Morgunblaðið - 29.05.2002, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
110 NEMENDUR af hinum ýmsu
námsbrautum voru brautskráðir frá
Fjölbrautaskóla Suðurlands 24. maí.
Eins og oftast áður koma þeir úr öll-
um sýslum Suðurlands. 33 þeirra eru
frá Selfossi, 60 annars staðar úr Ár-
nessýslu, 13 Rangæingar, tveir úr
Vestur-Skaftafellssýslu, einn Hún-
vetningur og einn Reykvíkingur.
„Það er meiri hátíð í sumum fjöl-
skyldum en öðrum. Í hópnum eru
a.m.k. átta bræður, þó ekki úr sömu
fjöskyldunni, þetta eru fjögur
bræðrapör, þar af eru tvennir tví-
burar, þá eru hér mæðgin að braut-
skrást, og eflaust nokkur frænd-
systkini,“ sagði Sigurður
Sigursveinsson skólameistari er
hann kynnti fjölda nemenda.
64 brautskráðust sem stúdentar,
17 luku iðnnámi; 15 þeirra í húsa-
smíði og tveir í rafvirkjun, 9 luku
prófi af grunndeild tréiðna, fimm af
grunndeild rafiðna og þrír af grunn-
deild bíliðna, tveir luku fyrri hluta
málmiðnbrautar, tveir luku meist-
aranámi, annar í húsasmíði og hinn í
vélvirkjun, einn lauk sjúkraliðabraut
og einn prófi af listnámsbraut, fyrri
hluta, þrír luku fjögurra ára námi af
starfsbraut og sex af fyrri hluta
Starfsbrautar og af tveggja ára bók-
námsbrautum luku sex prófi af upp-
eldisbraut og fimm af viðskipta-
braut. 17 nemendur brautskrást af
tveimur brautum.
Bestum heildarárangri braut-
skráðra náði Sigríður Erla Óskars-
dóttir, stúdent af náttúrufræðibraut
og fékk hún sérstaka viðurkenningu
skólanefndar af því tilefni auk náms-
styrks frá Hollvarðasamtökum skól-
ans. Þá fékk hún sex verðlaun önnur
fyrir námsárangur í einstökum
námsgreinum. Ólöf Haraldsdóttir
náði sömuleiðis mjög góðum árangri
og fékk námsstyrk frá Sparisjóðnum
Suðurlandi, viðurkenningu fyrir fé-
lagsstörf auk sex verðlauna fyrir
námsárangur í einstökum greinum.
Þá fékk Sölvi Úlfsson fimm verðlaun
fyrir námsárangur í einstökum
greinum. Erla Björgheim Pálsdóttir
fékk viðurkenningu fyrir félagsstörf
auk verðlauna fyrir góðan árangur í
dönsku. Aðrir verðlaunahafar voru
þau Björn Unnar Valsson (tvenn
verðlaun), Ásdís Henný Pálsdóttir,
Garðar Már Garðarsson, Haukur
Herbert Thomasson, Ívar Áki
Hauksson, Jóna Harpa Gylfadóttir,
Kristrún Sif Kristinsdóttir, Tinna
Dröfn Sæmundsdóttir og Ýmir Sig-
urðsson.
Brautskráning frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Nemendur sem útskrifuðust úr Fjölbrautaskóla Suðurlands ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Selfoss
Sýning í
Hveragerð-
iskirkju
ÞORGERÐUR Sigurðardóttir sýnir
um þessar mundir í Hveragerðis-
kirkju 12 verk úr myndröðinni
„Krossar“. Verkin eru einþrykk af
tréplötum, en myndröðina tileinkar
listakonan 2.000 ára kristni í heim-
inum. Sýningin í Hveragerðiskirkju
er í tilefni af 30 ára vígsluafmæli
kirkjunnar, sem fagnað var 12. maí sl.
og stendur til 20. júní og er opin laug-
ardaga og sunnudaga milli kl. 14 og
16, eða eftir samkomulgi við kirkju-
vörð. Myndirnar eru allar til sölu.
Hvatinn að gerð krossamyndanna
er fornfrægur vegkross á hættuslóð í
Njarðvíkurskriðum í N-Múlasýslu
(„Naddakross“). Textinn á honum er
fyrripartur frægra hendinga.
NÝVERIÐ veitti íþrótta- og tóm-
stundaráð Fjarðabyggðar íþrótta-
mönnum í sveitarfélaginu við-
urkenningu fyrir afrek sín á árinu
2001. Alls voru ellefu íþróttamenn
frá fimm íþróttafélögum tilnefndir.
