu reiðskólans
www.vortex.is/reidskoli/
Reiðskólinn Hrauni, Grímsnesi
þar sem hestamennskan hefst
!"#$#%"
Bjóðum RC íbúðarhús, sumarhús og fjölnotahús, stór og lítil
RC Hús, Sóltún 3, 105 Rvík. s. 511 5550
Veffang: www.rchus.is Netfang: rchus@rchus.is
Vegna nýrra samninga á efni og hönnun tilkynnum við nú allt að
1,5 millj. króna VERÐLÆKKUN á sumarhúsum, frá og með
13. maí 2002. Höfum yfir 60 teikningar af sumarhúsum og á annað
hundrað teikningar af íbúðarhúsum.
VERÐLÆKKUN!
Þetta hús lækkar um kr. 1,500,000.-
Ármúla 36 • 108 Reykjavík
Sími 568 8866
Málum rispurnar, ekki bílinn.
Sparar tíma og peninga.
Bíllinn tilbúinn samdægurs.
Hjólkó, Smiðjuvegi 26,
sími 557 7200.
Frábærar rispuviðgerðir
á bílalakki
NOTARÐU GLERAUGU EÐA SNERTILINSUR
TIL AÐ SJÁ FRÁ ÞÉR?
Fyrirlestur um LASIK augnaðgerðir
Miðvikudaginn 15. maí kl. 18:00 verður haldinn fyrirlestur um LASIK
og skyldar laseraugnaðgerðir í húsakynnum Sjónlags hf. á annarri
hæð í Spönginni 39, Grafarvogi (við hliðina á World Class
og nýju heilsugæslustöðina).
Sjónlag hf., Laserstöð og augnlæknastofa,
Spöngin 39, 112 Reykjavík, sími 577 1001.
Með morgunkaffinu
Fyrirgefðu, en
er konan mín
hér hjá þér?
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3
Bb7 7. d3 Bc5 8. a4 h6 9. Rc3
b4 10. Rd5 d6 11. Be3 Rd4
12. Rxd4 exd4 13. Bd2 Rxd5
14. Bxd5 Bxd5 15. exd5 O-O
16. b3 Dd7 17. Df3 a5 18.
Hae1 Hae8 19. h4 He5 20.
Bf4 He7 21. Hxe7 Dxe7 22.
h5 He8 23. Bd2 Dd7 24. He1
He5 25. Kf1 De8 26. He2
Da8 27. Bf4 Hxe2 28. Kxe2
Dc8 29. Bd2 f5 30. Kf1 Dd7
31. g3 Bb6 32. Kg2 Kh7 33.
Kh3 Kh8 34. Kg2 Kh7 35.
Bf4 Kh8 36. Kh3
Df7 37. Bc1 Dd7
38. Bd2 Kh7 39.
Kh2 Kh8 40. Be1
De8 41. Bd2 Dd7
42. Bf4 De7 43.
Kh3 Df7 44. g4
fxg4+ 45. Kxg4
Dd7+ 46. Kg3
Df5 47. Bd2
De5+ 48. Kg4
Kg8 49. Bf4 De1
50. Kg3 Db1 51.
Kg2 Dxc2 52. De4
Dxb3
Staðan kom
upp á Reykjavík-
urskákmótinu
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
sem fór fram í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Eric Lobron
(2.517) hafði hvítt gegn búlg-
örsku skákmeynni Antoa-
neta Stefanova (2.451). 53.
Bxh6! gxh6 54. De8+ Kg7
55. De7+ Kg8 56. De8+ Kg7
57. Dg6+ Kf8 58. Dxh6+ Í
drottningarendatöflum
skipta frípeð jafnan mun
meira máli en liðsmunur. Í
framhaldinu tekst svörtum
ekki að ráða við h-peð hvíts.
58...Ke7 59. Dg5+ Ke8 60.
h6 Dxd3 61. Dg8+ Kd7 62.
De6+ Kd8 63. Dg8+ Kd7 64.
Dg7+ Kc8 65. h7 De4+ 66.
Kg3 d3 67. h8=D+ Kb7 68.
Dgf8 Bxf2+ 69. Dxf2 Dxd5
70. Df3 og svartur gafst upp.