Morgunblaðið - 12.05.2002, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík
heldur síðasta skemmtifund vetrarins
í Breiðfirðingabúð í dag kl. 15.00.
Félag
harmonikuunnenda
Meðal þeirra sem koma fram eru hljómsveitir félagsins
undir stjórn Daníels Bjarnasonar og Guðmundar
Samúelssonar, auk margra ungra einleikara.
Kaffikonur sjá um veitingar.
Allir velkomnir. F.H.U.R.
Aikido
A
I
K
I
D
O
Nútíma sjálfsvarnarlist fyrir alla!
Ný námskeið hefjast 13. maí. Æft er mánudaga,
miðvikudaga og laugardaga.
Frír kynningartími! Aldurstakmark 16 ár.
Nánari upplýsingar í
síma 822 1824 eða 897 4675.
Eða á netinu aikido@here.is
http://here.is/aikido
PETER Parker er ungur maður og
utangátta. Skólafélagar hans láta
hann afskiptan nema þegar upp kem-
ur sú þörf að meiða eða niðurlægja
hann. Renglulegur og bókhneigður á
Peter ekki upp á pallborðið og getur
lítið gert til að bera hönd fyrir höfuð
sér. Það breytist þó allt þegar hann
fer ásamt bekkjarfélögum í vísinda-
ferð í rannsóknarstofur stórfyrirtæk-
is. Þar er verið að vinna með geisla-
virkar köngulær í vafasömum
tilgangi. Ein þeirra sleppur úr búri
sínu og nartar í Peter og líf hans verð-
ur aldrei samt upp frá því.
Svo hljóðar sköpunarsaga Spid-
erman sem birtist fyrst í hasarblaðinu
Amazing Fantasy, tölublaði 15 árið
1962 en höfundarnir, þeir Stan Lee og
Steve Ditko, gerðu sér vart í hugar-
lund hversu gríðarlega vinsæl hún
yrði. Frá lítillátum upprunanum hafa
komið út margir hillumetrar af efni
um Spiderman og óhætt er að segja
að ásamt þeim félögum Superman,
Batman, Hulk og Captain America sé
Spiderman þekktasta myndasögu-
hetja sögunnar.
Hægt er að smíða endalausar
kenningar um hvers vegna Spiderm-
an varð svo vinsæll. Ofurhetjur í
myndasögum hafa venjulega höfðað
mest til ungra pilta sem fá útrás fyrir
ungæðislega hugaróra sína með því
að setja sig í spor þeirra. Peter Park-
er hefur það hins vegar fram yfir aðra
af sama meiði að hann var (og er
ennþá) unglingur með öll þau vanda-
mál sem hinn kvíðafulli táningur þarf
að kljást við. Ekki skemmir svo fyrir
að búningurinn er flottur, kraftarnir
svalir, kærastan sæt og illmennin öll
hin skemmtilegustu.
Vaxtarverkir
Á 40 ára sögu sinni hefur Spider-
man, eða Köngulóarmaðurinn, tekið
þátt í óteljandi bardögum. Fyrstu
áratugirnir voru nokkuð einfaldir
nema hvað einni kærustu Peters var
komið fyrir kattarnef, sem þótti gríð-
arlega framúrstefnulegt á sínum
tíma. Annars liðu dagarnir og árin í
mestu makindum í slagsmálum við
bófa og skrímsli sem af einhverjum
undarlegum ástæðum sóru sig margir
í ætt við Köngulóarmanninn fyrir það
leyti að þau voru iðulega einhverskon-
ar afsprengi dýraríkisins. Skrautleg-
ar persónur eins og Dr. Octopus (kol-
krabbi), The Scorpion (sporðdreki),
The Lizard (eðla), The Vulture
(gammur) og Rhino (nashyrningur)
eru aðeins nokkur dæmi úr því stóra
skúrkasafni sem skapað var til þess
að halda Köngulóarmanninum við
efnið. Af óvinunum skulið þér þekkja
þá. Þegar Peter fékk frí frá hetjudáð-
um stundaði hann blaðaljósmyndun
hjá hinum skapstygga ritstjóra J. J.
Jameson á The Daily Bugle og rækti
sambandið við kærustuna sína, fyrir-
sætuna Mary Jane. Á níunda ára-
tugnum tóku hinsvegar við myrkari
tímar. Útgáfufyrirtæki Köngulóar-
mannsins, Marvel, hafði spennt bog-
ann til hins ítrasta og gaf út fjögur
mánaðarleg hasarblöð um ævintýri
hans. Við það varð sagan bragðdauf-
ari og áhugi lesandi dofnaði af sama
skapi. Til að kippa því í liðinn var hon-
um gefinn nýr búningur sem hann
fann á ferð sinni á fjarlægum hnetti.