Það var landsliðskonan og blakari
til margra ára, Þorbjörg Ólöf Jóns-
dóttir, sem var útnefnd íþróttamað-
ur Fjarðabyggðar árið 2001.
Auk þess að hafa verið einn af
mikilvægustu leikmönnum kvenna-
liðs Þróttar í blaki á síðasta ári, var
hún eini íslenski blakarinn sem
hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir
frammistöðu sína með íslenska
kvennalandsliðinu í blaki á smá-
þjóðaleikunum á síðasta ári.
Við sama tækifæri afhenti Guð-
mundur Bjarnason, bæjarstjóri
Fjarðabyggðar, blakdeild Þróttar
veglegan styrk fyrir góðan árangur
á undanförnum árum. Eins og flest-
um er kunnugt hefur kvennalið
blakdeildar Þróttar unnið flesta þá
titla sem í boði hafa verið á Íslandi
undanfarin þrjú ár.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Landsliðskonan og blakarinn
Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir.
Íþróttamaður
Fjarðabyggð-
ar árið 2001
Neskaupstaður
MOLDARSLÓÐIN sem kallast
Dettifossvegur og liggur af þjóðvegi
1 á Austaribrekku niður að fossinum
og síðan áfram niður þjóðgarðinn og
tengist þjóðvegakerfinu aftur í
Kelduhverfi er lokuð enn þótt vetur
hér hafi verið snjóléttur. Þessu vilja
ekki allir trúa sem varla er von og
má hér sjá hvernig skilmerkilegar
leiðbeiningar Vegagerðarinnar eru
hunsaðar.
Mikill hugur er í ferðaþjónustuað-
ilum í Þingeyjarsýslum að fá á þess-
ari leið góðan heilsársveg enda telja
þeir að sá hringur sem þá opnast,
nefnilega Mývatnssveit, Dettifoss,
Ásbyrgi, Tjörnes, Húsavík, geti orð-
ið afar vinsæl ferðamannaleið á öll-
um árstímum, jafnvel gullhringur.
Reyndar eru þeir nær óteljandi sem
brjótast þessa leið yfir sumarið til að
berja fossinn augum, á misvelbúnum
bílum sem vanari eru hraðbrautum
Evrópu en því sem við Íslendingar
köllum fjallvegi.
Á síðasta ári voru lagðar 50 Mkr
til þessa vegar og lofað er öðru eins í
ár og næsta ár þannig að þá verða
150 Mkr til ráðstöfunar sem vænt-
anlega verður unnið fyrir 2003. Það
ætti að duga til að vegurinn á Aust-
aribrekku þurfi ekki að vera þjóðinni
til skammar mikið lengur. En til að
ljúka verkinu þarf töluvert meira fé
sem vonandi fæst á næstu árum,
væntanlega ekki síst vegna mikil-
vægis vegarins fyrir þjóðgarðinn í
Jökulsárgljúfrum með dyggum
stuðningi Náttúruverndar ríkisins
sem þar ræður ríkjum.
Dettifossvegur
er vissulega ófær
Mývatnssveit
Morgunblaðið/BFH
Lítil virðing er hér borin fyrir merkingum Vegagerðarinnar, en varla hefur bíll sá er skildi eftir þessi vegs-
ummerki átt ánægjulegan akstur á Dettifossvegi að þessu sinni.
EINU sinni á ári er haldinn svo-
kallaður hjóladagur á leikskól-
anum Undralandi á Flúðum. Koma
þá allir nemendur leikskólans með
hjól sín og það er hjólað og hjólað.
Á leikskólanum eru nú 54 börn
en þeim mun fara fjölgandi á
næstu árum. Það húsnæði sem not-
að hefur verið fyrir leikskólann á
undanförnum árum í íþróttahús-
inu er þröngt og svarar ekki leng-
ur kröfum tímans. Það hefur því
verið ákveðið að hefja byggingu
nýs leikskóla nú á næstu dögum.
Hann verður þriggja deilda leik-
skóli og verða 24 nemendur í
hverri deild. Lokið verður við
byggingu hans á næsta ári. Það
verður því drjúgur hópur af þeim
börnum sem stilltu sér upp fyrir
fréttaritara á hjóladaginn á dög-
unum sem koma til með að njóta
nýja skólans. Morgunblaðið/Sig. Sigmundsson
Hjólað
á hjóla-
daginn
Hrunamannahreppur
♦ ♦ ♦