Morgunblaðið - 29.05.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.05.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Auglýsing um tillögu að Svæðis- skipulagi Eyjafjarðar 1998-2018 Samvinnunefnd um svæðisskipulag Eyjafjarðar samþykkti þann 6. september 2001 tillögu að Svæðisskipulagi Eyja- fjarðar 1998-2018. Tillagan hafði áður verið auglýst 25. apríl 2001 og lá frammi til kynningar til 24. maí 2001. Á fundinum 6. september 2001 voru afgreiddar þær at- hugasemdir sem borist höfðu og gerðar nokkrar breytingar á skipulagstillögunni. Breytingarnar voru auglýstar 2. okt- óber 2001 og viðkomandi sveitarstjórnum og Skipulags- stofnun var send skipulagstillagan með áorðnum breyting- um. Athugasemdir bárust frá Svalbarðsstrandarhreppi og ábendingar um breytingar og lagfæringar bárust frá Skipu- lagsstofnun. Á fundi samvinnunefndar 15. maí 2002 var fjallað um at- hugasemdirnar og ábendingar Skipulagsstofnunar. Þær voru síðan afgreiddar og skipulagstillagan ásamt greinar- gerð samþykkt og undirrituð af fulltrúum viðkomandi sveitarfélaga með þeim breytingum, sem ábendingar Skipulagsstofnunar höfðu í för með sér, ásamt fyrirvara frá fulltrúum Svalbarðsstrandarhrepps. Breytingarnar á skipulagstillögunni og fyrirvarinn felast í eftirtöldum atriðum: 1. Tekið hefur verið tillit til afgreiðslu Grýtubakkahrepps um frístundabyggð í sveitarfélaginu. 2. Staðfesting nær til svæðisskipulagsuppdráttar og greinargerðar í heild. 3. Bætt er við rökstuðningi fyrir jarðgöngum gegnum Vaðlaheiði í kafla 6.10 í greinargerð. 4. Gerð er grein fyrir leyfilegum fjölda íbúða á íbúðasvæðum í dreifbýli. 5. Í kafla 2.2.5 er gerð nánari grein fyrir stærð og nýtingu iðnaðarsvæða í dreifbýli. 6. Gerð er orðalagsbreyting í kafla 3.2.7 þar sem bent er á möguleika fyrir förgunarstaði sorps í Arnarnes hreppi og Hörgárbyggð. 7. Texti í greinargerð um hverfisverndarsvæði er gerður skýrari. Þar er einnig gerð grein fyrir tilmælum sem beint er til fjögurra sveitarfélaga um æskileg hverfisverndarsvæði. 8. Landnotkunartafla hefur verið endurskoðuð og bætt. 9. Gerð er nánari grein fyrir tengslum svæðisskipulagsuppdráttar og skýringarkorta annars vegar og texta greinargerðar hins vegar. 10. Auk framangreindra atriða hafa nokkrar minniháttar villur verið leiðréttar. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps gerir fyrirvara varð- andi stefnumótun um stóriðju og skilda þætti sem fram koma í greinargerð, einkum kafla 2.2.4. Þessi fyrirvari kemur fram á svæðisskipulagsuppdrætti og í greinargerð. Þeir, sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu samvinnunefndar, geta snúið sér til Valtýs Sigurbjarnarsonar, framkvæmdastjóra Héraðsnefndar Eyjafjarðar, Strandgötu 29, 600 Akureyri, símar 461 2739 og 896 2739. F.h. samvinnunefndar, Hjörleifur B. Kvaran. Út-sala Sófaborð m. glerplötu Aiwa stereótæki (mini) Hárþurrka vaska- innrétting 2 hárgreiðslu- stólar 2 hjólaborð hjálparstóll (letingi) vaskastóll sjóðsvél 4 aflangir speglar ísskápur, kaffivél og brauðrist ca 8.000 kr. 10.000 kr. ca 7.000 kr. ca 12-15.000 kr. 35.000 kr./stk. 500 kr./stk. 10-15.000 kr. ca 40.000 kr. 5.000 kr. 4.000 kr. 5.000 kr. Upplýsingar í s. 462 2530, gsm 862 8885, eftir kl. 18.00 SAMKÓR Svarfdæla heldur tón- leika í Dalvíkurkirkju í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20.30. Efnis- skráin er fjölbreytt, þar sem aðallega verður flutt kirkjuleg tón- list frá ýmsum tímum. Stjórnandi kórsins er Rósa Kristín Baldursdóttir en þetta eru hennar síðustu tónleikar með kórn- um hér á landi, í bili að minnsta kosti. Tónleikar í Dalvíkurkirkju UNGU fólki sem hyggur á lýðhá- skólanám á einhverju Norðurland- anna í haust er bent á að umsókn- arfrestur um styrk hjá Nordens folkliga akademi rennur út 20. júní. Mikilvægt er að hafa gengið frá um- sókn í lýðháskóla áður en sótt er um styrki. Nánari upplýsingar eru veitt- ar á Norrænu upplýsingaskrifstof- unni á Akureyri. Styrkir til lýðhá- skólanáms UNGIR og áhugasamir veiðimenn sveifluðu stöngum sínum inni á Leiru um helgina en hinn árlegi veiðidagur fjölskyldunnar var haldinn á sunnudag. Veðrið var eins og best varð á kosið og áttu veiðimenn notalega stund þó senni- lega hefðu flestir þeirra viljað sjá meiri afla. Þeir