Sá búningur var kolsvartur með stórt
hvítt köngulóarmerki á bringunni í
stíl við dekkri stíl blaðanna. Meira var
farið að skyggnast undir yfirborðið og
persóna Köngulóarmannsins krufin í
endalausum sálarflækjum. Útlits-
breytingin stóð þó ekki lengi. Í ljós
kom að búningurinn var í raun lifandi
vera; sníkjudýr sem farið var að gæða
sér á Peter í bókstaflegri merkingu
þegar hann loks áttaði sig. Honum
tókst að losa sig við óværuna sem
hrökklaðist á braut og tók yfir annan
lítt þekktan en vel lukkaðan óvin
Spiderman og úr varð óvætturin Ven-
om. Upp úr því fóru hlutirnir að verða
ruglingslegri svo ekki sé meira sagt.
Peter og Mary Jane giftu sig og í
hönd fór eitt versta tímabil í sögu Pet-
er Parkers. Í ljós kom að hann var
ekki sá sem hann hélt hann væri held-
ur einhvers konar einræktlingur og
voru því allt í einu komnar margar út-
gáfur af Köngulóarmanninum, misvel
heppnaðar. Flestir lesendur misstu
áhugann á þessu tímabili áður en loks
tókst að súrra saman lausa enda og
ljúka þessum skrítna kafla sem flestir
vilja væntanlega gleyma sem fyrst.
Síðasti áratugur í lífi hans hefur því
verið nokkuð einkennilegur tími og
erfiður.
Nýtt blóð
Með nýjum mönnum koma nýjar
hugmyndir og Köngulóarmaðurinn
hefur ekki farið varhluta af því. Ljóst
var að Köngulóarmaðurinn sem
gróðavænlegt vörumerki mátti ekki
við fleiri mistökum. Nýjasti kaflinn í
sögu hans hófst fyrir tveimur árum og
er nú viðhöfð sú nýlunda að höfundar
sagnanna á hverjum tíma hafa nokk-
uð frjálsari hendur en áður fyrr. Í
fyrri blöðum var ramminn utan um
það sem mátti gerast nokkuð þröngur
og átti að vera hægt að rekja söguna
aftur til upprunans í hverju nýju
blaði. Það gefur augaleið að þegar
fram í sótti varð sífellt flóknara að
halda í horfið og að lokum nánast von-
laust að fá nokkurn botn í það sem
fram fór.
Nýi tíminn býður upp á mismun-
andi flokka sem hver fjallar um
Köngulóarmanninn frá mismunandi
sjónarhorni. Í The Ultimate Spider-
man er horfið aftur til upprunans og
byrjað frá byrjun. Sagan þar er í öll-
um meginatriðum sú sama og lagt var
upp með 1962 nema hvað hún er sett í
nýjan og skemmtilegri búning. Brian
Michael Bendis heldur þar um penn-
ann af mikill lipurð og segir þessa sí-
gildu sögu með miklum ferskleika.
The Amazing Spiderman fylgir nokk-
urn veginn sömu línu og sögurnar
hafa gert hingað til nema hvað höf-
undurinn J. Michael Straczinski, sem
er best þekktur sem handritshöfund-
ur að geimsápuóperunni Babylon 5,
hefur náð að rífa blaðið upp úr með-
almennskunni. Hann hefur náð að
gera þessa ofurhetju trúverðugri sem
persónu og tekur á málefnum sem
enduróma raunverulega atburði
dagsins í dag. Spidermańs Tangled
Web býður upp á smásögur eftir mis-
munandi höfunda þar sem markhóp-
urinn er eldri lesendur. Sögurnar eru
óhuggulegri og grófari en gengur og
gerist í hinum blöðunum og hafa litla
tengingu við annað sem áður hefur
gerst og gefur það höfundunum meiri
sveigjanleika en endranær.
Köngulóarmaðurinn hefur náð að
krafsa sig út úr þeim flækjum sem bú-
ið var að koma honum í. Nýjar
áherslur og nýir höfundar hafa lyft
grettistaki í því að gera blöðin um
Köngulóarmanninn að spennandi og
skemmtilegri lesningu á nýjan leik.
Það má búast við mikilli umræðu um
Vefarann mikla frá New York í kjöl-
far frumsýningar bíómyndar um hetj-
una. Í öllu því fári má ekki gleyma því
hvaðan persónan á tjaldinu kemur.
Hún á sér langa sögu í myndasögu-
blöðum og nýtur sín best þar.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Flókið líf
Í myndasöguumfjöllun vikunnar
verður fjallað um Köngulóarmann-
inn; forsögu og nýjar stefnur. M.a.
er stuðst við þrjár myndasögur um
þessa hetju háloftanna.
Erfiður dagur í vinnunni.
Heimir Snorrason
heimirs@mbl.is