settu þó í einn og einn. Veiðistöngum sveiflað Morgunblaðið/Rúnar Þór ALLS brautskráðust 124 nemendur frá Verkmenntaskólanum á Akur- eyri á laugardag, 106 voru úr dag- skóla og 18 luku fjarnámi. Hópurinn skiptist þannig að stúdentar voru 84 talsins og 40 luku námi af einhverri af starfsnámsbrautum skólans. Á vorönn hófu 1.027 nemendur nám við skólann og um 650 í fjarnámi, sem aldrei hefur verið með jafn- miklum blóma og nú. Björn Snær Atlason hlaut hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi og hlaut hann fjölda verðlauna, m.a. fyrir framúrskarandi árangur á hagfræðibraut, í ensku, dönsku og þýsku. Nokkrir nemendur hlutu viður- kenningar fyrir framúrskarandi námsárangur, Linda Margrét Sig- urðardóttir hlaut bikar fyrir hæstu meðaleinkunn á almennu verslunar- prófi, Rögnvaldur Harðarson í byggingargreinum, Kristbjörg Þór- oddsdóttir í verslunargreinum til stúdentsprófs, Bergur Benedikts- son fyrir stærðfræði og fyrir frá- bæran námsárangur, Lísbet Patr- isía Gísladóttir fyrir raungreinar, Arnþór Haukur Birgisson fyrir málmiðngreinar Björn Gunnar Hreinsson fyrir rafiðngreinar og Indíana Ósk Magnúsdóttir fyrir ís- lensku og frábæran námsárangur. Þá hlaut María Marinósdóttir þakk- lætisvott frá skólanum vegna starfa að félagsmálum og hagsmunamálum nemenda. Við athöfnina var afhjúpuð mynd máluð af Kristni G. Jóhannssyni af fyrsta skólameistara VMA, Bern- harð Haraldssyni, en það gerði Ragnheiður Hansdóttir eiginkona hans. Við það tækifæri færði Bern- harð Hjalta Jóni Sveinssyni skóla- meistara fyrsta eintakið af verki sínu, Saga iðnmenntunar við Eyja- fjörð. Framboðin lögðu litla áherslu á mikilvægi verkmenntunar „Óneitanlega hef ég saknað þess í nýafstöðnum kosningaslag hvað litla áherslu hin ýmsu framboð hafa lagt á mikilvægi verkmenntunar hér nyðra, sem því miður á verulega undir högg að sækja,“ sagði Hjalti Jón í ræðu sinni við skólaslitin. „Það skýtur raunar skökku við að bæj- arfélag sem er að reyna að laða til sín fleira fólk til búsetu skuli ekki hafa meiri áhyggjur af æ færri nem- endum í verknámi.“ Hjalti Jón kvaðst ekki hafa orðið var við áhyggjur manna yfir hversu alvarlegt það gæti verið að horfa á eftir ýmsu verknámi suður á Reykjavíkursvæðið, en blikur væru á lofti í þeim efnum. Saknaði hann stuðnings alþingis- og sveitarstjórn- armanna við að halda úti sem fjöl- breyttustu verknámi á svæðinu, at- vinnuvegum og bæjarfélaginu til hagsbóta. Þá hafi ekkert heyrst frá aðilum vinnumarkaðarins og ýmissa atvinnugreina sem eiga undir högg að sækja. „Það er engu líkara en fólki standi gjörsamlega á sama um að að atvinnugreinar hverfi úr bæn- um og námið um leið,“ sagði skóla- meistari. Þyrftu nemendur að fara suður til náms væru líkur á að þeir sneru ekki til baka. Nefndi Hjalti Jón bifvélavirkjun sem dæmi um nám sem ekki væri lengur hægt að læra í VMA og eins að líkur væru á að allt nám í kjötiðn yrði flutt suður í Kópavog. „Ætlum við að geta stuðlað að framtíð bæjarins og svæðisins hér allt í kring, sunnan, norðan, vestan og austan þurfum við öll að standa saman og leggja áherslu á framgang þeirra mála sem okkur eru lífsnauðsynleg. Í þeim efnum má enginn sofna á verðinum og koma sér undan ábyrgð,“ sagði Hjalti Jón. Hann nefndi að reiknilíkan sem skammtaði framhaldsskólum rekstrarfé væru skóla á borð við VMA andsnúið á marga lund. „Við þurfum á öllum stuðningi að halda til þess að fá það viðurkennt að inn í líkanið verði settur landsbyggðar- stuðull sem jafni aðstöðu verknáms- skóla utan Reykjavíkursvæðisins. Þetta er ekki bara alvörumál heldur er það líka byggðapólitísk.“ Verkmenntaskólinn brautskráir 124 nemendur Eins og fólki standi á sama um að atvinnu- greinar hverfi úr bænum Morgunblaðið/Rúnar Þór Alls voru 124 nemendur brautskráðir frá Verkmenntaskólanum á Akureyri á laugardag. ALLS verða haldin sex tölvu- og tölvutengd námskeið á vegum Tölvu- fræðslunnar nú í maí og júní og eru það síðustu námskeiðin á þessari önn. Kennt er í húsnæði Tölvufræðslu- nnar við Furuvelli 13 og þar fer skráning fram sem og á heimasíðu Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarð- ar. Mjög góð aðsókn hefur verið að námskeiðunum í vetur. Tölvunámskeið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.